Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 19 Yfirvöld ákveða 10—15% hækkun á nauðsynjavörum Varsjá, 14. nóvember. AP. STJÓRNVÖLD í Póllandi tilkynntu á laugardag, að þau hefðu ákveðið að hækka verð á ýmissi nauðsynjavöru um 10—15 af hundraði í byrjun nýs Flugmaður flýr: í frelsis- leit en ekki fjár Tapei, Taiwan, 14. nóvember AP. FYRSTI flugmaðurinn úr kín- verska sjóhernum, sem flýr til Tai- wan, sagði í dag, að hurð hefði skollið nærri hælum þegar hann flýði frá meginlandinu og að ef hann hefði verið mínútu lengur á leiðinni hefði hann orðið bensín- laus og lent í sjónum. Kínverski flugmaðurinn, Wang Xuecheng, kom fram á blaðamannafundi átta tímum eftir að hann lenti á Taiwan og sagðist hafa flúið til að ieita „frelsis en ekki til að vera um- bunað fyrir með fé“. Stjórnvöld á Taiwan launa þeim mönnum vel, sem flýja frá Kína, en þó fer upphæðin nokkuð eftir farangr- inum. Orrustuþota af gerðinni MIG-17, eins og Wang flaug, er t.d. metin á hálfa aðra milljón dollara. Wang kvaðst hafa flogið í um klukkustund frá herflugvelli á Zhou Shan-eyjum áður en tvær taiwanskar flugvélar flugu í veg fyrir hann. Gaf hann þeim þá merki um að hann vildi lenda. árs. Mikil andstaða hefur verið gegn þessum fyrirhuguðu hækkunum á meðal almennings og er talið að til- kynning stjórnvalda dragi síst úr þeirri ólgu, sem ríkt hefur í pólsku þjóðlífi vegna þessa. Áður hafði verið talið, að hækkanirnar myndu verða um 20%. Minnug ólgunnar, sem hlaust af hækkun nauðsynjavara án samráðs við kóng eða prest fyrir þremur ár- um, boðuðu stjórnvöld til viðræðna við forystumenn ríkisreknu verka- lýðsfélaganna um þessar fyrirhug- uðu hækkanir. Þær umræður virð- ast hins vegar hafa komið að litlu haldi fyrir almenning því matvörur hækka þrátt fyrir allt. Talsmaður þeirra félaga Sam- stöðu, sem enn eru í leynum og neita að gefa sig fram við stjórn- völd, sagði þessa ákvörðun hnefa- högg í andlit launþega. Hvatti hann verkafólk jafnframt til þess að efna til skæruverkfalla á vinnu- stöðum til þess að mótmæla hækk- ununum. í tilkynningu stjórnvalda var engin ákveðin dagsetning gefin upp í tengslum við hækkanirnar, en sagði aðeins að „þær yrðu ekki á þessu ári“. I ljósi fyrri yfirlýsinga stjórnvalda þykir þetta benda til þess að hækkanirnar taki gildi þeg- ar þann 1. janúar. Bandarískir hermenn bera eitt fórnarlamb byltingarinnar á Grenada á brott. Þúsundir í kirkjur og lofuðu innrásina St (ieorge’s, Grenada, 14. nóvember. AP. ÞÚSUNDIR Grenadabúa fylltu kirkjur eyjarinnar á sunnudag í almennri þakkargjörð vegna inn- rásar Bandaríkjamanna á eyna fyrir skemmstu. Var jafnframt beðið fyrir þeim er létu lífið í átökunum við innrásina. Skothvellir heyrðust af og til í borginni síðar um daginn, en talsmaður bandaríska herliðsins á Grenada sagðist ekki hafa nán- ari vitneskju um orsakir þess að hleypt var af skotum. Frá og með sunnudagsmorgni að telja var vika liðin frá síðustu dauðsföllun- um vegna innrásarinnar. Talsmaðurinn upplýsti jafn- framt, að alls hefðu 1120 Kúbu- menn og Grenadabúar komið „til meðferðar" í búðum Bandaríkja- hers á eynni frá því innrásin var gerð, eins og talsmaðurinn komst að orði. I gær var 95 föngum sleppt úr búðunum og eru