Morgunblaðið - 17.10.1981, Page 17

Morgunblaðið - 17.10.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981 17 Ebífamíudómkirkjan í Moskvu. Myndin er tekin út um glugga bifreiðar Sr. Jónas Gíslason ásamt túlkinum Svetlönu Voroshilovu á leið til guðs- innar. Um 5000 manns voru við guðsþjónustuna 18. ágúst á aðfaradegi þjónustu í Ebífamíudómkirkjunni. Konur setja upp slæður áður en þær ummyndunarhátíðar Krists. ganga inn í guðshús rétttrúnaðarmanna. Starfar vel innan hins þrönga ramma Samtal við sr. Jónas Gíslason um för hans til Sovétríkjanna í boði rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar Um miðjan ágúst sl. fór sr. Jón- as Gíslason til Sovétríkjanna í boði rússnesku rétttrúnaðarkirkj- unnar. Sr. Jónas er að skrifa um ís- ienska kirkjusögu og hefur í því sambandi mikinn áhuga á öllum heimildum sem hana varða, m.a. allt sem gæti varpað nýju ljósi á dvöl líorvaldar víðförla, en hann á að hafa borið beinin í Kænugarði, svo og einnig um ermsku biskup- ana. Sem kunnugt er halda íslend- ingar í ár upp á 1000 ára afmæli norræns kristniboðs á íslandi, en Þorvaldur víðförli og saxneskur biskup Friðrik að nafni eiga fyrst- ir að hafa boðað kristna trú á ís- landi árin 981—986. Vegna kristniboðsársins fór greinarhöfundur með sr. Jónasi í þessa ferð, ef unnt yrði að vinna útvarpsdagskrá um ferðina eftir heimkomuna. Þessir útvarpsþættir verða þrír og eru á dagskrá útvarpsins þann 18. og 25. október og 1. nóvember. Sr. Jónas var staddur í Hels- ingfors, en hann hafði tekið þátt í norrænni sagnfræðingaráðstefnu í Finnlandi skömmu áður en ferð- in austur hófst: „Eg var í góðu yfirlæti hjá vina- hjónum mínum, sr. Henrik og Ann-Kirstin Perret, áður en við lögðum af stað í austurátt," segir sr. Jónas. „Það má segja að ferð okkar hafi hafist þegar við stigum upp í hraðlestina Helsingfors-Moskva síðdegis þann 15. ágúst, en við vorum komnir til Moskvu að morgni 16. Þar tók á móti okkur Svetlana Voroshilovna, en hún er einn elsti starfsmaður í utanrikismáladeild rússnesku rétttrúnaðarkirkjunn- ar, sem lýtur yfirstjórn erkibisk- upsins í Moskvu, en embættistitill hans er patríark af Moskvu og öllu Rússlandi. Svetlana fylgdi okkur allan ræðum við þá aðila sem við hitt- um að máli um þessi efni. Fyrst hittum við J.N. Shapov við sögudeild Moskvuháskóla, síð- an A. Melnikovu og að lokum nokkra fulltrúa bókasafnsins í Kíev. Það var nú lítið á þessum full- trúum bókasafnsins að græða, enda fjalla menn ekki beint um sagnfræðileg efni á bókasöfnum," segir sr. Jónas eftir heimkomuna. Mestar vonir bindur sr. Jónas við prófessor Melnikovu og nú hefur Jónas í hyggju að taka sam- an nokkur atriði um Þorvald víð- förla og ermsku biskupana og senda austur. „Ég er mjög ánægður með þessa ferð svo langt sem hún nær. Þetta var auðvitað alltof stuttur tími til að geta áttað sig á svo umfangs- miklu verkefni sem hér um ræðir, enda aldrei ætlun mín, að hún yrði annað og meira en upphaf nánara samstarfs og samskipta á fræðilegu sviði. Aftur á móti var mjög fróðlegt að kynnast kirkjunni í starfi, og það kom mér á óvart hvað hún er lifandi og sterk. Við kynntumst vissulega bara hinni opinberu kirkju, og það var auðséð að starfi hennar er sniðinn mjög þröngur stakkur. En kirkjunni virðist hafa tekist að laga starf sitt að þeim ytri ramma, sem stjórnvöld hafa sett henni, og er hún greinilega mjög sterk og virðist starfa ótrúlega vel innan hans. Þeir sem ekki hafa viljað sætta sig við þennan þrönga ramma, sem stjórnvöld hafa sett kirkj- unni, geta lent alvarlega upp á Sr. Jónas Gíslason og greinarhöf- undur spjalla saman inn á upp- tökutæki útvarpsins í Zagorsk. — Zagorsk er helgastur allra staða rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, þar eru guðfræðiháskóli og klaust- ur til húsa og margar fallegustu byggingar kirkjunnar. kant við kerfið og mæta þá hindr- unum í starfi. Einnig kom það í ljós að Rússar virðast miklir þjóðernissinnar al- mennt. Fyrir þeirp eru Sovétríkin ekki bara einhver kommúnismi, heldur núverandi föðurland, og föðurlandið hefur alltaf verið ofarlega í hugum rússnesks al- mennings. Þessi staðreynd er síðan notuð af stjórnvöldum til að styrkja þjóðfélagið. Það má ef til vill segja að fræði- legur árangur ferðarinnar hafi ekki verið mikill, enda ekki við því að búast, en það vill svo vel til að rússneska rétttrúnaðarkirkjan er nú að hefja undirbúning hátið- arhalda vegna 1000 ára kristni- töku í Úkraínu 1988. Þeir hafa því mikinn áhuga á þessu timabili í sinni eigin