Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986 21 „Maður má ekki staðna á neinu sviði, þvi stöðnun er dauði í þessum viðskiptum.“ „Keppnin um fulltrúa ungxi kynslóðarinnar var hugsjón.“ Úr saumastofunni á Nýbýlavegi. beita mér gegn eiturlyfjavágestin- um, en verð að segja alveg eins og er, að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með þróun þessara mála hér á landi. Eg á enn viðtal við mig sem var skrifað 1970, þar sem ég nánast grátbið menn um að taka höndum saman í þessari baráttu. Allt sem ég sagði í þessu viðtali er komið fram, og hefði sjálf- sagt verið hægt að bjarga miklu ef menn hefðu hlustað þá. En menn skelltu skollaeyrum við þessu og sumir afgreiddu þetta sem hvert annað móðursýkisröfl. Um svipað leyti gekk þáverandi forsætisráð- herra okkar af fundi forsætisráð- herra Norðurlanda, þar sem eitur- lyfjamálin voru til umræðu, með þeim orðum að þetta væri ekkert fyrir sig, þetta vandamál væri ekki til á íslandi. Vandinn við þetta var sá, að krakkamir tóku þessum efnum eins og nýjabruminu í fatnaðinum og músíkinni. Mér fannst þvf að þama væri eitthvað á ferðum sem ég yrði að skipta mér af og lagði á mig ferðir til útlanda til að kynna mér þessi mál. í Amsterdam, í gömlu leikhúsi sem hét Paradiso og hafði verið Iögleitt sem eins konar aðsetur fyrir eiturlyfjaneytendur, horfði ég upp á svo hroðalega hluti að ég fékk hálfgert sjokk. í Englandi gekk ég í samtök sem börðust gegn eitur- lyfjum og þegar ég kom heim byij- aði ég að vinna í þeim hópi, þar sem ég þekkti til. Ég fékk til liðs við mig íslenska poppara, tískusýning- arfólk og fleiri sem vom áberandi meðal ungs fólks. Það er svo kannski önnur saga að ekki urðu allir til að hlýða kallinu og af þess- um sökum urðu ákveðin skil á milli mín og nokkurra góðra kunningja minna úr músíkinni. Ég náði samt saman góðum hópi, sem ákvað að beijast gegn eiturlyfj- unum, og við héldum eina „ungu kynslóðar skemmtunina" undir þeim formerkjum. Ágóðinn rann til Æskulýðsráðs Reykjavíkur. Síðan kallaði ég saman blaðamannafund í Glaumbæ, þar sem mættir voru fulltrúar nánast allra fjölmiðla, og ætlunin var að ræða eiturlyfja- vandamálið. Það er skemmst frá því að segja, að þama varð ég fyrir einhveijum mestu vonbrigðum lífs míns. Það sem vakti fyrir mér með þessum fundi var að vekja upp samstillt þjóðarátak með aðstoð ljölmiðlanna, með öðmm orðum að „móralísera" þjóðina gegn þessum vágesti. En hvað gerðist, fyrsta spumingin sem borin var upp á fundinum var þessi: „Heyrðu Gulli, hvað ætlar svo Kamabær að græða á þessu?“ — Síðan upphófst rifrildi milli blaðamannanna um það, hveija af þessum poppstjörnum sem þama vom samankomnar hver fengi í viðtal við sitt blað. Þú fyrir- gefúr, en síðan þá hef ég alltaf verið ákaflega tortrygginn gagn- vart blaðamönnum. Reyndin hefur líka orðið sú, að öll umræða í fjöl- miðlum um eiturlyfjamál hefur verið í æsifregnastíl, þar sem bara er hugsað um fréttina en ekkert um að „móralísera" þetta mál, sem er auðvitað það eina sem skiptir máli. Þetta er kannski útúrdúr, en að mínum dómi er þetta tengt sögu Kamabæjar og bæði þetta mál og mörg önnur mál, sem ég hef lagt lið, eru hugsjónir sem tengjast staifnu með einum eða öðmm hætti. Ég er hugsjónamaður og fer ekkert ofan af því, þótt margir eigi erfítt með að skilja, að menn sem stundi viðskipti geti haft aðrar hugsjónir en þær að græða pen- inga.