Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 20

Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 Rekstrarstaða sjávarútvegs, veiða og vinnslu, er mjög bágborin, og raunar er sömu sögu að segja um útflutn- ingsiðnað okkar í heild. Steingrímur Hermannsson, sjávarút- vegsráðherra, staðfesti í umræðum á Alþingi, að frystiiðnað- urinn væri rekinn með 6,7% tapi á líðandi stund, og væri þá ekki tekið tillit til fyrirsjáanlegrar fiskverðshækkunar, en dregizt hefur úr hömlu að ákveða fiskverð. Seljendur hafa hinsvegar gert tillögu um 9% hækkun þess. Þá upplýsti ráð- herrann, að mjög báglega horfði í loðnuvinnslunni, en þar skorti 38% á tekjur, miðað við óbreytt hráefnis- og afurða- verð, til að mæta tilkostnaði. Ekki var útlitið heldur björgu- legt, hvað útgerðinni viðvék, en þó sýnu verst hjá hinum nýrri togurunum, sem þurfa að kljást við óheyrilegan fjármagns- kostnað, auk annars tilkostnaðar. Matthías Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Alþingi sl. þriðjudag, og krafðist þess, fyrir hönd þingflokks sjálfstæðismanna, að sjávarútvegsráðherra gerði þinginu grein fyrir rekstrarlegri stöðu sjávarútvegsins, undirstöðugreinarinnar í íslenzkum þjóðarbúskap. Síldarflotinn er í höfn, sagði Matthías, vegna ágreinings um hráefnisverð, staðan í loðnuvinnslunni er ískyggileg, verulegt rekstrartap í frystiiðnaði, fiskverð óákveðið og útgerðin á í vaxandi vök að verjast. Það er skylda þingmanna, sagði hann, að fylgjast vel með stöðu þessa undir- stöðuatvinnuvegar, — og skýlaus réttur þeirra, að fá á borð sín öll gögn varðandi það alvarlega útlit, er við blasir. Sjávar- útvegsráðherra varð við þessum tilmælum, sem fyrr segir, og var skýrsla hans tilefni til athyglisverðra umræðna um efna- hags- og atvinnumál, sem nú horfa verr en lengi undanfarið. Matthías Bjarnason sagði það ljóst, hvað sem liði vísitölu- vörum, að tilkostnaður útflutningsatvinnuveganna hefði hækkað um a.m.k. 50% á 12 mánaða tímabili. Hvernig getur ábyrg ríkisstjórn leyft sér, spurði Matthías, að fastsetja geng- ið, og þar með tekjur útflutningsframleiðslunnar að óbreytt- um markaðsaðstæðum, á sama tíma og kostnaðarhækkanir innanlands eru með þessum hætti? Gengislækkun er engin patentlausn, sagði hann, hún er þvert á móti afleiðing kostn- aðarhækkana innanlands umfram verðþróun á sölumörkuðum erlendis. Þetta hafa ríkisstjórnir viðurkennt oftsinnis. Þegar vinstri stjórnin var mynduð í september 1978 var dollarinn skráður á rúmlega 260 krónur. I febrúar 1980 þegar núverandi stjórn var mynduð var hann kominn í um 400 krónur. Eftir rúmlega 11 mánaða valdaferil hennar er hann kominn í 615 krónur. Forsætisráðherra sagði og í stefnuræðu í október sl., „að ríkisstjórnin hafi gert ráðstafanir til þess að bæta frysti- húsunum upp á einn eða annan hátt, einkum með aðlögun gengis, útgjaldahækkanir og tekjutap, sem orðið hafa síðan stjórnin var mynduð". — Rekstrarstöðu sjávarútvegsins verð- ur að tryggja með einum eða öðrum hætti, sagði Matthías. Guðmundur Karlsson, alþingismaður, sagði í þessari um- ræðu, að samdráttur segði víða til sín hjá íslenzkum atvinnu- vegum og atvinnuöryggi væri hvergi nærri jafn traust og verið hefði lengi undanfarið. Það hefur skeð æði víða, sagði hann, einmitt á þessu ári, að atvinna hefur ekki verið næg í sjávarplássum kringum landið. Þess gætir og, að ekki sé unnin nema dagvinna, en verkafólk byggir, því miður vil ég segja, alltof mikið á yfirvinnu. Meðalhalli í rekstri frystihúsa er talinn 7—10%, sagði Guðmundur, og þau frystihús, sem erfið- ast eiga, eru rekin með 20—30% tapi. Þegar staða undirstöðu- atvinnuvegar þjóðarinnar er slík, sem hún er í dag, bæði veiða og vinnslu, er atvinnuöryggi almennings valt. Utflutningur, gjaldeyrisöflun og lífskjör þjóðarinnar hvíla mikið til á sjáv- arútveginum. Það er því misráðið að svelta hann til samdrátt- ar eða stöðvunar með skammsýnni