Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 33

Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 33 Rannsókn á máli fast- eignasalans að ljúka RANNSÓKN á máli starfsmanns fasteignasölu, sem handtekinn var um miðjan maí, hefur gengið vel og er að mestu lokið. Maðurinn var handtekinn vegna gruns um fjárdrátt og fjársvik. í upphafi voru rannsökuð tíu mál sem tengdust honum, en síðan hafa bor- ist fleiri kærur og eru málin nú hátt á annan tug. Talið er að um fleiri milljónir króna sé að ræða. Líklegt er að rannsóknarlögregla ríkisins ljúki rannsókn í næstu viku og málið verður þá sent ríkissak- sóknara. Manninum var sleppt úr haldi þann 22. maí síðastliðinn, en þá var hann úrskurðaður í farbann til haustsins. Fræðsluferð í fjöru á vegum Ferðafélags Islands FERÐAFÉLAG íslands fer laug- ardaginn 13. júní nk. í fræðslu- ferð í fjöru við Vatnsleysuvík suður með sjó. Ekið verður að Hvassahrauni og gengið í fjör- una þaðan. Sumarið 1985 hóf Ferðafélagið útgáfu á nýrri ritröð, sem ber hei- tið „Fræðslurit FÍ“. fræðslurit nr. 2 er greiningarrit um fjörulíf og höfundar þess eru: Agnar Ingólfs- son, Hrefna Siguijónsdóttir og Karl Gunnarsson, sem öll eru líffræðing- ar. Eggert Pétursson teiknaði 143 myndir í ritið af öllum algengustu lífverum í íslenskri fjöru. Þessi bók er kjörin handbók fyrir þá sem vilja skilgreina og skoða sér til fróðleiks það sem ber fyrir augu f íjöruferð- um. í fjöruferðinni á laugardaginn verða leiðsögumenn þau Hrefna Siguijónsdóttir og Agnar Ingólfs- son og ætla þau að kenna þátttak- endum að greina lífverur fjörunnar eftir bókinni. Það er ótrúlega §öl- breytt lífríki í fjörunni og blasir ekki við augum hins almenna ferða- manns, því gefst hér einstakt takifæri að fá leiðsögn sérfræðinga í því fjölbreytta og forvitnilega lífí sem er að finna í íjöru. Brottför í þessa ferð er kl. 11.30 frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. (Fréttatilkynning:) Kópavogur: Prestarokk í Krossinum KROSSINN, kristilegt samfélag, heldur gospeltónleika að Auð- brekku 2 í Kópavogi á föstudags- kvöld kl. 22.30. Ágóða af tónleikahaldinu er varið til upp- byggingar áfangaheimilis Kross- ins að Alfhólsvegi 32 í Kópavogi. Krossinn kallar þessa tónleika Prestarokk og allir þeir sem koma fram á tónleikunum hafa boðið fram vinnu sína án endurgjalds. Þessir koma fram á Prestarokki Krossins: Þorvaldur Halldórsson söngvari, Hjalti Gunnlaugsson, en hann hefiir gefið út plötu með gosp- el-tónlist, og dúettinn Takk, en hann skipa hjónin Ámý og Halldór. Margir fleiri hljómlistarmenn koma einnig fram. Stjómandi verður Guð- steinn Ingimarsson. Yrðlingarnir níu sem náðust í hlíðum Hestafjalls. Morgunblaðið/DJ Unnið refagreni með 9 yrðlingum Hestfjall í Borgarfirði: Hvannatúni í Andakíl. HÁTT í hlíðum Hestfjalls í miðjum Borgarfirði fannst refagreni og er búið að vinna á tófunni og ná úr greninu níu yrðlingum. Ekki hefur tekist að ná í refinn ennþá. Maður sem leið átti um Hest- fjall rakst á grenið og lét Jón Blöndal bónda í