Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.06.1978, Blaðsíða 40
f í sérverzlun með \ litasjónvörp og hljómtæki. At'(»LYSIN(»ASIMINN ER: 22480 JH#rflnnbI«ötí) FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1978 Formennim- ir ræða í dag við forsetann FORSETI Islands, herra Kristján Eldjárn, mun í dag hefja ófurmlegar viðra'ður við formenn stjórnmálaflokkanna. Munu þeir hitta forsetann einn af öðrum í dag, fyrst forystu- maður stærsta fíokksins og siðast forystumaður hins minnsta. Klukkan 09.00 mun Geir Hall- grimsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, ræða við forsetann, þremur stundarfjórðungum sfð- ar Lúðvík Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins, cða klukk- an 09.45, þá Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, klukkan 10.30 og loks Ólafur Jóhannesson, formaður Fram- sóknarflokksins, klukkan 11.15. Viðræðurnar við forystumenn flokkanna eru óformlegar og könnunarviðræður. Að þeim loknum mun forsetinn taka ákvörðun um það hverjum hann felur tilraun til stjórnarmynd- unar. Ljósavatnshreppur: Sonurinn var kos- inn í misgripum fyrir föðurinn... MIKIL mistök, sem ekki var tekið eftir í tíma, áttu sér stað þegar kjörseðill fyrir hreppsnefndarkosn- ingar í Ljósavatnshreppi var prentaður, en þá misritaðist nafn efsta manns á öðrum listanum, þannig að nafn sonar í stað föður prentaðist. A seðlinum átti að standa nafn Baldvins Baldurssonar, en stóð Baldur Baldvinsson, en það er nafn sonar Bald- vins. Enginn tók eftir þessu fyrr en langt var liðið á kosningu og þá var lítt hægt að gera, og þegar talið var upp úr kjörköss- unum, kom í ljós að Baldur Baldvinsson var fyrsti maður í hreppsnefn. Hann hafði aldrei gefið kost á sér, en faðir hans, sem hafði í upphafi gefið kost á sér, var hvergi nefndur. ísland og Danmörk gerðu jafntefli í knattspyrnulandsleik á Laugardalsvelli í gærkvöldi 0:0. Myndin sýnir fyrirliða liðanna, þá Jóhannes Eðvaldsson og Henning Munk Jensen berjast um knöttinn í leiknum. Nánar á íþróttasíðum á bls. 31, 38 og 39. Talið líklegt að stór hluti þorsks sem fékkst í vetur við Grænland sé íslenzkur EINS OG Morgunblaðið skýrði frá í vetur, þá fékkst mjög góður þorskafli um tíma við V-Græn- land og eins við A-Grænland. Margir hér á landi leiddu að því getum að eitthvað af þorski frá Islandi hefði slæðst á þessi mið og væri því meðal ástæðna fyrir litlum afla við ísland. Nú er komið í Ijós, að líklegt er að svo sé að einhverju leyti, og búast menn við að ef þorskurinn við Grænland fær að lifa, geti farið svo að hann sæki á fslandsmið Framsókn um stjórn Alþýðubandalags og Alþýðuflokks: Býðst til að verja stjóm flokkanna vantrausti ÞRÍR stjórnmálaflokkar af fjórum, sem fulltrúa fengu kjörna á Alþingi, áttu fundi með sér í gær. Sameiginlegur fundur miðstjórnar og þingflokks Sjálf- stæðisflokksins átti fund, þing- flokkur Alþýðuflokksins hélt fund og loks var fundur í 1 ongflokki Framsóknarflokksins. inn síðastnefndi samþykkti yktun, þar sem segir að talið sé lilegt, að Alþýðuflokkur og Aiþýðubandalag myndi ríkis- stjórn og þegar málefnasamning- nr flokkanna liggi fyrir muni þingflokkur framsóknarmanna taka til athugunar, hvort hann geti veitt stjórninni hlutleysi og verði hana vantrausti. í dag mun ráðgeröur fundur með alþýðu- bandalagsmönnum. