Morgunblaðið - 22.03.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUfíARDAGUR 22. MARZ1986
„Vissi ekki af fram-
lögum til flokksins“
Genscher ber vitni í Flick-málinu
Bonn, 21. mars. AP.
HANS-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands, bar
vitni í Flick-málinu á fimmtudag og kvaðst ekki hafa vitað af fjár-
framlögum Flick samsteypunnar til flokks síns, Frjálsra demókrata
(FDP).
herma að hafi runnið til utanríkis-
ráðherrans.
Genscher sagði fyrir réttinum að
hann vissi lítið um fjármál flokks-
Genscher sagði að hann hefði
aldrei tekið á móti 300 þúsund
marka (5,4 milljóna ísl. kr.)
greiðslu, sem fyrirtækisskrár
Kuwait:
Felldu frumvarp
um kosningarétit
til handa konum
Kuwait, 21. mars. AP.
ÞINGIÐ í Kuwait felldi í dag tillögu um að veita konum kosninga-
rétt, eftir að trúmálanefnd þingsins hafði úrskurðað, að konur væru
útilokaðar frá að gegna æðstu embættum á vegum stjórnvalda.
Samhljóða tillaga var felld i þinginu fyrir tæpu ári.
Meneisel Al-Anazi, formaður hæfi kvenna til að gegna háum
embættum á vegum hins opinbera
eða kjósa í almennum kosningum.
Þetta er í annað sinn, sem þingið
fellir slíkt lagafrumvarp. í fyrra var
tillaga sama efnis felld með 43
atkvæðum gegn 7.
Al-Anazi sagði, að nefnd hans
hefði samþykkt annað lagafrum-
varp, en það kvæði á um lækkun
kosningaaldurs karla úr 21 í 18 ár.
innanríkis- og varnarmálanefndar
þingsins, sagði við fréttamenn, að
meirihluti nefndarinnar hefði fellt
frumvarpið. Hann sagði enn frem-
ur, að það væri „ótímabært“, að
konur fengju kosningarétt.
Al-Anazi sagði, að ákvörðun
nefndarinnar hefði grundvallast á
reglugerð, sem trúmálaráðuneytið
hefði gefið út og kvæði á um van-
ins, hann léti það fjárhirði FDP
eftir.
Saksóknari kvaðst ekki trúa því
að féð hafa í raun runnið til Gensch-
ers, þótt hann hefði verið spurður
um umrædd 300 þúsund mörk.
Hann sagði að peningamir hefðu
verið raktir til Friedrich-Naumann
stofnunarinnar, sem tengist FDP.
FDP er minni flokkurinn í sam-
steypustjórninni í V-Þýskalandi.
Þetta var í fyrsta skipti, sem
Genscher bar vitni í réttarhöldun-
um. Þau hafa nú staðið síðan í
október.
Otto Lambsdorff, fyrrum við-
skiptaráðherra og atkvæðamikill
Fijáls-demókrati, og Hans Frid-
erichs, forveri Lambsdorffs, eru
sakðir um að þiggja rúmlega 510
þúsund marka mútur frá Eberhard
von Brauchitsch, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Flick móðurfyrir-
tækisins.
Brauchitsch er sakaður um að
hafa mútað tvímenningunum á síð-
asta áratug og fengið í staðinn
skattaívilnanir upp á 480 milljónir
marka að minnsta kosti. Saksókn-
arar segja að hvorki Friderichs, né
Lambsdorff hafi stungið fénu í eigin
vasa, heldur látið það renna til
flokksins, FDP.
Holland:
*
Utgerðarmenn
fullir óánægju
Wageningen, 21. mars. Frá Eggerti H.
kjartansHyni, fréttaritara Morgunblads-
ins.
SAMKVÆMT upplýsingum B.
