Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988 41 IItargi Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. * Utboðsstefna sjónvarpsins Sjónvarpið er sterkur fjöl- miðill. Það er nánast við- varandi gestur á heimilum flestra landsmanna þær vöku- stundir sem fólk hefur til frjálsrar ráðstöfunar heima við. Framboð og úrval sjónvarpsefn- is fer og vaxandi, þótt deila megi um menningarlegt gildi lungans af langhlaupinu. Tvær innlendar sjónvarps- stöðvar keppa um hylli þjóðar- innar. Myndbandaleigur fylla í efnisskörð á skjáum fólks. Meirihluti þessa efnis alls er af erlendum toga. Fjarskipta- hnettir auka síðan á kúfínn, en þeir færa út kvíar erlends sjón- varpsefnis hér sem annars stað- ar. Hætt er við að íslenzk menn- ingararfleifð, ekki sízt móður- málið, eigi í framtíð undir högg að sælg'a, þar sem er síbylja erlends sjónvarps-tals, sem glymur í eyrum fólks frá barns- aldri fram á efri ár. Góður íslenzkur lestexti veit- ir vissulega nokkra vöm. Skylda ætti sjónvarpsstöðvar til að setja íslenzkt tal í erlent dagskrárefni fyrir böm; tal sem þjónar jafnframt sem fram- burðarkennsla. Það á og að vera framtíðarmarkmið að setja íslenzkt tal f flest erlent sjón- varpsefni. Mergurinn málsins er þó sá að stórefla innlenda dagskrárgerð, og ekki sízt íslenzka kvikmyndagerð. í þeim jarðvegi á íslenzk menningar- arfleið sprota, sem geta orðið að stómm tijám er tímar líða. Eins konar skjólbelti þjóðmenn•• ingar, ef vel tekst til. Það er rétt stefna hjá dag- skrárstjóra Ríkissjónvarpsins að bjóða út hluta af dagskrár- verkefnum stofnunarinnar til einstaklinga og fyrirtækja. Þetta verklag skapar grundvöll fyrir íslenzka kvikmyndagerð- armenn „til að starfa við gerð vandaðs efnis, auk framleiðslu á leiknum myndum fyrir kvik- myndahús", eins og segir í yfír- lýsingu frá Félagi kvikmynda- gerðarmanna. Með þessum hætti er — með nútímalegum vinnubrögðum — gætt hagsýni í rekstri sjónvarpsins um leið og hlúð er að íslenzkri kvik- myndagerð. Hvort tvegga er af hinu góða. Starfsmannafélag Sjón- varpsins hefur mótmælt útboði á verkefnum af þessu tagi. Það eru út af fyrir sig eðlileg við- brögð, þegar horft er til þröngra starfshagsmuna. Og ekkert er eðlilegra en að starfs- fólk Sjónvarpsins fái tækifæri til að glíma við vönduð dag- skrárverkefni innan stofnunar- innar. Það væri hinsvegar skammsýni að einoka alla dag- skrárgerð þar. Útboðin skapa nauðsynlega samkeppni, nauð- synlegt aðhald. „Stefnan er sú,“ segir Hrafíi Gunnlaugsson, dagskrárstjóri í viðtali við Morgunblaðið, „að fá sem bezt dagskrárefni fyrir sem fæstar krónur og fá jafnframt að kalla til starfa okkar hæfustu fag- menn og listamenn á sviði sjón- varps og kvikmynda.“ „Sjónvarpið er eign allra landsmanna og á að þjóna þeim“, segir dagskrárstjórinn, „en ekki að haga sér eins og klúbbur." Það er þetta sjónar- mið sem ræður ferð þegar dag- skrárverkefni eru boðin út. Það að tryggja viðskiptavinunum, sem endanlega borga rekstrar- kostnaðinn, sem bezt dagskrár- efni með sem minnstum til- kostnaði. Vaxandi útboð framkvæmda og þjónustu í ríkisgeiranum frá 1974 hafa tryggt skattborgur- unum, sem borga brúsann, betri nýtingu þess fjármagns, er þeir greiða til samfélagsins. Útboð hjá Vegagerðinni hafa, svo dæmi sé tekið, flýtt lagningu