Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ1986 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir VALDIMAR UNNAR VALDIMARSSON Margaret Thatcher Norman Tebbit Sir Keith Joseph Ríkisstjóm Margaret Thatcher: Er veruleg upp- stokkun í vændum? BRESKIR íhaldsmenn reyna nú að græða sárin eftir ofarimar í bæjar- og sveitarstjómakosningimum í síðustu viku og mikið fylgis- tap í tvennum aukakosningum til breska þingsins. Hefur Margaret Thatcher forsætisráðherra reynt að stappa stálinu í flokksbræður sína, sem sumir hafa leyft sér að efast um að ríkisstjomin sé á réttri leið. Hafa heyrst raddir um að nauðsynlegt sé að gera hvort tveggja í senn, breyta áherslum í ýmsum málaflokkum og stokka upp í ríkisstjóminni. Miklar umræður fara nú fram innan breska íhaldsflokks- ins um niðurstöður kosninganna í síðustu viku og hvemig bregðast skuli við þeim. Formaður flokksins, Norman Tebbit, hitti nýlega háttsetta starfsmenn flokksinsað máli til að meta stöðuna og leggja línum- ar fyrir flokksstarfíð á komandi mánuðum. Sjálfur hefur Tebbit sætt mikilli gagnrýni og telja ýmsir hann eiga töluverða sök á siælegri frammistöðu íhalds- flokksins á dögunum er flokkur- inn tapaði miklu fylgi í bæjar- og sveitarstjómakosningum og tvennum aukakosningum til breska þingsins. Þykir kosninga- vélin hafa brugðist hrapallega auk þess sem óbilgjöm framkoma Tebbits og málflutningur sé lítt að smekk bresks almennings. Norman Tebbit hefur um langt skeið verið hægri hönd Thatcher forsætisráðherra og einn helsti talsmaður þeirrar efnahagsstefnu sem ríkisstjómin hefur fylgt á undanfömum ámm. Hefur sam- vinna flokksformannsins og for- sætisráðherrans verið með ágæt- um en kosningaúrslitin í síðustu viku virðast hafa sett nokkuð strik í reikninginn. Halda bresk blöð því fram að Tebbit sé nú kominn upp á kant við Thatcher, sem telji formanninn ekki hafa staðið sig í stykkinu við undirbúning kosn- inganna og kynningu á málstað íhaldsflokksins. Er það mál margra að framkoma og málflutn- ingur Tebbits hafi ósjaldan orðið flokknum til tjóns meðal kjósenda því maðurinn sé þeim eiginleika gæddur að gera umbúðimar ókræsilegri innihaldinu. Gagnrýnisraddir Gagnfynisraddir innan íhalds- flokksins undanfama daga hafa ekki eingöngu beinst að einstök- um foiystumönnum flokksins. Er ljóst að meðal íhaldsmanna ríkir ágreiningur um ýmsar áherslur og aðgerðir ríkisstjómarinnar að undanfömu og stefnuna á kom- andi misserum. Ágreiningur þessi er ekki nýr af nálinni en hefur komist áþreifanlega upp á yfir- borðið í kjölfar kosninganna í síð- ustu viku. Hafa til dæmis nokkrir ráðherrar í ríkisstjóminni látið í ljós efasemdir um að stjómin sé að öllu leyti á réttri leið. Mesta athygli hefur vakið gagnrýni Johns Biffens, sem er leiðtogi flokksins í neðri málstofu breska þingsins. I sjónvarpsviðtali síðastliðinn sunnudag setti John Biffen spum- ingamerki við ýmislegt í stefnu og starfsháttum ríkisstjómarinn- ar, sem hann á þó sjálfur sæti í. Dró hann meðal annars í efa að hyggilegt væri að láta koma til framkvæmda tekjuskattslækkan- ir, sem Thatcher og stuðnings- menn hennar hafa mjög beitt sér