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kvað fundinn í gær hafa verið sameiginlegan fund miðstjórnar flokksins og þingflokks. Á fundinum voru viðhorfin í stjórnmálunum eftir kosningarnar rædd ítarlega með tilvísun til nýrrar stjórnarmynd- unar. Engin sérstök ályktun var samþykkt á fundinum og engin ákvörðun tekin. Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, kvað svo- hljóðandi ályktun hafa verið samþykkta samhljóða á þing- flokitsfundinum í gær: „Þingflokksfundur framsóknar- Ákært í manndrápsmáli RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á hendur Jennýju Grettisdóttur fyrir að hafa orðið Arelíusi Viggósyni að bana í húsi í Reykjavík í febrúar s.l. Málið var þingfest í sakadómi Reykjavíkur fyrir skömmu og verður væntanlega dæmt 1 því í haust. Málið munu dæma Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari og sakadómararnir Haraidur Henrysson og Sverrir Einarsson. Halldór er dómsformaður. Skattskráin um 20. júlí MORGUNBLAÐIÐ haíði í gær samband við Gest Steinþórsson skattstjóra í Reykjavík og spurði hann hvenær þess væri að vænta að skattskrá Reykjavíkur kæmi út. Sagði Gestur að búast mætti við að skráin kæmi út í kringum 20. júlí eða á svipuðum tíma og undanfarin ár. manna haldinn 28. júní ályktar: Miðað við kosningaúrslit telur fundurinn eðlilegt, að sigurvegar- ar kosninganna, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag, fái tækifæri til þess nú að mynda ríkisstjórn og framkvæma þau fyrirheit, sem þeirgáfu fyrir kosningar um lausn efnahagsmálanna. Þegar málefnasamningur þessara flokka liggur fyrir er Framhald á bls. 23 þegar hann verður kynþroska 1980—1981. Fiskurinn, sem hvað mest fékkst af við Grænland, er af árganginum frá 1973. Dr. Sigfús Schopka fiskifræð- ingur sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að þótt fréttir hefðu borizt um mikla þorskveiði við Grænland í vetur, væri það staðreynd að afli á sóknareiningu hefði ekki aukizt, hias vegar væri ljóst að af og til hefði afli verið mjög góður. „Við rannsóknir danskra fiski- fræðinga kom í ljós að 75% þess þorsks, sem þarna fékkst, var af árgangi frá 1973. Margir hafa velt því fyrir sér, hvort þessi fiskur sé frá Islandi, en enn sem komið er hefur enginn fiskur fengist, sem merktur er áður frá íslandsmið- um. Samkvæmt þessu er því ekkert sem bendir til að þessi þorskur sé íslenzkur að uppruna. Hins vegar kom í ljós við seiðarannsóknir á árinu 1973, að sá þorskárgangur virtist ætla að vera ákaflega stór. Á Dohrnbanka fundum við meira af þorskseiðum en við höfum nokkurn tíma fundið þar við seiðarannsóknir. Því er ekki ólíklegl að þessi seiði hafi hrakist fyrir straumi yfir að Framhald á bls. 23 Bankaábyrgð fyrir skreið ekki enn komin frá Nígeríu ÞÓ SVO að gengið hafi verið frá skrciðarsamningum við Nígeríu- menn um mánaðamótin aprfl-maí s.l. er ekkert af skreiðinni enn farið frá landinu. Bragi Eiríksson forstjóri Sam- lags skreiðarframleiðenda sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að bankaábyrgðir væru ekki enn komnar frá Nígeríu og ekki væri hægt að hugsa um að skipa skreiðinni út fyrr en þær væru komnar. Kvað Bragi að ekki væri ástæða til annars en að ætla að ábyrgðirnar kæmu bráðlega, en eins og kunnugt væri tæki sinn tíma að koma hlutunum í gegnum kerfið þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.