Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIð! SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978 - * '’WB mmi mm mimi mum Mnai ‘®i®j'j£ Ljósm. RAX. SMÍÐI strætisvaKnabiðstöðvarinnar á Hlemmi er langt komin og hefur girðingin, sem umlukti bygginguna. verið tekin niður. Eftir er að innrétta húsið en þarna verða sem kunnugt er verzlanir og ýmis þjónusta fyrir strætisvagnafarþega. Eiga von á 50'þúsund gestum á bílasýninguna BÍLASÝNINGUNNI Auto ‘78 lýkur í kvöld kl. 22, en á föstudagskvöld voru gestir orðnir samtals milli 35 og 37 þúsund. Vilhjálmur Kjartansson frkvstj. sýningarinnar sagði að vonast væri til þess að aðsóknin færi upp í um 50 þúsund og var von á fertugasta þúsundasta gestinum í gær og yrðu þeir vonandi yfir 50 þúsund er yfir lyki. Vilhjálmur sagði ennfremur að mikið hefði verið af fólki utan af landi og svo yrði væntanlega um helgina einnig. 21-25% símnotenda greiða aldrei fyrir umframsímtöl EINS og skýrt heíur verið frá í Morgunblaðinu hækkar þjónusta Pósts og síma hinn í. maí næstkomandi um 14% að því er varðar póst, en að því er varðar síma hinn 20. apríl. Um mánaða- mótin janúar-febrúar varð hækkun á þessum gjöldum, sem nam 30%. og er því hækkunin frá 1. febrúar alls 48,2%. Morgunblaðið leitaði til Jóns Skúlasonar, póst- og símamála- stjóra, til þess að fá skýringar á þessari miklu hækkun. Jón sagði að þessi hækkun til Pósts og síma hefði ekki verið 30% í fyrra skiptið, þar sem taxtar í dreifbýli á stytztu langtínuleiðum hefðu verið lækkaðir um 100 milljónir króna, en þeim síðan dreift í heild á símnotendur, þannig að heildar- hækkunin, sem kom Pósti og síma til góða, var tveimur prósentum lægri eða 28%. Nemur þá hækkun- in, sem kemur Pósti og síma til góða, 45,9% frá 1. febrúar. Jón Skúlason sagði að fyrir- ferðarmikill útgjaldaliður símans væri launagreiðslur. Milli áranna 1976 og 1977 hækkuðu launa- greiðslur fyrirtækisins um 1,4 milljarða króna í 4,1 milljarða. Vörur og orka, sem keypt var, hækkaði um 113%, úr 265 milljón- um í 565 milljónir króna, keypt þjónusta hækkaði um 45% eða úr 670 í 977 milljónir króna. Á sama tíma hækkaði seld þjónusta pósts- ins úr 978 milljónum króna í 1.300 milljónir eða um 32,9% og fasta- gjöld síma hækkuðu um 40% úr 1,5 milljörðum í 2,1 milljarð, seld umframskref, skeyti og fleira hækkuðu úr 2,3 milljörðum í 2,8 milljarða eða um 21,7%. Rekstrar- gjöld símans hækkuðu úr 5,9 milljörðum króna í 8,9 milljarða króna eða um 49,9%. I Reykjavík og næsta nágrenni eru innifalin í fastagjaldi síma 300 skref, en 600 annars staðar á landinu. Jón Skúlason sagði að í Reykjavík notuðu 25% símnotenda símann svo lítið að þeir greiddu ekki umframskref, en á lands- byggðinni eru það 21% símnot- enda, sem ekki ná þessu marki, þ.e.a.s. að nota 600 skref. Jón kvað ekki sanngjarnt að. tala um að síminn hækkaði svo mikið, þegar stofnuninni væri gert að jafna gjaldskrám á milli landshluta. „Við eigum að standa undir okkar rekstri," sagði Jón Skúlason, „og okkar eigin fjárfestingu og eigum þar að auki að innheimta fyrir ríkissjóð söluskatt, sem fók telur vera símagjöld. Er það fimmta hver króna, sem fer til ríkisins. Samtals fékk ríkisvaldið um 1.200 til 1.300 milljónir