Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 11 Framtíðarskógar íslands eftir Jón Isberg Ég fór til Patreksfjarðar sl. sumar, sem í sjálfu sér er ekki frásagnar vert, að öðru en því að í huganum ók ég um hluta af fram- tíðarskógi íslands. Vafalaust brosa nú einhverjir, sem þessar línur lesa og halda að e.t.v. sé koll- urinn að verða eitthvað skrítinn á greinarhöfundi. En skoðum nú málið hlutlægt. í mörgum fjarða þeirra og dala, er ganga inn úr Breiðafirði, allt frá Reykhólum og vestur að Kleif- arheiði, þar sem ekið er frá Barða- ströndinni yfir til Patreksfjarðar er mikið skógarkjarr. Að Skógum í Þorskafirði eru barrtré, sem virðast fara vel að, þótt þann skógarreit þyrfti að hirða betur. A Patreksfirði og Bíldudal eru mög falleg og þróttmikil barrtré alveg við sjó, þetta hvort tveggja sýnir, að þarna vaxa barrviðir. Auk þess má minna á það, sem í Sturlungu stendur, Þorgilssögu og Hafliða: „Á Reykhólum voru svo góðir landkostir í þennan tima, að þar voru aldrei ófrævir akrarnir" sem ég skil þannig, að akuryrkja hafi verið árviss þar í sveit. Enda sýrrrr'' það sig, að þirkikjarrið og jafnvel einnig reynir lifir þarna. Lífsskil- yrði skógarins virðast því vera fyrir hendi og þá er fyrsta og grundvallar skilyrðinu fullnægt. Þarna er þröngt til ræktunar, þótt sjá megi falleg tún og sléttur. Aðallega yrði plantað út í hlíðar dalanna og þá notað land, sem annars nýtist ekki nema sem beitiland en nota má það áfram sem slíkt og þá einnig mikið betra land með tímanum. Stór svæði þarna eru óbyggð og því tiltölulega fátt um sauðfé, sem er versti óvinur skógargróðursins, þótt það bíti ekki barrtré, þegar möguleikar eru á öðrum gróðri. En þetta þýðir, að sleppa má alveg eða næstum alveg öllum girðing- um. M.ö.o. allt það fjármagn, sem í þessa skógrækt verður sett, nýt- ist til plöntukaupa og gróðursetn- ingar. Á þessum svæðum hefur fólki fækkað mikið og sums staðar er öll eða næstum öll byggð horfin. Þetta er ekki óeðlilegt. Þarna er ekki gott undir bú og nú þurfa menn ekki að búa við fiskimiðin eða hlunnindastöðvarnar. Það er auðvelt að nýta slíkt úr meiri fjar- lægð, þar sem búsetan er auðveld- ari og hægt er að fá þá þjónustu, sem við nútímamenn gerum kröf- ur til. Stórfelld skógrækt þarna heimtar fólk, svo þarna eflist einn eða fleiri þéttbýliskjarnar af fólki, sem hefir árlanga vinnu við skóg- ræktina, bæði við plöntuuppeldi og gróðursetningu, svo síðarmeir við vinnu við skóginn, skógarhögg, ef ég mætti nú nota það orð án þess að hneyksla einhvern. Þá krefjast aukin umsvif betri vega, þannig að leiðin þarna vestur yrði greiðfær allt árið um kring, m.a. vegna þess, að firðir yrðu brúaðir að verulegu leyti en gott vegasam- band eflir byggðina. Einhverjir kunna að leiða hug- ann að eignarétti að jörðum þeim, sem notaðar yrðu undir skógrækt. Það ætti ekki að vera vandamál. Sumar myndi skógræktin kaupa eða leigja til lengri tíma, aðrar myndu félagasamtök eða sveitar- félög eiga og svo myndu vafalaust margir einstaklingar, landeigend- ur, vilja taka þátt í uppgræðslu skóganna. Sá ættliður, sem leggur fram land og vinnu, kemur aldrei til að bera neitt ur býtum, nema ánægjuna af góðu þjóðþrifaverðu „Þegar land er þurrkad, er verið að vinna fyrir framtíðina að vissu marki, en þegar verið er að planta skógi er öll sú vinna til hagsbótar komandi kynslóðum.“ starfi. Allír, sem þarna vildu leggja hönd á plóginn, ættu að fá plöntur, án endurgjalds gegn því að koma þeim óskemmdum í jörð- ina. Ef menn hneykslast á þessari tillögu, vil ég benda á, að ríkið greiðir 70% af öllum skurðgreftri til landþurrkunar og stórfé til ræktunar og jafnvel girðinga og það alveg án tillits til, hvort við- komandi bóndi er sterkefnaður eða á ekki bót fyrir rassinn. Þegar land er þurrkað, er verið að vinna fyrir framtíðina að vissu marki en þegar verið er að planta skógi er öll sú vinna til hagsbótar komandi kynslóðum. Ef farið verður í aukna skóg- rækt og á ég þá ekki við það dútl, sem