Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 Plnrgiwi Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. TJernaður Sovétmanna í AAAfganistan heldur áfram með sívaxandi þunga. Að undanförnu hafa borizt fregnir um, að Sovétmenn hafi sent liðs- auka til landsins og mikið magn af vopnum og öðr- um hergögnum. Þrátt fyrir ójafnan leik hafa Afganir ekki gefizt upp, heldur halda þeir barátt- unni áfram, og raunar hefur þeim tekizt að þjarma verulega að Sovét- mönnum. Ljóst er, að leppstjórn Sovétmanna í Kabúl hefur engin áhrif á landsmenn og að hermenn í stjórnarhernum í Kabúl hafa í stórum hópum gengið til liðs við frelsis- sveitir Afgana. Jafnvel hafa borizt fregnir um, að sovézkir hermenn, sem eru múhameðstrúar og ættaðir frá héruðum, sem liggja að Afganistan, hafi gengið til liðs við frelsis- sveitir Afgana. Upplýsingar hafa borizt um, að Sovétmenn hafi Þögnin fellt hálfa milljón Afgana í stríðsrekstri sínum þar. Þeir hafa gengið svo langt að beita vopnum gegn stúlkubörnum, sem hafa látið í ljósi vanþóknun sína á hernaðaraðgerðum sovézka hersins í landinu. Allar fregnir, sem berast frá Afganistan benda til þess, að Sovétmenn hygg- ist láta kné fylgja kviði og kúga Afgani til hlýðni. Sú spurning hlýtur að vakna, hversu lengi frelsissveitir Afgana halda út þessa baráttu gegn ofureflinu. Þjóðir heims mega ekki gleyma baráttunni, sem stendur yfir í Afganistan. Fyrri reynsla sýnir, að fólk er fljótt að gleyma og fyrnzt hefur yfir glæpa- verk Sovétmanna annars staðar, svo sem í Tékkó- slóvakíu, Ungverjalandi, Póllandi og A-Þýzkalandi, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Sovétmenn gera sér vonir um, að það sama muni gerast í Afganistan, að þeim muni takast að kúga þjóðina og innlima hana í Sovétríkin. Síðan munu þeir taka upp hefð- bundnar aðferðir að flytja fólkið í burtu frá Afgan- istan til annarra héraða í Sovétríkjunum og flytja fólk annars staðar frá til Afganistan. Að nokkrum árum liðnum verði allt gleymt og afganska þjóðin ekki lengur til. Þetta má ekki gerast en það mun gerast, nema þjóðir Vesturlanda haldi vöku sinni. Athyglisvert er, að sú vinstri sinnaða æska á Vesturlöndum, sem fór hamförum gegn hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna í Víet- nam, hefur ekki látið til sín heyra nú. Hér á landi eru ekki stofnaðar sér- stakar nefndir á vegum þessa fólks til þess að berjast gegn hernaðarað- gerðum Sovétmanna í Afganistan. Vinstri hóp- arnir hafa ekki að þessu sinni boðið talsmönnum frelsissveita í Afganistan til íslands til þess að kynna málstað Afgana. Þetta fólk skrifar ekki greinar í blöð eða lætur til sín heyra með öðrum hætti. Hvað veldur? Vinstri sinnar hér á ís- landi eru ekki einir um þetta. Nú berast ekki lengur fréttir um mót- mælagöngur í Svíþjóð með Olof Palme í broddi fylkingar. Hvað veldur? Nú berast ekki lengur fréttir um, að sænska ríkið leggi fram fjárhags- lega aðstoð við frelsis- sveitir Afgana. Hvað veldur? Nú berast ekki fregnir af baráttu Söru Lidman gegn innrás Sov- étmanna í Afganistan. Hvað veldur? Er þetta fólk, sem hefur talað sig betra fólk og friðarsinnaðra þeirrar skoðunar, að allt sé í bezta langi með innrás Sovét- manna í Afganistan? Svör við þessum spurningum fást ekki. En þögnin talar sínu máli og um hana þarf ekki að hafa mörg orð. Sú kynslóð sem nú er að koma til vits og ára, þarf að taka vel eftir því, hvað er að gerast í Afganistan og viðbrögðum fólks á Vesturlöndum við þeim atburðum. Vinstri hóp- arnir hafa