Langholti vita af því. Þegar hann kom á staðinn með Ingimar Sveinssyni kennara á Hvanneyri var tófan búin að flytja grenið og hófu þeir þá leit. Jón gekk fram á tófúna í nánd við nýja grenið og skaut hana þar. Refurinn lét hins vegar ekki á sér kræla þó að þeir félagar lægju við grenið. Jón tók þá á það ráð að herma eftir tófu og gagga við grenis-opið og náði þannig átta yrðlingum. Sá síðasti var varari um sig en náðist síðan í boga. Jón telur að þetta séu örugg- lega íslenskir refír en mjög fágætt mun vera að þeir eigi og komi upp níu yrðlingum. Veiðistjóri ætlar að nota yrðlingana til kjm- bóta og flytja þá á tilraunastöðina á Keldum. Tófur hafa sést í vetur og vor víðar í byggðum Andakflshrepps og Skorradals. Fyrir ofan byggð fannst ekkert greni í fyrra. Er kennt um að lítið sé um ijúpu á afréttum Borgarfjarðar. — Diðrik Jóhannsson Fóstbræður í Þýskalandi: Héldu tónleíka sem stóðu Hallgrímskirkjuhátíðin: yfir í þrjá klukkutíma Sýnmgin á Kaj Munk fellur niður - dagskráin að öðru leyti óbreytt SÝNING Leikhússins í kirkjunni á Kaj Munk, sem vera átti á lista- hátíð Hallgrímskirkju i kvöld fellur. niður. Að sögn Harðar Áskelssonar, eins af forsvars- mönnum hátíðarinnar, er ástæð- an sú, að leikhópurinn er á förum til Danmerkur og Svíþjóðar, þar sem verkið verður sýnt seinni hluta mánaðarins og þurfti að koma leikmyndinni i gám vegna þessa ferðalags. „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur," sagði Hörður, „og við hörm- um það mjög að af sýningu á leikritinu gat ekki orðið á þessari hátíð, því það hefur mikið verið spurt um hana.“ Að öðru leyti er dagskrá hátí- ðarinnar óbreytt í dag. Klukkan 12.30 heldur Hljómskálakvintettinn hádegistónleika. Kvintettinn skipa þeir Ásgeir H Steingrímsson og Sveinn Birgisson, trompetleikarar, Þorkell Jóelsson, homleikari, Oddur Bjömsson, sem leikur á básúnu og Friðberg Stefánsson, túbuleikari. Á efnisskránni eru Rondeau úr „Sin- fonies De Fanfares," eftir Jean Joseph Mouret, Contone nr. 2, Overture, Aria og Gigue, eftir Jo- hann Joseph Fux, Contrapunctus nr. 1 úr Fúgulistinni, eftir J.S. Bach, 0, dolce anima mea, eftir Monte- verdi, tvær sónötur úr „Hora Decima," eftir Johann Petzold og Prelúdía og fúga í e—moll eftir J.S. Bach. Hinn daglegi tíðasöngur verður einnig á sínum stað, klukkan 18.00. 0 INNLENT Frá Signínu Björnsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins í Sopron, Ungverjalandi. ÞÁ ER Karlakórinn Fóstbræður lagður af stað í hina eiginlegu tón- leikaferð sína uin Mið-Evrópu. Þeir hafa þegar haldið tvenna tónleika eftir að alþjóðlegu kórakeppninni lauk í Vestur-Þýskalandi, en þar hrepptu þeir þriðju verðlaun. Eftir smá afslöppun að keppni lokinni lögðu þeir leið sína til Heil- bronn, borgar með eitthvað yfir 110 þúsund íbúa. Þetta er falleg borg, umvafin einhveiju stærsta vínrækt- arhéraði Þýskalands, þar sem áin Neckar rennur um fagran dal og þar er einnig sveitin Oedheim. Það var karlakórinn í þeirri sveit sem sá til þess að Karlakórinn Fóst- bræður kom við á þessum slóðum á leið sinni til Austurríkis, og þama héldu Fóstbræður einhveija lengstu tónleika sem þeir hafa haldið til þessa, tónleika sem stóðu yfír { u.