Morgunblaðið - 15.11.1986, Síða 25

Morgunblaðið - 15.11.1986, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986 25 Morgunblaðið/Einar Falur. Stjórn Félags eldri borgara ásamt húsráðanda fyrir utan Sigtún. Frá vinstri: Jón Hjálmarsson gjald- keri, Barði Friðriksson varaformaður, Sigmar Pétursson veitingamaður, Snorri Jónsson formaður og Bergsteinn Sigurðsson ritari. Á myndina vantar 2. ritara félagsins Oddu Báru Sigfúsdóttur. Verslunar- stjórar os Veitmga- stjórar Nú er rétti tíminn til að panta kalkúnafyrirjól. Hafiðsamband við sölu- menn okkarísíma 666103. Eldri borgarar opna hús í Sigtúni FÉLAG eldri borgara í Reylgavík og nágrenni hefur í dag, laugar- dag, starfsemi í „Opnu húsi“ í Sigtúni við Suðurlandsbraut. Húsið verður svo framvegis opið frá klukkan 14.00 til 18.00 alla virka daga, nema laugardaga. Húsnæðið sem um ræðir er á fyrstu hæð í Sigtúni og rúmar um 80 manns í sæti. Þangað eru allir félagar FEB velkomnir meðan hús- rúm leyfír. Þar getur fólk hist og rabbað saman, tekið í spil eða teflt. Á boðstólnum verða veitingar á vægu verði. Áformað er einnig að nýta hús- næðið fyrir starfsemi ýmissa áhugahópa. Má þar meðal annrs nefna kennslu í Lomber, Bridge- hópa, söng- og leikhópa svo eitt- hvað sé nefnt. Að sögn forsvars- manna félagsins hefur eigandi Sigtúns, Sigmar Pétursson, gert félaginu kleift að hefja þessa starf- semi nú með því að leigja því húsnæðið til næsta vors á afar góð- um kjörum. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni var stofnað fyrir átta mánuðum og voru stofnfélagar um 750 talsins. Nú eru félagar orðnir yfir 3.600 talsins og fer sífellt §ölg- andi. Allir sem eru 60 ára og eldri hafa rétt til að ganga í félagið, hvaða starfi og stöðu, sem þeir gegna. Á fundi með fréttamönnum, þar sem starfsemi félagsins var kynnt, lögðu forsvarsmenn þess áherslu á að tilgangurinn með starfseminni væri fyrst og fremst sá að gefa eldri fólki tækifæri til að kynnast hvert öðru og skemmta hvert öðru. Þá væri hlutverk félagsins að gæta hagsmuna eldri borgara meðal ann- ars með því að að vinna að því að skapa efnahagslegt öryggi og gott umhverfi hjá öldruðum, að vinna að úrbótum í húsnæðismálum, að byggja upp félagsheimili og vinnu- aðstöðu fyrir ýmis konar starfsemi félagsins, að annast um og koma á vinnumiðlun fyrir eldra fólk, sem getur og óskar að miðla öðrum af þekkingu sinni og starfskröftum, að hlúa að hvers konar áhugamál- um þess, skipuleggja námskeið, hópvinnu, tómstundavinnu, og skemmtanir og ýmislegt fleira sem varðar hagsmuni aldraðra. Fræðslunefnd félagsins hefur unnið að undirbúningi námskeiða í samvinnu við Tómstundaskólann og hefst fyrsta námskeiðið nú eftir helgina og sitthvað fleira er á döf- inni. Félagið gefur út fréttabréf, sem sent er öllum félagsmönnum og eru komin út 7 tölublöð. Skrif- stofa félagsins er í Brautarholti 8 og er hún opin frá klukkan 14.00 til 18.00 mánudaga til og með föstudeginum. Síminn þar er 28812. Árshátíð félagsins verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu þann 20. nóvember næstkomandi og hefst með borðhaldi klukkan 19.00. Síðan verða flutt ávörp, slegið á letta strengi og dansað fram á nótt. BÓKAÚTSALA BÓKAFORLAGA VIÐ ÞINGHOLTSSTRÆTI AÐ ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 Skáldsögur Barnabækur Fræðirit Ævisogur o.fl @HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG pólmútgMan|3jót)ðaga ÍSAFOLD Föstudag ki. 9—18 Laugardag kl. 9—16 Sunnudag kl. 13—16 BÖKAGERÐIN LILJA Bókaúfgófa /V1ENNING4RSJÓÐS *ALw

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.