afhjúpað sjálfa sig með þögninni og að- gerðarleysinu eftir innrás Sovétmanna í Afganistan. Var þessu kannski öllu stjórnað utan úr heimi hérna um árið? um Afganistan MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1980 1 7 Birgir Isl. Gunnarsson: Blekkingarhulu um f jármál borg- arinnar svipt frá S.l. fimmtudag afgreiddi borgarstjórn reikninga borgar- innar fyrir árið 1979. Þetta er reikningur yfir fyrsta heila fjárhagsárið, sem vinstri meiri- hlutinn ber ábyrgð á. Undan- farið hafa vinstri menn, með skipulögðum hætti, reynt að koma því inn hjá borgarbúum að þeir hafi unnið mikið verk í að bæta fjármálastöðu borgar- innar á þessu kjörtímabili. Hafa þeir gengið svo langt að tala um að þeir hafi þurft að „hreinsa til“ eftir stjórn sjálf- stæðismanna og í það hafi farið æði mikil orka. Þetta hafa vinstri menn endurtekið hver eftir öðrum minnugir þeirrar reynslu, að ef nógu margir endurtaki ósannindin nógu oft, þá fari fólk að trúa. Blekkingunni svipt af Reikningurinn, sem nú hefur verið lagður fram, sviptir blekkingarhulunni af þessum málflutningi. Þessi reikningur sýnir annað en þeir hafa viljað vera láta. Skulu nokkur ein- kenni hans rakin. Tekjur ársins 1979 hafa verið vanáætlaðar í fjárhagsáætlun um 2,6 milljarða. Það þýðir að vinstri meirihlutinn hefur haft úr þeirri fjárhæð að spila á árinu 1979 umfram fjárhags- áætlun. Það kemur til viðbótar þeirri miklu skattahækkun, sem vinstri meirihlutinn beitti sér fyrir, en í upphafi ársins 1979 hækkuðu þeir alla skatta eins og lög frekast leyfðu og munaði þar mestu um aðstöðu- gjaldið og fasteignaskattana. Þær skattahækkanir námu í fjárhagsáætlun um 1,7 millj- arð. Það eru gífulegar fjárhæð- ir, sem vinstri meirihlutinn hafði til ráðstöfunar umfram það, sem við sjálfstæðismenn höfðum. Skuldir aukast Hafa skuldir borgarsjóðs þá ekki minnkað á kjörtímabilinu? Þessi reikningur sýnir að það er aldeilis ekki. Þegar vinstri meirihlutinn tók við, þá var gerð nákvæm úttekt á fjár- hagsstöðu borgarinnar. Þá voru skuldir borgarsjóðs samtals 2,9 milljarðar, sem verða að teljast litlar skuldir, miðað við umsvif og eignir borgarinnar. Vinstri meirihlutinn gerði þó mikið úr þessum skuldum og hefur síðan reynt að telja borgarbúum trú um, að þeir væru í óða önn að greiða þessar skuldir niður. Hvað sýna þá þessir reikn- ingar? í árslok 1979 voru skuld- irnar komnar upp í 4,2 millj- arða. Skuldirnar hafa því auk- ist um 1,3 milljarða á þessu tímabili. Á borgarstjórnar- fundinum var reynt að afsaka þessa skuldaaukningu með því að hún væri í verðminni krón- um. Það er engin afsökun. Mergurinn málsins er sá, að vinstri mennirnir hafa reynt að blekkja borgarbúa. Þeir segjast hafa verið að greiða niður skuldir, en hafa gert það með því að taka ný lán, þannig að heildarskuldirnar hafa vaxið. Ekki hefur greiðslu- staðan batnað Hvað um greiðslustöðuna? Þegar vinstri meirihlutinn tók við, reyndu þeir að rangtúlka úttekt þá sem gerð var og telja borgarbúum trú um að hún væri afleit. Það töldum við sjálfstæðismenn vera rangt. Við sýndum fram á að veltu- fjárstaðan var góð. Hlutfall á milli veltufjármuna og skamm- tímaskulda væri betra en al- mennt gerðist hjá fyrirtækjum. Þann 1.1. 