Morgunblaðið - 18.08.1987, Page 23

Morgunblaðið - 18.08.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1987 23 Flugvél sem Hafrannsóknarstofnun leigði til að telja hvali úr lofti. Hún er sérútbúin til þess starfa, segja má að nefið sé allt úr gegnsæju trefjaplasti. Morgunblaðið/Ásdis Þrjú íslensk skip voru notuð við talningar við ísland í sumar. Leiðir þeirra eru valdar af handahófi og dregnar í beinni línu milli tvegga punkta. Á grundvelii þeirra gagna sem aflað er með þessum hætti má áætla dreifingu og heildarfjölda hvala á þessu hafsvæði. V A _ V Skírnir Keflvíkingur Árni Friðrikssoi skipunum voru auk Jóhanns, Þor- valdur Gunnlaugsson og Michael Payne frá Bandaríkjunum. Fimm aðrir erlendir vísindamenn tóku þátt í rannsóknunum. Skipstjóri á Skírni var Þórður Eyþórsson, á Keflvíkingi Einar Guðmundsson og þeir Ingi Lárusson og Guð- mundur Bjarnason á Árna Frið- rikssyni. Greg Donovan frá Bretlandi stjómaði talningu úr flugvél. Texti: BS Myndir: Jóhann Sigurjónsson og Hjálmar Halldórsson Morgunblaðið/Hjálmar Halldórsson Hnúfubakur. Hnúfubakar hafa verið friðaðir frá árinu 1955. Hnýðingavaða séð úr lofti. Hnýðingurinn er af höfrungaætt. Hann verður 2—3 metrar að lengd. Erfitt getur verið að greina höfrunga á sjó, en þessa einkennir hvítt nefið. Hnúfubakur veifar sporði í kveðjuskyni er hann kafar. Gerð hefur verið tilraun til að safna myndum af neðri hluta sporðblöðku hnúfu- baka kerfisbundið. Þar ber hver hvalur persónulegt einkenni sem nota má til að greina einstaklinga. Með því að bera saman myndir vísindamanna frá öllum heiminum tókst að rekja ferðir hnúfubaks frá Puerto Rico á miðin við ísland. Hvalurinn lagði af stað i janúar árið 1981 og fannst við ísland 5. júlí sama ár. Langreyður blæs. Dýr af þessari tegund þurfa að koma upp á yfir- borðið á 5—10 mínútna fresti. Hvalir endurnýja súrefnisforðan á níu tíundu hlutum við hverja öndun, landdýr aðeins að tíunda hluta. Blóðrauði þeirra varðveitir súrefni nífalt á við landspendýr. Súref- nið nota hvalirnir aðeins til nauðsynlegustu þarfa, eins og starfa hjarta og heila.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.