fram að þessu hefur verið viðhaft, heldur unnið markvisst að því að græða upp landið og rækta nytjaskóg, þá fengi fjöldi manns vinnu yfir sumarmánuðina. Alveg kjörið verkefni fyrir skólaæsku landsins. Þarna ynnu nokkur hundruð ungmenna á sumri hverju við hoil útistörf og kæmust í snertingu við náttúru landsins og uppbyggingu þess. Einmitt þeir ungu menn og konur, sem taka eiga við forustu í landinu í fyll- ingu tímans; slíkt fólk fyllist ást og virðingu til okkar góða en harð- býla lands og ekki er hætta á því, að það flýji í sólaryl suðlægari landa. Ég veit að flestir, sem nenna að lesa þessa grein, hrista kollana yf- ir fáránlegri draumsýn en þrátt fyrir það fullyrði ég að þetta er hægt. Við höfum allt sem þarf, land, nothæft loftslag, hóp af skógfræðingum, sem klæja í lóf- ana að takast á við raunverulegt verkefni, fólk til þess að vinna verkið og fjármagn. Vilji er allt sem þarf. Fjármagn er ekki til segja ein- hverjir. En það er ekki rétt. Við íslendingar erum að verða auðug þjóð. Fyrst og fremst eigum við mikið ónotað land og takmarka- litla orku og duglegt fólk, sem nú er að vísu verið að reyna að fjötra og hefta með alls konar reglum og bönnum. Fjárlögin eru hörmung, þau eru aðeins verk þeirra manna, sem semja þau og bera vitni hæfi- leikum þeirra. Eyðsla skapar aldr- ei auð, heldur sparsemi og nýtni. Þetta á við um einstaklinga og þjóðarheildina. Fjármagninu á að beina til þess að efla atvinnuveg- ina í bráð og lengd, sem svo standa undir aukinni menntun æskunnar og fullorðinna, sem svo skila þjóð- inni meiri andlegum og veraldleg- um verðmætum er tímar líða. Ég sagði í upphafi, að ég hafi orðið fyrir hugljómun og séð inn í framtíðina. Draumsýnir eru oft fagrar og geta orðið að veruleika, ef þær eru ekki of fjarstæðu- kenndar. Þessi stendur báðum fót- um á traustri jörð. Auðvitað má benda á aðra staði á landinu eins og skóg- og kjarrlendi í Þingeyj- arsýslu, t.d. hlíðar Bárðardals, en þarf þarf miklar girðingar. Svo er ég ekki alveg viss um að allir bændur verði yfir sig hrifnir af að bíða í 30 ár eftir því að geta farið að beita í skóginn. Raunverulega verður ein kynslóð að detta út eða öðruvísi sagt, kynslóðin sem hefur Jón ísberg verkið fær ekki notið annars en gleðinnar yfir að vinna landi sínu gagn og ánægjunnar að sjá skóg- inn vaxa en ungskógurinn er einna fegurstur. Þess vegna eru Vest- firðirnir alveg kjörnir fyrir þetta verkefni. Þar er engu fórnað, held- ur verður um að ræða hreinan ávinning, bæði við að græða upp- landið og búa auknum íbúafjölda atvinnutækifæri og fegurra land. En hvernig á að standa að þessu máli? Ég skora á þingmenn Vest- firðinga að taka málið í sínar hendur, flytja það inn á Alþingi og kjósa framkvæmdastjórn, ekki til þess að kanna málið, heldur til þess að koma því í framkvæmd. E.t.v. verða ekki allir með, þeir trúa um of á rollur og þorsk, sem ég í sjálfu sér ber einnig virðingu fyrir. En þá ber að hafa í huga að framtíðarskógar vestfirsku fjarð- anna koma til með að veita bless- aðri sauðkindinni meira skjól en hún nýtur nú og þorskarnir í sjón- um ættu ekki að fælast skóginn eða hafa andúð á honum. Fræg er sú setning úr bók- menntunum, sem segir að vera eða vera ekki. Hér má betrumbæta hana og sega að gera eða gera ekki, það gerir gæfumuninn, vilji er allt sem þarf. Umhverfi og heilsufar I)r. Jón Ottar Ragn- arsson, dósent Hefur umhverfið mikið áhrif á heilsufar? Er ekki búið að fjar- lægja helstu hættur sem að manninum steðja frá umhverf- inu? Hversu stór þáttur er um- hverfið nú á tímum? Heilsan, eins og annað í okkar fari, ræðst af tveimur þáttum, crfðum og umhverfi. Frá örófi alda hefur maðurinn velt því fyrir sér hvor þessara örlaga- valda ráði meiru um líf hans, hamingju og heilsu. „Þetta hefur kann fengið frá föður sínum," er setning sem flestir kannast við. Eru það erfð- ir? Eða er umhverfið hér að verki, þ.e. þær lífsvenjur sem lærast kynslóð fram af kynslóð? Eftir því sem vísindum hefur fleygt fram