Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 32
7 Sími á ritstjórn “10100 ogskrifstofu: IU IUU Síminná QQnQQ afgreiðslunni er OOUOO |«orx5iml>Inbií> * FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 Mynd Mbl. Krisiján. Björgunarmenn koma með l>orberg litla á lögreglustöðina í Árbæ laust fyrir klukkan tvö í nótt. „Svo komu þeir aftur, heyrðu í mér og okkur var bjargað“ Feðgar fundust í hesthúsi í Víðidal eftir víðtæka leit 100 manna „VIÐ grófum okkur í heyið og sá litli sofnaði", sagði Sigurjón Þorbergsson, sem giftusamlega var bjargað ásamt sjö ára syni sínum úr hesthúsi, skammt frá Brú í Víðidal, skömmu eftir klukkan 1.20 í nótt. Þeir feðgar lentu í crfiðleikum á heimleið frá Keykjavík Nokkurt vatn var þá á veginum á þessum slóðum og fór bifreið þeirra út af. Sigurjón tók þann kost að reyna að ösla vatnselginn heim á leið og bar sjö ára son sinn. Vatn flæddi yfir veginn og fljót- lega lenti Sigurjón í skurði svo vatnið tók honum í mitti. Þorberg- ur sonur hans missti af sér skóinn og leituðu þeir því inn í næsta hesthús, komust inn um glugga á gafli þess. Þar dvöldu þeir til klukkan 1.20 í nótt, að björgun- armenn heyrðu hróp Sigurjóns og fundu þá feðga í hesthúsinu. Björgunarsveitarmenn komu með Sigurjón og Þorberg í Lög- reglustöðina í Árbæ nokkru fyrir klukkan 2 í nótt og þar sagði Sig- urjón meðal annars í samtali við Morgunblaðið: „Fyrst eftir að við komum inn í húsið var okkur báðum mjög kalt, en eftir að Strákurinn hafði náð úr sér kuldanum sofnaði hann dá- góða stund. Mér fannst þessi tími í rauninni ekki lengi að líða, það fór vel um okkur í heyinu í húsinu. Okkur hefði ekki liðið illa þó við hefðum orðið að vera þarna til morguns, en það sem olli okkur áhyggjum var að engin vissi hvar við vorum og konan beið okkar heima. Flg varð var við björgunarmenn- ina nokkru áður en þeir heyrðu í okkur, en þá lýstu þeir hesthús- gaflinn upp. Þegar þeir svo fóru framhjá hélt ég að þeir væru að bjarga einhverju öðru fólki. Svo komu þeir aftur, þeir heyrðu í mér og okkur var bjargað." Þorbergur Iitli var ekki marg- máll, hann sötraði heitt kaffið, viðurkenndi að það hefði verið svolítið kalt fyrst eftir að þeir komu inn úr vatnsflaumnum, en m klukkan 19.30 í gærkvöldi, en þeir neitaði því, að hann hefði orðið mjög hræddur. Hann hugsaði greinilega fyrst og siðast um að komast heim. Það var klukkan 01.20 í nótt að feðgarnir fundust heilir á húfi í hesthúsi í Víðidal, skammt frá sumarbústaðnum Brú, eftir víð- tæka leit, sem um hundrað manns tóku þátt í. Miklir vatnavextir hlupu í Elliðaárnar í gærkvöldi og flæddu þær yfir bakka sína, svo stór svæði voru undirlögð vatni. Feðgarnir voru á ferð á Lada Sport-jeppa í Víðidal og festist jeppinn skammt fyrir vestan sumarbústaðinn Brú. Það var klu.kkan 19.41 að lög- reglunni barst tilkynning um, að maður ætti í erfiðleikum við bif- reið sína. Lögreglumenn fóru á staðinn og fundu jeppann, sem þá var mannlaus. Klukkan 21.30 hafði kona samband við lögregl- una, og lýsti áhyggjum sínum af afdrifum eiginmanns síns og son- ar, þar sem þeir væru ókomnir heim. Þá kom á daginn að þeir höfðu verið á jeppanum. Þá var farið að svipast um eftir þeim og á ellefta tímanum voru björgun- arsveitir kallaðar út; Björgun- arsveit Ingólfs, hjálparsveit skáta og allt tiltækt lögreglulið. Þegar björgunarmenn komu að jeppanum á tólfta tímanum, var vatnsflaumurinn að grafa undan jeppanum, allt að metershátt vatn umlukti hann og var sem hafsjór væri. Mikill straumþungi var í án- um og var óttast að feðgarnir hefðu villst í náttmyrkrinu og jafnvel lent í ánum. Þá þegar var hafin leit í næstu hesthúsum, sem öll voru umlukt vatni. Þeir fund- ust svo þegar leit hafði staðið í um tvær klukkustundir. Kafari úr úa við Vatnsendablett. Björgunarsveitinni Ingólfi fann þá í hesthúsi og voru þeir við góða heilsu og höfðu látið fyrirberast í húsinu. Mestu flóð í Elliðaánum um langt árabil Flóðin í Elliðaánum í gærkvöldi eru hin mestu um langt árabil. Stór svæði í Víðidal voru undir vatni og gífurlegur straumþungi var í ánum og voru menn sammála um, að vatnavextirnir í ánum væru hinir mestu um langt árabil, meiri en 1968, þegar miklir vatna- vextir hlupu í árnar. Sem dæmi um vatnavextina má nefna, að um klukkan 17 í gær var vatnsyfir- borðið metra fyrir neðan eystri brúna yfir Elliðaárnar, fyrir neð- an Ártúnsbrekkuna. Á níunda tímanum var vatnsyfirborðið hálf- an metra frá brúnni og um klukk- an eitt í nótt var farið að flæða yfir brúna og voru árnar enn í vexti í nótt. Vegir skemmdust Verulegar vegaskemmdir urðu víða annars staðar á landinu, einkum þó sunnan lands og vest- an, en þær voru ekki að fuilu kannaðar í gærkvöldi. Krýsuvík- urvegur og Grafningsvegur lokuð- ust vegna skemmda og á nokkrum stöðum rann úr Þingvallavegi. Að bæjunum Laxnesi og Lundi í Mosfellsdal voru brýr taldar í hættu. í Mosfellssveit komst vatn inn í kjallara eins húss a.m.k. og í Hvalfirði hrundi á veginn. I Kopa- vogi flæddi yfir veginn og brúna í Fífuhvammi innan við gryfjur. I gærkvöldi var fólk varað við að ferðast um Ólafsfjarðarmúla. Auk hvassviðris og rigningar var þar grjóthrun og talin hætta á snjó- flóðum. Heilir á húfi — feðgarnir Sigurjón Þorbergsson og Þorbergur, sem sötrar heitt kaffið, í lögreglustöðinni í Arbæ. Kafarar úr björgunarsveitinni Ingólfi við jeppann, en þá var vatnsflaumurinn farinn að grafa undan honum. Talsvert íshröngl var í ánum og hafði fram- hluti bflsins dældast nokkuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.