Morgunblaðið - 03.02.1987, Síða 3

Morgunblaðið - 03.02.1987, Síða 3
o MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987 3 Frestur til að skila tilboðum til 6. mars ÚTBOÐSGÖGN vegna sjóflutn- inga á vörum frá Bandaríkjun- um til varnarliðsins hér á landi voru send út síðastliðinn föstu- Styrkjum úthlutað úr Kvikmyndasj 6ði: Hæsta fram- lagið í „Trist- an og Isold“ - kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar ÚTHLUTAÐ hefur verið 47,8 millj. kr. úr Kvikmyndasjóði fs- lands fyrir árið 1987. Á fjárlög- um til sjóðsins eru 55 millj. kr., en til kaupa á húsnæði fyrir Kvikmyndasjóð og Kvikmynda- safn íslands fara 4,6 millj. kr. 2,6 millj. kr. fara til reksturs og síðari úthlutana. Tíu styrkir voru veittir vegna leikinna kvikmynda, sex vegna heimildamynda og þrír í önnur verkefni. Hæsta framlagið, 15 millj. kr., hlaut Hrafn Gunnlaugs- son vegna fyrirhugaðrar kvik- myndar sinnar „Tristan og Isold“. Tíu millj. kr. styrk hlaut Frost Film hf. vegna myndarinnar „Foxtrot“. Þrjár millj. hlaut kvik- myndafyrirtækið Tíu tíu sf. vegna myndarinnar „Svo á jörðu sem á himni". Tvær millj. kr. komu í hlut Bíó hf. vegna kvikmyndarinnar „Meffí“ og einnig til Eiríks Thor- steinssonar vegna myndarinnar „Skýjað". Friðrik Þór Friðriksson hlaut 1,8 millj. kr. vegna Skyt- tanna. Egill Eðvarðsson fékk eina millj. vegna kvikmyndar sem hann kallar K.U.M.L. og Kvikmynd fékk sömu upphæð vegna „Himnaríkis hf.“ Ágúst Guðmundsson hlaut hálfa milljón til að setja enskt tal við kvikmynd sína Útlagann og Kristberg Óskarsson hlaut 200.000 vegna kvikmyndar er nefnist „Skyggni ágætt“. Jón Hermannsson hlaut hæstan styrk, 5 millj. kr., fyrir heimilda- myndina „Hin römmu regindjúp“. Magnús Magnússon fékk 1,2 millj. kr. vegna „Snjófugla". Hálfa millj- ón hver fengu þau Anna Bjöms- dóttir vegna heimildamyndarinnar „Ást og stríð", Jón Björgvinsson vegna „88 gráður austur" og Páll Steingrímsson vegna heimilda- myndar sinnar um hvalveiðar. Filmusmiðjan hf. fékk 300.000 kr. fyrir heimildamynd um Miðnes- heiði. Til Kvikmyndahátíðar hafa 1,5 millj. kr. verið veittar og sama upphæð fór til Kvikmyndasafns íslands. Þá hlaut Sigurður Öm Brynjólfsson 300.000 króna fram- lag fyrir teiknimynd. Formaður úthlutunamefndar Kvikmyndasjóðs er Knútur Halls- son ráðuneytisstjóri í menntamála- ráðuneyti og aðrir í nefndinni eru Birgir Sigurðsson rithöfundur og forseti Bandalags íslenskra lista- manna og Friðbiert Pálsson framkvæmdastjóri. dag. Frestur til að skila tilboð- um er til 6. mars næstkomandi. Útboð á vamarliðsflutningun- um er samkvæmt samningi milli íslands og Bandaríkjanna, sem undirritaður var af utanríkisráð- herrum ríkjanna Matthíasi Á. Mathiesen og George P. Shultz 24. september síðastliðinn. Samn- ingurinn gerir ráð fyrir að skip frá báðum ríkjunum geti tekið þátt í samkeppni um flutningana. Geng- ið var út frá að ríkin tvö gerðu með sér samkomulag um heildar- skiptingu milli íslenskra og bandarískra skipafélaga til að ná markmiðum samningsins. Því samkomulagi mætti breyta eftir þörfum án atbeina Bandaríkja- þings, ef aðilar samningsins yrðu ásáttir um það. Með samkomu- lagi, sem var undirritað um leið og samningurinn, er gert ráð fyrir að lægstbjóðandi flytji 65% farms- ins en næstbjóðandi frá hinu landinu 35%. Samkævmt sam- komulaginu er þó ekkert því til fyrirstöðu að lægstbjóðandi flytji meiri farm ef bjóðandinn frá hinu landinu er ekki til reiðu. Ekki lágu fyrir upplýsingar um hversu margir aðilar óskuðu eftir útboðsgögnum, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru þar á meðal a.m.k. fjögur íslensk skipafélög, Eimskip og Skipadeild Sambandsins, Nesskip og Skipafé- lagið Víkur. USA KOMIÐ OG REYNSLUAKID ÞEIM NÝJU AMERÍSKU MERCURY TOPAZ GS FRAMHJÓLADRIFINN LUXUSBÍLL MEÐ SJÁLFSKIPTINGU, VÖKVASTÝRI, RAFMAGNSRÚÐUM OG LÆSINGUM, LUXUSINNRÉTTINGU, ÚTVARPI OG ÝMSUM AUKABÚNAÐIÁ AÐEINS kr. 695.000.- FORD BRONCOII ÓSKABÍLL ALLRA JEPPAÁHUGAMANNA, 140HÖVÉL, VÖKVASTÝRI, MIKILL AUKABÚNAÐUR OG VERÐIÐ AÐEINS kr. 995.000.- Opið virW daga frá frá kl. <M8 13-T*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.