Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.12.1982, Blaðsíða 32
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 „Þið verðíð aðlesa þessabók" Gatan var ekki fyrir alla Bókmenntir Jenna Jensdóttir LEIKVÖLLURINN OKKAR Texti: Kurusa Myndir: Monika Doppert Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir, úr spænsku. \fál og menning. Þessi litla saga er frá framandi landi. Hún er byggð á sönnum at- burðum og gerist í fátækrahverf- inu San José þar sem allt er þakið húsum og maibikuðum götum. Börnin gátu verið á bókasafninu i hverfinu, þegar þau komu úr skól- anum, þar gátu þau teiknað og les- ið. En þar gátu þau ekki verið í boltaleikjum, eltingaleik eða hlaupið í skarðið. Þess vegna urðu þau að leika sér á götunni. En gat- an var bara alls ekki fyrir þau — hún var fyrir þá fullorðnu. Þau mættu skömmum og skilnings- leysi — og voru í raun alls staðar fyrir. Börnin langaði til að eignast leikvöll. Þá datt þeim í hug borg- arstjórinn. Hann hlaut að geta hjálpað þeim. Þau vissu að borgarstjórinn hlustaði ekki á þau nema einhver fullorðinn færi með þeim. Árang- urslaust reyndu þau að það fá ein- hvern fullorðinn með sér, en eng- inn mátti vera að að sinna börn- unum. Ungi bókavörðurinn var sá eini sem hafði áhuga á þessu mál- efni þeirra. Hann undirbjó með þeim ferð til borgarstjórans, þar sem þau ætluðu að koma á fram- færi kröfum sínum um leikvöll. Erfiðlega gekk. Þau fengu ekki að hitta borgarstjórann og mæður þeirra komu, reiðar við bðrnin sín af þvi að þau hurfu að heiman án þess að þær vissu hvert þau fóru. — Krakkabjálfar, sögðu mömmurnar. Af hverju fóruð þið hingað í leyfisleysi? — Farið burt með þau, skipaði feiti maðurinn löggunum. Þau eru með ólæti á almannafæri. Samt fór það nú svo að litli hóp- urinn fékk stuðning mæðra sinna og: — Út um dyr Ráðhússins komu nú borgarstjórinn, blaðakona og borgarverkfræðingurinn. Börnin fengu loforð fyrir leik- velli. Tíminn leið. Svo gerðist það einn morguninn að borgarstjórinn FRÁ og með 16. þ.m. hefur Spari- sjóóur Vélstjóra þátttöku í Eurocard kreditkortaþiónustunni. Ásamt Út- vegsbanka Islands og Verzlunar- banka íslands mun Sparisjóður Vél- stjóra veita alla þjónustu, sem á þarf að halda fyrir umsækjendur og not- endur Eurocard kreditkorta, segir í frétt frá Kreditkort sf. Ennfremur segir: Á þeim tíma sem Eurocard kreditkortastarf- var mættur ásamt börnunum og fleira fólki úr hverfinu: „... Hér byggir borgarstjórinn barnaleik- völl San José-hverfis." En leikvöllurinn var ekki gerður fyrr en börnin sjálf, með hjálp fólksins í hverfinu, unnu að gerð hans. Hver er svo raunveruleikinn? Aftan á bókinni stendur að enn hafi börnin í fátækrahverfinu ekki eignast leikvöll. Islensk bðrn og unglingar ættu að skyggnast inn í veröld barn- anna í San José í sögu þessari. Hún er sögð á mjög góðu máli og leiðir hugann að sameiginlegum vandamálum. Skemmtilegar myndir prýða hverja síðu bókarinnar — sem er unnin af vandvirkni. semin hefur verið starfrækt hér á íslandi eru kreditkortahafar farn- ir að skipta þúsundum hérlendis, sem sýnir að íslendingar hafa staðfest ágæti þessa gjaldmiðils, jafnt heima og heiman. Það er von eigenda Kreditkorta sf. að viðskiptavinir Sparisjóðs Vélstjóra og aðrir notfæri sér þessa nýju og bættu þjónustu og kynnist kostum kreditkorta. Sparisjóður vélstjóra tekur þátt í Eurocard kreditkortaþjónustunni Ein eftirminnilegasta örlagasaga allra tíma ÉG LIFI, hin ógleymanlega saga Martins Gray, er nú komin út í þriðja sinn. ,,Hér er bók sem ekki er eins og aðrar bœkur. Maður opnar hana og byrjar að lesa og maður getur ekki lokað henni aftur... Mig skortir orð til að lýsa henni. Pað eina sem ég get sagt er: þið verðið að lesa þessa bók, þið verðið að lesa hana!“ Þannig var komist að orði um þessa einstœðu bók, eina sérstceðustu og eftirminnilegustu örlagasögu allra tíma, sögu sem er ótrúlegri en nokkur skáld- Bladburóarfólk óskast! Austurbær Skólavörðustígur Laugavegur 1—33 Flókagata 1—51 Vesturbær Tjarnarstígur Garðastræti Faxaskjól Skerjafjörður sunnan flugvallar ! Úthverfi Gnoðarvogur 44—88 Hjallavegur ___________________ ■ Nytjahlutir úr slípuðu stáli. Stórkostleg ítölsk hönnun, sem hittir þá kröfuhörðustu beint í hjartastað. Kjörgripir til gjafa - eða bara til þess að gleðja sjálfan sig og fjölskylduna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.