Morgunblaðið - 27.11.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983
3
Onnur bókin um
Óla og Magga
Fyrsti fundur viöræðunefnda ASÍ og VSÍ var haldinn í húsnæöi Kjararannsóknanefndar á föstudagsmorgun.
Ljósmynd Morgunblatains
Fyrsti viðræðufundur ASÍ og VSÍ:
Rætt um kjör hinna lægst launuðu
FYRSTI viðræðufundur ASÍ og VSÍ
var haldinn á fóstudaginn.
Þær nefndir, sem þarna hittust
eiga að koma sér saman um hugs-
anlegar leiðir til að bæta kjör hinna
lægst launuðu.
Á fundinum var farið yfir for-
sendur könnunar, sem er að fara
af stað á vegum Kjararannsóknar-
nefndar á kjörum hinna lægst
launuðu.
Þetta er fyrsti formlegi við-
ræðufundur aðila í tengslum við
viðræður um eflingu íslenzks at-
vinnulífs.
BÓKAÚTGÁFAN Vaka hefur gefið
út aðra bókina í bókaflokknum
Ævintýraheimur Ármanns. Heitir
hún Undarleg uppátæki og fjallar
um ævintýri félaganna Óla og
Magga, og er eftir Armann Kr. Ein-
arsson.
Á bókarkápu segir meðal ann-
ars: í þessari líflegu bók gefst ís-
lenskum börnum nýtt tækifæri til
þess að skyggnast inn í ævintýra-
heim verðlaunahöfundarins Ár-
manns Kr. Einarssonar.
Ármann sendir sögupersónur
sínar úr daglega lífinu á vit
óvæntra atvika sem tengjast und-
arlegum uppátækjum. Jói frændi
kemur hér mjög við sögu eins og í
Óskasteininum, fyrstu bókinni í
þessum flokki. En óli er aðalper-
sónan ásamt Magga vini sínum,
sem er einstaklega glúrinn við
uppfinningar.
Þessi smellna saga, sem hét áð-
ur óli og Maggi, hefur verið upp-
seld um árabil og kemur nú út með
breyttum svip og nýjum teikning-
um Péturs Halldórssonar, segir í
kynningu forlagsins á bókarkápu.
Undarleg uppátæki er sett og
prentuð í Prentstofu G. Bene-
diktssonar, en Bókfell hf. sá um
bókband.
Tímaritið Storð:
Útkoma
tefst vegna
verkfalla
í Hollandi
TÍMARITIÐ Storð, 3. tölublað, sem
prentað er í Amsterdam í Hollandi,
tefst um ófyrirséðan tíma vegna verk-
falls opinberra starfsmanna þar (landi,
að sögn Haralds J. Hamar ritstjóra.
Tímaritið er filmuunnið hérlendis
en prentað og bundið í Hollandi. Bú-
ið var að prenta blaðið, en kápa þess,
sem send var í pósti héðan til Hol-
lands, hefur ekki skilað sér vegna
verkfallsaðgerðanna og því ófyrirséð
hvenær 3. tölublaðið kemur út.
Haraldur sagði i viðtali við Mbl.,
að hann hefði aldrei lent i neinu
þvílíku áður, þrátt fyrir um 16 ára
viðskipti við Hollendinga á þessu
sviði. Hann sagðist ekki sjá neina
aðra leið en að bíða átekta, þvi þó
unnt væri að prenta kápuna annars
staðar, þá væri myndin sem fara
ætti á forsíðuna föst i póstinum, eins
og filman að kápunni.
Majónsósa
og flatbaka
f NÝÚTKOMNU fréttabréfi fs-
enskrar málnefndar er lagt til að
tekin verði upp ný nöfn á því, sem
kallað hefur verið mayonnaise og
pizza. Leggur málnefndin til að
mayonnaise verði kallað majón-
sósa og pizza kölluð flatbaka.
Um þessi orð segir íslensk
málnefnd í fréttabréfinu:
„íslensk málnefnd mælir með
því, að í stað „majones" verði
notað orðið majónsósa. Það er
reyndar ekki nýtt. Þetta orð
(stafsett majonsósa) var t.d. not-
að í þýddri bók, sem út kom 1975
og nefndist Matreiðslubókin þín.
En hugmyndin kom fyrst fram í
Velvakandadálknum Morgun-
blaðsins á útmánuðum 1956.
Orðið pizza, sem nú tíðkast
víða um lönd og þannig ritað að
ítölskum hætti, er heiti á sér-
stökum matrétti. Þetta er e.k.
baka (e. pie), oftast úr útflöttu
brauðdeigi, sem ýmsu er síðan
bætt eða stráð í til bragðbætis
(tómötum, osti, brytjuðu kjöti).
