Morgunblaðið - 17.10.1981, Síða 27

Morgunblaðið - 17.10.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 eftir Ragnar Arnalds fjármálaráðherra Kormaður Alþýðuflokksins full- yrðir óvsnt í útvarpi, sjónvarpi og hlöðum sl. miðvikudag, að fjárlaga- frumvarpið fyrir árið 1982 sé brengl- að. Hann segir, að þar sé í raun og veru enginn rekstrarafgangur þrátt fyrir niðurstöðutölur frumvarpsins, því að bókhaldið sé falsað, rekstr argjöld séu flutt yfir í lánsfjáráætlun og fjármögnuð þar með lánum til að geta sýnt jákvæða útkomu á yfir borðinu. Kngin dæmi eru þó nefnd og engin frekari rök dregin fram til stuðnings þessari stóru fullyrðingu. Ég neita því ekki, að mér brá dálítið við þessa óvæntu og ósvífnu árás. Stjórnmálamenn fullyrða oft ýmislegt um andstæð- inga sína, en afar sjaldgæft er, að ekki sé tilraun gerð til að rök- styðja stóryrta fullyrðingu um fölsun. Formaður Alþýðuflokksins telur það bersýnilega nægilegt fyrir flokk sinn, að góð staða ríkis- sjóðs sé dregin í efa í nógu stórum orðum og nógu oft. Um hina hlið málsins, hvað sé sannleikanum samkvæmt og hvað ekki, hirðir hann ekkert og virðist treysta á, að þar sé um að ræða mál, sem hinn almenni maður muni aldrei botna í. Hér liggur sem sagt fyrir ásök- un um fölsun og meira að segja krafa um afsögn ráðherra, en eng- ar upplýsingar fást að öðru leyti, í hverju fölsunarbrotið á að vera fólgið. Þessi órökstuddi fullyrðingastíll Kjartans Jóhannssonar ber vissu- lega fremur vott um eigin örvænt- ingu og málefnafátækt en efni fjárlagafrumvarps. En ég vil þó fara hér nokkrum orðum um bókhaldsreglur fjárlaga, lesendum til fróðleiks, í framhaldi af full- yrðingum Kjartans. Lagaboð um ríkis- bókhald Kjartan Jóhannsson reynir að telja fólki trú um, að fjármála- ráðherra geti bókfært ríkisútgjöld eins og honum sýnist og „fært út- gjöld í lánsfjáráætlun" til að losna við rekstrarhalla. Illt er að vita, ef margir trúa þessu, en verra er, að Kjartan Jóhannsson veit sjálfur miklu betur. í lögum um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga (frá 1966) eru nákvæm fyrirmæli um bókfærslu ríkisútgjalda. Ríkis- reikningur er saminn af ríkis- bókhaldi undir stjórn ríkisbókara samkvæmt fyrirmælum þessara laga, og mér þykir ótrúlegt að nokkur fjármálaráðherra hafi gef- ið ríkisbókhaldi fyrirskipun um bókfærslu útgjalda a.m.k. hefur það aldrei gerst í minni tíð. Þessi ítarlegu lög í 82 greinum gera hins vegar ráð fyrir að ráðherra felli úrskurð, þegar vafi leikur á hvern- ig fara skuli með einstök atriði laganna, en ég hef grun um, að sjaldan hafi á það reynt. Kjartan Jóhannsson fullyrðir að unnt sé að greiða rekstarútgjöld með lánum og þannig sé unnt að leyna útgjöldum og falsa afkomu ríkissjóðs. Þetta eru gróf ósannindi eins og allir vita sem til þekkja. Engu breytir, hvort útgjöld ríkissjóðs eru greidd með framlagi eða láni. í báð- um tilvikum eru þau færð til út- gjalda, hvort heldur í fjárlagafrum- varpi, fjárlögum eða ríkisreikningi. Rekstrarafkoma ríkissjóðs versnar því að sama skapi. í rekstrarreikningi ársins 1980 reyndust tekjur um 139 milljónum hærri en gjöld. Öllum getur skjátlast og ekki væri útilokað að þar leyndust skekkjur. Reikning- urinn er nú í endurskoðun ríkis- endurskoðunar og yfirskoðunar- manna ríkissjóðs. En getur Kjart- an Jóhannsson nefnt