Morgunblaðið - 18.07.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1979
11
Öldruðu fólki
í Skagafirði
boðið í kaffi-
samsæti
Bœ, 16. júlí.
Sunnudaginn 15. þessa mánað-
ar bauð Kveníélagasamband
Skagafjarðar öllu öldruðu fólki
til til kaffidrykkju og fagnaðar í
Varmahlíð. Lionsklúbburinn
Höfði á Hofsósi tók þátt í ferða-
kostnaði fólksins. Svo dásamlega
vildi til að þessi dagur var ein-
hver hlýjasti og besti það sem af
er sumrinu. Nú er hins vegar
komið norðan slagveður aftur.
Fólkið fjölmennti svo vel að
félagsheimilið var þéttsetið en
samkomuna sóttu að minnsta
kosti þrjúhundruð manns. Allar
móttökur og veitingar voru af
rausn veittar og gestir skemmtu
sér með ágætum. Til samsætisins
var einnig boðið gestum frá
Reykjavík, sem nú dvelja á Löngu-
mýri. Létu þeir mjög vel af dvöl
sinni þar og höfðinglegu boði
kvenfélaganna að Varmahlíð. All-
ir voru á einu máli um að þetta
framtak kvenfélaganna væri til
fyrirmyndar og þakkarvert.
—Björn
Nýttritum
bókasafnsmál
Nýlega kom út í Reykjavík ritið
Fra Norrone skrifter til nordiske
forskningsbiblioteker, þar sem
birt eru erindi og umræður frá
þingi Sambands norrænna
rannsóknarbókavarða (Nordisk
videnskabeligt Bibliotekarfor-
bund), sem haldið var í Reykjavík
18.—23. júní 1978.
Á þinginu var m.a. fjallað um
menntunarmál bókavarða og tölvu-
notkun í rannsóknarbókasöfnum.
En aðalefni fundarins laut að skipu-
lagsmálum rannsóknarbókasafna á
Norðurlöndum. Birt er í heild langt
erindi, sem Morten Laursen Vig,
yfirbókavörður við háskólann í
Hróarskeldu, lagði fram. Þar gerir
hann úttekt á stöðu þessara mála á
Norðurlöndunum öllum og reifar
framtíðarhorfur í hverju landi fyrir
sig.
Birtir eru útdrættir úr umræðum
á þinginu, þ.á.m. álit starfshópa.
Þá er í ritinu yfirlitsgrein um
NORDINFO, norræna stofnun á
sviði rannsóknarbókasafna og
upplýsingaþjónustu, er tók til starfa
í ársbyrjun 1977.
Til fundarins voru sérstaklega
boðnir landsbókavörðurinn í
Færeyjum, Sverri Egholm, og lands-
bókavörðurinn í Grænlandi, Hans
Westermann, og eru birt í ritinu
erindi er þeir fluttu um bókasafns-
mál í sínum heimalöndum. Þetta er
í fyrsta skipti sem Færeyjar og
Grænland eiga fulltrúa á þingum
Sambands norænna rannsóknar-
bókavarða.
Loks er í ritinu listi um þátt-
takendur á þinginu, en þeir voru alls
um 130.
Fundartíðindin eru 220 blaðsíður
og prýdd mörgum myndum. Þau eru
gefin út á vegum Sambands
norrænna rannsóknarbókavarða,
undir ritstjórn Einars Sigurðssonar
og Helga Magnússonar.
Ritið fæst í Bóksölu stúdenta og
Bókaverslun Sigfúsar Eymundsson-
ar.
U (rr* e t WA.V
tx*hvrH**fwrv.gi>\
. mnn t*
T-uz
hovitme
swtílíe'i
iil
ftO’uiishe
S'o(misK viocKSKÁMii.mr msijoj i* «ar«K«..<><o
», MTOIRMSMOOÍ
RSVKjlAVtK U-«. JUW IM»
Vélakostur Húseininga er mjög fullkominn. Ljósmyndir Kristján
Magnússon.
Bezta auglýsingin
er fólkið sjálft
Sem hefur látið ákaflega vel af húsun-
um frá okkur, sagði Sigurður Hlöðvers-
son, tæknifræðingur hjá Húseiningum
„Söluskattslækkunin til sam-
ræmingar hinum hefbundna
byggingariðnaði hefur bætt
aðstöðu okkar verulega en þar
var mikið réttlætismál á ferð-
inni. Nú loks hefur okkur verið
sköpuð samkeppni á jafnréttis-
grundvelli. Þannig lækka hús
frá okkur um 6.33%. Tólf milljón
króna hús frá okkur, með sölu-
skatti inniföldum lækkar í lið-
lega 11.2 milljónir króna,“ sagði
Sigurður Hlöðversson, tækni-
fræðingur Húseininga hf. á
Siglufirði er blaðamönnum var
boðið að skoða verksmiðjuna.