stjórnsýslu ríkisvaldsins. Báðir sögðu þeir, Matthías Bjarnason og Guðmundur Karlsson, að illa færi saman, að ríkissjóður og ríkisbankar mötuðu krókinn á kostnað útflutningsframleiðslunnar, sem stefndi í rekstrarstöðvun að óbreyttum rekstrarhorfum. Tugir milljóna króna eru fluttir frá framleiðsluatvinnuvegunum, sagði Guðmundur, til opinbera geirans til að ráðskast með. „Þessum vinnubrögðum hljótum við að mótmæla fyrir hönd alls þess fólks, sem á afkomu sína undir gengi framíeiðslunn- ar, og krefjast þess, að málin verði færð í hið réttara horfið." Ný reglugerð um fersksfldarmat: Hausskemmda sfldin nú hæf til söltunar Sjávarútvegsráðuneytið gaf í gær út nýja reglugerð um mat á ferskri síld, og kemur hún í stað reglugerð- ar sem sett var um fersksíldarmat í sumar, er sætti mikilli gagnrýni sjó- manna og útgerðarmanna. I frétta- tilkynningu sjávarútvegsráðuneytis- ins segir að að ósk síldarútvegs- nefndar og sfldarsaltenda, hafi ráðu- neytið gefið út reglugerð í sumar. í framkvæmd hafi þessi reglugerð sætt gagnrýni vegna þess að haus- skemmd sfld hafi verið dæmd óvinnsluhæf, þótt hún hafi verið nýtt til söltunar. Síðan segir: „Ráðuneytið hefur með nýrri reglugerð, sem gefin var út í dag, fellt niður þau ákvæði, sem deilum ollu og ætti því að vera tryggt að öll síld, sem hæf er til söltunar, þótt hausskemmd sé, verði greidd fullu verði." Núverandi reglugerð hljóðar svona: „Síld skal flokkuð í 1. gæðaflokk til manneldis. 1. flokkur. Vinnslusíld, sem er fersk með eðlilega lykt, útlit og blæ og laus við átuskemmdir. Úrgangssíld. Síld, sem er greini- lega súr-, ýldu- eða slagvatnslykt, er slegin, kramin, marin, blóð- sprungin og með greinilegum átu- skemmdum." _____ „Þessum vinnubrögð- um mótmælum viða Útgefandi nttbifrife hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö. Elias ('anetti Elias Canetti sem mörgum að óvörum fékk Nóbelsverðlaunin að þessu sinni er dæmigerður Evrópu- maður af gyðinglegum uppruna. Ilann fæddist 1905 í Búlgaríu, átti heima á Englandi í tvö ár, fór það- an til Vínarborgar og Zurich og bjó á þriðja áratugnum í Berlín. Arið 1939 flýði hann til London undan nasismanum og hefur verið land- flótta þar síðan. Canetti lærði mörg tungumál í bernsku, en hefur kosið að skrifa á þýsku. Það er engin tilviljun því að bókmennta- legar rætur hans eru hjá þýsku- mælandi þjóðum. A Vínarárum sínum hreifst Canetti mjög af Karl Kraus og þeir höfundar sem hann metur mest eru Franz Kaka, Hermann Broch, Robert Musil og Thomas Mann. Eins og þessir höfundar lítur Canetti ekki á skáldsöguna eingöngu sem frásögn heldur á hún að rúma allt. Hún á að varpa fram og svara áleitnum spurningum um lífið og takast á við heimspekileg vandamál. Það bar reyndar snemma á þeirri til- hneigingu hjá Canetti að vilja vita allt, öðlast eins mikla þekk- ingu og yfirsýn og auðið er og einnig vera í uppreisn gegn ríkj- andi hugarfari og valdinu í öll- um sínum myndum. Canetti sættir sig ekki við dauðann og berst gegn honum. Hann hefur sagt að hann hafni dauðanum. Engin trú eða hugg- un er til sem getur komið á sátt- um milli mín og dauðans, segir Canetti. í mínum augum er hann að vissu marki glæpur. Ég trúi ekki á Guð. Sú trú sem okkur er tömust og guðsímyndin sem við höfum úr Gamla testamentinu mótast af valdinu og það tel ég hættulegt. Maður á að lifa eins tíminn framundan sé óendanlegur, bætti Canetti við. Þolinmæði er talin einkenna Canetti. Bækur sínar hefur hann ekki sett saman í flýti. Frysta bindi endurminninga hans kom út 1976: Die gerettete Zunge. Annað bindið, Die Fackel im Ohr kom í fyrra. Höfuðverk Canettis, Masse und Macht (1960) er að mestu heimspekileg umræða og einnig söguleg, en hefur ýmis einkenni skáldsögu. Mönnum hefur orðið tíðrætt um hve sér- stæður Canetti er, jafnvel sérvit- ur. Sú einkunn getur gilt um Masse und Macht. Þekktasta skáldsaga Vanettis er Die Blendung (1935). Meðal