Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984 41 Borgarfjarðarhéraðs, og glöggt mátti heyra á honum að hann taldi það hérað héraða fremst í þessu landi, m.a. vegna landgæða, fegurðar og einnig vegna sögulegr- ar frægðar. Kannski hefir dvöl hans í þessu hjartfólgna héraði á uppvaxtarárunum átt drýgstan þátt í því hvað bóndaeðlið var rík- ur þáttur í eðlisfari Magnúsar, þó hann stundaði langtímum saman önnur störf, hann var þó öðru hverju í meiri og minni snertingu við landbúnaðinn. Ungur að árum sækir hann svo Bændaskólann á Hvanneyri, og heldur sig mest við sveitastörf næstu árin. Árið 1936 hefur hann svo störf sem lögreglumaður í Reykjavík, og getur sér þar gott orð, enda mað- urinn vel á sig kominn andlega og líkamlega. Á þessum tíma var oft erfitt að vera lögregluþjónn * Reykjavík ekki síst á stríðsáru;'- um. Oft voru Magnúsi falin crfið verkefni á þessum árum sem hann leysti með prýði og afrek vann hann sem hann fékk v/ðurkenn- ingu fyrir. 1953 gerðist Magnús forstöðumaður Vinnuhælisins á Litla Hrauni og er það næstu fjög- ur árin. Og nú kom bóndinn upp í honum, en á þessum árum var ræktun stóraukin á Litla Hrauni og byggingar einnig og á þessum árum lét Magnús byggja það fjós sem enn stendur ásamt tilheyr- andi áföstum byggingum. Fram undir 1970 var rekinn búskapur á Litla Hrauni, það þótti sjálfsagt að nýta mannskapinn til venju- legra sveitastarfa og búið þar var með þeim stærri á Suðurlandi. Nú er búskapur fyrir löngu úr sög- unni og fjósið og hlaðan nýtt á annan hátt. Það gekk á ýmsu á þessum árum á Litla Hrauni en það er á þessum árum sem staður- inn er að breytast úr því að vera dvalarstaður fyrir tiltölulega ró- lega afbrotamenn, svo sem brugg- ara og aðra slíka, í það að vera raunverulegt fangelsi, og þá kom í ljós að húsið var ekki mannhelt. Þá var hinni raunverulegu starf- semi hætt í bili á meðan verið var að gera endurbætur á húsinu. Á þeim tíma hverfur Magnús frá Litla Hrauni og er við ýms störf bæði til sjós og lands og meðal annars er hann bústjóri á Hellu- vaði á Rangárvöllum. Vorið 1962 kemur Magnús aftur á Litla Hraun og þá sem yfirverk- stjóri. Þá er forstöðumaður á Litla Hrauni Guðmundur Jóhannsson, fyrrverandi samstarfsmaður hans úr lögreglunni, en milli þeirra var mjög gott samstarf því báðir höfðu vit á búskap og báðir kunnu að stjórna, en Magnús hafði mjög gott lag á að nýta sundurleitan hóp manna sem vistmenn á slíkum stað eru gjarnan. Og þar tel ég að best hafi komið í ljós hæfileikar hans við að umgangast aðra og það þarf töluverða mannþekkingu til svo að ekki komi til árekstra. Hann beitti gjarnan háfleygum setningum og jafnvel húmor ef annað dugði ekki, og gjarnan gengust menn upp í því. Eftir nokkra ára starf á Litla Hrauni gerist hann fangavörður í Hegningarhúsinu í Reykjavík, og hluta af þeim tíma er hann raun- verulegur yfirmaður fangelsisins í Síðumúla þó hann kæmist aldrei til að vinna þar því á þessum árum missir hann heilsuna. Það er hin líkamlega heilsa sem bilar, sem mun hafa verið fyrst og fremst vöðvarýrnun, og fljótlega kom að því að hann gat ekkert gengið svo nokkru næmi hjálparlaust, og hlaut það hlutskipti að þurfa að halda kyrru fyrir svo árum skipti. Það hlýtur að vera erfitt hlut- skipti fyrir svo hraustan mann sem Magnús var að eðlisfari að þurfa að una kyrrsetunni svo lengi, því andlegu heilbrigði hélt hann óskertu. Og enn er það sveit- in sem dregur hann til sín, og þá flytur hann upp á Skeið og kaupir hús og hluta úr jörðinni Hlemmi- skeiði og býr þar ásamt seinni konu sinni, Vilborgu Eiríksdóttur, mg wm DHL Worldwide Courier gerir allt til að koma sendingu þinni á borð viðtakanda