Morgunblaðið - 24.09.1982, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.09.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1982 55 Þessir hringdu það fram hvort hann mundi fram- kvæma fóstureyðingar eða ekki, einkum ef hann vildi verða yfir- læknir. Ég veit um a.m.k. einn kvensjúkdómasérfræðing í Dan- mörku, sem hætti störfum á spít- ala vegna þessa ákvæðis. En af orðum þessa danska læknis má marka að hann metur meira rödd samviskunnar sem er mótuð af kristilegum áhrifum og fastri trú á Guð en veraldargengi, og hann segist hafa orðið hress í bragði þegar hann las í Biblíunni, eftir að hann hafði tekið ákvörðun sína: „Egyptalandskonungur mælti til hinna hebresku ljósmæðra: Þegar þið sitjið yfir hebreskum konum þá lítið á ... sé barnið sveinbarn þá deyðið það ... en ljósmæðurnar óttuðust guð og gerðu eigi það sem Egyptakonung- ur bauð þeim ... og Guð lét ljós- mæðrunum vel farnast ... þær óttuðust Guð.“ Já, í trúnni á Guð skiljum við að mannslífið er so dýrmætt að okkur ber að vernda það og varð- veita með öllum ráðum. Fimmta boðorðið hljóðar svo: „Þú skalt ekki mann deyða." Marteinn Lúth- er útskýrði það á þessa leið í kver- inu: „Hvað er það? Svar: Vér eig- um að óttast og elska Guð, svo að vér meiðum eigi náunga vorn né vinnum honum nokkurt mein á líkama hans heldur björgum hon- um og hjálpum í allri líkamlegri neyð.“ Hvar er sú þjóð á vegi stödd sem virðir boð Guðs að vettugi og eyðir mannslifi þótt ófætt sé? Hlýtur hún ekki að kalla yfir sig dóm Guðs nema hún sjái að sér? Ahugavert sjónvarpsefni Ahugamaður skrifar: „Svo sem komið hefur fram í dagblöðunum hefir Menningar- stofnun Bandaríkjanna verið með sýningar á myndum úr þáttunum „Free .to Choose" eftir nóbelsverð- launahafann í hagfræði Milton Friedman, í tilefni 70 ára afmælis hans. Þættir þessir eru í 10 liðum og voru fimm þeirra sýndir í sjón- varpinu hér á síðasta ári við mikla athygli sjónvarpsáhorfenda, enda Velvakandi hvetur les- endur til að skrifa þætt- inum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrit- uð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Milton Friedman er hér fjallað um sjálfan grund- völl lífsviðhorfa vestrænna þjóðfé- laga á einfaldan og auðskiljanleg- an hátt öllum almenningi. Ég vil eindregið hvetja sjón- varpið til þess að nota nú tæki- færið og fá til sýningar þá þætti sem sleppt var á sl. ári og benda þeim á að sleppa nú ekki umræðu- þáttum sem fylgja hverjum ein- stökum þætti, en þar eru til kvaddir málsmetandi einstakl- ingar til að fjalla um efni hvers þáttar, með og móti, og eru þær umræður ekki síður áhugaverðar en þættirnir sjálfir. Með fyrirfram þakklæti til sjón- varpsmanna." Getum ekki endalaust borgað brúsann Ingibjörg Kristjánsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að taka undir orð Sveins Kristinssonar í grein sem hann skrifar í Velvakanda 21. sept. (þriðjud.), en þar talar hann um mál sem alltof sjaldan hlýtur umfjöllun. Af hverju er svona hljótt um þessa hluti? Hvernig er það orðið í þessu þjóðfélagi okkar: Eiga sér engir talsmenn út á við aðrir en kvenréttindakerlingar og einstæðir? Við flettum ekki svo blöðum, að ekki sé verið að fara fram á þetta og fara fram á hitt af hálfu þessara hópa. Væri