Morgunblaðið - 17.10.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 17.10.1981, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 2 Bankamenn á sáttafundi og bókagerðar- menn boðaðir Matthías Andrésson tollvörður: Reita af mér æruna þegar ekki tekst að bola mér úr starfi Líkin flutt vestur um haf LÍK Kandaríkjamannanna átta, sem fundust á Mýrdalsjökli um síðustu helgi, voru flutt til Bandaríkjanna í morgun. Séra Thomas Bendum flutti stutta bæn. Heiðursvörður var við flugvélina þegar kisturnar voru bornar um borð. Nýja sfldarverðið: Samþykkt kaupenda bygg- ist á loforði ráðherra um , a iuiui ui i auiivi i c* að útvega 1. millj. kr. í Verðjöfnunarsjói „ÞESSIR menn hafa verið á eftir mér og eru að reyna að bola mér úr starfi. Þegar það tekst ekki, þá skulu þeir reita af mér æruna. Eg verð náttúrlega að verja mig og get það ekki með því að fara að gefa fjölmiðum þær upplýs- ingar, sem ég þarf að nota í rann- sókninni sem mér er hótað,“ sagði Matthías Andrésson toll- vörður, er Mbl. bar undir hann þær yfirlýsingar sem komið hafa fram, m.a. í utandagskrárumræð- um í sameinuðu Alþingi, í sam- bandi við starf hans í Tollvöru- geymslunni, óskir yfirmanna hans um að honum yrði vikið úr starfi, og hverjar nánari skýr ingar hans væru á yfirlýsingum hans um að yfirmenn hans teldu hann vinna starf sitt of vel, þ.e. hafa upplýst smygl, sem ekki átti að komast upp. Eins og komið hefur fram í fréttum ákvað fjármálaráð- herra að fara eigi að óskum yf irmanna Matthíasar um að víkja honum samstundis og án fyrirvara úr starfi. Hann lét GEIK Gígja, náttúrufræðingur er lát- inn og hefur jarðarlor hans farið fram í kyrrþey að ósk hans sjálfs. Geir var þjóðkunnur fyrir störf sín að náttúru- fræðum, var sérfræðingur í skordýra- fræðum. Geir Kristjánsson Gígja var fæddur að Hnjúki í Vatnsdal hinn 5. þess í stað flytja Matthías til tollvarðarstarfa í Hafnarfirði. Aðspurður sagði Matthías að hann kynni ágætlega við sig á nýja staðnum og taldi að þar gæti orðið nóg að gera. „Það hefur oft verið tekið mikið smygl í Hafnarfirði og engin vanþörf á að þar sé skipaeftir- lit. Það hefur sýnt sig undan- farin ár,“ sagði hann. „VIÐ GETUM ekki verið annað en ánægðir, því við fengum það sem við nóvember 1898 og var því tæplega 83ja ára er hann lézt. Foreldrar hans voru Kristján Magnússon, kennari að Kornsá í Vatnsdal, og víðar, og kona hans, Sigríður Jósefsdóttir. Geir ólst upp hjá Bjrni Leví Guð- mundssyni og konu hans, Þorbjörgu Helgadóttur, á Marðarnúpi í Vatnsdal og átti þar heima til 25 ára aldurs. Geir Gtgja tók kennarapróf 1923, en las síðan náttúrufræði með skordýrafræði sem aðalgrein í Kaup- mannahöfn. Hann kenndi mjög víða og tók virkan þátt í félagsmálum náttúrufræðinga. Arið 1978 varð hann heiðursfélagi Félags íslenzkra náttúrufræðinga. Geir flutti fjöl- mörgerindi í Ríkisútvarpið um nátt- úrufræðileg efni. Þá var hann á yngri árum virkur íþróttamaður. Eftir Geir Gígja liggur mikið af rit- um um íslenzka náttúru. Geir Gígja var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Kristjana Gísladóttir og eignuðust þau 6 börn. Þau skildu. Síðari kona Geirs var Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, kennari, og eignuðust þau 4 börn. fórum fram á, 30% hækkun síldar verðs frá síðustu vertíð," sagði Jón- as Jakobsson stýrimaður á Skúm frá Keflavík, eftir að Verðlagsráð sjáv- arútvegsins