varanlegs slitlags á þjóðvega- kerfið. Sama fjárveiting skilar fleiri kólómetrum bundins slit- lags. Annars konar þjóðhagslegur ávinningur opinberra útboða kemur og til. Þau efla almenna atvinnustarfsemi; atvinnustarf- semi sem greiðir skatta og skyldur til sveitarfélaga og ríkissjóðs. Kostnaðurinn skilar sér að hluta til aftur til verk- kaupans. Útboð ýta einfaldlega undir grósku í atvinnulífínu um leið og þau tryggja samfélaginu betri fjármagnsnýtingu. Útboðsstefna Sjónvarpsins þjónar hliðstæðum tilgangi. Stofnunin — og gjaldendur af- notagjalda til hennar — fá meira fyrir fjármuni sína. Það er þó enn mikilvægara að út- boðin — samkeppnin — eflir íslenzka kvikmyndagerð, inn- lenda dagskrárgerð. Það er mjög mikilvægt fyrir tungu okkar og þjóðmenningu, bæði i samtíð og framtíð, þegar um- heimurinn „hellir yfír okkur" vaxandi ljósvakaáhrifum. Vandí landbúnaðarins Síðari grein eftirÞorvald Gylfason I. Kjarni vandans Næstum allar þjóðir heims fram- leiða meiri mat en þær þurfa. Ástæðan til þess er einföld, en ligg- ur þó ekki í augum uppi. Tækni- framfarir í landbúnaði hafa verið mjög örar síðustu áratugi ekki síður en í öðrum atvinnugreinum, sem betur fer. Afköst vinnuafls og véla hafa því aukizt jafnt og þétt. Þörf hvers manns fyrir matvæli hefur hins vegar staðið í stað eða því sem næst. Þótt við viljum sífellt stærri hús, fínni föt og betri bíla, þurfum við nokkum veginn sama fjölda hitaeininga öld fram af öld. Þess vegna þarf sífellt færri bændur til að fullnægja fæðuþörf mannfjöld- ans. Margir bændur em þó skiljan- lega tregir til að bregða búi. Bú- ferlaflutningar úr sveitum í borgir og bæi ganga því hægar en þeir þyrftu að gera til að tryggja jafn- vægi milli framboðs og eftirspumar eftir landbúnaðarafurðum. Þetta er kjami vandans, sem við er að glíma í landbúnaði um allan heim. Svo er annað. Úr því að fæðu- þörf fólks er nokkum veginn föst af líffræðilegum ástæðum, hafa verðbreytingar yfirleitt lítil eða eng- in áhrif á heildareftirspum eftir landbúnaðarafurðum. Lækkun framleiðslukostnaðar og þar með matvöruverðs til neytenda vegna tækniframfara eykur því ekki heildareftirspum eftir matvöm að marki. Lækkun framleiðslukostnað- ar dregur þess vegna úr söluverð- mæti framleiðslunnar, og tekjur bænda dragast saman eftir því. Þess vegna er það algengt, að bændur tapi beinlínis á tæknifram- fömm í landbúnaði. Og þannig geta bændur stundum hagnazt á illviðmm og uppskem- bresti, þótt undarlegt megi virðast. Þetta stafar af því, að uppskem- brestur hækkar matvömverð án þess að draga úr eftirspum og sölu að ráði, svo að tekjur bænda hækka. Þess vegna getur það stundum ver- ið hagkvæmara fyrir bændur að fleygja mat en að bjóða hann til sölu. Þegar vandi landbúnaðarins er skoðaður í þessu ljósi, þarf engum að koma það á óvart, að fólki fækk- ar sífellt í sveitum um allan heim og að ríkisstjómir streitast á móti með því að styrkja landbúnað um- fram aðrar atvinnugreinar. Fólks- fækkun í sveitum er þvert á móti eðlileg og óumflýjanleg í gróandi þjóðlífí. Viðleitni ríkisvaldsins til að hægja á fólksflóttanum úr sveitum eða milda áhrif hans á þjóðlífíð hlýt- ur jafnframt að teljast eðlileg og sanngjöm innan hæfílegra marka. II. Fólksfækkun í sveitum Engum þarf heldur að koma það á óvart, að fólki