Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.12.1985, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 279. tbl. 72. árg._________________________________ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1985_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Á myndinni er Bonner í Bandaríkjunum með móður sinni Ruth, sem komin er yfir áttrætt og dóttursinni Tatiönu Yankelevich. AP/Símamynd Bonner reiö vegna falsaðs myndbands Newton, Masnacbusettes, 9. desember. AP. YELENA Bonner, eiginkona sov- éska andófsmannsins Andrei Sakharov, reiddist illa er hún sá myndband með manni sínum, þar sem hann er sýndur vera að borða er hann var í raun réttri í hungur- verkfalli, að sögn tengdasonar hennar, Efraim Yankelevich. Fullyrti hann að myndbandið væri falsað, en það var gert eftir fyrirsögn sovéskra embættis- manna og var nýlega komið í hendur vestrænna fjölmiðla. Það var til dæmis sýnt í vestur-þýska sjónvarpinu í dag. Sagði Yan- kelevich að tengdamóðir sín væri einkum reið yfir því að sovéskir læknar skyldu hafa látið það óátalið að leynimyndavélum væri komið fyrir til upptökunnar. Einnig sýnir myndin Sakharov fylgja konu sinni á járnbrautar- stöðina og bera fyrir hana ferða- töskur hennar, er hún lagði upp til Vesturlanda. Myndin er auð- sjáanlega tekin með falinni myndavél og telja fjölmiðlar á Vesturlöndum að sovésk yfirvöld vilji með þessu móti hrekja sögu- sagnir um slæmt heilsufar Sakh- arovs Sjá frétt á bls. 38—39. — Fjórir aðrir einnig fundnir sekir Buenos Aires, 9. deoember. AP. BORGARALEGUR dómstóll í Arg- entínu fann fimm fyrrverandi yfir- menn í hernum seka um brot á mannréttindum, þegar þeir fóru með ríkisstjórn landsins, er þeir létu nema brott, pynta og myrða þúsundir vinstri manna. Voru tveir þeirra dæmdir til lífstíðar fangelsis- vistar. Annar þeirra er fyrrverandi forseti landsins, Jorge Videla, en hinn yfirmaður í flotanum, Emilio Massera. Þeir voru báðir fundnir sekir um ótal morð, mannrán, pynt- ingar og rán. Þessi réttarhöld eru einstæð í sögu Suður-Ameríku. Annar fyrrverandi forseti, Rob- erto Viola, var einnig fundinn sekur og dæmdur til 17 ára fang- elsis. Þá var fyrrverandi yfirmað- ur flotans, Armando Lambrusc- hini, dæmdur til 8 '/■> árs fangelsis og fyrrverandi yfirmaður flug- hersins, Orlando Agosti, var dæmdur til 4'A árs fangelsisvistar. Sýknaðir voru, Leopoldo Galtieri, fyrrverandi forseti, Jorge Anaya, fyrrverandi yfirmaður flotans og Omar Graffigna, fyrrverandi yfir- maður flughersins. Dómsuppkvaðningunni var sjónvarpað beint um alla Argent- ínu, aðeins fáum stundum eftir að Raul Alfonsin, forseti landsins nam úr gildi neyðarástandslög, sem sett voru fyrir 45 dögum til að koma í veg fyrir baráttu hægri manna sem tengdir voru her- Olíumálaráðherrar OPEC-ríkja ákváðu á fundi sínum um helgina að leggja allt í sölurnar til að hlut- deild þeirra í olíumarkaðinum minnkaði ekki og heyja verðstríð ef þörf krefði. Segir nýkjörinn formað- ur OPEC, Arturo Hernandez Gris- anti, olíumálaráðherra Venezuela, aö samtökin séu tilbúin í verðstríð og að veruieg verðlækkun sé í nánd. Kosin var nefnd 5 olíumálaráðherra til að gera tillögur um nýja verð- og framleiðslustefnu fyrir sérstakan aukafund ráðherranna upp úr ára- mótum. Ákvörðun ráðherranna er óvænt enda þótt viðurkennt sé að sú stjórninni, gegn núverandi ríkis- stjórn landsins. Dómarnir sem upp voru kveðnir, eru ekki eins þungir og saksóknari krafðist yfir þeim ákærðu, en hann krafðist lífstíðardóma yfir öllum þeim sem sakfelldir voru og styttri dóma yfir hinum sem fundnir voru saklausir. aðferð OPEC-ríkja að halda uppi verðlagi með þvi að takmarka olíu- framleiðslu