Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986 15 Fegurðardísirnar hugsa sérgott til glóðarinnar VORIÐ er greinilega komið sunnanlands þótt enn sé hraglandi og kalt nyrðra. Á sólríkum dögum bregða sér margir út í garð og elda mat sinn yfir glóðarkolum. Viðri vel um helgina má búast við að margir dusti rykið af grillinu, sem verið hefur í geymslu síðan í fyrrahaust. Stúlkurnar, sem um næstu helgi keppa um titilinn Fegurðardrottning íslands 1986, tóku forskot á sæluna í vikunni og elduðu mat sinn í sameiningu. Á mánudaginn koma þær fram á kynningar- kvöldi í Broadway en sjálf keppnin fer fram næstkomandi föstudagskvöld. Hvítasuiman: Svipað veður og að undanf örnu VEÐIJRSTOFAN spáir svipuðu veðri og verið hefur að undanfömu yfir hvítasunnuna. Fremur svalt um allt land og hiti frá 3 gráðum Norðanlands í 9 gráður Sunnanlands yfir daginn. Búist er við sæmilega góðri færð á vegum um allt land yfir helgina samkvæmt upplýsingum vegaeftirlitsins. Flugleiðir hafa ákveðið að fjölga ferðum á flugleiðum sínum úm helgina m.a. tíl ísafjarðar, Akureyrar, Vestmannaeyja og Færeyja. Arnarflug flýgur samkvæmt áætlun og bætir inn ferðum eftir þörf- um. Útihátíð verður á Geirsárbökkum í Borgarfirði. Samkvæmt upplýsingum veður- stofunnar er búist við hægri aust- lægri átt á landinu á laugardag. Skúrir verða einkum um austan- og sunnanvert landið, svalt yfir nóttina en hlýrra á daginn. Á sunnudag verður norðaustlæg átt með kólnandi veðri og éljum víða Norðanlands. Skúrir Austanlands en léttirtil á Suð-Vesturlandi. Búist er við minnkandi norðanátt á mánu- dag en svalt verður áfram. Sæmileg færð er á vegum sam- kvæmt upplýsingum vegaeftirlits- ins. Búið var að opna veginn um Möðrudalsöræfi en hann lokaðist aftur vegna snjóa. Vonir standa til að hægt verði að opna hann á ný fyrir hvítasunnuna. Fært hefur verið um Vestfirði nema Stein- grímsflarðarheiði, hún er ófær og óvíst hvort hægt verði að opna hana nema ef tíðarfarið batni. Víða er takmarkaður öxulþungi á vegum sem hindrar ferðir stærri langferða- bifreiða. Vegir á hálendi hafa verið lokaðir vegna slæms ástands og hefur öll umferð verið bönnuð t.d. um Kjalveg, Fjallabaksleið og í Landmannalaugar. í frétt frá umferðaráði eru öku- menn hvattir til að fara með gát á ferðalögum innanlands um hvíta- sunnuhelgina og þá sérstaklega þeir ökumenn sem ekki hafa reynslu af akstri á malarvegum. Um þetta leyti árs verða oft umferðarslys sem beinlínis stafa af reynsluleysi við akstur á maiarvegum. Þar við bætist að grófmynstraðir hjólbarðar eru enn þá undir mörgum bifreið- um, sem eykur hættu á steinkasti. Því er nauðsynlegt að sýna sérstaka aðgætni við mætingar og í fram- úrakstri. Umferðarráð minnir á til- litssemi við samferðamenn og að bflbeltin séu spennt, ökuljós kveikt ogekið með jöfnum hraða. Þrjú fiskiskip seldu erlendis TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla sinn í Bretlandi i gær og eitt í Þýzkalandi. Þau fengu gott verð fyrir aflann. Bylgja VE seldi 50,7 lestir í Hull. Heildarverð var 3.279.500 krónur, meðalverð 64,75. Erlingur SF seldi 43,1 lest í Grímsbæ. Heild- arverð var 3.013.700 krónur, með- alverð 69,91. Vigri RE seldi í Brem- erhaven á þriðjudag og miðvikudag, 270 lestir, mest grálúðu. Heildar- verð var 11.147.000, meðalverð 41,26. Línuveiði leggst af fáum við ekki