fækkar enn í íslenzkum sveitum ekki síður en erlendis. Fyrir hálfri öld var um þriðjungur vinnandi fólks á íslandi við landbúnaðarframleiðslu. Nú er þetta hlutfall komið niður í aðeins um 6% af mannaflanum, en er samt ennþá helmingi hærra hér á landi en til dæmis í Bandaríkjunum og Frakklandi, þar sem landbúnaður er þó hafður í hávegum. Á hinn bóginn nemur landbúnað- arframleiðsla aðeins um 4% af þjóð- arframleiðslu íslendinga. Þetta er til marks um það, að framleiðni í landbúnaði er mun minni en hún er að meðaltali í öðrum atvinnu- greinum landsmanna. (Svipuð nið- urstaða fæst, ef búvöruvinnsla er tekin með í reikninginn.) Hvernig stendur á þessu? Ein ástæðan er vafalaust sú, að ísland er harðbýlt. Það þarfnast ekki skýringar. Eins er ofbeit alvar- legt vandamál víða um land. Hún er sömu ættar og ofveiðin á miðun- um umhverfís landið og stafar af því, að fé er beitt á land, sem eng- inn á og enginn vemdar sem skyldi. Ofbeitin á nokkum þátt í því, að dilkaþungi hér er mun minni en hann væri, ef gróðureyðingin væri minni. Dilkaþungi hér er yfírleitt miklu minni en til dæmis á Græn- landi og Skotlandi. Þá virðist það líklegt, að rausnar- leg aðstoð ríkisins við landbúnað gegnum tíðina hafí hneigzt til að svipta landbúnað að einhveiju leyti þeim sjálfsaga, sem nauðsynlegur er hveijum atvinnuvegi til að tryggja sem mesta hagkvæmni í rekstri og fí'árfestingu. Á því er til dæmis enginn vafí, að fækkun og stækkun sláturhúsa myndi draga verulega úr slátmnarkostnaði og tryggja almenningi ódýrara kjöt en nú tíðkast. Ýmislegt annað mætti nefna. Hitt er þó líka alveg rétt, að margt hefur breytzt til batnaðar í íslenzkum landbúnaði á síðustu árum, svo sem aukin áherzla á rekstrarhagræðingu, búháttabreyt- ingar og fækkun sauðfjár bera vitni um. III. Ríkisaðstoð Stuðningur ríkisins við land- búnað er umtalsverður. Ríkisstjóm- in hyggst veija rösklega 5 milljörð- um króna, eða næstum 10% ríkisút- gjalda, til búnaðarmála á þessu ári samkvæmt fjárlögum. Þessi upp- hæð jafngildir næstum 120.000 krónum á mánuði handa hverri íjög- urra manna fjölskyldu í sveitum landsins. Af þessu fé á að veija um 3,2 milljörðum króna í búvömniður- greiðslur og uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir. Þessar greiðsl- ur nema um þriðjungi af fram- leiðsluverðmæti landbúnaðarins í ár samkvæmt fjárlögum (og gætu reynzt allmiklu hærri, þegar upp verður staðið í árslok, ef þær fara langt fram úr fjárlögum eins og í fyrra). Þessi fjárhæð jafngildir ríflega 50.000 krónum á hveija fjögurra manna fjölskyldu í landinu öllu og næstum 900.000 krónum á hveija fjögurra manna fjölskyldu til sveita. Nú em niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur að vísu ekki alveg sambærilegar, því að neyt- endur njóta niðurgreiðslna yfírleitt í enn ríkar i mæli en bændur, en þá má ekki heldur gleyma hinu, að niðurgreiðslumar em á endanum sóttar í vasa neytenda sjálfra með skattheimtu. Niðurgreiðslur landbúnaðaraf- urða em stundum skoðaðar sem fjárhagsaðstoð við fátækar fjöl- skyldur. Þessi skoðun átti rétt á sér fyrr á öldinni, en hún orkar tví- mælis í allsnægtaþjóðfélagi nútím- ans, þar sem ríkið býr yfir miklu hagkvæmari og öflugri aðferðum til tekjujöfnunar á sviði ríkisfjár- mála og tryggingamála. Það er raunar