1978 var þetta hlut- fall 3,22. Þann 30.6 1978 var það 2,99, en í árslok 1979 var það 3,17. Það hefur því heldur versnað frá ársbyrjun 1978. Rétt er að taka fram, að þetta er reiknað á sambærilegan hátt öll þessi tímabil. Þeirra eigin aðferð Þegar við sýndum fram á góða veltufjárstöðu í upphafi kjörtímabils, þá sögðu vinstri flokkarnir: Þetta er ekkert að marka og í sérstakri yfirlýs- ingu til blaðanna sagði m.a.: „Meirihluti borgarráðs telur, að við mat á greiðslustöðu borgarsjóðs verði að gera sér grein fyrir því, hver lausafjár- staða borgarinnar var í júnílok s.l., þ.e. getu borgarsjóðs til að inna af hendi á réttum tíma þær greiðslur, sem á hann falla. í greinargerð Ólafs Nilssonar kemur fram, að handbært reiðufé, eða kvikir veltufjár- munir, nam í lok júnímánaðar alls 112 millj. kr., en skamm- tímaskuldir námu alls 2.341 millj. kr. Handbært fé nam því í júnílok s.l. aðeins 4,8% af skammtímaskuldum." En hvernig kemur dæmið út, ef þeirra eigin aðferðum er beitt? Handbært fé í árslok 1979 nam aðeins 3,7% af skammtímaskuldum. Sú aðferð, sem vinstri flokkarnir töldu hina einu réttu til að meta fjárhagsstöðuna, þegar skipt var um meirihluta, sýnir að fjárhagsstaðan hefur versnað á þessum tíma. Fjárvöntun bætt með aukn- um sköttum Þessir reikningar, sem borg- arstjórn hefur nú haft til með- ferðar sýnir að þjóðsagan um betri fjármálastjórn er fals eitt. Þvert á móti hefur stöðugt hallað á ógæfuhliðina í fjár- málum borgarinnar. Það hefur hinsvegar verið dulið, annars vegar með stöðugt auknum sköttum og álögum til að dylja fjárvöntunina og hins vegar með digurbarkalegum yfirlýs- ingum, sem nú hafa fallið um sjálft sig, þegar reikningar eru skoðaðir. j Reykjavíkurbréf *»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 21. júní••♦♦♦••♦♦< Stefna og störf ríkis- stjórnarinnar Ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsens hefur setið við völd í tæpa fimm mánuði og á þessum tíma verður að ætla, að stefna og vinnubrögð stjórnarinnar hafi komið nægilega vel fram til þess að hægt sé að leggja á hana nokkurn dóm. Á þessu tímabili hefur stjórnin orðið að kljást við ríkisfjármál, skattamál, launa- mál, fiskverð og gengismál, þ.e. alla meginþætti efnahagsmála og hefur þrátt fyrir allt haft nægi- legt svigrúm til þess að takast á við þessi vandamál á þann hátt, að telja verður að stefna stjórnarinn- ar í þessum efnum sé komin í þann farveg, sem ráðherrar vilja beina henni. Niðurstaðan af þessum tæpum fimm mánuðum er sú, að hér er á ferðinni íhaldssöm stjórn en ekki umbótastjórn, ríkisstjórn, sem miðar að því að fleyta þjóðarbúinu áfram frá einu þriggja mánaða tímabili til annars, án þess að láta skerast í odda eða takast á við aðsteðjandi vanda að nokkru marki, ríkisstjórn, sem beitir bráðabirgðaráðstöfunum, en hefur ekki sýnilegan áhuga á að brjóta blað. í stuttu máli er hér á ferðinni hefðbundin vinstri stjórn, eins og við var að búast vegna þess, að sjálfstæðismennirnir, sem í ríkisstjórninni sitja, hafa engan þann styrk á bak við sig, að dugi þeim til þess að beina starfi ríkisstjórnar af þessu tagi inn á nýjar brautir. Þeir munu vafa- laust líta svo á, að styrkur þeirra sé fólginn í almennum stuðningi við stjórnarmyndunina í upphafi, en enginn veit það betur en einmitt núverandi forsætisráð- herra, að í stjórnmálum er lítið sem ekkert að byggja á stundar- vinsældum, sem hverfa fyrr en varir, eins og ráðherrar eru áreið- anlega byrjaðir að finna. Ríkisstjórn, sem byggir fyrst og fremst á Framsóknarflokki og Alþýðubandalagi getur aldrei orð- ið annað en íhaldssöm og þröng- sýn stjórn. Ástæðan er sú, að þessir tveir flokkar eru mestir afturhaldsflokkar í íslenzkum stjórnmálum í dag, forystumenn þeirra eru íhaldssömustu stjórn- málaleiðtogar þjóðarinnar um þessar mundir