Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. DESEMBER1985
43
Norsk olía leggur
Svíþjóð undir sig
Ösló, 20. desember. Frá J»n Erik Laure. fréturíura Morpmblateins.
NORSK olía mun nú fljóta í stríð- vörur úr hráplasti.
um straumi i sænskum markaði.
Norska ríkisolíufélagið Statoil hefur
tekið við rekstri 422 bensínstöðva í
Svíþjóð gegn tveggja milljarða nkr.
(um 11 milljarða ísl. kr.) greiðslu,
en stöðvarnar voru áður í eigu
ESSO. Með í kaupunum fylgir gjald-
þrota fyrirtæki, sem m.a. framleiðir
Kaup þessi hafa í för með sér,
að Statoil verður stærsti aðilinn á
bensínsölu markaðnum í Svíþjóð.
Sænska ESSO-fyrirtækið hefur nú
um 20% markaðshlutdeild í bens-
ínsölunni þar. Áður hafði Norsk
Hydro 5% af markaðnum, eftir að
fyrirtækið keypti sænsku Mobil-
samsteypuna.
Það tók norsk og sænsk stjórn-
völd níu mánuði að komast að
samkomulagi um þessi kaup, enda
um flókið mál að ræða: „En nú
erum við búnir að ná endum saman
og það kemur samvinnu Svía og
Norðmanna á sviði iðnaðar mjög
til góða,“ segir Thage G. Petersón,
iðnaðarráðherra Svíþjóðar.
Noregur:
Flugvirkjar hætt-
ir í hægagangi
Ooió, 20. deoember. AP.
FLUGFÉLAGIÐ SAS hóf í dag flug (
við norska flugvirkja sé enn óleyst.
Flugvirkjar ákváðu að hefja
aftur vinnu í nótt og fresta hæga-
gangsaðgerðum sínum fram á jóla-
dag til þess að hjálpa fólki að
komast til sinna nánustu á jólun-
um. Aðgerðir flugvirkja hafa ekki
mælst vel fyrir hjá almenningi í
landinu.
„Utan fyrsta flugsins í morgun
frá Björgvin til Oslóar ætti allt
flug að vera samkvæmt áætlun í
dag,“ sagði Even T. Hansen, blaða-
Noregi á nýjan leik, þótt launadeilan
fulltrúi, í morgun.
Hægagangur flugvirkja hófst á
miðvikudag og hafði slæmar af-
leiðingar fyrir allt innanlandsflug
í Noregi, en kom ekki jafn mikið
að sök í utanlandsflugi.
Flugvirkjar fara fram á 10 pró-
senta launahækkun, en SAS hefur
boðið 6,2 prósent hækkun. Fulltrú-
ar SAS og stéttarfélags flugvirkja
sátu á fundi í alla nótt án þess að
komast að samkomulagi.
AP/Símamynd
Mikki í Frakklandi
Mikki mús, góðkunningi barna á íslandi, sem og annars staðar í heiminum, er á myndinni kominn til Frakk-
lands, þar sem hann er að kynna sér aðstæður fyrir nýjan skemmtigarð Disney-fyrirtækisins þar í landi, þann
fjórða í röðinni. Mikki hlýtur að fara að verða sterkefnaður.
Frakkland:
Myrti einn, særði fjóra og framdi sjálfsvíg
Strasbourg, 20. deaember. AP.
MAÐUR nokkur skaut í gær af
hálfsjálfvirkum riffli inn í veitinga-
stað og eftir nærliggjandi götum í
Strasbourg í Frakklandi í gær.
Maðurinn varð einum að bana og
særöi fjóra áður en hann beitti
vopninu gegn sjálfum sér.
Að sögn frönsku lögreglunnar
heitir maðurinn Djilani Manhdi.
Hann skaut fjórum sinnum inn í
veitingahúsið, sem er í miðbæ
Strasbourg. Eitt skotið hæfði eig-
anda veitingastaðarins, Michel
Zussy, og særðist hann alvarlega.
Þá flúði Manhdi með gesti veit-
ingahússins á hælunum og skot-
hríðinni linnti ekki. Meðan á flótt-
anum stóð skaut Manhdi mann að
nafni Francois Lingelsen til ólífis
og særði þrjá aðra.
Þegar lögreglan kom á vettvang
jókst byssugleði Manhdi um helm-
ing og skaut hann í allar áttir og
sundurgataði bifreiðir og hús-
veggi. Síðan beindi hann vopninu
að höfði sér og skaut sig til bana.
Ný mynd-
bandaleiga
Við höfum opnað nýja leigu í stórglæsilegu húsnæði að
Skipholti 50c, gegnt Tónabíói.
Þar geturðu í rúmgóðu húsnæði leigt uppáhaldsmyndböndin
í ró og næði.
Við bjóðum yfir 1000 titla af öllum gerðum myndbanda;
hasarmyndir, gamanmyndir, bamamyndir og allt þar á milli.
Einnig höfum við á boðstólum fjölda framhaldsþátta auk
styttri þáttaraða.
Allt efni Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna er með íslenskum
texta. Kíktu inn á nýjustu myndbandaleigu landsins. Aðkoman er
greið og næg eru bílastæðin.
Við bjóðum gæða
myndbönd frá
eic VIDEO
Columbia
Emi
Tefli
Bergvik
Orion
Canon o.fl. o.fl.
SKIPHOLTI 50C, GEGNT TÓNABÍÓI.
S: 688040.
Aö Myndbandaleigu
Kvikmyndahúsanna
standa nú
Laugarásbíó,
Regnboginn
og Háskólabíó