trúlegt, að flestar fjölskyld- ur vildu fegnar greiða allt að 50.000 krónum lægri skatta á ári og greiða heldur markaðsverð fyrir mjólk og kjöt. Verðhækkunin, sem kæmi í kjölfar lækkunar eða afnáms niður- greiðslna, myndi gera heimilunum kleift að draga úr matarkostnaði með því að kaupa heldur físk, svína- kjöt eða kjúklinga að öðm jöfnu, enda hafa svínabú og hænsnabú staðið sig bærilega án ríkisaðstoðar í samkeppni við hefðbundnar, vem- daðar búgreinar undangengin ár. Þannig myndu heimilin hagnast á lækkun matarkostnaðar, án þess að það bitnaði á landbúnaði í heild, heldur myndu eftirspumin og fram- leiðslan einkum færast milli bú- greina. Aukin samkeppni milli bú- greina myndi þar að auki hvetja bændur í hefðbundnum greinum til að lækka framleiðslukostnað með aukinni hagræðingu til að reyna að halda hlut sfnum til enn frekari hagsbóta fyrir almenning. Þorvaldur Gylfason IV. Offramleiðsla í Evrópu Til samanburðar varði Evrópu- bandalagið um 1.000 milljörðum króna í landbúnaðarstyrki í fyrra eða um 12.000 krónum á hveija fjögurra manna fjölskyldu á öllu bandalagssvæðinu. Þetta jafngildir um 330.000 krónum á hveija fjög- urra manna sveita fíölskyldu á svæðinu. Við þessar fjárhæðir bætt- ust háir styrkir einstakra ríkja til eigin landbúnaðar, þótt slíkar ijár- veitingar séu reyndar óheimilar samkvæmt reglum bandalagsins. Af þessu má ráða, að við íslending- ar veijum mun meira fé í landbúnað samkvæmt fjárlögum en Evrópu- bandalagsþjóðimar. Samanburður sem þessi er þó ekki einhlítur vegna þess, að hann nær aðeins yfir bein búnaðarútgjöld, en dylur óbeina styrki af ýmsu tagi, til dæmis áhrif vemdartolla og vaxtahlunnindi, sem erfítt er að meta til fjár með einföldum hætti. Landbúnaðarstefna Evrópu- bandalagsins er þó langt frá því að vera til fyrirmyndar . Hún er óhemjudýr. Hún útheimtir 70% af öllum útgjöldum bandalagsins. Tveim þriðju hlutum landbúnaðar- útgjaldanna er varið til að geyma offramleiðsluna og selja hana á heimsmarkaði, en aðeins þriðjungur fjárins nýtist bændum beint. Helm- ingur birgðanna er talinn óhæfur til manneldis í þokkabót. Offram- leiðslan nemur nú rösklega 30.000.000 tonnum, eða um 350 kg á hveija fjögurra manna fjöl- skyldu á bandalagssvæðinu, og er talin munu næstum þrefaldast næstu þijú ár. Að þeim tíma liðnum verða óseldar birgðir landbúnaðar- afurða væntanlega komnar upp í eitt tonn á hvert heimili í banda- lagsríkjunum! Hvers vegna eru birgðirnar þá ekki seldar eða jafnvel gefnar svelt- andi þjóðum í þriðja heiminum? Það er vegna þess, að þá myndu afurð- imar trúlega lækka svo mjög í verði, að landbúnaður þessara þjóða gæti lagzt í rúst. Auk þess stafar hungursneyð í fátækraríkjum nú á dögum yfírleitt ekki af matvæla- skorti, heldur af öngþveiti í sam- göngum, óstjóm og styijöldum. Græna byltingin olli straumhvörf- um í þriðja heiminum. Nú framleiða jafnvel Indveijar meiri mat en þeir þurfa sjálfír. V. Innflutningsbann Aðstoð ríkisins við landbúnað hér heima einskorðast ekki við niður- greiðslur og útflutningsuppbætur. Um langt skeið naut landbúnaður til dæmis sérstakra vildarkjara í ríkisbankakerfínu umfram aðrar atvinnugreinar, ekki sízt gegnum afurðalánakerfíð, sem nú hefur ver- ið lagt niður, og hann nýtur sér- sakra kjara að nokkm leyti enn. Um það mætti