DHL sér um allt! Áríðandi skjöl eða smábögglar eru sóttir persónulega til þín. Eftir að þeir hafa verið skráðir á skrifstofu okkar er farið með þá út á flugvöll og sendir með fyrsta flugi á ákvörðunarstað þar sem starfsfólk DHL tekur við sendingunni og kemur henni fljótt og örugglega til viðtakanda. Svona förum við að því! DHL hefur á að skipa 10.500 manna starfsliði á 500 skrifstofum víða um heim. Erlendis höfum við, til reiðu okkar eigin tækjaflota, bíla, þyrlur og flugvélar. Þekking og reynsla okkar á tollreglum og venjum víðast hvar, auðveldar okkur að ná um allan heim, eða til 105 landa á sem skemmstum mögulegum tíma. DHL gerir allt til að annast sendingar þínar. Biðjið um verðlista og sjáið hversu hagkvæmt er að láta reyndustu hraðboðana vinna fyrir þig. DHL Hraðflutningar h.f. y Borgartún 33, 105 Reykjavík / Sími: 91-27622, telex: 3004 / / / TIL ATHUGUNAR FYRIR_ HEIMIUSFANG _ Vinsamlega sendið okkur: □ VerðlisU □ Bsekling Q Við óskum eftir fundi með ykkur WÖRLDW/DE COUR/ER tóucou/dn'texpress/tbetter sem var honum ómetanleg stoð í erfiðleikum hans hin síðari ár. Fyrri konu sína, Sigríði Guð- brandsdóttur, missti Magnús fyrir allmörgum árum en synir þeirra hafa haslað sér völl í þjóðfélaginu: Pétur, útibússtjóri Búnaðarbank- ans á Hellu, Björn, kennari á Sauðárkróki, og Andrés, við læknanám í Svíþjóð. Magnús var fróður maður um marga hluti og helst um það sem þjóðlegt var, enda bókhneigður og sérstaklega ljóðelskur og dáði mörg af okkar eldri ljóðskáldum og ekki síst Ein- ar Benediktsson og voru tiltæk ljóðin hans. En það er fátítt að hitta fyrir menn sem kunna ljóð Einars eins og Magnús Pétursson, slíkur maður hefir meira en með- alnámsgáfur. Lausavísur voru honum tiltækar og sóttist hann mjög eftir að læra þær og hafði gjarnan á takteinum lausavísur þjóðkunnra hagyrðinga sem hann hafði kynnst, og það er óhætt að segja að hann hafi borið gott skynbragð á móðurmálið hvort sem það var bundið eða óbundið, og lét oft í ljós vanþóknun sína á nútímaskáldskap. En vafalaust hafa bækur stytt honum stundir í kyrrsetu síðustu ára. Síðustu árin hafa þau Vilborg og Magnús átt heima vestan heið- ar, fyrst á Reykjalundi og síðan í Hátúni 12 í Reykjavik. Með Magn- úsi er genginn höfðinglegur mað- ur, glæsilegur á v^lli, sem gjarnan hafði fas fyrirmanns en undir sló hjarta fslendingsins, sem elskaði moldina umfram allt, og varð- veitti barnssálina í ljóðum ís- lensku skáldanna. Ég votta aðstandendum mína innilegustu hluttekningu við frá- fall hans. Steindór Guðmundsson AVOXTUNSf^ VERÐBRÉFAMARKAÐUR Ratið rétta leið Rétt ávöxtun sparifjár er besta kjarabótin í dag. Látið Ávöxtun sf. annast fjármál ykkar Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs Gengi 13.02784 Ár R. Sfl./100 kr. Ár Fl. Sg./100 kr. 1971 1 15.173 1977 2 1.705 1972 1 13.734 1978 1 1.385 1972 2 11.212 1978 2 1.089 1973 1 8.470 1979 1 941 1973 2 8.073 1979 2 707 1974 1 5.283 1980 1 612 1975 1 4.142 1980 2 462 1975 2 3.077 1981 1 395 1976 1 2.810 1981 2 291 1976 2 2.316 1982 1 277 1977 1 2.043 1982 2 205 1983 1 157 -Óverðtryggð — veðskuldabréf Ár 1 2 3 4 5 6 AVK 7.00 8,00 9,00 10,00 20% 86.3 80.3 74,9 70,2 12,00 66,0 12,00 62,2 21% 87,0 81.3 76,1 71,5 67.4 63,7 Verðtryggð — veðskuldabréf J Ár 1 2 3 4 5 Söhij. 2 afb/ári. 95,2 91,9 89.4 86.4 84.5 6 7 8 9 10 81,6 78.8 76,1 73,4 70.8 Óskum eftir spariskírteinum ríkissjóðs til sölu. Verðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu. Óverðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu. * Avöxtun ávaxtar fé þitt betur ÁVÖXTUNSf^ LAUGAVEGUR 97 - SÍMI 28815 OPIÐ FRÁ10 - 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.