hafa áhrif umhverf- isins á líf okkar orðið augljósari. Margir sjúkdómar sem áður fyrr voru raktir til erfða hafa t.d. reynst eiga rætur í umhverfinu. En hvað er umhverfi? Allt sem er í kringum okkur. Ekki aðeins sýklar og aðrar hættur sem ávallt er að finna á næsta leiti, heldur og það menningar- og félagslega umhverfi sem við hrærumst i. Einn þáttur umhverfisins er fæðan. Þú ert það sem þú borðar segir máltækið. Oft er það hún sem ræður úrslitum um heilsu- farið. Sá sjúkdómur er tæpast til þar sem hún kemur ekki við sögu. Það er sjaldgæft að það sé ein- göngu umhverfi eða eingöngu erfðir sem ræður ferðinni, held- ur tvinnast þetta tvennt saman. En æ ofan í æ gerist það að farg umhverfisins verður slíkt að erfðaáhrifin eru hverfandi. Til þess að stuðla að bættri heilsu er mest um vert að koma í veg fyrir sjúkdóma. Af þessum sökum er nú vaxandi áhersla lögð á fyrirbyggjandi heilsu- vernd og umhverfisvernd. Þeir sjúkdómar sem mest hafa hrjáð mannkynið frá öndverðu eru smitsjúkdómar, hörgul- sjúkdómar og hrörnunarsjúk- dómar. Alla þessa sjúkdóma má að meira eða minna leyti rekja til umhverfisins. Smitsjúkdómarnir voru mann- inum þyngstir í skauti. Loks um miðja síðustu öld tókst að sanna að þeir stafa af sýklum í um- hverfinu. Siðan hefur flestum þeim skæðustú verið rutt úr vegi. Hörgulsjúkdómar hafa fylgt manninum frá upphafi vega. í Jón Óttar Ragnarsson byrjun þessarar aldar kom ioks í ljós að þeir stafa af skorti á til- teknum bætiefnum í fæði. Hefur þeim nú að mestu verið útrýmt. Hrörnunarsjúkdóma ætti frekar að nefna langvinna sjúk- dóma. Þeir hafa og ranglega ver- ið kailaðir menningar eða vel- ferðarsjúkdómar. Eru krabba- mein og hjarta- og æðasjúkdóm- ar algengastir. Margt er á huldu um orsakir hrörnunarsjúkdóma. Sumar teg- undir krabbameins stafa líklega af eiturefnum í fæðu og tóbaki. Hjarta- og æðasjúkdómar stafa líklega einkum af röngu matar- æði og reykingum. Annar sjúkdómaflokkur sem mjög er háður umhverfi eru geðsjúkdómar. Enda þótt erfðir komi þar líka við sögu eiga sjúkdómar af þessu tagi oft ræt- ur að rekja til óheppilegs félags- legs umhverfis. Þessi upptalning sýnir hve ná- in og margþætt tengsl eru milli umhverfis og heilsufars. Hún synir líka að oftast er það nánast umhverfi okkar sem hefur mest áhrif á heilsufarið. En hvers konar umhverfi hentar best? Án efa umhverfi sem er fjölbreytt og hvetjandi. En jafnframt þarf að feta hið vandrataða einstigi milli of mik- illar og of lítillar verndunar. Ofverndun leiðir til ófarnaðar. Sú hugmynd að einstaklingurinn FÆDA OG HEILBRIGDI þurfi ekki að skeyta um heilsu sína og geti svo hlaupið til „stóra bróður" þegar syrtir í álinn er auðvitað út í hött. Þjóðfélag sem réttir fullfrísk- um lausnirnar á silfurbakka fær það eitt fyrir sinn snúð að draga úr sjálfsbjargarviðleitni og eðli- legri samkeppni og ýta undir heimtufrekju og sjálfseyð- ingarhvöt. Það umhverfi sem helst virðist stuðla að vellíðan og betri heilsu kennir einstaklingnum að treysta á sjálfan sig en stendur svo með honum í blíðu og stríðu þegar þrekið þverr og heilsan bilar. Á undanförnum árum hefur átt sér stað viðhorfsbreyting til fyrirbyggjandi heilsugæslu. En betur má ef duga skal. Er mikið í húfi að þessi þáttur sé marg- faldlega efldur. Undirstaða fyrirbyggjandi að- gerða í heilbrigðismálum er fræðsla og aftur fræðsla. Ef neytandinn veit ekki sjálfur hvað honum er fyrir bestu ná nauðsynlegar umbætur aldrei fram að ganga. Því miður hefur það færst í vöxt að ruglingslegar, óvandaðar og oft illa þýddar greinar og „fréttir" á þessu sviði birtist í tímaritum og jafnvel í dagblöð- um. Til þess að fræðsla um heil- brigðismál nái tilgangi sínum þarf að leita miklu meira til inn- lends, sérmenntaðs fólks og koma nákvæmum upplýsingum á framfæri í íslenskum fjölmiðl- um: bókum, blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Aðeins ef það tekst er von á betri tíð með blóm i haga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.