reyndar skrifa eina grein enn, en það bíður. Hér er hins vegar ætlunin að vekja máls á því, að ísland er trú- lega einsdæmi í okkar heimshluta að því leyti, að innflutningur næst- um allra landbúnaðarafurða, sem hægt er að framleiða hér heima, er bannaður með lögum. Þetta inn- flutningsbann bitnar á neytendum. Matvöruval í íslenzkum verzlunum er miklu minna en erlendis, jafnvel þótt það hafí aukizt og batnað mik- ið síðustu ár. Auk þess er matur miklu og stundum margfalt dýrari hér heima en í nágrannalöndunum. Að nokkm leyti stafar verðmunur- inn af því, að okkar markaður er miklu minni en markaður gran- nlandanna. Við því er ekkert að gera. Það er dýrt að vera íslending- ur. En verðmunurinn stafar líka að vemlegu leyti af því, að ódýr erlend matvæli em ekki á boðstólum og íslenzk búvömframleiðsla er dýrari fyrir vikið: Innflutningshömlur, hvort heldur blátt bann eða tollar, leiða alltaf til hærra vömverðs en ella, enda er tilgangurinn yfírleitt einmitt sá. Matvömverð hér heima myndi því áreiðanlega lækka til muna og úrvalið aukast, ef fijáls innflutning- ur landbúnaðarafurða væri leyfður í áföngum. Innflutningsbann er tímaskekkja. Allur annar innflutn- ingur til landsins er fijáls og hefur verið frjáls í næstum 30 ár. Hvergi í nágrannalöndum okkar er til dæm- is bannað að flytja inn ost frá út- löndum, svo að ég viti, þótt bændur framleiði ost í öllum þessum lönd- um. Sjálfír flytjum við íslendingar út landbúnaðarafurðir í stómm stíl. VI. Heilbrigð samkeppni Matarkostnaður íslenzkra heim- ila er mjög mikill, eins og allir vita. Innflutningur landbúnaðarafurða er þess vegna brýnt hagsmunamál almennings, svo brýnt, að það er eiginlega undarlegt, að enginn stjómmálaflokkur skuli hafa tekið málið upp af alefli. Hvað sem því líður, verðum við íslendingar að búa okkur undir aukið innflutnings- frelsi, ef við viljum vera viðræðu- hæfír í hugsanlegum samningum okkar við Evrópubandalagið um aukin viðskipti eða jafnvel aðild að bandalaginu á næstu ámm. Ef við afréðum að sækja um inn- göngu í Evrópubandalagið einhvem tíma í framtíðinni, þyrftum við þó varla að hafa miklar áhyggjur af því, að erlendum bændum þætti árennilegt að stunda landbúnað í íslenzkum sveitum, þótt þeir ættu kost á þvi. ísland er erfítt ábúðar að ýmsu leyti. Framleiðni í flestum greinum hefðbundins landbúnaðar hér á landi er þess vegna miklu minni en gengur og gerist í öðmm Evrópulöndum, þar sem ýmis nátt- úmskilyrði henta betur til land- búnaðar. Það er þess vegna ekki víst, hversu vel íslenzkum land- búnaðarafurðum myndi vegna í samkeppni við afurðir annarra Evr- ópulanda á sameiginlegum evrópsk- um landbúnaðarmarkaði. Frjáls samkeppni í landbúnaði gengi þó að sjálfsögðu ekki í gildi á einni nóttu, heldur á löngum tíma. Hug- vit og atorka íslenzkra bænda gætu dugað þeim mjög vel til að búa sig undir alþjóðlega samkeppni á er- lendum markaði, ef þeir fengju nægan umþóttunartíma. Þar að auki væri það bæði sanngjamt og skynsamlegt undir þessum kring- umstæðum að styrkja bændur af opinbem fé til enn frekari búhátta- breytinga og framleiðsluhagræð- ingar af ýmsu tagi. Það er mjög trúlegt, að nálægð íslenzkra bænda við íslenzkan bú- vömmarkað gæfí þeim verðmætt forskot fram yfír erlenda keppi- nauta á innlendum markaði. Þetta