Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 3 Sirkusfólkið: Á mótorhjóli á línu milli Hallgríms- kirkju og Iðnskóla Þingflokkur og miðstjórn komu saman til sameiginlegs fundar í Valhöll laust upp úr hádegi í gær til að ræða þau viðhorf, sem nú hafa skapast í íslenskum stjórnmálum í kjölfar kosninganna. Ljósm. Mbl., Kr.Ol., tók þessa mynd af fundinum. Húseigendafélag Reykjavíkur: Ný lög um erfðafjárskatt eru hrikaleg skattahækkun t BtGERÐ er að „Cimarro- bræðurnir“ en þeir tilheyra brezka sirkusnum, sem er að hef ja sýningar I Laugardalshöll á vegum Bandalags fsl. skáta, sýni úti undir beru lofti á fimmtudagskvöld. Skátar eru nú að vinna að þvf að fá leyfi til að strengja vfr milli Hallgrfms- kirkjuturns og turnsins á Iðn- skólanum, en bræðurnir ætla sfðan að aka á mótorhjóli eftir vfrnum og leika listir sfnar á honum. Morgunblaðinu var tjáð hjá Bandalagi fsl. skáta t gær, að miðasala á sirkusinn gengi mjög - vel. Þegar væri uppsclt f beztu sæti á flest allar sýningarnar, en nóg væri til af miðum I betri sæti og almenn sæti. Stærsti hluti sirkusfólksins er nú kominn til landsins og er að hefja uppsetningu á búnaði i Laugardalshöll. Mestur hluti af búnaði fólksins kemur þó ekki frá Englandi fyrr en f kvöld með sér- stakri flugvél og verður strax haf- ist handa við að koma honum upp, en áætlað er að einn sólarhring taki að koma búnaðinum fyrir. FYRIR stuttu var haldinn aðal- fundur Húseigendafélags Reykja- víkur og urðu á honum miklar umræður um nýsamþykkt lög um erfðafjárskatt. Segir í frétt frá félaginu að yfirlýstur tilgangur þeirrar lagasetningar hafi verið sá að lciðrétta erfðafjárskatt til Hestaþing á Murneyrum um helgina Hestamannafélögin Smári og Sleipnir halda um næstu helgi árlegt hestaþing sitt að Murneyrum á Skeiðum. Hefst hestaþingið á laugardag kl. 16 með keppni í íþróttagreinum og dómum gæðinga en á sunnudag hefst dagskráin með hópreið hestamanna inn á svæðið kl. 13 og að henni lokinni verður helgistund. Þá fara fram kapp- reiðar og lýst verður dómum gæðinga. Að sögn forsvarsmanna hestaþingsins verður margt lands- þekktra kappreiðahrossa. lækkunar, en vegna þeirrar margföldunar fasteignamats, sem í mörgum tilvikum hafi átt sér stað um síðustu áramót, hafi þessi tilraun mistekist hrapal- lega. „I stað lækkunar er hér um að ræða eina hrikalegustu skattahækkun sem um getur. Fundurinn samþykkti að fela stjórn félagsins að kanna mál þetta ofan í kjölinn og knýja á stjórnvöld um leiðréttingu þessara mistaka," segir í frétt frá félaginu. A aðalfundinum var flutt skýrsla stjórnar og kom þar m.a. fram að hátt á þriðja hundrað félagar hafa fengið lögfræðilega fyrirgreiðslu hjá framkvæmda- stjóra félagsins á liðnu ári, talsvert hafi verið leitað til félgsins varðandi ágreiningsefni sem risið hafi í samskiptum húseigenda og leigjenda og allmik- ið hafi verið um að húseigendur hafi leitað til félagsins í sambandi við viðskipti sín við hið opinbera t.d. skipulagsyfirvöld og fasteigna- mat. A fundinum kom fram að brýnasta mál félagsins er að hefja söfnun nýrra félaga til þess að Þingið endurspegl- ar aUvel þjóðarvilja LÍKLEGAST hefur þingmannatala stjórnmálaflokkanna á Alþingi aldrei skipzt jafn réttlátt miðað við atkvæðamagn á milli flokkanna og eftir kosningarnar síðastliðinn sunnudag. Ef ná ætti jöfnuði milli flokkanna, þannig að svo til jafnmörg atkvæði verði að baki hvers þingmanns, þyrfti að bæta við 6 þingmönnum. Alþýðuflokkur ætti þá að hafa 15 þingmenn, Framsóknarflokkur 12, Sjálfstæðisflokkur 23 og Alþýðubanda- lag 16 þingmenn. Ef menn hins vegar vildu skipta 60 þingmönnum á milli þeirra stjórnmálaflokka, sem kæmu til greina um þingmenn, fengi Alþýðuflokkur 14 þingmenn, Framsóknarflokkur 10, Sjálf- stæðisflokkur 20, Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna 2 þingmenh og Alþýðubandalag 14. Eina breytingin, sem fengist með þessari reikningsaðgerð yrði þá að Framsóknarflokkur- inn missti 2 þingmenn yfir til Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Að baki 14. manns á A-lista væru þá 1922 atkvæði, að baki 10. manns á B-lista 2033,5 atkvæði, að baki 20. manns D-lista 1.998,6 atkvæði, að baki 2. manns á F-lista 2.036,5 atkvæði og að baki 14. manns af G-lista 1.997 atkvæði. Kjördæmaskiptingin 1959 miðaði að því að réttlæta þingmannaskiptingu milli flokka, þannig að vilji þjóðar- innar speglaðist í tölu þing- manna hvers flokks. Hins vegar hefur hin síðustu misseri verið bent á misjafnt vægi atkvæða eftir því, hvar þau eru greidd á landinu. Það misræmi er áfram mikið milli einstakra kjördæma. Á það má þó benda, að í útreikningum, þar sem F-listinn tekur 2 menn af B-listanum er gert ráð fyrir því að öll atkvæði á landinu vegi jafn þungt. Misræmið er þá aðeins í því frá hvaða kjördæmum þingmenn koma, en við þá útreikninga yrði breyting á hverjir hefðu hlotið kosningu og hverjir ekki. auka starfsemi félagsins og gera hana öflugri. Formaður Húseigendafélags Reykjavíkur var kjörinn Páll S. Pálsson hæstaréttarlögmaður, en aðrir í stjórn eru: Alfreð Guðmundsson forstöðumaður, Guðmundur S. Karlsson skrif- stofustjóri, Lárus Halldórsson endurskoðandi og Páll Sigurðsson dósent. Framkvæmdastjóri félags- ins er Sigurður H. Guðjónsson. Lézt af völd- um bílslyss KONAN, sem slasaðist í bílslys- inu á Reykjanesbraut á móts við Kaplakrika í fyrradag, lézt á Borgarsjúkrahúsinu í fyrrinótt af völdum áverka þeirra er hún hlaut. Hún hét Jóhanna Jóhannesdóttir, til heimilis að Háteigsvegi 24 í Reykjavík. Jóhanna var 71 árs að aldri, fædd 2. ágúst 1907. Hún lætur eftir sig eiginmann og fjögur uppkomin börn. Jóhanna Jóhannesdóttir. ÍC FAG Kúlu- og rúllulegur m>] precision a Hjöruliðir TIMKEN Keilulegur ■jjj^ajjjjjjjjjjja^jg) Viftureimar Einnig eru tímareimar og tímakeðjur fáanlegar í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla. Stærsta sérverzlun landsins með legur, ásþétti, hjöruliði og skildar vörur. Sendum u land allt. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8. SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.