Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 Einn efnilegasti fol- inn á stóðhestastöð- inni fannst dauður í haga SÍÐDEGIS á laugardaginn fannst einn af folum stóðhestastödvarinnar í Gunn- arsholti dauður í haganum. Var það þriggja vetra stóðhestur, Hraunar frá Sauðárkróki, en eigandi hans var Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki. Var foli þessi talinn, af þeim sem til þekktu, einn af efnilegri stóðhestum landsins. Hann var reyndar ótaminn en fyrirhugað var að temja hann í vetur. Hraunar var undan Ófeigi 822 frá Flugumýri og Hrafnkötlu 3526 frá Sauðárkróki sem bæði eru landskunn kynbótahross. Það var Páll B. Pálsson, starfs- maður stóðhestastöðvarinnar, sem kom að Hraunari á laugardaginn, þar sem hann var í girðingu ásamt öðrum folum stöðvarinnar, skammt frá Gunnarsholti. Fyrr um daginn hafði Páll verið þarna á ferð í þeim erindum að gefa folun- um og sá hann ekki neitt athuga- vert þá. Engin ummerki voru sem bentu til að hesturinn hafi barist um, þannig að telja verður að hann hafi látist skyndilega. Hraunar hafði verið frá folaldstíð á stóð- hestastöðinni, og taldi Páll að hann hafi verið einn efnilegasti foli stöðvarinnar, og væri mikil eftirsjá í honum. „Hann var geðgóður, þjáll og virtist mjög ganglipur," sagði Páll ennfremur. í samtali við eigandann, Svein Guðmundsson, kom fram að hest- urinn var ótryggður og kvaðst Sveinn ekki tryggja neitt af sínum þrjátíu hrossum. „Ég var með þetta allt tryggt hér í eina tíð en hætti því. Ég tel mín hross mjög dýrmæt og það yrði stór biti að tryggja þau öll á raunvirði, og ef tryggja á nokkur hross verður það alltaf spursmál hvað á að tryggja og hvað ekki. Þetta dauðsfall er mikið áfall fyrir mitt ræktunarstarf, því ég var búinn að gera mér miklar vonir með þennan hest. Var í bígerð hjá mér að sýna Hrafnkötlu móðir Hraunars með afkvæmum á næsta Landsmóti og reyna með hana í heiðursverðlaun, en þær áætlanir hrynja sjálfsagt með þessum skelli,“ sagði Sveinn ennfremur. Bflvelta á Blönduósi: Þrír menn sluppu naumlega Blönduósi, 14. nóvember. NÝLEGHR Bronco-jeppi skemmdist illa í veltu hér í gærkvöld. Ohappið varð er ökumaður jeppans hafði ný- lega beygt af Húnabraut inn á Mela- braut og lenti á svellbunka með fyrrgreindum afleiðingum. Auk öku- manns voru tveir farþegar í bílnum. Engan þeirra sakaði þrátt fyrir að yfirbygging bílsins stórskemmdist. - BV. Ljósmynd Sig. Sigm. Hraunar á sýningu stóðhestastöðvar- innar vorið ’82 þá tveggja vetra gam- all. Þorkell Bjarnason hrossarækt- arráðunautur var spurður hvort ekki tíðkaðist að tryggja þá hesta sem gista á stóðhestastöðinni hverju sinni. Sagði hann aðeins tryggja þá hesta sem væru í eigu stöðvarinnar, en þeir sem hefðu fola á stöðinni yrðu sjálfir að sjá um að tryggja sína hesta. „I upp- hafi sá stöðin um að tryggja hest- ana og var þá keypt hóptrygging á alla hestana og var erfitt að koma einstökum hestum í háa tryggingu. Voru margir hverjir óánægðir með þetta og töldu að sinn hestur væri of lágt tryggður. Var því ákveðiö að láta eigendur sjálfa sjá um trygg- ingamálin. Þegar nýir hestar eru teknir inn á stöðina er eigendum sent bréf þar sem tekið er fram að hestarnir séu á ábyrgð eigenda og sé þeim í sjálfsvald sett hvort þeir fryggja eða ekki.