stafar af því, að flutningskostnaður íslenzkra bænda væri miklu lægri en útlendinga, og ekki síður af hinu, að íslenzkir búvömframleiðendur gerþekkja íslenzkan smekk og hafa miklu betri aðstöðu en erlendir bændur til að laga framleiðslu sína að breyttum þörfum íslenzkra neyt- enda. Hitt er fullvíst, að heilbrigð sam- keppni myndi hvetja til margvís- legrar hagræðingar í íslenzkum landbúnaði, bæta framleiðsluna og lækka kostnað. Auk þess myndi óheftur og tollfijáls innflutningur landbúnaðarafurða til íslands frá öðmm Evr ópulöndum auka úrval og lækka matvömverð til neytenda hér heima. Þetta myndi líka veita íslenzkum bændum heilbrigt og æskilegt samkeppnisaðhald, líkt og aðrar íslenzkar atvinnugreinar hafa búið við um skeið og þjóðin hefur notið góðs af. Þar að auki myndi aðild að Evrópubandalaginu veita íslendingum aðgang að sameigin- legum bandalagssjóðum, sem veitt er úr til að styrkja landbúnað í aðildarríkjunum rausnarlega innan ramma samræmdrar landbúnaðar- stefnu bandalagsríkjanna. En það er önnur saga. Höfundur er prófessor í þjóð- hagfræði við H&skóla íslands. Morgunblaðið/Kristófer M. Kristinsson Verk Péturs Bjarnasonar sem valið var til að skreyta leikvanginn þar sem ólympíuleikar fatlaðra fara fram nú í maí. Belgía: íslenskt listaverk sett upp í Brussel Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í TILEFNI ólympíuleika fatlaðra sem haldnir verða í Brussel í þessum mánuði verða sett upp nokkur listaverk í kringum leik- vanginn sem leikarnir fara fram á. I hópi þeirra sem sýna verk sín er Pétur Bjarnason sem stundað hefur myndlistarnám í Antwerpen. Forráðamenn ólympíuleikanna efndu til einskonar samkeppni inn- an þriggja listaskóla í Belgíu um myndir til að lífga upp á umhverfí ólympíuleikvangsins. FVá skólanum í Antwerpen var tillaga Péturs sam- þykkt ásamt tillögum tveggja skóla- bræðra hans. Pétur sýnir höggmynd unna í trefjaplast. Myndin er til- brigði við hross og sýnir eins konar tvíteglunga sem hanga saman á stertunum. Fréttaritari fylgdist með uppsetningu myndanna og tók með- fylgjandi myndir við það tækifæri. Pétur er að ljúka námi við skól- ann á þessu vori og nýverið hélt hann lokasýningu sýna í sýningar- sal í Antwerpen en hann hefur á námsferli sínum hlotið viðurkenn- ingar við frammistöðu sína. íslend- ingar hér um slóðir þykjast auðvitað góðir af Pétri og eru ánægðir með þá samkeppni sem hann veitir þeim Islendingum öðrum sem vekja at- hygli á sér á og við íþróttavelli. Hafnarfjörður: Hátíðahöld á 80 ára afmælinu HAFNFIRÐINGAR halda upp á 80 ára afmæli kaupstaðarins dagana 1. — 4. júní með hátíðar- dagskrá, opnun sýninga.íþrótta- mótum, barnaskemmtunum og fjölskylduskemmtun. Séð verður til þess að allir þeir sem vilja geti fundið eitthvað við sitt hæfi þessa hátíðisdaga. Upp á af- mælisdaginn 1. júní ber einnig 50 ára afmæli Rafveitu Hafnar- fjarðar. Forskot verður tekið á aðalhá- tíðahöldin með vígslu Hafnarborg- ar, lista- og menningarmiðstöðvar Hafnarfjarðar, laugardaginn 21. maí. Við vígsluna mun Eiríkur Smith opna stóra málverkasýningu og forsætisráðherra verður heiðurs- gestur við opnunina. Afmælishátíð kaupstaðarins hefst á afmælisdaginn 1. júní með athöfn í Hellisgerði þar sem mál- fundafélagið Magni mun afhenda bæjaryfírvöldum það svæði