eitthvert dæmi um rangar færslur ríkis- reiknings? Fyrirtæki með sjálf- stæðan fjárhag Fjárlög skiptast í tvo hluta, A-hluta og B-hluta. A-hluti fjallar um afkomu ríkissjóðs og allra stofnana ríkisins sem fyrst og fremst eru háðar fjárveitingum frá Alþingi. Þegar rætt er um stöðu ríkissjóðs, rekstrarafkomu eða halla, skuldastöðu við Seðla- banka o.s.frv. er ávallt átt við A-hluta fjárlaga. í B-hluta fjárlaga er fjallað um ríkisfyrirtæki, „sem standa að öllu Ragnar Arnalds eða verulegu leyti undir kostnaði við starfsemi sína með tekjum af sölu á vörum og þjónustu eða hafa starfsemi með höndum, sem í meginatriðum er hliðstæð við starfsemi einkaaðila". Svo segir í 7. gr. laganna. B-hluta fyrirtæki fá oft beint framlag úr A-hluta og taka jafn- framt lán til starfsemi sinnar, eins og önnur fyrirtæki, fyrst og fremst til fjárfestingar en einnig til rekstrar. Ef fyrirtæki væru færð í stórum stíl úr A-hluta í B-hluta og þau síðan látin taka lán mætti með rökum segja að ríkisútgjöld kæmu ekki til skila. Staðreyndin er hins vegar sú, að þessu hefur verið öfugt farið og skulu hér nefnd dæmi: Flugmálastjórn, sem hefur mikl- ar sértekjur og hefur verið B-hluta stofnun, sem tekið hefur framkvæmdalán bæði til öryggis- tækja og malbikunarframkvæmda um árabil, var færð úr B-hluta í A-hluta á þessu ári, þar sem tekj- urnar voru svo miklu minni en út- gjöldin. Að sjálfsögðu var þessi breyting mjög óhagstæð fyrir bókhald ríkissjóðs. Fjárfestingar á vegum Raf- magnsvcitna ríkisins, liðirnir dreifikerfi í sveitum og sveitaraf- væðing, hafa.mörg undanfarin ár verið í B-hluta fjárlaga en hafa nú verið fluttir í A-hluta fjárlaga, enda óarðbærar framkvæmdir og er til þeirra varið nú 23,7 milljón- um nýkróna. En til þess að fjárlögin gefi rétta mynd af afkomu ríkissjóðs og þar sem þessar framkvæmdir munu aldrei skila ríkissjóði arði eru þær nú færðar ríkissjóði til gjalda í A-hluta án þess að nokkr- ar tekjur af raforkusölu séu færð- ar á móti. í fjárlögum eru því tvímælalaust hreinni skil nú milli A-hluta og B-hluta en áður hefur verið. Einn er þó sá liður í fjárlögum sem orkar tvímælis að þessu leyti, en það eru svonefndar byggðaiín- ur eða stofnlínur. Hvorki í minni ráðherratíð né í ráðherratíð Sighvats Björgvinssonar, Tómasar Árnasonar, Matthíasar Á. Math- iesen eða Halldórs E. Sigurðsson- ar, hefur verið aflað tekna til að greiða byggingu stofnlína milli landshluta, en framkvæmdir þess- ar hófust með byggingu Norður- línu fyrir átta árum og að því leyti er fjárlagafrumvarpið sambæri- legt við frumvörp undanfarinna ára. Þessum vanda hafa menn lengi velt á undan sér og er það öllum til hnjóðs sem setið hafa í ríkisstjórn seinustu átta árin. Krafla á að standa á eigin fótum. En nú hefur ríkisstjórnin ákveðið, að afla tekna í raforku- 27 kerfinu til að standa undir kostn- aði við byggingu stofnlína, sem byggðar hafa verið og verða byggðar, og efast ég ekki um að allir stjórnarandstæðingar sem bera fulla ábyrgð á þessum kostn- aði munu verða sammála okkur stjórnarsinnum um þá tekjuöflun. Hins vegar er eðlilegt, að stofnlín- urnar verði afskrifaðar á 15—20 árum. Fjármagnsútgjöld Kröfluvirkj- unar hafa ýmist verið færð í A-hluta eða B-hluta. Árin 1975—1978 voru þau færð í B-hluta, 1979—1981 í A-hluta en 1982 í B-hluta aftur. Þetta er lík- lega eina