Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 42
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 Fjórar umsóknir um Krísuvíkurskólann Á AÐALFUNDl SASÍR, Samtaka sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi, sem haldinn var laugardaginn 11. des- ember sl. var samþykkt tillaga þess efnis að tilnefna fulltrúa á vegum SASÍR í nefnd til að fjalla um framtíð Krísuvíkurskólabyggingarinnar og æskja tilnefninga um fulltrúa frá Sam- tökum sveitarfélaga á Suðurnesjum, Hafnarfirði og menntamálaráðuneyt- inu. Krísuvíkurskólinn sem staðið hef- Valur og Bessi í Nýja kökuhúsinu LEIKARARNIR Valur Gíslason og Bessi verða í Nýja kökuhúsinu við Austurvöll í dag klukkan 17.30. Val- ur áritar bók sína „Valur og leik- húsið", en Bessi fer með gaman- mál úr bókinni 211 gamanmál eft- ir Jóhannes Helga. Vísnasöngur verður á milli. ur ónotaður i langan tíma var augiýst- ur til sölu eða leigu, fjórar umsóknir bárust. Að sögn Salome Þorkelsdóttur formanns SASÍR eiga öll fimmtán sveitarfélögin í Reykjaneskjördæmi umrædda byggingu, ásamt Vest- mannaeyjum, en þessi sveitarfélög mynda Kjalarnesprófastsdæmi. Eignarhluti sveitarfélaganna er 25%, en menntamálaráðuneytis 75%. Verið er að vinna úr umsókn- um sem bárust. Salome sagði að þar hefði ekki verið um að ræða formleg tilboð, fremur óskir um viðræður, og vildi hún því ekki gefa upp umsókn- araðila. Á aðalfundi SASÍR var ákveðið að leggja samtökin niður frá næstu áramótum og sagði Salome að þar sem ljóst væri að ekki yrði búið að ganga frá hver framtíð Krísuvík- urskólans yrði fyrir þann tíma hefði þessi ákvörðun verið tekin um skip- an nefndar. Framsókn á Vestfjörðum: 12 bjóða sig fram í skoðanakönnun TÓLF gefa kost á sér í skoðanakönn- un Framsóknarflokksins til uppstill- ingar á framboðslista fyrir komandi Alþingiskosningar, en framboðsfrest- ur rann út sl. laugardag. Að sögn Kristins Jónssonar á ísafirði fer skoð- anakönnunin fram um miðjan janú- armánuð. Niðurstaða könnunarinnar verður ekki bindandi. Öllum er náð hafa 18 ára aldri, eru flokksbundnir eða undirrita stuðningsyfirlýsingu við Framsóknarflokkinn er heimil þátt- taka. Eftirtaldir bjóða sig fram: Bene- dikt Kristjánsson Bolungarvík, Guðmundur Kristjánsson Bolung- arvík, Gunnlaugur Finnsson, Hvilft, Önundarfirði, Magdalena Sigurðardóttir Isafirði, Magnús Björnsson Bíldudal, Magnús Reynir Guðmundsson ísafirði, Ólafur Þórðarson Reykjavík, Ragnar Guð- mundsson Brjánslæk, Sigurgeir Magnússon Patreksfirði, Stein- grímur Hermannsson Garðabæ, Sveinn Bernódusson Bolungarvík og Össur Guðbjartsson Láganúpi, Rauðasandshreppi. JÓLASVEINARNIR eru önnum kafnir þessa dagana, enda þurfa þeir víða að koma við og margt að gera þann tíma, sem þeir staldra við í mannheimum. A laugardaginn gengust verzlanir á Hlemmtorgi fyrir jólahátíð og er efri myndin tekin þá, en hin var tekin í gær á jólaballi barnadeildar Landakots. MorgunbUóií/ KÖE Verð kr. 128.700.- Lada Safír kr. 107.500.- Lada Canada kr. 126.800.- Lada Sport kr. 181.500.- Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.