þeir, sem enn eru í haldi, þá einhvers staðar á bilinu 60—100. Þrátt fyrir ummæli banda- rískra hermanna um góða með- ferð á föngunum bera ummæli þeirra, sem sleppt var úr haldi í gær, vitni um annað. „Þeir fóru mjög harkalega með okkur,“ sagði John Joseph, einn fang- anna. Hann er í byltingarher eyj- arskeggja. „Við verðskulduðum ekki þá meðferð er við hlutum, við gerðum ekkert af okkur. Það er ekki glæpur að verja land sitt,“ sagði hann ennfremur. I skýrslu, sem bandaríska varnarmálaráðuneytið sendi frá sér um helgina, segir að engir hermenn Grenadahers hafi fallið í átökunum. Þar var jafnframt gefið til kynna, að þau 42 lík, sem fundist hafa og enn hefur ekki tekist að bera kennsl á, séu öll af Kúbumönnum. Stjórnarandstaðan sigurvegari í Perú l.ima, Perú, 14. nóvember. AP. VINSTRI- og miðflokkarnir unnu sigur í bæjar- og sveitarstjórnar- kosningunum í Perú um helgina en flokkur Fernando Belaundes, forseta, tapaði. Kosningaþátttaka var mikil þrátt fyrir sprengjutilræði og hótanir maóískra skæruliða. Þegar kjörstöðum var lokað á sunnudagskvöld hafði Alfonso Barrantes, frambjóðandi Vinstri- fylkingarinnar, forystu í Lima, höfuðborginni, en þá höfðu 60% atkvæða verið talin. Fernando Schwalb, forsætisráðherra, sagði það ljóst, að Alfonso myndi bera sigur úr býtum óg kvaðst vona, að hann myndi „gegna skyldum í samræmi við lögin“. Ekki er búist við, að talningu ljúki endanlega fyrr en eftir tíu daga. Á hæla Vinstrifylkingunni í Lima komu jafnaðarmenn, þá íhaldsmenn og flokkur Belaundes rak lestina. í skoðanakönnunum, sem gerðar voru fyrir kosningar, kom fram, að utan höfuðborgar- innar fengju jafnaðarmenn mest fylgi allra flokka. Helsta ástæðan fyrir sigri stjórnarandstöðuflokkanna er slæmt efnahagsástand í Perú og er Belaunde kennt um. Heiti straumurinn E1 Nino, sem var óvenju mikill og heitur framan af árinu, á þó ekki minnstan þátt í því en hann hefur eyðilagt ansjósustofninn og lagt fiski- mjölsiðnaðinn í rúst. Maóískir skæruliðar, sem reyndu hvað þeir gátu til að spilla kosningunum, höfðu ekki erindi sem erfiði því að kosningaþátttaka var mjög mikil. Yuri Andropov Lítils er vænst af Andropov New York, 14. nóvember. AP. YIJRI ANDROPOV, forseti Sovétríkjanna, er nú á heilsuhæli og er að jafna sig eftir mjög erfiða sjúkdómslegu, að því er bandaríska blaðið Newsweek hefur eftir heimildum í Moskvu. Heimildamönnum Newsweek ber ekki saman um sjúkdómana sem hrjá Andropov, en eru á einu máli um, að á Andropov sé nú farið að líta sem máttvana leiðtoga í Sovét- ríkjunum. Hann hefur ekki sést opinberlega síðan 18. ágúst sl. og var ekki viðstaddur hátíðahöldin í tilefni af byltingarafmælinu 7. nóv- ember. Tveir breskir læknar halda því fram, að margt bendi til, að Andropov þjáist af nýrnasjúkdómi, en aðrir segja, að gallblaðran hafi verið að hrella hann að undanförnu. Heimildamenn Newsweek sögðu, að flestir hefðu átt von á, að Andro- pov yrði við völd í fimm ár a.m.k., en nú virtust allir sannfærðir um að hann gæti farið frá á hverri stundu. Þess vegna beindist nú allur áhugi manna að líklegum eftirmönnum hans. 16.N0V. 83 fSBllíS^ BIL DSHOF ÐANTJM ---- OPIÐ HVERN DAGr KL. 15-21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.