“ Og- framleiddi svo bux- ur, buxur, buxur . . . Talið berst aftur að Kamabæ og uppgangi fyrirtækisins. Guðlaugur nefndi það áður, að rekstur fyrir- tækisins hefði ekki alltaf verið dans á rósum og ég spyr hann um erfiðu tímabilin: „Eftir mjög góða byijun urðum við fyrir fyrsta áfallinu á ámnum ’67 og ’68, en á eins árs tímabili fengum við á okkur 100% gengis- fellingu. Þetta var þegar síldin hvarf og allt var á leið til andskot- ans. Þetta var auðvitað mikið áfall fyrir fyrirtæki, sem var í burðarliðn- um, því í rauninni þurftum við helmingi meira fé en við höfðum úr að moða. Þegar þetta gerðist vomm við mjög hart keyrðir og útlitið svart. Eg tók því lager sem við áttum til, fyllti Bronco-jeppann minn, þannig að ég rétt komst fyrir undir stýri og fór með allt draslið út á land. Ég seldi allt úr bílnum í verslanir úti á landi og þetta bjarg- aði Kamabæ fyrir jólin 1968. Þá kom sér vel að ég hafði verið sölu- maður á ámm áður. Broncoinn var þá keyrður 80 þúsund kflómetra og ég hafði aldrei skipt um dekk á honum. Enda stóð það á endum, að þegar ég var búinn að selja úr honum og var að leggja í stæði á Akureyri, þá sprakk auð- vitað. Ég hafði hins vegar lagt fyrir utan dekkjaverkstæði — gamla heppnin eða „Lady Luck“ stóð sem fyrr við hliðina á mér. Ég á henni og forsjóninni vissulega mikið að þakka. Verslunin var síðan flutt í hús- næðið á Laugavegi 66. Við tókum við því fokheldu og settum þar inn eldgamlan Fordbfl, árgerð 1928, sem er nú í eigu Omars Ragnars- sonar. Það var mikið mál að koma honum inn og enn meira mál að ná honum út þegar við seinna skipt- um um innréttingu. Síðan settum við upp skóverslun og snyrtivöm- verslun á Klapparstíg 37. Við byij- uðum þá að framleiða lítilsháttar á loftinu á Klapparstígnum og vomm með þijár saumakonur. Ein þeirra vinnur hjá mér enn. Þá var ég svo heppinn að fá æskuvin minn, Colin Porter, til samstarfs við mig og það samstarf stendur enn. Raunar var það hann, sem upphaflega lét mig vita um tilvist Johns Stevens og Camaby Street og kom inn hjá mér hugmyndinni að fara út í þessi viðskipti. En á meðan við vomm þama á loftinu á Klapparstígnum komst „tweed-efni“ í tísku, sem ekki hafði verið í fjölda ára og ég komst að því að Gefjun á Akureyri átti á lager eldgamalt „tweed-efni“ upp á þurrklofti, eina 4.000 metra. Ég fór og keypti allt þetta efni á góðu verði og framleiddi svo úr því buxur, buxur, buxur og buxur. Skömmu seinna fór Jón Baldurs- son út úr fyrirtækinu. Hann fékk húsnæðið á Klapparstíg í sinn hlut og verslunin þar var þá lögð niður. Næst gerist það að við kaupum saumastofuna af Últfma og byijum að framleiða í stærri stfl og þar rákum við saumastofu í 10 ár, þar til við fluttum í Fossháls 27 árið 1979. Verslunina á Týsgötu fluttum við niður á Laugaveg 20 árið 1973 og um svipað leyti keyptum við Austurstræti 22, sem er í eigu fyrirtækisins ennþá. Við fengum síðan umboð fyrir Pioneer-hljómflutningstæki og fór- um svo út í hljómplötuverslun á móti Steinari Berg árið 1976. Þegar ég gerði svo upp skiptin við Qöl- skyldu Bjöms heitins Péturssonar gerði ég upp skipti við Steinar líka og seldi honum minn hlut. Steinar rekur nú hljómplötuverslanimar einn undir nafni Kamabæjar og við erum með skrifstofur á sama stað. Ég tók þá ákvörðun þama að vera einn, sem var vissulega stór ákvörð- un.“ Stöðug barátta „Nú er ég með fjórar verslanir Kamabæjar í Reykjavík og verslun- ina Bonaparte og á svo helminginn í Garbo á móti Erlu Ólafsdóttur, sem áður hafði unnið hjá mér í 15 ár, eða sfðan 1968. Svo er það saumastofan, skrifstofumar og lagerinn á Nýbýlavegi 4 í Kópavogi. Ég hef sem sagt snúið mér aftur að fatnaðinum eingöngu og fram- leiðslan hefur aldrei verið meiri. Þetta eru með öðrum orðum góðir tímar hvað föt og fatafram- leiðslu varðar? „Hvorki verri né betri en oft áður. Ef þú stendur ekki alltaf á tánum og berst eins og ljón ertu búinn að vera í tískuheiminum. Þetta er stöðug barátta og aldrei hægt að slappa af. Þegar þú ferð að slappa af liggur leiðin beint niður á við og þú ert búinn að vera. Þó að þér gangi vel vor og sumar, er ekki þar með sagt að þér muni ganga vel haust og vetur. Þú verður alltaf að byija upp á nýtt og hættulegast af öllu er að ofmetnast og halda að þetta sé allt svo auðvelt af því Guðlaugur í hópi samstarfsmanna þegar „nýja efnahagsstefnan" var kynnt. að þér gekk vel síðast. En þar sem ég er maður baráttunnar þykir mér alltaf gaman að beijast og mér finnst ég sjálfur vera sterkastur í mótvindi. Lognmollan á ekki við mig.