Daalder og K. Kramer hjá sam-
tökum útgerðarmanna, ætla út-
gerðarmenn og sjómenn í Hol-
landi ekki að sætta sig við þá
kvótaskiptingu sem Ploeg, sjáv-
arútvegsráðherra, hefur lagt til
fyrir árið 1986. Astæðan er sú
að sjávarútvegsráðuneytið neitar
að ábyrgjast kvóta einstakra
fiskiskipa eftir að sá afli sem
Hollendingum hefur verið út-
hlutað af Evrópubandalaginu
fyrir 1986 hefur verið fylltur.
Utgerðarmenn eru hræddir um
að ekki verði unnt að fylgjast
nægilega með aflamagni ein-
stakra skipa og vegna strangara
eftirlits á fiskmörkuðunum sé
hætt við að heildarkvóti Hollands
verði fylltur undir lok sumarsins.
Það þýddi að þau fikskiskip sem
hefðu reiknað með að geta veitt
meira og minna allt árið með
skynsamlegri nýtingu þess kvóta
sem þeim hefur verið úthlutað
yrðu einnig að hætta veiðum þó
svo að þeirra kvóti væri enn
ófylltur.
Fulltrúar útgerðarmanna sögð-
ust búast við að allir myndu reyna
að ná sem fyrst þeim afla á land
sem þeim hefur verið úthlutað.
Þetta hefði í för með sér að hver
og einn reynir að veiða éins mikið
og unnt er á sem skemmstum tíma.
Það er gert ráð fyrir að sama staða
komi upp seinni part þessa árs og
í fyrra að öllum fískiskipum Hol-
lands verði lagt eftir að heildarafli
Hollands er kominn á land. Vegna
strangara eftirlits hvoru tveggja af
hálfu EB og hollenska sjávarút-
vegsráðuneytisins með fiskmörkuð-
unum er gert ráð fyrir því að í
september næstkomandi verði
heildaraflinn kominn á land og þá
verði skipunum lagt.
í fastanefnd hollenska þingsins,
'sem fjallar um málefni sjávarút-
vegsins, er unnið að lausn þessa
vandamáls. Mikilvægi þess að finna
lausn, sem allir aðilar geta sætt sig
við, sést best á því að gert er ráð
fyrir að fjöldi útgerðarfélaga verði
að loka fyrir fullt og allt ef þau
verða að hætta veiðum í september.
Einnig er gert ráð fyrir að verð á
fiskmörkuðunum muni lækka
vegna tímabundins offramboðs og
síðan snarhækka í haust þegar
flytja verður inn nær allan neyslu-
fisk.
Nancy
Regan í
flugóhappi
Atlanta, Georgíu, 21. mars. AP.
EIN flugvéla Bandaríkjaforseta
rann út af flugbrautinni með
Nancy Reagan, forsetafrú, innan
borðs þegar verið var að búa
hana til flugtaks á flugvelli vest-
ur af Atlanta í Georgíu ríki í
Bandaríkjunum. Engann sakaði.
Önnur flugvél var send frá
Washington til að sækja Nancy,
sem var í Atlanta til þess að halda
ræðu á ráðstefnu gegn eiturlyfjum.
Hún var á leið í burtu eftir að hafa
flutt ræðuna.
Vélin rann til í eðju á brautinni
og hentust nokkrir farþegar til
þegar hægra hjól vélarinnar skrens-
aði út af út fyrir hana og vélin
snérist í hring.
Einar fékk sér far
Einar Einarsen festir bát sinn við gasflutningaskipið Sheldon
Gas. Aðfaranótt fimmtudags þáði hann far með öðru skipi til
og er nú á leið til Las Palmas.
Sovétríkin:
Flutningaflaug
leggst að Mir
Moskvu, 21. mars. AP.
FLUTNINGAFLAUG, Progress-25, lagðist í dag að sovésku geim-
rannsóknastöðinni Mir, að sögn TASS-fréttastofunnar.
Progress var með eldsneyti,
matvæli, vatn og aðrar vistir, sem
þarf til langtímadvalar og starfa
um borð í rannsóknarstöðinni.