Þar starfa nú um 38 manns og
húsrými verksmiðjunnar er lið-
lega 3 þúsund fermetrar.
Matthías Sveinsson, er gegnt
hefur framkvæmdastjórastöðu
Húseininga sfðastliðin fjögur ár,
hefur látið af störfum, tekið við
stöðu framkvæmdastjóra Stál-
víkur. En við framkvæmda-
stjórn Húseininga hefur tekið
Sigurður Kjartansson, bygg-
ingaverkfræðingur.
„Fyrirtækið hefur sífellt verið
að færa út framleiðslu sína. í
þeim einingum, sem við framleið-
um nú þá gefst kaupandanum á
milli 50 og 60 möguleikar á að
útfæra eigin byggingu. Fjöl-
breytnin er því mikil. Enda hefur
það sýnt sig að fólk kann ákaf-
Sperrur negldar saman f fullkomnum vélum.
lega vel að meta þessi hús og
okkar bezti auglýsandi er fólkið
sjálft sem býr í húsunum. Árið
1976 voru framleidd hér 22 hús.
Árið 1977 komst framleiðslan upp
í 32 hús, 40 árið 1978 og á þessu
ári munum við framleiða á milli
55 og 60 hús. Af þessu sést að
mikill stígandi hefur verið i
framleiðslunni hjá okkur og við
erum vel undir það búnir að taka
við þessari aukningu, þar sem
verksmiðjan er vel búin tækjum,
og við erum svo lánsöm hér að
hafa á að skipa úrvalsstarfs-
fólki,“ sagði Sigurður Hlöðvers-
son ennfremur.
„Samanburður verðs við hið
svokallaða vísitöluhús er okkur
ákaflega hagstætt. Þannig er
verð á einingahúsi frá okkur
fullfrágengin 27% lægra en verð
venjulegs steinhúss. Við erum
ákaflega stoltir af þessum
árangri og þessi hagstæði verð-
samanburður hefur ekki fengist
með því að spara efni. Síður en
svo, við leggjum mikinn metnað í
góða framleiðslu. Það sem gerir
okkar verð jafn hagstætt og raun
ber vitni, felst í góðri skipulagn-
ingu, góðum tækjum og starfs-
fólki,“ sagði Sigurður
Kjartansson, hinn nýi fram-
kvæmdastjóri Húseininga. „Þessi
verksmiðja hefur náð að festa
rætur undir stjórn þeirra
Sigurðar Hlöðverssonar og
Matthíasar Sveinssonar, sem nú
lætur af störfum," sagði Sigurður
Kjartansson ennfremur.
„Þegar ég kom hingað í upphafi
þá var spurningin að finna kaup-
endur. En húsin hafa nú sannað
ágæti sitt og þau auglýsa sig
þannig sjálf. Við sýndum á sínum
tíma tvö hús uppi í Steinaseli og
þangað komu 8 þúsund manns,
sem var alveg með ólíkindum. Og
upp úr því bárust til okkar 400
fyrirspurnir og fólk fékk senda
frá okkur sérstaka möppu, þar
sem hinir fjölbreytilegustu
möguleikar eru sýndir. Við erum
ákaflega stoltir af framleiðslu
okkar og það hefur sýnt sig að
einingahúsin hjá okkur þola mjög
vel íslenzka veðráttu — viðbrögð
kaupenda hafa sannað það,“ sagði
Matthías Sveinsson, fráfarandi
framkvæmdastjóri við blað^
menn.
Sigurður Kjartansson, hinn nýi framkvæmdastjóri Húseininga
tekur við lyklunum úr hendi Matthíasar Sveinssonar er nú hefur
tekið við framkvæmdastjórastöðu hjá Stálvík.
FIDELITY
Pantiö myndalista í síma 22600
SJÓNVAL
Vesturgötu 11 Reykjavík sími 22600
FIDELITY STEREO SAMSTÆÐAN
Sérstök hljómgæöi, hagstætt verö.
Innifaliö í veröum: Útvarp meö
FM-L-M-S bylgjum, plötu-
spilari, magnari, segul-
band og 2 hátalarar.
Gerö MC5
gerö MC 6 meö dolby kerfi
gerö 4-40
gerö 5-50 meö dolby kerfi