og hafa hvorki kjark til þess að brjóta rtýjar brautir né þá framtíðarsýn, sem til þess þarf. Andstæðurnar innan Alþýðubandalagsins eru slíkar, að sá flokkur getur ekki átt aðild að ríkisstjórn, sem reynir að brjótast út úr þeim vítahring, sem þjóðlíf okkar allt er komið í. Ríkis- fjármálin Líklega eru ríkisfjármálin veigamesti þáttur í stjórn efna- hagsmála okkar um þessar mund- ir. Þar verður að byrja, ef gera á tilraun til þess að brjóta blað í efnahags- og fjármálum þjóðar- innar. Það er löngu orðið ljóst, að við erum komin í sömu aðstöðu og flestar aðrar þjóðir í hinum vest- ræna heimi, að vaxtarskeiðið er á enda og við höfum ekki lengur efni á því að þenja ríkisbáknið út, eins og við höfum gert á undanförnum áratugum. Þarna verður að byrja. Almenn- ingur í landinu, launþegar, ellilíf- eyrisþegar, atvinnurekendur, stjórnendur atvinnufyrirtækja, verða ekki reiðubúnir til þess að taka á sig það sem að þeim snýr til þess að endurreisa efnahag ís- lenzku þjóðarinnar, nema stjórn- málamenn og embættismenn og það kerfi, sem þessir aðilar hafa byggt upp í kringum sig, sýni það í verki fyrst, að þeir vilji gera hreint fyrir sínum dyrum. Um leið og sú forysta hefur verið sýnd á opinberum vettvangi af stjórn- málamönnum og embættismönn- um mun ekki standa á öðrum. En opinbera kerfið verður að gera sér grein fyrir því, að fólk mun ekki hlusta á yfiriýsingar forystu- manna þjóðarinnar um vandamál- in og afleiðingar þeirra, ef stjórn- málamenn og embættismenn ganga ekki á undan með góðu fordæmi. Þjóðin hefur ekki lengur efni á að veita sér þann munað, sem opinbera kerfið og sú þjónusta sem það veitir er orðin. Þess vegna er samdráttur á þessu sviði óhjákvæmilegur. Hann mun koma niður með einhverjum hætti. Framkvæmdir verða minni í hin- um ýmsu byggðarlögum, þjónust- an verður takmörkuð, opinberum starfsmönnum hættir að fjölga og þeir verða að sæta því að sitja við sama borð í ýmsum kjörum og aðrir launþegar. Þessu fylgir stórkostleg pólitísk áhætta fyrir þá, sem vilja beita sér að þessu verkefni. Sagt verður, að opinberir starfsmenn séu orðnir svo margir, að sá flokkur eða þeir flokkar, sem taki að sér að skerða umsvif þess opinbera, tapi atkvæðum. Þetta er fáránlegur hræðsluáróður. Opin- berir starfsmenn eru líka almenn- ingur í landinu. Þeir eru líka skattgreiðendur. Hinir almennu starfsmenn hins opinbera eiga við öll sömu vandamál að stríða og aðrir launþegar. Það er ekki minna í húfi fyrir þá en aðra að takast megi að takmarka kostnað skattborgaranna af opinbera kerf- inu. Það verður líka sagt, að hagsmunir byggðarlaganna í sam- bandi við margvíslegar fram- kvæmdir séu svo miklir, að þeir muni tapa atkvæðum, sem skerði þessa hagsmuni. Þetta er líka hræðsluáróður. Fólkið í hinum einstöku byggðarlögum á við öll sömu vandamál að etja og skatt- greiðendur almennt. Með sama hætti og aðrir, horfir það agndofa og hjálparlaust á það, hvernig seilzt er dýpra og dýpra ofan í vasa þess til þess að seðja, að því er virðist, botnlausa hít opinbera kerfisins. Fólkið í hinum einstöku byggðarlögum mun virða þá menn, sem sýna, að þeir hafa kjark til þess að snúa þessari þróun við. Núverandi ríkisstjorn hefur það ekki. Vissulega hafði ríkisstjórnin takmarkaðan tíma til þess að afgreiða fjárlög. En það má ekki gleyma því, að búið var að leggja mikla vinnu í fjárlagagerðina frá því sumarið 1979 og þess vegna gat ríkisstjórnin slegið tóninn, ef svo má segja, gefið í fjárlagaaf- greiðslu vísbendingu um, að hverju