Mir var skotið á loft hinn 20.
febrúar sl. og verður stöðin kjami
rannsóknarmannvirkis „af nýrri
kynslóð", þar sem gert er ráð fyrir
samfelldri búsetu manna.
Geimfaramir Leonid Kizim og
Vladimir Solovev fóru um borð í
Mir á laugardaginn var, eftir
þriggja daga geimferð, og vígðu
stöðina, en ekki hefur verið greint
frá því, hversu lengi þeir verða þar
við störf.
TASS sagði, að Progress hefði
lagst að Mir fyrir tilstilli sjálfvirks
búnaðar, auk þess sem geimfaramir
hefðu haft hönd í bagga. Tekið var
fram, að geimförunum liði vel.
AP/Símamynd
Móðir og stjúpfaðir Ferguson
Susan og Hector Barrantes, móðir og stjúpfaðir Söru Ferguson,
heitkonu Andrews Bretaprins, fagna tilkynningunni um trúlof-
unina. Þau eru búsett í Buenos Aires í Argentínu. Getgátur eru
komnar á kreik um það, að þeim verði ekki boðið til brúðkaups-
ins, vegna þess að enn er ekki komið á stjórnmálasamband
milli Bretlands og Argentínu eftir Falklandseyjastriðið.
Sovésk stúlka í frið-
arferð um Bandaríkin
Ferðin farin m.a. til að minnast Samönthu Smith
(’hicago, 21. mars. AP.
ELLEFU ára gömul, sovésk stúlka kom í dag, föstudag, til Chicago
og er það fyrsti áfanginn í tveggja vikna friðarferð hennar um
Bandaríkin. Er ferðin m.a. farin til að minnast Samönthu Smith,
bandarisku stúlkunnar, sem boðið var til So vétríkjanna.
„Ég vona, að við verðum vinir,“ Samönthu Smith, stúlkunnar frá
sagði sovéska stúlkan, Katya
Lycheva, þegar hún kom til
Chicago en þar tók m.a. á móti
henni 10 ára gömul stúlka frá San
Francisco, Star Rowe, sem fagn-
aði henni á rússnesku og sagði:
„Velkomin til landsins. Saman
skulum við vinna að friði."
Það eru samtök í Bandaríkjun-
um, „Börn sem friðflytjendur",
sem buðu Kötyu vestur og var
það m.a. gert til að minnast
Maine, sem Andropov, leiðtogi
Sovétríkjanna, bauð til sín árið
1983. Samantha lést ásamt foður
sínum í bílslysi í ágúst í fyrra.
Frá Chicago fer Katya til New
York, Washington, Houston og
Los Angeles.
í dag, fostudag, ætlaði Katya
að borða með bandarískum skóla-
krökkum og spjalla dálítið við
borgarstjórann í Chicago en síðar
mun hún fara í Disneyland í
Kalifomíu, í grillveislu eins og
þær gerast bestar í Texas og síð-
ast en ekki síst ætlar hún að fá
sér risastóran hamborgara hjá
McDonalds.
Katya stundar nám í sérstökum
enskunámsskóla nr. 4 í Moskvu
en í þeim er farið að kenna böm-
unum ensku sjö ára gömlum.
Sovéskir fjölmiðlar hafa gert ferð-
inni mikil skil. Sjónvarpið sýndi
þegar hún kvaddi og skaut inn
myndum af Samönthu Smith og
Tass-fréttastofan sagði, að Katya
hefði með sér til Bandaríkjanna
margar „friðardúfur" úr pappír.
Væri nafn og heimilisfang sové-
Samantha Smith. Mynd þessi
var tekin, er hún lagði af stað
upp í för sína til Sovétríkjanna.
skra unglinga skrifað á annan
vænginn og vonaðist Katya til,
að bandarískir unglingar, sem
vildu skrifast á við þá, settu nafn
sitt á hinn vænginn.