hafi misheppnast. Ástæðan fyrir breyttri stefnu muni vera efnahagskreppa í mörg- um aðildarríkjanna vegna minnk- andi olíutekna. Er því jafnvel búist við að OPEC-ríkin muni reyna að auka markaðshlutdeild sína, en ráðherrarnir vörðust að öðru leyti allra fregna um hvers væri að vænta. Sérfræðingar telja að tíð- indalítið verði fram að aukafundi OPEC-ráðherranna. Þeir telja að ákvörðun ráðherranna verði til að flýta fyrir verðlækkun á olíu, sem spáð hefur verið. OPEC—rfkin und- irbúa olíverðstríð Genr, 9. desember. AP. — Verölaunahafarnir björguðu mannslífi á fréttamannafundi Osló, 9. desember. Frá frétUriUra Morgunblaðsins, Jan Erik Laure. L/EKNARNIR Yevgeny Chazov og | friðarverölaun Nóbels í ár fyrir Bernhard Lowns, sem hlotið hafa I hönd samtaka sinna, Alþjóðasam- Fillippseyjar: Segir Ver af sér fyrir kosningar? Manila, Fillippseyjum, 9. desember. AP. MARCOS, forseti Fillippseyja, segir það hugsanlegt að Ver, nýskipaður yfirmaður heraflans, verði látinn segja af sér, áður en til forsetakosn- inganna kemur í febrúar næstkom- andi, en bætti við að að Ver hafi óskað þess, „að fá að Ijúka ætlunar- verki sínu, áöur en hann hætti“. Marcos sagði að Ver ásamt flest- um helstu yfirmönnum hersins og 29 hershöfðingjum, hefðu látið í ljósi að þeir væru tilbúnir til þess að láta af störfum sínum, að því tilskyldu að hæfir menn fyndust í staðinn og þeir hefðu tækifæri til að ljúka skyldustörfum sínum. Ekki kom fram hvert „ætlunar- verk“ Vers væri, en hann var gerð- ur að yfirhershöfðingja á nýjan leik, eftir að dómstóll hafði fundið hann saklausan af því að hafa undirbúið launmorðið á Benigno Aquino, einum helsta stjórnarand- stæðingi Marcosar. Þá hefur stjórnarandstæðingur- inn, Salvador Laurel, tilkynnt framboð sitt til forsetaembættis- ins gegn Marcosi. Er hann fyrstur stjórnarandstæðinga til þess, en áður hafði hann samþykkt að vera varaforsetaefni Corazon Aquino, ekkju Benigno, sem búist er við að muni einnig bjóða sig fram. Hann hætti við þetta í gær, sunnu- dag, en sagði við fréttamenn að hann héldi þeirri leið opinni að draga framboð sitt til baka, kæmi í ljós að hún nyti meira fylgis en hann. taka lækna gegn kjarnorkuvá, björguðu mannslífi í gær, er þeir hófu lífgunartilraunir á sovéskum blaðamanni, sem fékk hjartaáfall á fundi þeirra með fréttamönnum. Læknarnir taka við friðarverð- launum Nóbels á morgun. Hyggja mörg norsk samtök á mótmælaað- gerðir meðan á afhendingunni stendur, en hún hefur vakið miklar deilur, þar sem Sovétmaðurinn Chazov er ásakaður fyrir að hafa átt hlut að því að sovéski andófs- maðurinn, Ándrei Sakharov, var settur í útlegð til Gorki. Chazov var mikið gagnrýndur á fréttamannafundinum, en neitaði að svara spurningum um mann- réttindamál í Sovétríkjunum. Sagðist hann vera fulltrúi Sam- taka lækna gegn kjarnorkuvá og myndi halda sér við að svara spurningum sem snertu samtökin. Félagi hans frá Bandaríkjunum, Lowns, studdi hann hvað þetta snerti og sagði það mikilvægt að samtökin beittu sér fyrir einu málefni, sem væri hættan á kjarn- orkustríði. Sjá ennfremur frásögn og myndir á bls. 36-37. AP/símamynd Sovéski fréttamaðurinn sem fékk hjartaáfallið liggur á gólfinu. Læknarnir Chazov og Lown hófu strax lífgunartilraunir i manninum og héldu í honum lífi þar til hægt var að flytja hann á sjúkrahús. Yfirlæknir á ríkisspítalanum í Osló, sagði í gærkvöldi að maðurinn væri úr allri hættu og hefðu lífgunar- tilraunir læknanna án efa bjargað lífi hans. Fyrrverandi forseti Argentínu dæmdur til lífstfðarfangelsis: SakfeUdur fyrir mannréttindabrot Mótmælaalda vegna friðarverðlaunanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.