kvóta við Island — segja útgerðarmenn færeyskra línubáta UTGERÐARMENN færeyskra línuskipa eru mjög uggandi um hag sinn, þar sem enn hefur ekki verið gengið frá veiðiheimildum Færeyinga við fsland. Te\ja þeir útgerðina vonlausa án þessara heimilda. Færeyingar hafa fengið hér árlega nokkurt magn af botn- fiski, en ósamkomulag um skipan loðnuveiða hefur orðið til þess, að íslendingar hafa ekki viljað ganga frá veiðiheimildum Færey- inga hér. Frá því Grænlendingar fóru að gera tilkall til hluta loðnustofnsins, hafa þeir meðal annars selt Færey- ingum veiðiheimildir án þess að samkomulag um skiptingu milli Grænlendinga, íslendinga og Norð- manna um það næðist. íslenzk stjómvöld hafa sett það skilyrði fyrir veiðiheimildum Færeyinga hér, að þeir veiði ekki loðnu nema um það náist samkomulag. Til þessa hafa Færeyingar fengið að veiða hér 17.000 lestir árlega, þar af 8.000 af þorski. Olaf F. Joensen, útgerðarmaður í Færeyjum, segir í samtali við Fær- eyska blaðið Dimmalætting, að verði þorskveiðiheimildunum við Island fómað fyrir loðnuveiðar við Austur- Grænland, sé enginn möguleiki á áframhaldandi línuutgerð frá Fær- eyjum. Kvótinn við ísland hafi haldið lífinu í þessari útgerð. Verði þorsk- kvótanum fómað fyrir loðnuna, sem hafi mun minni þýðingu fyrir fær- eyska þjóðarbúið, neyðist línuskipin til að fara á troll á heimaslóð og þar sé þegar „þröngt setinn Svarfaðar- dalur“. Dimmalætting segir ennfremur, að Islendingar hafí lýst sig reiðu- búna til viðræðna um þetta mál eftir hvítasunnu, en til bráðabirgða hafi Færeyingar fengið Ieyfi til að veiða 3.000 lestir við ísland til 1. ágúst. Það séu aðeins handfærabátar, sem leyfí fái til þeirra veiða, línuskipin fari ekki á íslandsmið fyrr en endan- legur samningur liggi fyrir. Útgerðarfélag Akureyringa: 9,7 milljóna hagnaður Akureyri. HAGNAÐUR af rekstri Útgerðar- félags Akureyringa nam i fyrra um 5,5 miljjónum króna þegar á heildina er litið. 9,7 milljóna króna hagnaður varð á útgerð skipanna og hagnaður af fískvinnslunni var um 1,3 milljón. Samtals um 11 milljónir. Helmingur þess fór í lögbundinn varasjóð og nettó hagnaðar þvi um 5,5 milljónir eins og áður er getið. 2,5 milljóna króna tap varð í raun á frystihúsinu í fyrra þrátt fyrir mikinn bókfærðan hagnað, sem að mestu leyti er til kominn vegna vantalinna birgða í árslok 1984. Aðalfundur félagsins var haldinn i vikunni. Þar var ákveðið að gefa út jöfnunarhlutabréf og tvöfalda hlutafé félagsins sem á eftir verður 107 milljónir króna. Einnig var samþykkt að greiða 5% arð sem er um 2,7 milljónir og greiða starfsfólki uppbót á laun ársins 1985, en sam- tals verða það um 2,5 milljónir króna sem félagið greiðir i þvi sambandi. Eiginfjárstaða fyrirtækisins batnaði um 50 milljónum króna á árinu, úr 142 í 192 milljónir. Bílferð um borgina Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík bjóða Reykvíkingum í skoðunar- ferð um höfuðborgina II. hvitasunnudag 19. maí nk. Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu Val- höll kl. 13 og 14 (2 ferðir). Að lokinni skoðunarferð verður þatttakendum boðið upp á kafllveitingar í Valhöll. Frambjóðendur annast leiðsögn. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins í síma 82900 frá kl. 9—17 virka daga og frá kl. 13— 17 laugardag. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.