“ Þá var Þorkell spurður um álit hans á Hraunari. „Hann þótti efnilegur og vel ættað- ur, hann var ágætlega stór og myndarlegur, en það sem lyfti hon- um fyrst og fremst á þessu stigi málsins var ættin, þar sem hann var ótaminn og óreyndur að því leyti til,“ sagði Þorkell að lokum. I gærmorgun var hesturinn kruf- inn á tilraunastöðinni að Keldum, og var Páll Agnar Pálsson, yfir- dýralæknir, inntur eftir þvi hver dánarorsökin væri. Kvað hann ekk- ert vilja segja á þessu stigi máls- ins, því eftir væri að rannsaka ýmsa hluti sem máli geta skipt. Þó má geta þess að grunur leikur á að um hjartabilun hafi verið að ræða. Um verðmæti fola á borð við Hraunar er ekki gott að spá um, en þó má telja að eitt hundrað þúsund sé lágmarksverð fyrir fola í þessum gæðaflokki. Fyrirlestur um finnsk utanríkismál Einnig sýnd kvikmynd um Kekkonen ÞRIÐJUDAÍiINN 15. nóv. kl. 20:30 heldur Ariel Rimon, pol.lic. fyrirlest- ur í Norræna húsinu á ensku og nefn- ir: „Aspects on the history of the Finnish Foreign Policy“. Að fyrir- lestri loknum verður gert hlé, en síð- an verður sýnd litkvikmynd, sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli Urho Kekkonens, fyrrv. forseta Finn- lands, og nefnist hún „Urho Kekkon- en — the inspiring statesman” og er hún 45 mín. að lengd. Fyrirlesarinn, Ariel Rimon, er sendiráðsritari við sendiráð Finn- lands í Reykjavík. Hann lauk emb- ættisprófi 1974 og starfaði sem að- stoðarkennari og fyrirlesari í stjórnmálasögu við finnska háskól- ann í Turku (Turun yliopisto) 1971—’78 og við háskólann í Hels- inki 1975—’76. Hann var ritari ferðamálaráðsins í Turku 1977— 79, en hóf síðan störf í þágu finnska utanríkisráðuneytisins, þar sem hann fékkst við afvopnun- armál 1979—’81 og norrænt sam- starf 1981—’83. Hann hefur gefið út tvær bækur: Kehitysmaat ja Suomi (Finnland og þróunarlöndin) 1973 og Kylm- ástá sodasta liennytykseen (frá köldu stríði til þíðu í milliríkja- samskiptum) 1977. Kvikmyndina um Kekkonen lét finnska auglýsingasjónvarpið gera árið 1975. (Fréttatilkynning). ‘l0fTlíl0lflÁ Skákstjórarnir Hálfdán Hermannsson og Andri Hrólfsson, afhenda Sæbirni Guðfinnssyni, liðsstjóra sveitar Einars Guðfinnssonar hf„ hin glæsilegu sigurlaun. Við hlið þeirra standa skákmennirnir, f.v.: Daði Guðmunds- son, Hálfdán G. Einarsson og Karl Þorsteins. Morgunblaðið/KÖE. Óvæntur sigur Bolvík- inga á skákmóti Flugleiða SKÁKSVEIT fyrirtækisins Einar Guðfinnsson hf. á Bolungarvík kom geysilega á óvart nú um helgina með því að sigra í árlegri sveitakeppni Flugleiða eftir æsispennandi keppni við sveit Búnaðarbankans. Skáksveit af landsbyggðinni hefur aldrei náð sambærilegum árangri áður í keppni við sterkustu fyrirtækin á höfuðborgarsvæðinu. Bolvíkingarnir nutu þess að Karl Þorsteins, einn af okkar efnilegustu skákmönnum, var í sumar- vinnu fyrir vestan og tefldi því á fyrsta borði fyrir sveitina. Auk hans voru þeir Halldór Grétar Einarsson og Daði Guðmundsson í liði Einars Guð- finnssonar hf„ en liðsstjóri var Sæbjörn Guðfinnsson. Eftir fyrri dag keppninnar virtist svo sem Búnaðarbankinn og Ríkisspítalarnir myndu berj- ast um efsta sætið eins og reynd- ar oft áður í slíkum sveitakeppn- um. En seinni daginn forfallað- ist Sævar Bjarnason, fyrsta- borðsmaður spítalanna og þar með drógust þeir aftur úr. Bol- víkingarnir mættu hins vegar eldhressir til leiks