Síðan er það bakað, enda stund-
um kallað „pizza pie“ á ensku
(Webster).
fslensk málnefnd mælir með
því, að þessi réttur verði nefnd-
ur flatbka á íslensku."
MUNIÐ ÚTSÝNARKVÖLDIÐ Á BROADWAY 4. DESEMBER
Það skiptir máli
hvemig þú ferðast
Nútímatækni og þekking okkar
í þína þágu
Tæknlvæddasta feröaskrifstofa landslns meö sérhæft starfsfólk þér til aöstoðar
Cumberland hótal Marble Arch við anda Oxfordatr»ti«, aðal-
veralunargötu Lundúna, ar hótal aem ialendingar kunna val
að mata.
L O N D O N
Heimsborgin — miðstöð viðskipta og listalrfs Evrópu
Seeluvika í London — eða löng helgl — meö þaulkunnugum farar-
stjóra Útsýnar getur margborgaö sig fjárhagslega, auk þess aó vera
dýrmæt lifsreynsla og óborganleg ánægja. Útsýn býöur þér bestu
fáanleg kjör — þjónustu í sérflokki — og hefur valiö réttu hótelin
meö nærri helmings afslætti, staösett þar sem dvölin veröur þér
notadrýgst og þægilegust. Hvert sem áhugasviö þitt er, uppfyllir
London óskir þinar, þvi borgin er eitt allsherjar leiksviö menningar
og mannlegs lífs. Útsýn hefur jafnan allar upplýsingar um helstu
viöburöi í London í viku hverrl.
Brottför Verð frá kr.
Helgarferöir föstudaga 8.275,-
Vikuferöir miövikudaga 12.133,-
Innifalið í verði er flug, gisting og morgunveröur, flutningur
til og frá flugvelli og fararstjórn.
í KAUPBÆTI:
Tekið á móti þór um leið og þú kemur úr flugvélinni á Lund-
únaflugvelli. Flutningur frá og til flugvallar, innritun á hótel,
dagleg aöstoð þaulkunnugs (ararstjóra meðan á dvölinni
stendur. Allt avo auðvelt og öruggt með Eyrúnu fararstjóra.
Lundúnaferðin sem borgar aig.
Ráöstefnur —
Vörusýningar —
Kaupstefnur —
Viðskiptaferðir —
AMSTERDAM
Útsýn býöur helgarferöir til Amsterdam á hag-
stæöu veröi. 6 daga feröir og einnig helgarferö-
ir. Helgarferöir: Brottför föstudaga, verö frá kr.
10.810,- 6 daga ferðir: Brottför föstudaga, verð
frákr. 12.160,-
Sérstök
jólafargjöld
í desember
til og frá Kaupmanna-
höfn, Osló, Gautaborg,
Stokkhólmi
emburg.
t
og Lux-
(ipij.ijiy , ili'
Skíöaferöir Útsýnar
veturinn 1983—1984
til Austurríkis.
AUSTURRÍKI
Lech Finkenberg og Mayerhofen
Beint leiguflug meö Flugleiöum. 2 vikna ferðir.
Brottfarardagar: Jólaferö 20. desember, 22.
janúar, 5. og 19. febrúar, (fullbókaö), 4. marz.
Verð frá kr. 18.030.-
SVISS
Anzére
Beint leiguflug með Arnarflugi, 2 vikna feröir.
Brottfarardagar: 20. desember, 3., 17. og 31.
janúar, 14. og 28. febrúar, 13. og 27. mars,
10. apríl. Verö frá kr. 16.600,-
KANARÍKLÚBBURINN
íilill||_
ÍHH--53
\ ISHi
** ik w *. ;
SimifZ* ■,
$r;yf* —-t-* *»v
w■_: y-
COSTA
DEL SOL
Þar sem sólin skín allan ársins
hring. Á Costa del Sol er alltaf
mikiö líf og fjör. Brottfarardagar:
16. og 30. desember, 6. og 13.
janúar, 3., 10., 17. og 24. febrú-
ar. 9., 16., 23. og 30. mars. Verö
frá aðeins kr. 14.800 í 2 vikur.
Hægt aö framlengja dvölina í
London.
Feröaskrifstofan
UTSÝN
Brottfarardagar (leiguflugi:
14. des., 4. jan., 25. jan., 15.
febr., 7. mars, 28. mars, 18.
apr. og 9. maí.
Brottfarardagar í áætlunar-
flugi:
Vikulega frá og meö 2. nóv-
ember. Verö frá kr. 19.159,-
Reykjavík:
Austurstræti 17,
simi 26611.
Akureyri:
Hafnarstræti 98,
simi 22911.