þ.b. þijá klukkutíma, þó efnisskrá Fóstbræðra hafi reyndar ekki átt að vera nema svo sem hálfan annan tíma, en það er þannig með bless- aða Þjóðveijana, þeim finnst ómissandi að halda nokkrar velvald- ar og snjallar ræður hvenær sem tilefni kann að vera til og þeir létu sannarlega ekkert uppá sig standa að þessu sinni í þeim efnum fremur en endranær. Þar við bættist að þeir tóku svo aðeins lagið sjálfir í hléi, en við söngskrá Fóstbræðra bættist einnig einsöngur Gunnars Nýja Galleríið: Nikulás Sigfússon sýnir NIKULÁS Sigfússon sýnir vatns- lita- og akrýlmyndir í Nýja Galleríinu að Laugavegi 12, 2. hæð, í Reykjavík. Á sýningunni era um 30 myndir, flestar málaðar á þessu eða síðast- liðnu ári. Sýningin verður opin kl. 14.00- 22.00 og lýkur á sunnudagskvöldi 14. júní. Guðbjömssonar, einsöngvara kórs- ins í þessari ferð, en hann söng þijú lög við píanóundirleik Jónasar Ingimundarsonar við gífurleg fagn- aðarlæti áheyrenda. Fóstbræður sjálfir sluppu heldur ekki frá áheyr- endum sínum fýrr en eftir góðan skammt af aukalögum og dundi þá lófatakið enn þegar þeir gengu end- anlega úr salnum eftir kalsama ferð í roki og rigningu í gegnum Bæjara- land, sem minnti helst á árlegt regn og íslenskan storm á Kaldadal, á leið tii Salzborgar og margblessaða uppstyttu daginn eftir í gegnum austurrísku Alapana var komið til Vínarborgar á föstudagskvöld í dásamlegu veðri. Þar áttu kórmenn og konur þeirra undursamlega hvítasunnuhelgi í 25-30 stiga hita og með tónleikum Fóstbræðra í Karlskirkju á hvítasunnukvöldi. Það var Helmuth Neumann, íslandsvin- ur og fyrrverandi félagi í Sinfóníu- hljómsveit íslands, sem hafði veg og vanda að undirbúningi þessara tónleika ásamt konu sinni sem er íslensk. I þeirri gullfallegu Karls- kirkju var Fóstbræðram einnig geysilega vel tekið og máttu þeir bæta við söngskrá sína einum þrem- ur aukalögum áður en þeir fengu að ganga á fund íslendingafélags- ins í Vín, sem hafði reyndar fjöl- mennt á tónleikana, en það tók á móti kórnum í dálitlum vínkjallara rétt hjá Staatsoper, að tónleikunum loknum. Þar nutu kórfélagar og konur þeirra matar og drykkjar góða stund. Þriðjudagskvöldið 9. júní héldu þeir konsert í kaþólskri kirkju hér í Sopron, en Sopron er frekar lítil borg rétt fyrir innan landamæri Ungveijalands og Austurríkis. Mið- vikudaginn 10. júní var svo haldið af stað áleiðis til Búdapest. Tónleik- ar kórsins þar verða þó ekki fyrr en 14. júní svo mönnum gefast þarna nokkrir dagar til skoðunar- ferða og hvfldar. Leiðrétting vegna myndbirtingar í Morgunblaðinu sl. miðvikudag birtist röng mynd með greininni íslenska í skólum og fjölmiðlum. Birtist mynd af alnafna og starfs- bróður höfundar, en meðfylgjandi er mynd af höfundi greinarinnar Baldri Ragnarssyni, kennara. Biðst Morgunblaðið velvirðingar á þess- um mistökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.