stóra dæmið um færslu stofnunar yfir í B-hluta á seinni árum og rökin eru þau, að með ^ stóraukinni orkuöflun (20—30 mw á næsta ári) er sjálfsagt og eðli- legt að virkjunin standi sjálf und- ir fjármagnskostnaði með tekjum af orkusölu, eins og allar adrar virkjanir. Borð fyrir báru Auk fullyrðinga sinna um fals- aða afkomu ríkissjóðs segist Kjartan Jóhannsson hafa „fundið" 140 milljónir kr. í fjárlagafrum- varpinu sem nota megi til efna- hagsaðgerða. Það er hárrétt að í frumvarpinu er 140 milljón króna varasjóður vegna óvissu í efna- hags- og kjaramálum, eins og beinlínis er fram tekið í greinar- gerð frumvarpsins, þótt engin ákvörðun hafi enn verið tekin um notkun þessa fjár hvorki til efna- hagsaðgerða eða annars. En ábcnding Kjartans gengur hins veg- ar í þveröfuga átt við aðrar fullyrð- ingar hans og ætti að sýna svart á hvítu að í frumvarpinu er gott borð fyrir báru. Að sjálfsögðu er unnt að haga uppsetningu fjárlaga með öðrum hætti, en þá verður að breyta lög- um. Sá sem vill vefengja bókhald ríkissjóðs, sem fylgir miklu strangari forskrift en nokkurt annað bókhald í landinu, verður að hafa annað og haldbetra fram að færa en innantóm stóryrði. Stór orð verða að byggja á sterk- um rökum. Ef við eigum að búa við þolanlcgt lýðræði í landinu verður fólk að hafa möguleika til að vita, hvað er hvítt og hvað er svart. Ef menn komast upp með að fullyrða að ríkissjóður sé á hvolfi, þegar hann er í fyrsta sinn um langt skeið í viðunandi jafnvægi, þá er hætt við að ráðherrar í síðari ríkisstjórnum láti sig engu skipta, hvort sameigin- legur sjóður landsmanna er að sökkva í kviksyndi eða ekki. Þess vegna fannst mér nokkru skipta að svara órökstuddum dylgjum Kjart- ans Jóhannssonar. Gerð ríkisreiknings er lögbundin og þar verður engu leynt Svar við innantómum stóryrðum Kjartans Jóhannssonar um fjárlagafrumvarpið Undanfama daga hafa verið í. höfninni allt að sjö selir og hafa þeir gætt sér á sfld, sem leitað hefur inn á fjörðinn, og bryggjuufsa. Ljrám. Eiur. Alls liggja nú 23 reknetabátar í höfninni í Hornafirði og er þess beðið, að sá hnútur, sem varð af óviðunandi sfldarverði, leysist sem fyrst. (Ljósm. Einar.) Fiskmiðlun kæmi Hornfirðingum vel Hornafirði, 15. október. ALLIR reknetabátar Hornfird- inga, ásamt þremur aðkomubát- um, eru nú í biðstöðu í Horna- fjarðarhöfn og eru hér samtals 23 bátar. Var það að heyra á sjómönnum, er fréttamaður spjallaði við þá, að ef ekkert jákvætt gerðist í dag, álitu þeir ástandið orðið mjög alvarlegt. Ýmsir voru farnir að hugleiða að róa með línu, en úr því verður tæpast ef verðlagning á ferskri sfld verður tekin fyrir að nýju. Hvað varðar aðra fisk- vinnslu hér á Höfn, þá standa málin þannig, að lítil sem eng- in vinna hefur verið í fiski í Fiskiðjuveri KASK, en í salt- fiskverkunarstöðinni hefur verið sæmileg vinna hingað til. Hefur fólk í frystihúsinu fengið vinnu við saltfiskverk- un og pökkun. Að sögn Egils Jónassonar, yfirverkstjóra í Fiskiðjuveri KASK, liggur nú fyrir beiðni frá Hornfirðingum hjá fisk- löndunarnefnd þeirra, sem sett var á laggirnar í sumar og hefur aðsetur hjá LÍÚ, um að fá fisk. Vilja Hornfirðingar gjarnan fá að vinna þann fisk, sem skip frá öðrum stöðum afla, en sigla síðan með til er- lendra hafna. — Einar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.