Morgunblaðið - 17.10.1981, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.10.1981, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 Yfirburðasigur UMFN gegn IS NJARÐVÍKINGAR unnu naesta auðveldan sigur á Stúdentum í úrvalsdeild- inni í Njarðvíkum í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 101 stig gegn 78, eftir að staðan hafði verið 51 gegn 27 í hálfleik. í hálfleik virtist það aðeins formsatriði fyrir Njarðvíkinga að Ijúka leikn- um, slíkir voru yfirburðir þeirra. Meðan hvert skot Njarðvíkinga af öðru rataði í körfuna skoruðu stúdentar aðeins eitt stig á 14 mínútna kafla. Stúdentar komu þó ákveðnari til seinni hálfleiksins, unnu hann með einu stigi, en þá ber þess að geta, að Njarðvíkingar virtust slaka á í seinni hálfleik og leika nokkuð frjálst. UMFN —ÍS 101:78 Sá virðist munurinn á leik Njarðvíkinga nú og í fyrra, að samspilið virðist meira í fyrirrúmi að þessu sinni. Hver og einn tekur meiri þátt í leiknum og reynt er að spila hvern leikmanninn af öðrum upp, eins og það er kallað, en í fyrra virtust liðsmenn svo til ein- göngu treysta á Danny Shouse og hugsað var fyrst og fremst um að spila hann upp. Þrátt fyrir þetta er Shouse drjúgur og skoraði hann 35 stig í gærkvöldi. Hann átti auk þess margar sendingar sem gáfu síðan afsér körfur, einkum lék hann Árna Lárusson oft skemmtilega upp. Hjá Stúdentum munaði mestu um góðan sprett Gísla Gíslasonar í seinni hálfleik, en hann og Árni Guðmundsson voru burðarásarnir KR sigraði eftir framlengdan leik • íslandsmótið í körfuknattleik kvenna 1. deild er hafið af fullum krafti og hafa þrír leikir farið fram. Lið KR sigraði IIMFN 80—31, IIMFL sigraði lið UMFN með mikl- um yfirburðum 90—21 og í fyrra- kvöld sigraði lið KR svo ÍS 48—45 eftir framlengdan leik scm var mjög spennandi. Stigahæst í liði KR varð Linda Jónsdóttir með 31 stig, Cora Barker skoraði 6 stig en aðrar minna. Stigahæstar í liði ÍS voru þær Guðríður Olafsdóttir með 17 stig, Þórunn Rafnar með 10 stig og Kolbrún Leifsdóttir með 8 stig. Fimm lið taka þátt í fyrstu deildar keppni kvenna í vetur, lið KR, ÍS, IIMFN, UMFL og ÍR. — ÞR. í liðinu í gærkvöldi. Bjarni Gunn- ar skoraði oft eins og venjulega, en trúlega geiguðu skotin hans þó oftar. Bjarni hlýtur að vera orðinn nógu gamall í hettunni til að lær- ast, að ekki tjóir að vera alltaf að fetta fingur út í störf dómara, sem að þessu sinni voru Gunnar Guð- mundsson og Sigurður Valgeirs- Þegar á heildina er litið var leikurinn oft á tíðum skemmtileg- ur þótt klaufaleg tilbrigði sæust inn á milli, en þá verður að hafa í huga að körfuknattleiksvertíðin er rétt að fara af stað og á liðunum vafalaust eftir að fara fram þegar líður á veturinn. Stigin: UMFN: Danny Shouse 35 Jónas Jóhannesson 16 Árni Lárusson 13 Gunnar Þorvarðarson 12 Valur Ingimundarson 11 Brynjar Sigmundsson 8 Júlíus Valgeirsson 4 Ingimar Jónsson 2 ÍS: Dennis McGuire 21 Víkingar mæta Valsmönnum - margir handboltaleikir um helgina FJÓKIR leikir eru á dagskrá í 1. deild IslandsmóLsins í handknatt- leik um helgina og ber þar hæst leik erkifjendanna Vals og Víkings ann- að kvöld klukkan 20.00. Bæði liðin Liverpool í Tokyo ENSKA knattspyrnufélagið Liver pool, sem er Evrópumeistari í knattspyrnu, mun mæta Suður Ameríkumeisturunum í Tokýó 13. desember næst komandi. Kkki er Ijóst hvaða lið verður mótherji Liv- erpool, þar sem Suður Ameríku- keppnin, ('opa Libertadores, er enn ekki lokið. Toyota-fyrirtækið