þeirra sem fögnuðu henni voru Hermann Broch og Thomas Mann. Margir bókmenntamenn U m Elias Canetti eftir Jóhann Hjálmarsson þekkja þessa skáldsögu, en stað- reyndin er sú að Canetti hefur orðið að bíða lengi eftir að menn uppgötvuðu hann. Kannski staf- ar það af því að hann hvarf í skugga annarra mikilla höfunda sem fengust við lík viðfangsefni. Rithöfundar eru ákaflega háð- ir tímanum eins og alkunna er. Ákvörðun sænsku akademíunn- ar er þáttur í endurmati á verk- An trúar gegn valdi og dauða um Canettis sem átt hefur sér stað víða. Sú skáldsaga sem Can- etti er fulltrúi fyrir hefur staðið af sér öll veður. Erindi hennar til samtímans er jafn brýnt nú og á þeim dögum þegar hún var sjálfsögð. Menn get líka velt fyrir sér þeirri skýringu sumra á ferli Canettis að hann hefur aldrei látið freistast af lausnum sem vinstrisinnar hafa á takteinum. í London hélt Canetti áfram að skrifa Masse und Macht, en hirti ekki um andspyrnu gegn Þjóðverjum eins og margir út- lagahöfundar gerðu að sinni- æðstu dyggð. Hitler lítur hann á sem einn þeirra manna sem njóta þess að aðrir deyi. Hitler þótti vænt um fyrri heimsstyrj- öldina, sem hann var þátttak- andi í, hann hafði þörf fyrir að vera vitni að dauða milljóna. Þegar hann hafði tapað stríðinu var það honum keppikefli að láta eyða Þýskalandi. Allar þýskar borgir áttu að þurrkast út. Allir urðu að deyja: Þjóðverjar, Rúss- ar, Gyðingar. Canetti líkir Hitler við fólk sem í hjarta sinu gleðst yfir dauða annarra. Því fleiri sem deyja því meira verður vald þess. Gleðin er fólgin í að lifa af. I Die Blendung er sögð saga lærðs manns, Peter Kien að nafni. Hann unir sér í bókasafni sínu án tengsla við umheiminn. Dag nokkurn verður Therese á vegi hans, 56 ára meykerling. Hún verður ógæfa hans, rænir hann öllu sem hann á og hrekur hann burt úr íbúð sinni. Það eina sem Kien heldur eftir er banka- bókin. Kien kemur upp ímynd- uðu bókasafni í kollinum á sér og býr á hótelum. En dvergurinn Fischerle nær enn sterkari tök- um á Kien en Therese. Georg, bróðir Kiens, sem er frægur geð- læknir losar Kien við Therese. En þegar hann fer burt er Kien enn á ný staddur í bókasafni sínu, tryllist og kveikir í sjálfum sér og bókunum. Þegar Canetti lagði drög að Die Blendung tuttugu og fjög- urra ára gamall hafði hann ákveðið að semja átta skáldsög- ur um vitfirringa undir samheit- inu Mannlegur gleðileikur brjál- æðinganna. En hann lét Die Blendung nægja, lýsinguna á hinum innilokaða bókamanni sem einangrar sig frá lífinu og verður svo illilega fyrir barðinu á því vegna þess að hann er ekki fær um að vera þátttakandi í enn meiri vitfirringu, þeas. hinu daglega amstri. I Die Blendung kemur fram kvenhatur eins og margir hafa bent á. Bergmál frá kenningum Freuds heyrist líka. Þess má geta að skáldsagan er 450 blaðsíður. Margir hafa heillast af endur- minningum Canettis. Þær ein- kennast af óvenjulegu umburð- arlyndi þar sem jafnvel óvinir höfundarins eru látnir njóta sannmælis. Eftirminnileg er lýs- ing á Bertold Brecht sem í senn er háðsk ádeila og aðdáun. Can- etti dáir fyrst og fremst ljóð- skáldið Brecht. Menn verða að lesa Canetti með sama hætti og til dæmis Thomas Mann. Það borgar sig að lesa hann hægt og gefa öllu gaum. Bækur hans eru tilraun til að fanga tímann, samtíð höf- undarins og um leið snúast gegn henni. Mannlegar kennisetningar og reglur hafa verið Canetti eitur í beinum. Hann hefur lýst því hvernig hann braust undan ofurvaldi móður sinnar. Þegar hann var spurður að því hvort hann teldi mögulegt að útiloka valdið, svaraði hann: Það verður að vera mögulegt, annars verðum við sprengd í tætlur. Á öðrum stað harmar hann skammlífi mannsins og segir: Hve verðmætt yrði ekki líf mannsins ef hann lifði í þrjú hundruð ár. Hugsanir sínar um dauðann hefur Canetti lofað að birta á prenti í fyllingu tímans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.