fyrir. Sagði Biffen að í stað skattalækkana ætti ríkisstjómin að auka framlög til ýmissa félags- mála, sem þurft hafa að sitja á hakanum undanfarin ár. Nefndi hann einkum heilsugæslu og menntamál í þessu sambandi og sagði að niðurstöður kosninganna í síðustu viku væru ótvíræður vottur um vilja kjósenda til úrbóta á þessum sviðum. Jafnframt hvatti Biffen til þess að reynt verði að breyta ímynd íhalds- flokksins í augum kjósenda með því að draga úr þeirri áherslu sem lögð hafi verið á áhrif og forystu- hlutverk Margaret Thatcher, almenningur sé orðinn þreyttur á jámfrúarímynd forsætisráðherr- ans. Gaf Biffen fyllilega í skyn að íhaldsflokknum kynni að vera fyrir bestu að skipta um forsætis- ráðherra á næsta kjörtímabili. Uppstokkun í ríkisstjórninni? Að vonum hafa ummæli Johns Biffens vakið litla hrifningu meðal Margaret Thatcher og eindreg- inna stuðningsmanna hennar. Efast sumir um að þessi háttsetti ráðherra eigi langa framtíð fyrir sér í ríkisstjóminni. Ekki er þó búist við að Biffen verði látinn taka pokann sinn nú í lok mánað- arins þegar nokkrar breytingar verða gerðar á ríkisstjóminni. Þessar fyrirhuguðu breytingar stafa af því að sir Keith Joseph menntamálaráðherra heflir ákveðið að draga sig í hlé frá stjómmálaamstri og láta af ráð- herraembætti. Eftir ófarimar í kosningunum í síðustu viku velta menn því hins vegar fyrir sér hvort Margaret Thatcher forsæt- isráðherra muni láta sér nægja að einskorða breytingar á ríkis- stjóminni við brottför mennta- málaráðherrans. Hafa heyrst þær raddir að víðtæk uppstokkun á ráðherraliðinu sé nauðsynleg til að gefa stjóminni ferskan blæ og gera hana um leið færari til að takast á við þau viðfangsefni sem bíða úrlausnar fram að þing- kosningunum á næsta ári. Líklegt þykir þó að ekki verði stokkað verulega upp í ríkisstjóminni fyrr en í haust og að John Biffen verði meðal þeirra ráðherra sem þá fái reisupassann. Umræður um uppstokkun í bresku ríkisstjóminni eru til vitnis um þann ásetning íhaldsmanna að draga réttan lærdóm af ósigr- inum í síðustu viku. En breytingar á ráðherraliði fela í sjálfu sér lítið annað en breytingar á umbúðum, það er hins vegar innihaldið sem kjósendur munu einkum hafa í huga við þingkosningamar að ári. Margaret Thatcher og fylgismenn hennar eru þó vígreif og hyggjast halda til streitu þeirri meginstefnu í efnahagsmálum sem fylgt hefur verið undanfarin ár. Halda stuðn- ingsmenn ríkisstjómarinnar því fram að þessi steflia hafi borið viðtækan árangur og fyllilega sannað réttmæti sitt, nú verði hins vegar að leggja aukna áherslu á að koma málstað íhaldsflokksins til skila meðal kjósenda. Er ekki gert ráð fyrir að ríkisstjómin muni breyta um stefnu þótt á lofti séu nokkur teikn um áherslu- breytingar. Til dæmis gera bresk blöð því skóna í dag að stjómin hafi nú í bígerð að veija auknu fé til nokkurra málaflokka, sem almenningur lætur sig miklu varða, svo sem heilsugæslu og menntamála. Eru þessi áform sögð til merkis um þá viðleitni íhaldlsmanna að vinna ríkisstjóm- inni aukið fylgi meðal almennings og undirbúa þannig jarðveginn fyrir þingkosningamar, sem ekki fara fram fyrr en á