sem stendur fyrir keppninni í Tokýó, gerði það einnig í fyrra og þótti til- tækið takast hið besta. sigruðu í fyrstu umferðinni þannig að búast má við miklum baráttuleik. A morgun leika einnig KR og HK í Laugardalshöllinni og hefst leikur inn klukkan 14.00. Hinir leikirnir tveir eru hins vegar báðir á dagskrá í dag. í Hafnarfirði mætast FH og KA og hefst leikurinn klukkan 14.00. A sama tíma hefst í Laugardalshöll- inni viðureign Þróttar og Fram. Konurnar verða einnig á fleygi- ferð um helgina. FH og ÍR mætast í Hafnarfirði í dag klukkan 15.30 og á sama tíma í Laugar- dalshöllinni glíma Þróttur og Fram. Á morgun eru tveir leikir aðrir á dagskrá, báðir í Höllinni. Klukkan 15.30 mætast KR og ÍA, en klukkan 21.30 lið Vals og Vík- ings. Einn leikur fer einnig fram í 2. deild karla, Týr og Haukar mætast í Vestmannaeyjum og hefst leikurinn klukkan 13.30. Niki Lauda keppir aftur Austurriski kappaksturskappinn Niki Lauda hefur ákveðið að hefja keppni á nýjan leik i „Formula 1“ kappakstrinum. Lauda. fyrrum heimsmeistari, lenti í slæmu óhappi fyrir rúmum tveimur árum og slapp naumlega lifs, en ber þess aldrei bætur lík- amlega. Hann dró sig þá i hlé, en er nú orðinn þreyttur á tilbreyt- ingarleysinu. Lauda hefur enn ekki ákveðið hvernig bifreið hann ætlar að aka að þessu sinni. Þess má einnig geta i þessu sam- bandi, að Alan Jones, heimsmeist- ari með meiru, hefur ákveðið að draga sig i hlé eftir yfirstandandi keppnistímabil. Fjórir unglingalands- leikir gegn Hollandi ÍSLAND leikur 4 unglingalandsleiki gegn Ifollandi í næstu viku og hefst sá fyrsti klukkan 20.00 á mánu- dagskvöldið og verður þá leikið í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. A þriðju- daginn verður leikið í Borgarnesi, á miðvikudaginn í Keflavík og á fimmtudaginn í Laugardalshöllinni. Allir leikirnir hefjast klukkan 20.00. Kinar Bollason landsliðsþjálfari hef- ur valið lið sitt en það skipa eftir taldir leikmenn. Fyrri talan í svigun- um þar sem þær eru tvær á annað borð, er U-landsleikjafjöldi. Síðari talan A-landsleikjafjöldi. Valur Ingimundarson UMFN (13-8) Hjörtur Oddsson IR Pálmar Sigurðsson Haukar (12) Hálfdán Markússon Haukar (8) Kári Eiríksson Haukar Birgir Mikaelsson KR Páll Kolbeinsson KR Benedikt Ingþórsson ÍR (2) Ragnar Torfason ÍR Viðar Vignisson ÍBK (12) Axel Nikulásson ÍBK ÍBK (7-1) Leifur Gústafsson Val (7) Tómas Holton Val Viðar Þorkelsson Fram (8-2) Fyrirliði er Valur Ingimundar- son, en varafyrirliði Hjörtur Oddsson. Nokkrir þessara pilta eiga við meiðsl að stríða t.d. Valur, Pálmar, Ragnar, Viðar Vignisson, Viðar Þorkelsson og Leifur. Einar Bollason þjálfari gæti því lent í vandræðum með liðsskipan sína. Holland er í hópi fremstu lands- liða Evrópu í þessum aldursflokki og því fá íslensku strákarnir að Spreyta sig gegn sterkum mót- herjum. ísiand hefur leikið 63 leiki í þessum aldursflokki, unnið 19, en tapað 44. Fyrsti leikurinn fór fram árið 1963. —gg. Bjarni Gunnar Gísli Gíslason Árni Guðmundsson Ingi Stefánsson Gunnar Thors Jóhann Gunnarsson Breióablik tapaði í Vestmannaeyjum TVEIR leikir fóru fram í íslands- mótinu í handknattleik í 2. deild í gærkvöldi. í Vestmannaeyjum sigraði lið Þórs lið Breiðabliks ör ugglega 19—12. Staðan í hálfleik var 9—6 fyrir I»ór. Leikur liðanna var frekar slakur af beggja hálfu. Fram- an af leiknum var jafnræði með lið- unum en er líða tók á leikinn náði Þór yfirhöndinni og sigur þeirra var aldrei í