“ Hafa einhvern tíma komið þau tímabil, sem þú hefur verulega ótt- ast að allt sé að fara til fjandans? „Já, og ég get alveg sagt þér hvenær það var. Það var þegar við fluttum upp í Fossháls um haustið 1979. Við höfðum ákveðið að byggja þama og duttum inn í óða- verðbólgu. Dollarinn steig og steig og lánin, sem við byggðum fyrir, vom flest í dollurum. Það erfíðasta var þó að saumakonumar, sem við héldum að myndu fara með okkur upp í Árbæ, vildu ekki flytja sig á þennan nýja vinnustað og við misst- um á einu bretti um 20 saumakon- ur. Þegar við þurftum mest á því að halda að fá tekjur af framleiðsl- unni dróst hún saman og það laus- afé, sem við þurftum til að komast þama inn, var ekki fyrir hendi. Á þessu tímabili var Kamabær næst því að fara yfímm. Þetta var mikil barátta, en með góðu samstarfs- fólki og sameiginlegu átaki tókst að forða fyrirtækinu frá hmni. Almennt talað hafa þessar geng- isfellingar og óðaverðbólga í gegn- um árin verið mér erfíðar í skauti. En fyrir einhveija heppni hefur manni tekist að sigla í gegnum þetta. Enn ein heppnin var, að þegar við skiptum upp fyrirtækinu og ég tók við rekstrinum af Qöl- skyldu Bjöms Péturssonar, þá tók ný ríkisstjóm við, þessi sem nú situr. Hún festi gengið og stöðvaði verðbólguna fram til áramóta 1983, sem gerði það að verkum að það var hægt að skipuleggja fyrirtækið. Það gera sér ekki allir grein fyrir þvf að þessi óðaverðbólga er slíkur ógnvaldur, að það er ekki hægt að skipuleggja eða gera áætlanir. Menn em bara á stöðugum flótta undan ógnvaldinum og alltaf að bjarga sér fyrir hom á harðahlaup- um. En þama fékk ég, rétt einu sinni, óskabyr, einmitt þegar ég þurfti á honum að halda, og þama kom átta mánaða tímabil, þar sem hægt var að vinna í friði og skipu- leggja og gera áætlanir af einhveiju viti. Og ég vil undirstrika að það var ekki síst góðu samstarfsfólki að þakka að þetta bjargaðist. Það var á þessum tíma sem við komum fram með okkar eigin efnahags- stefnu í auglýsingum og batamerk- in, sem vöktu athygli og umtal á sínum tíma. Sannleikurinn er sá, að maður þarf alltaf að vera að breyta, bara breytinganna vegna. Maður má ekki staðna á neinu sviði því stöðn- un er dauði í þessum viðskiptum.“ Er það kannski skýringin á vel- gengni þinni? „Velgengni og velgengni ekki. Það fer eftir því hvað þú kallar velgengni. Það er kannski vel- gengni í sjálfu sér að maður skuli ennþá vera lifandi. Ég fékk í vöggu- gjöf lífsgleðina og bjartsýnina og er ekki latur, þó ég segi sjálfur frá. Það er kannski hluti af skýringunni. En það er gífurlegur vandi að halda svona framleiðslufyrirtæki gang- andi og skýringin á því að það er enn starfandi er líklega fyrst og fremst sú, að ég hef verið mjög heppinn með starfsfólk. I þessu samband og á þessum tímamótum fínnst mér tilhlýðilegt að minnast þess manns sem ég starfaði með frá upphafi til ársins 1977, Bjöms heitins Péturssonar. Hann var ekki aðeins samstarfs- maður heldur einnig vinur minn og hann á vissulega sinn stóra þátt í uppbyggingu fyrirtækisins. Ég persónulega á honum mikið að þakka og Kamabær einnig." Ég spyr Guðlaug að lokum hvort hann eigi einhverjar ráðleggingar til handa ungum mönnum, sem nú eru að hefja feril sinn í viðskiptalíf- inu. „Þeir skulu muna það eitt, að þeir eiga ekki allt sem kemur í kassann. Maður þarf fyrst að afla fjárins áður en maður fer að eyða því.“ - Sv.G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.