sögu, og ég vænti þess að sá áhugi geti orðið til þess að hægt verði að ganga úr skugga um hvort ein- hverjar rússneskar heimildir eru til um Þorvald og dvöl hans í Kænugarði, sem og ermsku bisk- upana. Einnig finnst mér það mikiis virði að koma á tengslum á milli íslensku kirkjunnar og þeirrar rússnesku, því að ég tel að við get- um ýmislegt af henni lært og ekki síður hún af okkur. Ég er sannfærður um að um mun meiri tengsl hafi verið að ræða á milli okkar og austurkirkj- unnar hér á öldum áður en menn hafa almennt gert sér grein fyrir eða viljað viðurkenna, það gildir nánast um Norðurlönd almennt. Tilvera finnsku grísk-kaþólsku kirkjunnar, þó hún sé aðeins örfá prósent finnsku þjóðarinnar, er ótvírætt dæmi um þetta. Hér er því um verðugt rann- sóknarefni að ræða hvað varðar gamla tímann, auk þess sem það er ávallt gagnlegt og lærdómsríkt fyrir kirkjunnar menn sem starfa við mismunandi aðstæður að hitt- ast og kynnast og skiptast á skoð- unurn," segir sr. Jónas að lokum. Viötal og myndir: " Borgþór S. Kjærnested. Ráðstefna um atvinnumál á Selfossi LAUGARDAGINN 17. október nk. gengst Sjálfstæðisfélagið Oðinn fyrir ráðstefnu um atvinnumál á Selfossi, sem hefst kl. 13.30 í Selfossbíói. Markmið ráðstefnunnar er að fá fram hugmyndir um hvernig hægt er að efla atvinnulíf og skapa ný at- vinnutækifæri á Selfossi. Selfoss er miðstöð verslunar og þjónustu á Suðurlandi. Enda þótt þeir atvinnuþættir verði áfram hornsteinar atvinnulífs á Selfosái, er reiknað með að atvinnuþróun í landinu verði á þann veg, að iðn- aðurinn muni verða sú atvinnu- grein sem helst gæti veitt þau kjör sem æskileg teljast í framtíðinni. Þess vegna Verður einkum fjallað um fyrirsjáanlega aukna hlutdeild iðnaðarins í atvinnulífi á Selfossi. Á ráðstefnunni munu fulltrúar frá: Bæjarstjórn Selfoss, Mjólk- urbúi Flóamanna, Sláturfélagi Suðurlands, Iðntæknistofnun og Framkvæmdastofnun, flytja stutt framsöguerindi, síðan verða fyrir- spurnir og almennar umræður. Ráðstefnan er opin öllu áhuga- fólki um atvinnumál á Selfossi. (Kréttatilkynning.) Genichi Nagao Heimsforseti JC í heimsókn hingað ÞANN 19. október er væntanlegur hingað til lands heimsforseti JC Int- ernational, Genichi Gary Nagao, og mun hann dveljast hér í 2 daga. Gary Nagao heimsforseti mun halda nokkra fundi á vegum JC-félaga. Þann 19. október mun hann verða á fundi á Selfossi sem haldinn er sameiginlegur af öllum JC-félögum á Suðurlandi. Fundur- inn verður í hátíðarsal Gagn- fræðaskólans á Selfossi og hefst kl. 20.00. Þann 20. október kl. 20.30 verður hann á fundi í Kristalssal Hótels Loftleiða sem 13 félög í Reykjavík og á Reykjanesi sameinast um. Arni Sæberg sýn- ir Ijósmyndir LAUGARDAGINN 17. október opnar Árni Sæberg ljósmyndasýn- ingu í Pizza húsinu, Grensásvegi 7. Sýningin er opin alla daga klukkan 11—23.30 og stendur til 8. nóvem- ber. Þetta er fyrsta sýning Árna. Myndirnar eru teknar vítt og breitt um landið og eru þær til sölu. Basar og kaffisala KVENNADEILD Bardstrend- ingafélagsins verður með basar og kaffisölu í Domus Medica sunnudaginn 18. okt. Húsið opnað kl. 14.00. A basarnum verður mikið af prjónlesi, vettlingum, sokkum, nærfötum barna, sokkabuxum o.fl. Einnig verða seldar kökur. Kaffisala verður í stóra sal og hlaðið borð af gómsætu meðlæti. Öllum ágóða er varið til að gleðja eldri kynslóðina. Eldra fólki úr Barðastrandarsýslum er boðið til fagnaðar á skírd- ag og mun svo verða í vetur, 8. apríl, í Domus Medica. Um Jónsmessuleytið er því boðið í ferðalag. Sl. sumar var farið í Skálholt og þar mættu á sjöunda tug manna og skein ánægjan úr hverju andliti. Þeir sem vildu leggja deild- inni lið við undirbúning þessa fjáröflunardags hafi vinsam- legast samband við formann deildarinnar, Þorbjörgu Jak- obsdóttur, eða formann fjár- öflunarnefndar, Maríu Jóns- dóttur. (Fréttatilkynning.) Supermann II í Háskólabíói HÁSKÓLABÍÓ sýnir um þcssar mundir stórmyndina Superman II. Mynd þessi sem er framleidd 1980 hefur verid sýnd víða um heim við gífurlega aðsókn og góöa dóma. í stuttu máli fjallar myndin um baráttu Supermans (Christopher Reeve) við þrjá aðra aðila frá sömu plánetu og Superman er sjálfur frá. Vegna ástar sinnar á Louis Lane (Margot Kidder) þá ákveður hann að losa sig við ofurmennis hæfileikana til að geta lifað eins og venjulegur maður. Leikstjóri Richard Lester. Tónlist Ken Thorne. Aðalhlutverk Gene Hackman, Christopher Reeve og Margot Kidder. Myndin er sýnd í Dolby Stereo.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.