hættu. Sigmar Þröstur, markvörður, var besti maður Þórs, varði 14 skot í leiknum. Hjá Breiðabliki skar sig enginn úr hvað getu snertir og virðist liðið vera slakt um þessar mundir. Markahæstir í liði Þórs urðu, Hallvarður Sigurðsson með 7 mörk, Andrés Bridde með 4 og Herbert Þorleifsson með 3. Markahæstir í liði UBK urðu Kristján Gunnarsson með 4 mörk og Björn Jónsson með 3. HKJ/Þr. Jens varði 20 skot er IR sigraði UMFA LIÐ ÍR vann öruggan sigur á liði Aftureldingar í íþróttahúsinu í Mos- fellssveit í gærkvöldi, 19—13, er lið- in mættust í 2. deild. Maðurinn á bak við sigur ÍR-inga var markvörð- ur liðsins Jens Einarsson, sem var besti maður vallarins og varði eins og berserkur. Jens varði alls tuttugu skot í leiknum og sum þeirra glæsi- lega. Framan af leiknum var lið Aft- ureldingar öllu sprækara og lék betur en IR. Staðan í hálfleik var 9—7 fyrir Aftureldingu. En í í síð- ari hálfleik snerist dæmið alveg við. IR-ingar réðu lofum og lögum á vellinum og sigruðu örugglega. Besti maður liðsins var Jens eins og áður sagði en þeir Sigurður Svavarsson og Guðmundur Þórð- arson áttu báðir ágætan leik. í liði Aftureldingar var Steinar Tóm- asson bestur. Markahæstir í liði ÍR urðu Guð- mundur Þórðarson og Sigurður Svavarsson með 5 mörk hvor, og Björn Björnsson með 3 mörk. Hjá Aftureldingu skoruðu Guðjón Magnússon og Steinar Tómasson 4 mörk hvor og Sigurjón Eiríksson 3 mörk. — ÞR. Öskjuhlíðarhlaup ÖSKJUHLÍÐARHLAUP ÍR verður háð í dag og hefst klukkan 15 í ná- grenni Fossvogskapellu eins og und- anfarin ár, en hlaupið fer nú fram fjórða árið í röð. Aðstaða verður fyrir þátttakendur til að skipta um klæðnað og laugast að hlaupi loknu í Öskjuhlíðarskólanum. Öskjuhlíðarhlaupið er fyrsta hlaupið í keðju víðavangshlaupa sem fram fer á Reykjavíkursvæð- inu og út um land í vor og vetur. Veitt verða stig fyrir frammistöð- una í hlaupunum, öllum þátttak- endum, og telst sá sigurvegari sem verður með bezt meðaltal úr 10 hlaupum, en alls verða hlaupin í keðjunni um 15 talsins. Tveir leikir í úrvalsdeild- inni um helgina Kðrluknattlelkur TVEIR leikir fara fram í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik um helgina, einn í dag og annar á morgun. Báðir leikirnir fara fram í Hagaskólanum. KR og Valur leiða saman hesta sína í dag klukkan 14.00. Gæti það orðið hörkuviðureign og forvitni- leg fyrir þær sakir, að John Hud- son leikur nú með KR á nýjan leik, en hann kom til landsins í gær- morgun. Annað kvöld klukkan 20.00 mætast síðan Fram og ÍR. Gæti það einnig orðið athyglisverð við- ureign. Fram hefur unnið einn leik og tapað einum. ÍR hefur hins vegar tapað báðum leikjum sínum og þarf að gera eitthvað í málun- um. Einn leikur fer fram í 1. deild á morgun, Haukar og UMFS mæt- ast í Hafnarfirði klukkan 14.00. Þá fer einn leikur fram í 1. deild kvenna, einnig á morgun. KR og ÍR leiða saman hrossin í Haga- skólanum og hefst leikurinn klukkan 14.00. Einn leikur er og á dagskrá í 2. deild. Fer hann fram í Hafnarfirði í dag klukkan 15.30. Mætast þá FH og Léttir. Gefst mönnum kost- ur á því að sjá snillinga eins og Geir Hallsteinsson, Einar Bolla- son og Þóri Jónsson leika listir sínar. Þróttur varö Reykjavíkur- meistari ÞROTTUR varð Rcykjavíkurmeist- ari í hlaki fyrr í vikunni, er liðið sigraði ÍS 3—1. í kvennaflokki sigr aði lið ÍS, en stúdínurnar lögðu Þrótt að velli í úrslitaleik. Lokatölur 3—1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.