Morgunblaðið - 22.03.1986, Blaðsíða 35
35
sagði einkum þessar: 1) Gefur
nemendum fleiri möguleika á að
nema. 2) Pjarlægð skiptir ekki
máli. 3) Staðlar námið. 4) Getur
bætt námsefnið, því miðillinn færir
fólkið á vettvang. 5) Gerir efnið
persónulegt, því hægt er að fá þá
sem koma við sögu upp á skerminn
heima hjá sér.
Um neikvæðu hliðarnar sagði
hann þetta meðal annars: 1) Það
er mjög dýrt að útbúa kennsluefni
fyrir sjónvarp. 2) Miðillinn er
hægfara, því er oft hægt að afla
sér þekkingar mun hraðar með
lestri. 3) Miðillin býður ekki upp á
mannleg samskipti og getur því
einangrað fólk og það missir raun-
veruleikaskyn.
Walker sagði það afar mikilvægt
að skilgreina vel markmiðin með
kennsluefninu áður en farið væri
af stað við gerð þess. Gera sér grein
fýrir þeim vandamálum sem upp
kunni að koma og leita lausna á
þeim með hjálp tækninnar.
Open Tec veitir
starfsmenntun á
tækni og viðskipta-
sviði með fjarkennslu
Georg Grandison sagði frá Open
Tec í Bretlandi, sem er rekinn á
ekki ósvipuðum grundvelli og Opni
háskólinn þar í landi. Lögð er þó
mun meiri áhersla á iðnaðar- og
viðskiptagreinar í Open Tec, en
námið fer fram i samvinnu við
tækniskóla, starfsmenntaskóla í
einkaeign og fyrirtækja, sem þurfa
á starfsmannaþjálfun að halda.
Sagði hann að skólinn væri að
mörgu leyti sveigjanlegri en Opni
háskólinn bæði hvað varðaði val á
námsefni og námstilhögun. Hægt
væri að velja um ógrynni námskeiða
og sem dæmi mætti nefna tölvu-
námskeið, námskeið í útlitshönnun,
stjómun bifvélaverkstæða, skart-
gripasölu, þjóðvega- og mann-
virkjagerð, logsuðutækni og svo
mætti lengi telja. Það kom fram í
Ferðamiðstöðin:
Sumarbækl-
ingur kom-
innút
FERÐAMIÐSTÖÐIN hefur sent
frá sér ferðabækling fyrir sum-
arið 1986. Ferðamiðstöðin leggur
megináherslu á sólarferðir til
Benidorm á Costa Blanca, hvítu
ströndinni, á Spáni.
í frétt frá Ferðamiðstöðinni seg-
ir, að verð ferða til Benidorm hafi
lítið sem ekkert hækkað frá því í
fyrra og pantanir séu geysimargar
í ár. í tengslum við leiguflug til
Alicante eru einnig ferðir til La
Manga sem er þekktur staður fyrir
góða golfaðstöðu.
Þá býður Ferðamiðstöðin einnig
uppá sumarhús í Sviss, Þýskalandi
og Austurríki, Rútuferðir um
Bretagne-skaga með dvöl í Paimpok
auk ferða til ýmissa staða við
Miðjarðarhafið og víðar.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1986
máli Grandison, að menn fengju
send gögn heim til sín, fyrst og
fremst lesefni og svo myndbönd,
hljóðsnældur og tölvuhugbúnað, en
ekki væri kennt í gegnum útvarp
og sjónvarp eins og í Opna háskól-
anum. Hægt væri að hafa aðgang
að kennara og fá verklega tilsögn
ef með þyrfti.
Sagði hann að í Open Tec væri
hægt að lesa til lokaprófs, fá vottorð
um þáttöku eða taka einingar í sí-
menntun.
Mikill áhugi ríkir
á fjarkennslu
I lok ráðstefnunnar fóru fram
umræður. Virtust menn sammála
um að það væri biýnt að koma á
fjarkennslu, hér væri ekki um neina
bólu að ræða, sem myndi hjaðna
að ráðstefnunni lokinni. Virtust
bæði opinberir aðilar og einkaaðilar
hafa hug á að taka höndum saman
um að gera fjarkennslu að veru-
leika. Þá kom fram að tæknileg
aðstaða til fjarkennslu væri fyrir
hendi, en auðvitað vantaði alltaf
peninga.
Morgunblaöið/JúIIus
Fjarkennslustund var miðvikudaginn 12. marz sl., þegar ráðstefnan um fjarkennslu var kynnt. Þessi
mynd var tekin þá og á henni má sjá Þorvarð Jónsson yfirverkfræðing Pósts og sima, Þuríði Magnús-
dóttur forstöðumann Fræðslumiðstöðvar iðnaðarins, dr. Jón Torfa Jónsson, sem verður umræðustjóri
ráðstefnunnar og Margrét S. Björnsdóttur endurmenntunarstjóra HÍ.
Fjórhjóladrifinn
□ISUZU PICKUP '86
ENGIN ÚTBORGUN
Útgerðarmenn, verktakar, bændurogaðrir
athafnamenn, sem þurfið lipran, léttan og
rúmgóðan bíl með mikla flutningsgetu,
komið, sjáið og sannfærist um gæði og
eiginleika ISUZU PICKUP ’86.
Ýmis greiðslukjör í boði, m.a.
KAUPLEIGA: ENGIN ÚTBORGUN, aðeins
mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar
greiðslur til allt að fjögurra ára.
Sölumenn okkar veita allar nánari
upplýsingar.
Tækniatriði:
Bensínvél 88 hö. Diesel 61 hö. Fimm gíra.
Aflstýri. Aflbremsur. Læstdrif. Fjórhjóladrifinn
(4x4). Lengd á palli 2,29 cm. Lengd á palli
(Space Cap) 1,87 cm. Sportfelgur. Deluxe inn-
rétting (allir mælar). Ýmsir litir.
BILVANGUR s/=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300