form- lega. Um kvöldið verður hátíðar- dagskrá í Hafnarborg þar sem Vigdís Finnbogadóttir forseti verð- ur heiðursgestur. Á öðrum degi hátíðarinnar verða opnaðar sýningar, í Riddaranum verður sýning tengd ákveðnum per- sónum, munum þeirra og sögu Hafnarfjarðar. Skipulag Hafnar- fjarðar í 80 ár verður sýnt í fjölnýti- sal Öldutúnsskóla. Einnig verða þennan dag kvikmynda- og mynd- bandasýningar frá sögu Hafnar- fjarðar. Dagur bamanna í Hafnarfirði verður 3. júní. Þá verða ýmsir við- burðir fyrir yngstu kynslóðina. Einnig verður þennan dag afhjúpað listaverk á Fiskmarkaði Hafnar- fjarðar eftir Rúnu og Gest Þorgríms. Til hófs af því tilefni verður boðið sjómönnum og físk- vinnslufólki í Hafnarfírði. Aðal hátíðisdagurinn fyrir al- menning verður laugardaginn 4. júní. Þá verður fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu og alls kyns skemmtiatriði og viðburðir í miðbæ Hafnarfjarðar. Morgunblaðið/Sverrir Frá félagsfundi Lögreglufélagsins. Jón Pétursson formaður i ræðustól en aðrir á myndinni eru frá vinstri: Benedikt Lund varaformaður, Sigurgeir Arnþórsson ritari og Magnús Eggertsson fyrrverandi yfirlögregluþjónn sem var fundarstjóri. Morgunblaðið/BAR Hörður Hilmarsson í framkvæmdanefnd afmælishátíðar, Gunnar Rafn Sigurbjömsson bæjarritari og Guðmundur Stefánsson bæjarstjóri kynntu dagskrá 80 ára afmælishátíðar Hafnarfjarðar á blaðamanna- fundi. Lögreglufélag Reykjavíkur: Lögreglusljóri er ekki bund- inn þagnarskyldu um kærumál LÖGREGLUFÉLAG Reykjavíkur hélt á þriðjudag félagsfund þar sem til umræðu voru, meðal ann- ars, þær kærur sem lagðar hafa verið fram á hendur lögreglu- mönnum að undanförnu. A fund- inum voru einnig kynntar hug- myndir Landssambands lögreglu- manna um setningu siðabálks fyr- ir lögreglumenn. Nú er unnið að skipun nefndar kunnáttumanna til að vinna að þvi máli. Fundurinn samþykkti ályktun þar sem segir að félagsmenn telji að þar sem Rannsóknarlögregla ríkisins fari með rannsókn þessara mála hvíli ekki á embætti lögreglustjórans í Reykjavík nein sérstök trúnaðar- skylda rannsóknaraðila um málsat- vik og því sé það embættinu vansa- laust að skýra opinberlega frá mál- avöxtum sem fram kunna að koma við „starfslega könnun." í ályktuninni segir ennfremur að reynist fótur fyrir kærum á hendur lögreglumönnnum, sé um alvarlegt mál að ræða sem í felist „óhugnanleg röskun á réttarríkinu og alvarlegt trúnaðarbrot við samfélagið". Það sé mikilvægt bæði embættinu og starfsmönnum þess að forsendur og afleiðingar slíkra kæra séu rækilega kannaðar. í ályktuninni segir að kærur af þessu tagi hafi í for með sér mikla röskun á starfí lögreglunn- ar og því verði að krefjast þess að lögreglustjórinn láti kanna öll slík mál á starfslegum grundvelli, óháð formlegri lögreglurannsókn. Reynist fótur fyrir kærum sé óhæfílegt að bíða eftir niðurstöðu ákæruvalds eða dómstóla áður en tekið er á vandan- um. Ennfremur segir að komi á.daginn að lagðar hafi verið fram rangar eða stórlega ýktar kærur sé eðlilegt að ákæruvaldið fjalli um þær á grund- velli 106. greinar almennra hegning- arlaga. Loks lýsir fundurinn furðu yfir óvöndum fréttaflutningi sumra qölmiðla um lögreglumálefni. Með slíkum vinnubrögðum sé íslenskri blaðamennsku gerð vanvirða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.