Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 5 Ný bók um sögu Sverris konungs STOFNUN Árna Magnússonar hefur nýlega gefið út bók um sögu Sverris konungs Sigurð- arsonar (d. 1202). Höfundur bókarinnar er Lárus H. Blön- dal, fyrrum borgarskjalavörð- ur. Bókin heitir Um uppruna Sverris sögu og er ávöxtur margra ára rannsókna og hef- ur höfundur áður birt nokkurn hluta ritgerðar sinnar í afmæl- isriti Sigurðar Nordals 1951. Sverris saga er í flokki elstu konungasagna og hún hefur — eftir Lárus H. Blöndal verið samin á meðan þeir at- burðir sem þar segir frá voru enn í fersku minni. Sam- kvæmt formála sögunnar var heimildarmaður um upphaf sögunnar Sverrir konungur sjálfur, en sá sem ritaði var Karl Jónsson ábóti í Þingeyraklaustri (d. 1213). En þess er og getið þar að fleiri samtíðarmenn hafi sagt frá. Höfuðhandrit sögunnar eru fjögur og er eitt þeirra Flat- eyjarbók, sem hefur formál- ann í sérstakri gerð. Ummæli formála í þessum tveim ger- ðum eru að sumu leyti óljós og hafa orðið fræðimönnum drjúgt umræðuefni frá því sagan kom fyrst út á prenti árið 1813. Allt þetta efni hef- ur Lárus tekið til rækilegrar endurskoðunar og gerir hér grein fyrir röksemdum sínum og niðurstöðum um ýmsa Lárus H. Blöndal þætti sögunnar. Bókin er með nafnaskrá og ensku ágripi, samtals 220 blaðsíður. Vela fékk á sig hnút á Siglufirði — sjór komst í lestir VELA, lciffuskip Kíkisskipa, fékk á sig hnút í mynni Siglufjarðar í fyrrinótt, moð þeim afleiðingum að þéttilisti í hliðarlúgu gaf sig og sjór komst í lestir skipsins. Einnig gaf sig olíurör og komst olía í hluta af farminum. Óljóst er hversu mikið tjón hefur orðið á farmi Velu, og verður tjónið ekki metið fyrr en skipið kemur til ísafjarðar, en þangað er það vænt- anlegt í dag. Vela sneri til Akureyrar eftir að hún fékk á sig hnútinn og þangað kom skipið í gærmorgun. Vegna ills veðurs á Akureyri komst skipið ekki að bryggju og hafðist við á Pollinum þar til um miðjan dag, að tekist hafði að gera við þéttilistann og olíu- rörið. Vela var á leiðinni til Siglufjarðar frá Húsavík, en þaðan var ferðinni heitið til ísafjarðar og Reykjavíkur. Mestur hluti farmsins er kísilgúr, sem tekinn var á Húsavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.