hún stefndi, og það gerði hún. Stefna núverandi ríkisstjórn- ar í ríkisfjármálum er nákvæm- lega sú sama og fyrri vinstri stjórna á síðasta áratug. Stefnan er sú að auka útgjöld ríkisins og Frá 17. júni hátiðahöldum i Kúpavogi. hækka skatta til þess að standa undir þeim. Alþýðubandalags- menn ganga jafnvel svo langt, að þeir eru opinberlega farnir að krefjast aukinna útgjalda ríkisins og aukinnar skattheimtu. Þetta sýnir, að núverandi ríkis- stjórn er afturhaldssöm stjórn í ríkisfjármálum, hún mun ekki brjóta blað, hún mun ekki takast á við þann vanda að takmarka opinber umsvif, þess vegna er hún afturhaldssöm stjórn en ekki um- bótastjórn. Af þessum sömu ástæðum hefur hún enga mögu- leika á að ná árangri á öðrum sviðum efnahagsmála. Skattheimtan Ríkisstjórnin hefur líka á þess- um fimm mánuðum sýnt, að hverju hún stefnir í skattamálum. Hún stefnir að því að hækka skatta. Hún hefur hækkað skatta á almenningi og hún skattpínir fyrirtækin. Skattpíningin er nú komin á það stig á Islandi, að skattsvik munu áreiðanlega stór- aukast. Áður en Viðreisnarstjórn- in tók við völdum haustið 1959 voru skattsvik útbreiddur þjóðar- löstur. En Viðreisnarstjórnin beitti sér fyrir slíkum breytingum á skattalöggjöfinni, að skattborg- ararnir komust að þeirri niður- stöðu, að óþarft væri að svíkja undan skatti, skattheimtan væri sanngjörn. Viðreisnarstjórnin var umbótastjórn í skattamálum. Og áreiðanlega hefur það verið svo, að með því að lækka skatta en tryggja réttari skattaframtöl, hef- ur henni í raun tekizt að auka skattatekjur ríkissjóðs. Þá var Gunnar Thoroddsen fjármálaráð- herra og hafði sem slíkur forystu um að koma fram þessum breyt- ingum á skattalögunum, sem Við- reisnarstjórnin í heild stóð að sjálfsögðu að. Það er því ömurlegt hlutskipti fyrir Gunnar Thorodd- sen nú að veita forstöðu ríkis- stjórn, sem vinnur skipulega að því að eyðileggja þann árangur, sem hann og félagar hans í Viðreisnarstjórninni náðu í skattamálum á þeim árum. Nú má ganga út frá því sem vísu, að skattsvik eru að aukast. Fólk mun leita allra hugsanlegra leiða til þess að svíkja undan skatti og telja það sjálfsagt. Þegar svo er komið, að það skiptir engu máli, hvaða tekjur menn hafa, skattaprósentan er orðin svo há, að frá mánudagsmorgni til kl. 10 á fimmtudagsmorgni, vinna menn fyrir Ragnar Arnalds og ríkissjóð, en frá kl. 10 á fimmtudegi þar til síðdegis á föstudegi fyrir sjálfa sig, má búast við víðtækum skattsvikum. Þegar svo er komið, að t.d. ekkjur, sem standa uppi með húseign, sem er afrakstur ævistarfs hjóna, hafa ekki efni á því að halda þeim húseignum vegna þess, að fasteignaskattar og eignaskattar eru orðnir svo háir, að eftirlaun standa ekki lengur undir þeim kostnaði, búum við í ranglátu þjóðfélagi. Þegar svo er komið, að skattpíning atvinnufyr- irtækjanna er orðin slík, að þau eiga ekki annan kost en draga saman seglin, segja upp starfs- fólki og jafnvel loka, erum við á rangri braut. En þetta er sú braut, sem núverandi ríkisstjórn fetar. Og hún fer lengra og lengra út í þetta fen. Þetta er stefna, sem er í andstöðu við vilja almennings í landinu. Sjálfstæðismenn í ríkis- stjórninni hljóta að gera sér grein fyrir því, að þetta er stefna, sem er í andstöðu við stefnu Sjálfstæð- isflokksins. Þetta er stefna, sem leiðir til ófarnaðar og meðan skattamálin eru ekki tekin öðrum tökum, mun enginn árangur nást á öðrum sviðum efnahagsmála. Víta- hringurinn Hinn 1. júní sl. varð öll þjóðin vitni að því, hvernig vítahringur- inn