Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 Breytingar á friðaða svæð- inu fyrir Norðausturlandi Hótel Hvolsvöllur Nýtt hótel á Hvolsvelli NÝTT hótel hefur risið á Hvols- velli, Hótel Hvolsvöllur. Er það búið 20 svefnherbergjum og getur hýst 30 manns. Þar er einnig setustofa og borðstofa fyrir rúmlega 30 manns en hana má jafnframt nota fyrir fundi og ráðstefnur. Síðustu sýn- ingar á Heim- ilisdraugum NÚ ERU aðeins eftir 3 sýningar á leikriti Böðvars Guðmundsson- ar „Heimilisdraugar“ sem sýnt er í Lindarbæ. Fyrirhugað er að ljúka sýningum á verkinu fyrir páska og verða þær sem hér segir: I kvöld, miðvikudaginn 26. mars, sunnudaginn 30. mars og þriðjudaginn 1. apríl; hefjast sýn- ingar kl. 20.30. Leikstjóri að sýningunni er Þórhildur Þorleifsdóttir en leik- mynd og búningar eftir Valgerði Bergsdóttur. Leikritið fjallar um basl ungra hjóna við að koma sér þaki yfir höfuðið og baráttu þeirra við „drauga“ kerfisins. Hótelið býður auk þess upp á veitingar. Þá mun hótelið útvega gestum hesta til útreiða ef óskað er og veiðileyfi í ám og vötnum. Hótel- stjóri er frú Halldóra Guð- mundsdóttir. Sjávarútvegsráðuneytið gaf í gær út reglugerð, sem breytir verulega mörkum svæðis fyrir Norðausturlandi þar sem veiðar með botnvörpu og flotvörpu hafa verið bannaðar síðan 1976. Samkvæmt reglugerð þessari, sem tekur gildi 1. apríl n.k. miðast ytri mörk svæðisins við 40 sjómílur frá viðmiðunarlínu 1 stað 70 sjó- mílna áður, austurmörk svæðisins markast af 81° réttvísandi frá Fonti í stað 90° áður, vesturmörk svæðisins verða nú 10° réttvísandi frá Hraunhafnartanga í stað 360° réttvísandi frá Rifstanga áður. (Sjá meðfylgjandi kort.) A tímabilinu frá 15. september til loka janúar eru þó veiðar með botn- og flot- vörpu bannaðar milli 360° réttvís- andi frá Rifstanga og 10° réttvís- andi frá Hraunhafnartanga út að 40 sjómílum frá viðmiðunarlínu. Reglugerð þessi er sett að tillögu Schamkovich steinlá fyrir Jóni BANDARÍSKI stórmeistarinn Schamkovich hefur ekki sótt gull í greipar Jóns L. Árnasonar og Margeirs Péturssonar á skákmót- inu í Lone Pine. Margeir Pétursson Jón L. Árnason í 6. umferðinni tapaði hann fyrir Margeiri í 23 leikjum og í 7. umferðinni tapaði hann fyrir Jóni í 22 leikjum. Schamkovich tefldi upp skák, sem þeir Kasparov og Poluga- evsky tefldu fyrir nokkru en hann ruglaðist í leikjaröðinni og tapaði heilum hrók og gafst þá upp. Margeir tefldi við bandaríska al- þjóðameistarann Peters og lauk skákinni með jafntefli. Geller og Larsen gerðu jafntefli og eru þeir efstir og jafnir með 5'/z vinning. Jón og Margeir hafa 4 vinninga. 0 INNLENT Sterkt íslandsþing SKÁKÞING íslands hefst á morgun með keppni í lands- liðs- og áskorendaflokki. Ljóst er að landsliðsflokkur- inn verður vel mannaður að þessu sinni. Meðal keppenda verða íslandsmeistarinn frá í fyrra, Ingvar Ásmundsson, al- þjóðlegu meistararnir Helgi Ólafsson og Haukur Angan- týsson og Ásgeir Þ. Árnason og Bragi Halldórsson. Stórmeist- ararnir Friðrik Ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson verða ekki með né alþjóðlegu meistararnir Jón L. Arnason og Margeir Pétursson. Hafrannsóknastofnunarinnar og að fenginni umsögn Fiskifélags íslands, en rannsóknir Hafrann- sóknastofnunarinnar hafa sýnt, að ekki er ástæða vegna smáþorsks að hafa þetta svæði algerlega friðað fyrir togveiðum, segir í frétt frá ráðuneytinu. Eftirlitsmenn ráðuneytisins og Hafrannsóknastofnunarinnar munu fylgjast vandlega með veið- um á þessu svæði og verður gripið til lokunar reynist fiskur á svæðinu smár. Naustir hf. fá 150 tonna dráttarbraut Húsavík, 25. marz. Á HÚSAVÍK er unnið að því að setja upp dráttarbraut, sem getur tekið í land allt að 150 tonna skip. Húsavíkurbær hefur keypt braut- ina sem verið hefur ónotuð á Skagaströnd og er ætlunin að hún verði komin upp á sumri komanda, en henni er ætiaður staður á Naustaf jöru. þar sem frá fyrstu tíð hefur verið aðalbátauppsátur Hús- víkinga, eða fyrir þá sem til staðhátta þekkja út og niður af Hallanda. Naustir hf., skipasmíðastöð, var stofnsett á Húsavík 1977 til að annast viðhald og viðgerðir á heimabátum. Var það hið þarfasta fyrirtæki fyrir staðinn. Með til- komu þessarar nýju dráttarbrautar aukast verkefni fyrirtækisins að mun og mun það þá geta veitt fleirum atvinnu en hingað til hefur verið hægt. Framkvæmdastjóri Nausta hf. er Þórður Haraldsson, skipasmiður frá Stykkishólmi. Fréttaritari Kynningarfundur um innhverfa ihugun Íslenska ihugunarfélagið gengst í kvöld fyrir kynningarfundi um inn- hverfa ihugun. Verða á fundinum kynntar niður- stöður rannsókna á aðgerð og árangri innhverfrar íhugunar, er birst hafa í ýmsum vísindaritum. Fyrirlesturinn verður fluttur í sal íslenzka íhugun- arfélagsins á Hverfisgötu 18 og hefst kl. 20.30. í framhaldi af fyrirlestrin- um geta þeir, sem þess óska, tekið þátt í nokkurra daga námskeiði og kynnst innhverfri íhugun. Kodak EKTRA 32 Með aðdráttarlinsu sem gefur skarpari og stærri myndir Verð kr. 32.570.— Þú tekur myndimar Leikandi létt meðKodak EKTRA vasamyndavél með handfangi Nú er leikur fyrir hvern og einn Kodak EKTRA 22 Tvær hraðastíllingar Verð 24.570.— að taka góðar myndir og festa á filmu augnablik sem aldrei koma aftur, en gott er að ylja sér við á komandi árum, — ef myndavélin var með í ferðinni. Kodak EKTRA 52 Með sjálfvirkum Ijósmæli. Verð kr. 43.920,— Einhver gerðin af EKTRA hlýtur að henta þér. HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI GLÆSIBÆ S:20313 S:82590 .Umboðsmenn um land allt AUSTURVERI S:36161 Kodak EKTRA12 Ein stilling Verókr. 18.790,—

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.