króna vegna þjónustu Pósts og síma. Ef stofn- unin fengi að ráðstafa þessum tekjum, myndi það alveg rétta við fjárhag hennar." Jón Skúlason kvað stofnuninni gert að halda uppi ýmissi þjónustu, sem ekki væri arðbær. Sveitasímar kostuðu fyrirtækið 400 milljónir króna á ári í beinum útgjöldum, en hins vegar myndi kosta um 4 þúsund milljónir að breyta þeim í sjálfvirkan síma. Tap væri á strandstöðvaþjónust- unni, loftskeytaþjónustu við skip og tilkynningaskyldunni og póst- dreifing út um sveitir kostaði um 30 þúsund krónur á hvern sveita- bæ o.s.frv. Allt þetta yrðu símnot- endur að greiða. Að magni til væru dagblöð V5 af pósti út um land og burðargjald þeirra greiddi ekki dreifingarkostnaðinn. Jón Skúlason kvað Póst og síma hafa þurft að gera ýmsar sparn- aðarráðstafanir, loka fyrir ákveðna þjónustu, sem lítið væri notuð á laugardögum og sunnu- dögum. Kvað hann fólk sætta sig við þetta og ennfremur væri þetta mikið fagnaðarefni starfsfólks, sem vildi eiga frídaga eins og annað fólk. Sagði Jón, að takast ætti að spara með þessu um 300 milljónir króna til viðbótar, en samkvæmt fjárlögum nægja þau 14%, sem síminn og póstþjónustan hækka nú um, ekki til þess að endar nái saman. Myndabrengl Þau leiðu mistök urðu í Morgun- blaðinu í ga r. að í grein eftir dr. Braga Jósepsson um Snorra Sigfússon birtist mynd af Þór- arni Ilelgasyni og í bókmennta- gagnrýni Guðmundar G. Hagalín um bók Þórarins Helgason birtist mynd af Snorra Sigfússyni. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Snorri Sigfússon Þórarinn Helgason Eðlilegast að söluskatt- ur sé greiddur um leið og pemngamir koma inn „ÞAÐ ER ekki sanngjarnt, að ríkið eigi alltaf að vera frjálst og frítt og ávallt á lygnum sjó, en síðan sé öll áhættan hjá þeim, sem selur,“ sagði Gunnar Snorrason, formaður Kaup- mannasamtaka íslands, í gær, er Morgunblaðið bar undir hann þau Hreppsnefnd Borgarness ekki í V.M.S.S. í FRÉTT af viðra>ðuin Verka- mannasambands íslands og vinnuveitenda í Morgunhlaðinu í gær kom fram, að fulltrúar VMSÍ hefðu lýst furðu sinni á því, að Vinnumálasambandið hefði sýnt efnislega samstöðu með VSÍ, þar sem hreppsncfnd Borgarness hefði þá um svipað leyti og viðræðufundurinn stóð yíir geng- ið frá samningum við Verkalýðs- félag Borgarness um að bæta vísitöluskerðinguna, en varafor maður Vinnumálasambandsins er hreppsnefndarmaður í Borgar nesi. Morgunblaðið bar þetta undir Hallgrím Sigurðsson, formann Vinnumálasambands samvinnu- félaganna. Hallgrímur sagði að hann hefði skýrt frá því á fundinum, að hreppsnefnd Borgar- ness væri ekki aðili að Vinnumála- sambandinu, auk þess sem óljóst væri, hvort Olafur Sverrisson hefði á nokkurn hátt komið nálægt þessari samningsgerð. Um það kvaðst hann ekki vita, enda ekki fengið neitt um þessa samnings- gerð. Leiðrétting I frétt í Morgunhlaðinu í gær, þar sem sagt var frá komu Twin Ötter-vélar Vængja úr skoðun, var sagt að Islander-vél félagsins væri að fara í skoðun eftir tvær vikur, en hið rétta er að Islander-vélin kemur úr skoðun eftir tvær vikur. reglugerðarákvæði, sem gilda um innheimtu söluskatts, þegar um er að ræða afborgunarskilmála í viðskiptum. í frétt í Morgunblaðinu í gær — í viðtali við Garðar