virkar. Þá hækkuðu öll laun í landinu um 11,7% vegna þess, að framfærsluvísitalan hafði hækkað um rúm 13%. í kjölfarið á þessari launahækkun var fiskverð hækkað um 11,7%, að sjálfsögðu til þess að tryggja sjómönnum sömu launa- hækkun og öðrum launþegum í landinu. A sama tíma og fisk- vinnslunni var gert að greiða hærra fiskverð hér heima fyrir, bárust fregnir frá Bandaríkjunum um að fiskverð væri ýmist að lækka þar á einstökum fiskteg- undum, eða svo mikil sölutregða væri á mörkuðum okkar þar, að fiskurinn seldist ekki og birgða- geymslur væru að fyllast. Hvernig er hægt að hækka fiskverð hér heima, þegar það lækkar á mörkuðum okkar og fiskurinn selst ekki? Það er auð- vitað ekki hægt og það veit hvert mannsbarn í landinu. Hér er á ferðinni sá vítahringur, sem eng- inn stjórnmálamaður hefur þorað að snerta við„ síðan Geir Hall- grímsson gerði tilraun til þess að rjúfa hann í febrúar 1978, með þeim árangri að efnt var til almenns samblásturs gegn honum með samfylkingu stjórnmála- flokka og almannasamtaka. Nú- verandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir því í kjölfar fisk- verðshækkunar, að láta gengið síga enn frekar. Þetta vita ráð- herrarnir mæta vel, þótt Stein- grímur Hermannsson sé sá eini, sem segir það opinberlega. Næstu vikur og mánuði mun gengið síga, framfærsluvísitalan hækkar, og 1. september hækkar kaupgjaldsvísi- talan enn, og fiskverðið í kjölfarið á henni, og svo koll af kolli. Ætlar ríkisstjórnin að rjúfa þennan vítahring? Steingrímur Hermannsson hefur sagt, að verði 1. júní látinn endurtaka sig 1. september, sé stjórnin komin upp að vegg. Þetta er rangt hjá formanni Framsóknarflokksins. Ríkisstjórnin er nú þegar komin upp að vegg. Og hvað ætlar hún að gera 1. september? Ætli hún að rjúfa þennan vítahring, á hún engan annan kost en að taka upp í einni eða annarri mynd lagasetn- ingu Geirs Hallgrímssonar frá því veturinn 1978. Ætli Alþýðubanda- lagið verði tilbúið til þess? Það verður fróðlegt að fylgjast með því. Kjarni málsins er auðvitað sá, að ríkisstjórn, sem þorir ekki að takast á við þennan vítahring og rjúfa hann, hefur enga möguleika á að ná nokkrum árangri og mun gefast upp fyrr en síðar. Höfundur þessa Reykjavíkurbréfs spurði Geir Hallgrímsson um það í janú- ar 1978, þegar þáverandi forsætis- ráðherra íhugaði með hvaða hætti ríkisstjórn og Alþingi ættu að grípa inn í þennan vitahring, til þess að rjúfa hann, hvers vegna í ósköpunum hann vildi kalla yfir sig og ríkisstjórn sína nokkrum mánuðum fyrir kosningar, þann stórfellda vanda, sem fylgja mundi í kjölfar óvinsælla ráðstaf- ana af þessu tagi. Svar Geirs Hallgrímssonar var það, að hann vildi frekar gera skyldu sína sem forsætisráðherra og falla í kosn- ingum en reyna að fleyta málum fram, fram yfir kosningar og grípa þá til nauðsynlegra ráðstaf- ana. Þeir íslenzkir stjórnmála- menn eru ekki margir í dag, sem hefðu farið að með sama hætti. Enda hefur formaður Sjálfstæðis- flokksins orðið fyrir meira aðkasti síðustu tvö árin en nokkur annar íslenzkur stjórnmálamaður um langt árabil. Eftir stendur sú staðreynd, að frá því að viðreisn- artímabilinu lauk, er Geir Hall- grímsson eini íslenzki stjórnmála- maðurinn, sem hefur haft kjark til þess að reyna að snúa blaðinu við. Sú tilraun mistókst — en hún var gerð og það skiptir nokkru máli. Það þýðir ekki, að ný tilraun muni mistakast, en hún verður áreiðan- lega ekki gerð af núverandi ríkis- stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.