næsta ári en eru þegar komnar í brennidepil pólitískrar umræðu hér í landi. Höfundur er fréttaritari Morg- unblaðains ÍEnglandi. I AP/Símamynd Gœsir standa vörð við bandaríska herstöð við Frankfurt I Vestur- Þýskalandi. Gæsir í varðstöðu Frankfurt. AP. NÝJASTA öryggisráðstöfun Bandarikjahers hefur vængi og fjaðrir: varðgæsirnar. Bandaríski herinn lætir gæsir standa vörð við þijár herstöðvar í Vestur-Þýskalandi og búist er við að gæsir verði í varðstöðu við 30 herstöðvar í september. Gæsimar mótmæla hástöfum þegar óvenjuleg hljóð berast til næmrar heymar þeirra og eiga sér langan feril sem verðir, þótt þær séu nýlunda í Bandaríkjaher. Gæsir stóðu vörð á einni af hæðunum sjö, sem Róm var reist á. í fomum sögum segir að gæsir hafl bjargað vamarmönnum á Palatínusarhæð með óhljóðum sínum þegar Gallar ætluðu að gera árás í umsátrinu um Róm 390 fyrir Krist. Varðmenn missa þó ekki vinnu sína. Gæsimar eru til að gera þeim viðvart. Bandaríkjamenn fengu hug- myndina eftir heimsókn í brugg- hús Ballantine’s viskýs á Skot- landi. Ballantine’s hóf að nota gæsir til að standa vörð árið 1959 og hafa verið sett upp skilti við verksmiðjuna þar sem óviðkom- andi eru varaðir við árásum hinna fiðruðu varðdýra. Bandaríkin: Fjárveiting- til gæslu sendiráða skorin niður Washington. AP.^ Utannkismalanefnd öldunga- deildar Bandaríkjaþings ákvað á miðvikudag að skera fjárveit- ingu til öryggismála við banda- risk sendiráð niður um helming. Bandaríska utanríkisráðuneytið fór fram á 2,1 mil^jarð dollara. George Shultz, utanríkisráð- herra, hefur sagt að slíkur niður- skurður yrði harmleikur fyrir öryggismál þjóðarinnar og van- ræksla þingmanna á skyldu sinni. Nefndin sagði að horfast yrði í augu við staðreyndir varðandi fjár- lögin og samþykkti að veita 1,1 milljarði dollara til öryggsgæslu við sendiráð það sem eftir lifir fjár- hagsársins, sem lýkur 30. septem- ber, og út árið 1987. ’Fjárlaganefnd öldungadeildar- innar vill veita 500.000 dollurum til þessara öryggismála, en Richard Lugar, formaður utanríkismála- nefndarinnar, segir að fjárlaga- nefndin hljóti að vera reiðubúin til að fara leið málamiðlunar. Nicaragna ætlar að undirrita Contadora- friðar samkomulagið — segir Jorge Abadia, utanríkisráðherra Perú Lirna, Perú. AP. Nicaragua hefðu samþykkt skrif- lega að slást í hóp með Guatemala, E1 Salvador, Hondúras og Costa Rica og undirrita friðarsamninginn 6. júní nk., að sögn fréttastofunnar. Abadia kvaðst þess fullviss, að friðarsamningur Mið-Ameríkurílq'- anna yrði undirritaður fyrstu dag- ana í júní. „Og Nicaragua verður í hópi þeirra ríkja, sem undirrita samninginn," sagði Abadia. Ekki reyndist unnt að ná í emb- ættismenn í Managua til að fá staðfestingu þeirra á þessum ummælum. Abadia viðhafði þessi orð, er hann kom til Lima á miðvikudag ásamt 30 manna samninganefnd frá Panama. Utanríkisráðherra Panama, Jorge Abadia, sagði á miðviðu- dag, að stjórnvöld í Nicaragua hefðu samþykkt að skrifa undir friðarsamning Contadoraríkj- anna, að sögn ríkisfréttastofunn- ar Andina í Perú. Abadia sagði, að stjómvöld í ERLENT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.