Valdimarsson, skattrannsóknastjóra — kemur fram að samkvæmt reglugerð eigi að skila söluskatti af viðskiptum strax og varan er afhent án tillits til þess, hvort kaupmaðurinn fær allt and- virði vörunnar eða hvort hann lánar í formi afborgana hluta söluverðs. Gunnar Snorrason sagði: „Innheimtuaðferð söluskatts hafa Kaupmannasamtökin alltaf mót- mælt á þeim forsendum, að skil séu nú orðin of ör. Krafa okkar er að við fáum að hafa söluskattinn lengur undir höndum. í stað þess að skila janúarsöluskatti fyrir 25. febrúar, vildum við skila honum fyrir 25. marz — þá verði eindagi fyrir janúar og svo koll af kolli. Fengi þá kaupmaðurinn að hafa hann mánuði lengur undir höndum en nú er. Ástæðan er, að sé um afborgunar- skilmála að ræða eða lánaviðskipti þá er von til þess að einhver hluti hins útgreidda söluskatts sé kominn til baka. Er það í hæsta máta óeðlilegt að greiddur sé söluskattur af allri upphæðinni, þegar húsgögn eða heimilistæki eru seld með afborgun. Getur þá verið svo að öll útborgunin færi í söluskattinn. Sé hins vegar um vanskil að ræða á hlutnum og hann alls ekki greiddur, þá er ekki nóg með að kaupmaðurinn tapi því sem hann lánar frá sjálfum sér, heldur tapar hann einnig því sem hann greiddi ríkinu. Kaupmenn innheimta söluskatt- inn fyrir ekki neitt, sagði Gunnar, leggja út vinnu og peninga við að innheimta hann, en óeðlilegt er að þeir þurfi einnig að leggja hann út fyrir viðskiptavininn. Hann kvað eðlilegast að greiddur yrði 20% söluskattur af útborgun og síðan 20% af hverri afborgun. Söluskattur sé greiddur af viðkomandi sölu um leið og peningarnir koma inn „en ekki að leggja út allan söluskattinn til þess að gera ríkið alveg frjálst og frítt og hafa það alltaf á lygnum sjó, en svo er öll áhættan hjá þeim sem selur. Þetta er að því er ég held skoðun okkar allra.“ „Ruddust inn í fyr- irtækið án leyfís í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um heimsókn fulltrúa frá Græn- höfðaeyjum. sem hér cru staddir til að kynna sér fslenzkan sjávar útveg, var sagt að þeim hafði verið varpað á dyr, er þeir ætluðu að skoða Vinnslustöðina í Eyjum. Stefán Runólfsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn- ar, sagði í gær, að þessir menn hefðu komið öllum að óvörum og án þess að biðja um leyfi til þess að fá að skoða fyrirtækið. Verk- stjórarnir hafa fyrirmæli um það frá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna, að ekki megi hleypa óviðkom- andi mönnum inn í húsin og allra sízt útlendingum. Var verkstjóran- um ekki kunnugt um, hvaða menn voru þarna á ferðinni. „Eg vil að það komi skýrt fram,“ sagði Stefán, „að þeir ruddust inn í fyrirtækið án þess að tala við nokkurn mann og biðja nokkurn um leyfi. Þeir hefðu verið boðnir velkomnir, ef þeir hefðu talað-við einhvern — en voru komnir inn — meira að segja með menn til að taka myndir og enginn verkstjóranna vissi, hverjir þarna voru á ferðinni. Þeir menn eru dónar, sem koma þannig án þess að hafa samband við nokkurn mann. Yfirleitt eru menn það kurteisir að þeir biðja um leyfi, en kannski telur Baldvin Gíslason skipstjóri, fylgdarmaður útlendinganna, sig yfir það hafinn?“ sagði Stefán Runólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.