hafði ákveðið nýtt verð á síld í gærmorgun, en Jónas var fulltrúi í nefnd þeirri er sjómenn kusu á Eskifirði á föstudag í sl. viku til viðræðna við stjórnvöld. Verðlagsráðið byrjaði á fundi kl. 17 í fyrradag um nýja síldarverðið og var á fundi fram til kl. 01 í gær- morgun og síðan hófst fundur að nýju kl. 09 og var lokið við verð- ákvörðunina fyrir hádegi. Sam- komulag varð um lágmarksverð á síld til söltunar og á það að gilda frá byrjun vertíðar til 31. desember nk., en kaupendur síldar létu bóka, að þeirra samþykki byggðist á loforði sjávarútvegsráðherra um að salt- síldardeild Verðjöfnunarsjóðs verði útveguð 1 millj. kr. umfram inni- stæðu í sjóðnum, sem nú er 1,6 millj. kr. fyrir utan vexti ársins. Hið nýja lágmarksverð á síld er: 1. súd, 32 cm og sUerri, hvert kg. kr. 2,52 2. síld, 29 cm að 32 cm, hvert kg. kr. 1,71 3. sfld, 27 cm að 29 cm, hvert kg. kr. 1,21 4. sfld, 25 cm að 27 cm, hvert kg. kr. 1,04. Stærðarflokkun og gæðamat á að framkvæmast af Framleiðslueftirliti sjávarafurða og er verðið miðað við síldina komna á flutningstæki við hlið veiðiskips, og á síldin að vera íslaus. Þá segir að vegna breyttrar stærð- arflokkunar skuli sú síld, sem lögð hefur verið á land frá upphafi síldar- vertíðar til 16. október greiðast þannig, að 'A hluti þeirrar síldar, sem fallið hefur í 2. stærðarflokk greiðist á verði 1. stærðarflokks og '/á hluti af 3. stærðarflokki greiðist á verði 2. stærðarflokks. í frétt Verðlagsráðsins segir, að þar sem upplýsingar um stærðar- flokka á síld hafi reynst rangar við fyrri verðákvörðun og þar sem skipt- ing síldar í stærðarflokka sé ein af meginforsendunum fyrir ákvörðun verðs á síld, telji deildin að forsend- ur fyrir verðákvörðun yfirnefndar séu brostnar að þessu leyti og álykti því að taka verðákvörðunina upp að nýju. Morgunblaðinu er kunnugt um að fulltrúar síldarkaupenda í Verð- lagsráðinu létu gera bókun um sam- þykki sitt fyrir nýju verðákvörðun- inni. Segir þar m.a. að verðhækkun umfram stærðarflokkabreytingu byggist á greiðslum úr Verðjöfnun- arsjóði fiskiðnaðarins og liggi fyrir loforð sjávarútvegsráðherra um að sjóðnum verði útvegað fé allt að einni milljón króna umfram þá inni- stæðu, sem verði í sjóðnum áður en BANKAMENN voru á sáttafundi hjá sáttasemjara ríkisins frá því klukkan 10 í gærmorgun og fram til kvölds í viðræðum við samninganefnd bank- anna. Aðilar hafa rætt talsvert sam- an, en þetta var þriðji fundurinn hjá sáttasemjara. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar eru málin enn ekki farin að skýrast neitt til hlýtar. Á miðvikudag hafa bókagerð- armenn verið boðaðir á fund með viðsemjendum sínum og hefst fundurinn klukkan 14. Fleiri fundir hafa ekki verið boðaðir, enda ekki fleiri kjaradeilur komnar upp á borð hjá embætti ríkissáttasemj- ara. til greiðslu kemur vegna vertíðar- innar og komi hvorki til lántöku sjóðsins né upptöku gengismunar af saltsíldarframleiðslu þessa árs. Steingrímur Hermannsson sjávar- útvegsráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði lofað kaupendum að reyna að útvega þetta fé í saltsíldardeildina í Verð- jöfnunarsjóði. Þetta sé ekkert eins- dæmi og nú sé verið að reyna að útvega fé í frystideildina. Þetta hafi einnig verið gert á ráðherratímum Matthíasar Bjarnasonar og Kjart- ans Jóhannssonar og sú upphæð sem hér væri rætt um væri aðeins dropi í hafið miðað við það sem