ekki allt í lagi, að við hin, þ.e. hjónafólkið, færum líka að láta vita af því að við séum til og þurfum líka að lifa og getum ekki endalaust borgað brúsann fyrir hina? Og þá eru til- lögurnar hans Sveins ágæt byrjun. Gæti nú ekki einhver tekið þær til athugunar og umfjöllunar og hinir veitt þeim athygli sem með þessi mál hafa að gera? Er þetta ekki frétt? íþróttaunnandi á Akureyri hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Dagana 4. og 5. september keppti Jóhannes Hjálmarsson í kraftlyftingum öldunga í Banda- ríkjunum og setti heimsmet i réttstöðulyftu, auk þess sem hann átti sex heimsmet fyrir á þessu sviði eftir þátttöku í heimsmeist- aramótinu 1981. Frá þessu var greint í útvarpinu og Þjóðviljan- um, en aðrir fjölmiðlar þögðu þunnu hljóði. Þess vegna langar mig til að spyrja íþróttafrétta- menn almennt: Er þetta ekki frétt? Er öldungakeppni af þessu tagi e.t.v. ekki með í dæminu hjá fréttamönnunum, þegar rætt er um íþróttir? Okkur norðanmönn- um gramdist það, að Jóhannesi skyldi sýnt tómlæti eftir svo frækilega för. Hér er Jóhannes Hjálmarsson heim kominn í nóvember f fyrra, marg- faldur heimsmethafi. Myndin er tek- in í flugstöóvarbyggingunni á Akur- eyri og það er eiginkona Jóhannes- ar, Ólöf Pálsdóttir, sem stendur við hlið hans. GÆTUM TUNGUNNAR Auglýst var: Sýningunni er framlengt. Kétt væri: Sýningin er framlengd. (Ath.: Rétt er: Vegurinn verður lengdur, en EKKI: Vegin- um verður lengt.) MNUNARFRfEDSLA AFGREIÐSLU- OG ÞJÓNUSTUSTÖRF Tilgangur námskeiðsins er að gefa þátttakendum heildaryfirlit yfir afgreiðslu- og þjónustustörf í því skyni að auka hæfni þeirra við að annast þau störf. Fjallað er almennt um hlutverk af- greiðslumanns í verslunar- eða þjónustustörfum og lögð áhersla á framkomu, sölumennsku, þjón- ustulipurð og starfsanda. Gerð er grein fyrir hagnýtum þáttum af- greiöslustarfa, svo sem móttöku pantana, kassastörfum, verðmerk- ingu, vörutalningu, rýrnun o.fl. Einnig er rætt um helstu hugtök sölufræðinnar og hvernig af- greiðslufólk getur nýtt hana viö dagleg störf. Námskeíðið er ætlað afgreiðslu- fólki í verslunum og þjónustufyr- irtækjum. Loiðboinondur Gunnar Maack viðskiptafrmðingur Staður: Síöumúli 23, 3. hæö. Tími: 28.—30. september kl. 14.00—18.00. Þórir Þorvarðarson ráðningarstjðri ATH.: Fræðslusjóður Verslunarmannafélags Reykjavíkur greiðir þátttökugjald félagsmanna sinna og skal sækja um það á skrifstofu VR. ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL STJÓRNUNARFÉ- LAGSINS í SÍMA 82930. STJÓRWUWflBFÉLflG ISLANDS SÍÐUMULA 23 SÍMI 82930 Megrunarnámskeið Ný námskeiö hefjast 4. október. (Bandarískf megrun- arnámskeið sem hefur notið mikilla vinsælda og gefiö mjög góöan árangur.) Námskeiöiö veitir alhliða fræöslu um hollar lífsvenjur og vel samsett mataræöi, sem getur samrýmst vel skipulögöu, venjulegu heimilismataræði. Námskeiöið er fyrir þá: • sem vilja grennast • sem vilja koma í veg fyrir að vandamáliö endurtaki sig. • sem vilja forðast offitu og það sem henni fylgir. Upplýsingar og innritun í síma 74204 kl. 13—18. Kristrún Jóhannesdóttir, manneldisfræöingur. Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! i JHtfiogAinMfifeifr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.