Morgunblaðið - 18.08.1987, Side 21

Morgunblaðið - 18.08.1987, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1987 Sigurður Tómas Garðarsson til að kasta rýrð eða tortryggni á umrædd samtök, enda staðreynd að hjá þeim er valinn maður í hvetju rúmi og öll verk unnin af elju og heilum hug. Þessi orð eiga að sjálfsögðu einnig við um önnur sölusamtök sem hér starfa. Það sem balsir við í þessari umræðu er sú staðreynd að í flestum tilfellum (ég þori hérumbil að segja í 99% til- fella) vinna sölumenn og kaupmenn almennt verk sín af heilum hug og samviskusemi. Við stöndum hins- vegar frammi fyrir þeirri pólitísku kreddu að stjómmálamenn hafi meira vit á viðskiptum en kaup- sýslumenn. Við stöndum einnig frammi fyrir þeirrri pólitísku kreddu að íslenskir fiskframleiðendur séu aðeins hæfir til að kaupa fískinn sem þeir framleiða, en þeir séu óhæfir til að selja hann. Það er ódrengilegt af Guðmundi H. Garðarssyni að upphefja islensku sölusamtökin með þessum hætti og nudda um leið salti í sár þeirra manna er lent hafa í óhöppum eða verið rændir. Ef einhver íslenskur fiskframleiðandi vill gerast félagi í sölusamtökum til að láta þau sjá um sölumál sín, þá er það gott mál og ekkert við það að athuga. Á sama hátt ætti ekkert að vera við það að athuga, ef einhver annar framleiðandi vill sjá um söluna sjálf- ur eða fá einhvern _ annan en sölusamtökin til þess. Eg get verið sammála Guðmundi í fyrirsögn að grein hans, um að íslendingar eigi sjálfir að annast fisksölur erlendis, en innreið ferskra hugmynda og ævintýri í útlöndum eru ekkert slæm mál, eins og látið er að liggja, og eru reyndar ekki síður en önnur atriði grundvöllur að eflingu þjóðar- hags. Höfundur er framkvæmdastjóri fiskvinnslu í Vogum. Selfoss: Ný lögfræði- stofa opnuð Selfossi. NÝ lögfræðiskrifstofa var ný- lega opnuð við Tryggvagötu 2a á Selfossi, í húsnæði Bakka sf. Það er Ingimundur Einarsson héraðsdómslögmaður sem rekur lögfræðiskrifstofuna. Hann vann áður sem bæjarlögmaður hjá bæjar- sjóði Hafnarfjarðar og var þar áður bæjarstjóri á Siglufirði. Ingimundur tekur að sér öll al- menn lögfræðistörf og segir lög- fræðistofuna hafa farið vel af stað. Hjá Bakka sf. þar sem lögfræðistof- an er til húsa er rekin bókhalds- og uppgjörsþjónusta ásamt fast- eignasölu. Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ingimundur Einarsson lögfræð- ingur á lögfræðistofu sinni á Selfossi. Góðhesta- og kynbóta- sýningar 20.-23. ágúst. Hrossamarkaður, 14 af bestu hrossum landshlut- anna boðin upp. Fiskirækt og margar fleiri nýjar búgreinar. Einstakt tækifærí fyrir bömin til þess að komast í snertingu við dýrin - og fyrir þá fullorðnu til þess að kynnast landbúnaði nýrra tíma. OPIÐ: Kl. 14-22 virka daga, kl. 10-22 um helgar. Strætisvcigncir 10 og 100 stoppa í grennd við BÚ ’87. Hittumst íVíðidal! Það er hægt að gera feiknargóð kaup á BÚ ’87.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.