þá var. Flestir nótabátarnir munu hafa haldið til síldveiða strax og fréttist um nýju verðákvörðunina í gær. Hins vegar fer reknetaflotinn ekki úr höfn fyrr en á sunnudagskvöld. Sjómenn ákváðu að allir skyldu sitja við sama borð, og ætla því Aust- fjarðabátar sem eru á reknetum að bíða eftir því að sunnlensku bátarnir komi austur á ný. Tónlistarfélagið: Pina Carmirelli og Árni Kristjánsson leika þrjár Beethoven-sónötur í dag Geir Gígja náttúru- frœðingur látinn Bandarískur rithandarsérfræðingur: Segir undirskrift Einars Benediktssonar falsaða ÞINGAÐ var í Borgardómi Reykjavík- ur í gær í máli því, sem erfingjar Ein- ars Benediktssonar, skálds, hafa höfð- að gegn útgáfufélaginu Braga hf. í því skyni að fá sér dæmdan höfundarrétt- inn að verkum Einars. Til meðferðar nú var álitsgerð og vitnisburður banda- rísks sérfræðings, James T. Millers, þess efnis, að samningur sá, sem Einar BenedikLsson gerði við Braga hf. 17. janúar 1938 sé falsaður. Miller er fyrr um yfirmaður skjalarannsóknardeildar lögreglunnar í Washington D.C. í Bandaríkjunum. Miller skýrði mál sitt með lit- skyggnum og teikningum, þar sem hann studdist við undirskriftir skáldsins á ýmsum tímum ævi þess og bar þessar undirskriftir saman við undirskrift samningsins. Rétt- arhöldin stóðu í rúmar fjórar klukkustundir og fór mestur hluti þess tima í að þýða og útskýra álits- gerð Millers. Þar kom fram sú skoð- un, að með tilliti til stafagerðar, styrks rithandar, mismunar á hæð hárra og lágra stafa og margs fleira, þá gæti undirskrift sú, sem er undir samningi skáldsins við Braga hf., ekki verið undirskrift skáldsins, heldur væri þar um fölsun að ræða á þann veg, að sennilega hafi verið skrifað í gegn eins og kallað er, það er að blaðið með samningnum hafi verið lagt yfir annað blað með undir- skrift skáldsins og síðan hefði verið skrifað ofan í. Samningur þessi er samkvæmt texta sínum bæði dagsettur og und- irritaður af Einari Benediktssyni í Herdísarvík 17. janúar 1938 eins og áður segir og er auk þess áritaður af tveimur vottum. Þar til nú, er ekkert það fram komið, sem dregið gæti úr sönnunargildi þessa skjals, enda hef- ur þessi samningur verið sá grund- völlur, seni Bragi hf. hefur byggt á starfsemi sína fyrr og síðar. Otgáfufélagið Bragi hf. var stofn- að 13. janúar 1938 gagngert í því augnamiði, að annast skáldskapar- arf Einars Bendiktssonar. Af hálfu lögmanns Braga hf. var skýrslu Millers mótmælt alfarið. Fór hann fram á frest í því skyni að afla gagna til þess að afsanna framburð Millers. Næst verður mál þetta tekið fyrir í Borgardómi Reykjavíkur um miðjan nóvember. Á TÓNLEIKUM Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói í dag leika Pina Carmirelli og Árni Kristjánsson þrjár sónötur fyrir fiðlu og píanó eft- ir Ludwig van Beethoven. Þau Pina Carmirelli og Árni Kristjánsson hafa margoft leikið saman á tónleikum hér, en Carm- irelli hefur verið talin í hópi fremstu fiðluleikara. Þau Rudolf Serkin léku saman allar Beeth- oven-sónöturnar fyrir fiðlu og pí- anó í Carnegie Hall í New York fyrir allmörgum árum og er sá flutningur enn í minhum hafður. Carmirelli lék fiðlukonsert eftir Brahms á tónleikum Sinfóníunnar sl. fimmtudagskvöld við mikil fagnaðarlæti tónleikagesta. Tónleikarnir í Austurbaejarbíói í dag hefjast kl. 14.30. Pina Carmirelli og Árni Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.