Morgunblaðið - 31.10.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979
29
JU
VELVAKANDI
SVARAR j SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MANUDEGI
öllum þeim öðrum dagskrárliðum
sem hverfa með vetrarkomunni.
Það er fjöldi fólks sem hefur
mikinn áhuga á kristinni trú og
það eru einnig margir sem einung-
is hlusta á trúarlega tónlist. Er
það til of mikils ætlast að við
fáum einn þátt í viku? Jazzunn-
endur fá tvo, poppunnendur fá
þátt á hverjum degi svo og unn-
endur klassískrar tónlistar.
Nú þegar útvarpið er búið að
kynna trúarlegu tónlistina er ekki
hægt fyrir forráðamenn þess að
ganga framhjá þeirri tegund tón-
listar, jafnvel þó að textarnir falli
ekki alveg að skoðunum þeirra.
Ég vona að dagskrárstjóri út-
varpsins taki þessi orð mín til
greina.'
María.
• Fiðlu-
snillingurinn
Schneiderhan
Dásamlegt var að hlusta á
fiðlusnillinginn Wolfgang
Schneiderhan um daginn. Af því
tilefni væri gaman að rifja upp
atvik frá því er hann kom í fyrsta
skipti til íslands, þá ellefu ára
gamall. Ekki kom þessi ungi
maður þá aleinn, heldur var með
honum hinn þekkti píanósnilling-
ur Klasen frá Austurríki.
Prófessor Klasen var ekki hár
vexti enda gekk hann alltaf á
háhæluðum stígvélum og sýndist
fyrir það hærri en hann var. Var
hann stundum mjög skemmtilegur
í viðmóti.
Schneiderhan og Klasen gistu á
Hótel Skjaldbreið í Kirkjustræti.
Þar var oft gripið í spil hjá
prófessornum og voru gestir hjá
honum Snjólaug Sigurðardóttir,
Þórdís Carlquist og fleiri.
Ekki þarf að fjölyrða um það, að
tónleikum unga fiðlarans og próf-
essorsins var tekið með mikilli
hrifningu. Kaj Bruun.
• Grafskrift
síðustu vinstri-
stjórnar
B.L. hringdi eftirfarandi vísu
til Velvakanda:
Yfir sára sollið haf,
sigldi tárum stokkin.
Uns í báru biksvart kaf,
bleikur nár var sokkinn.
• Konur í
stjórnmálum
Lára Pálsdóttir hringdi til
Velvakanda.
„Nú þegar kosningar eru að fara
í hönd virðist það mikið kappsmál
innan hvers flokks hvaða maður á
að skipa hvaða sæti á framboðs-
listum. Einingin virðist alls ekki
vera mikil og þó ættum við
íslendingar auðveldlega að geta
sameinast um að taka höndum
saman við að leysa það vandamál
sem við okkur blasir í þjóðfélag-
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á minningarmótum um Paul
Keres í'Tallin fyrr á þessu ári kom
þessi staða upp í skák stórmeist-
aranna Larry Mark Christian-
sens, Bandaríkjunum, og Rafaels
Vaganjan, Sovétríkjunum, sem
hafði svart og átti leik. Svartur
sem að vísu hefur manni meira
virðist nú eiga úr vöndu að ráða
þar sem hvítur hótar óþyrmilega
39. Hf7+ auk þess sem biskupinn á
f3 stendur í uppnámi.
38... Hf8! (Þannig valdar svartur
bæði f3 og f7 reitina og hrókurinn
á f8 er óbeint valdaður. 38.. Dd6
var hins vegar mjög slæmt vegna
39. Bf4! - gxf4, 40. Df7+ - Kh8,
41. Hf6)
39. Hxf8 - Dd6+, 40. Bf4 -
Dxf8,41. Dd3+ - Kh8, 42. Bd6 og
hvítur gafst upp um leið.
inu. Slíkt ætti að vera hagsmuna-
mál hvers og eins. En því er nú
ekki til að dreifa.
S.l. föstudag komu fjórar konur
fram í Kastljósi í sjónvarpi, þær
Björg Einarsdóttir, Jóhanna Sig-
urðardóttir, Dagbjört Höskulds-
dóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir.
Þessar konur sem voru hver úr
sínum stjórnmálaflokkinum virt-
ust allar vera sammála um rétt
kvenna. Þetta fannst mér vera
mjög áberandi. En ég er hins
vegar viss um það, að ef þarna
hefðu verið karlmenn á skjánum
hefðu þeir ekki getað setið á sér og
tekið hver sína syrpuna um
stjórnmálin og ágæti síns flokks."
HÖGNI HREKKVÍSI
,,beöt>l M/AÖ/Æ&X/ MAZK6!
83? SIGGA V/öGA É “Í/LVERAW
HEIMURINN ER
LIÐINN UNDIR LOK
uninn.
sem fremstar þykja í heir
Vertu viss að tækiö sem þú ka
kröfursem gerðarer
Veldu ITT — tæki sem þu
Bræðraborgarstíg 1. Sími 20080
(Gengið inn frá Vesturgötu)
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ÁUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480