á sunnu- dagsmorguninn og u n qu þá fyrstu fjórar keppnir sínar 3—0. Eftir hádegið aðstoðaði hin Bol- ungarvíkursveitin, sveit Jóns Friðgeirs Einarssonar, þá dyggi- lega með því að vinna Búnaðar- bankann 2—1, öllum að óvörum. í síðustu umferðunum gekk síðan á ýmsu og skiptust Einar Guðfinnsson hf. og Búnaðar- bankinn á um forystuna. Spenn- an náði síðan hámarki í síðustu umferð þegar toppsveitirnar tvær mættust innbyrðis. Urslit- in urðu þau að Jóhann Hjartar- son vann Karl Þorsteins en Hall- dór Grétar Einarsson jafnaði fyrir Bolvíkinga með því að vinna Braga Kristjánsson. Þá valt allt á einni skák á milli þeirra Daða Guðmundssonar og Guðmundar Halldórssonar. Guðmundi tókst að lokum að knýja fram hróksendatafl með tveimur peðum meira og unninni stöðu, en til þess að fá þetta fram hafði hann eytt of miklum tíma og að lokum varð það klukkan sem tryggði sveit Éin- ars Guðfinnssonar óvæntan en verðskuldaðan sigur. Lokastaðan: Vinningar 1. Einar Guðfinnsson hf. 58 af 69 mögulegum 2. Búnaðarbankinn 56 % 3. Ríkisspítalar 52'/2 4. Flugleiðir 48 5.-6. Skákfélag Akureyrar og Útvegsbankinn 47 7. ísl. járnblendifél. 46 8. Vkm.bústaðir, Rvík 42 9. Dagblaðið-Vísir 41 % 10. Þjóðviljinn 36V2 11. Fjölbrautask. Suðurn. 35 12. Jón F. Einarsson, Bolungarvík 33 '/2 13. Landsbankinn 32 14. Morgunblaðið 30 15. Taflfélag Garðabæjar 28 16. —17. Taflfélag Norðfjarðar og Taflfélag Vestmannaeyja 27 % 18. Veðurstofan 26 V2 19. Skákfélag Sauðárkróks 24 20. Sölumiðs. hraðfrystihús. 20 21. Ríkisútvarpið 19 22. Hraðfrystihús Stöðvarfj. 18‘A 23. íslenska álfélagið I6V2 24. Trausti, fél. sendibifr.stj. 15 Keppnin nú var haldin í fimmta skipti. Áður hefur Bún- aðarbankinn unnið þrisvar, en Útvegsbankinn einu sinni. Ein- okun bankanna hefur því verið rofin. Úrslit á einstökum borðum urðu þessi: 1. borð: 1. Helgi Ólafsson (Þjóðviljanum) 20% v. af 23 mögulegum. 2.-3. Elvar Guð- mundsson (Flugleiðum) og Jó- hann Hjartarson (Búnaðar- bankanum) 20 v. 2. borð: 1. Róbert Harðarson (Ríkisspítölum) 21% v. 2. Hall- dór G. Einarsson (Einar Guð- finnsson hf.) 19 v. 3. Jón Þor- steinsson (Verkamannabúst.öð- um) 18 v. 3. borð: 1. Daði Guðmundsson (Einar Guðfinnsson hf.) 21% v. 2. Lárus Johnsen (Ríkisspítöl- um) 19 v. 3.-4. Jakob Kristins- son (Skákfélagi Akureyrar) og Þráinn Sigurðsson (ísl. járn- blendifélaginu). Sá keppandi sem langmest kom á óvart var Daði Guð- mundsson, sem var bæði í sigur- sveitinni og hreppti borðaverð- laun. Daði er ekki sérstaklega þekktur sem skákmaður, en hef- ur látið til sín taka í félagsmál- unum. Það var því búist við að hann yrði veikasti hlekkur sveit- ar sinnar, en í staðinn reyndist hann traustasti stólpinn með hvorki meira né minna en 93,5% vinninga. Þessi vinsæla keppni tókst í alla staði mjög vel og fylgdust fjölmargir áhorfendur með, sér- staklega seinni daginn. Skák- dómari var Jóhann Þórir Jóns- son, og þurfti hann að þessu sinni að leysa úr óvenju mörgum deilumálum, enda keppnin hörð. Skákstjórar voru þeir Hálfdán Hermannsson og Andri Hrólfs- son. Mikill fjöldi fylgdist með skákmótinu seinni daginn. Hér eru menn í hnapp þegar aðeins einni skák var ólokið í viðureign Einars Guðfinnssonar og Búnaðarbankans. Daði Guðmundsson sigraði og tryggði sveit sinni sigur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.