Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.12.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988 IftSflsflfil eru fjarstýrdu bílarnir frá Tómstundahúsinu Hraöi og kraftur einkenna þá, engar hindranir standast þá, þaö springur ekki á þeim og flestir bilstjórar frá 3ja áraoguppúr geta stjórnað ÍÍlStl! S/órí liWli 11*1. Iræikiriiin Illska og göfiiglyndi IAKS-III Stóri kvenna- fræðarinn KOMIN er út hjá Iðunni bókin Stóri kvennafræðarinn eftir breska lækninn Miriam Stopp- ard. Nanna Rögnvaldsdóttir þýddi. í kynningu Iðunnar segir m.a.: „Stóri kvennafræðarinn er bók nútímakvenna á öllum aldri, bók sem veitir svör við ótal spurningum um öll þau svið sem snerta daglegt líf þeirra og lífshætti. Hér er rætt um hreysti og heilbrigði, líkams- rækt og mataræði og umhirðu húð- ar og hárs. Greint er frá flestum þeim kvillum og sjúkdómum sem hrjáð geta konur og sagt frá að- ferðum til að forðast þá. Sérstakir kafla eru einnig í bókinni um kyn- eðli og kynlíf og um frjósemi, með- göngu og fæðingu. Áhersla er þó ekki síður lögð á andlegt heilbrigði kvenna og það sem því getur ógnað, svo sem streitu, kvíða og margháttaða örð- ugleika í sambúð og samskiptum. Jafnframt eru raktir áfangar á þro- skapferli kvenna frá æskuárum til elli, sagt frá ólíkum valkostum sem þeim standa opnir og rætt um sam- skipti kynjanna, hjónaband og skilnað, starfsframa og margt fleira." Békmenntir Jenna Jensdóttir Lars-Henrik Olsen: Ferð Eiríks til Jötunheima. Guðlaug Richter þýddi, Erik Hjorth Nielsen mynd- skreytti. Mál og menning 1988. Hér kemur í íslenskri þýðingu seinni hlutinn af sögunni um Eirík. Fyrri hlutinn, Eiríkur fer til Ás- garðs, kom út í fyrra. Efni sögunnar er sótt í norræn goðafræði — heim æsa og jötna. Höfundurinn, Lars-Henrik Olsen, hlaut verðlaun fyrir söguna í heima- landi sínu, Danmörku. í byrjun fyrra bindis sækir stríðsguðinn Þór fjórtán ára dreng, Eirík, til mannheima. Trú æsa er sú að hraustur og áræðinn drengur frá heimkynnum manna geti bjarg- að því sem er að fara forgörðum hjá æsum. Guðimir eru orðnir gaml- ir og drykkfelldir og hræðsla við Ragnarrök, (skapadægur goðanna) gegnsýrir lífið í Asgarði. Hinn ungi Eiríkur kynnist í Ásgarði sköpunar- sögu æsanna og stórfenglegu, ör- lagaríku lífi þeirra í stríði og friði, ýmist gegnum sögur er goðin segja honum eða af eigin raun. Verstu ijendur goða, jötnar, sem búa í undirheimum, hafa stolið Ið- unni, konu Braga (sonar Óðins og guðs skáldskapar og orðlistar). En Iðunn á lífseplin sem geta gert guðina síunga. Eiríki er ætlað það verk að fara til Jötunheima, frelsa Iðunni og skila henni, ásamt eplunum, til Ásgarðs á ný. Ullur sonur Óðins (guð íþrótta og veiða) þjálfar Eirík til ferðalags- ins. Sú þjálfun ásamt ýmsum at- burðum og átökum heima í Ásgarði gera æsum ljóst að í Eiríki býr mikill manndómur. Eiríkur fer ekki einn til Jötun- heima. Með honum fer Þrúður, dótt- ir Þórs, falleg stúlka sem við fýrstu sýn hafði strax undarlega hlý áhrif á Eirík. Kynni þeirra í Asgarði hafa öll orðið eftir því. Seinni hluti sögunnar, sem hér kemur, hefst á því að þau Eiríkur leggja af stað til Jötunheima. Til reiðar hafa þau hestinn Hófvarpni, stóran og kraftmikinn gæðing. Eiríkur hefur með sér hnífinn Dálk, sem bítur á allt og vex jafnhliða hugrekki og áræði eigandans. I litlum poka, sem Ullur fékk honum að skilnaði, er efnisbútur marglitur. Eiríkur sér, að þar muni komið hið stórkostlega skip Freys (ástar- og fijósemisguðs), Skíðblaðnir. Auk þessa hafa þau boga tvo er Ullur á. Ferðin til jötna er þymum stráð og þó á ýmsan máta rósum. Leiðin liggur meðfram þriðju rót Yggdras- ils til Heljar, ríkis dauðra í undir- heimum. i pmm oisin EUkð IRÍKS iii. JörurHtiEiinA Yfir Dauðaríkinu ræður Hel, ljót og vond. Á vegi þeirra er einnig drekinn Níðhöggur, sá er ber dauða menn milli fjaðra sinna, sýgur blóð þeirra og nagar rót Yggdrasils. Allt þetta komast þau Eiríkur og Þrúður í kast við og för þeirra gegn- um blóð, rotnun og algera vonsku er þrotlaus barátta í angist og stundum örvilnun, er þeirra eigið blóð rennur. Kröftum sálar og líkama beita þau til þess ýtrasta, auk þess sem þau hafa örlítið brot af mistilteini þeim er Höður hinn blindi skaut að Baldri (fegurstum guða, báðir synir Óðins), svo að hann lenti í Dauðaríki. Gefur Bald- ur þeim Eiríki brot þetta er þau hitta hann þar. Þeim tekst að komast í hellinn til Loka og Sigynar. Þar kynnast þau hatri og fómfýsi. En Loki fjötr- aður nærist á hatri til æsa fyrir þau örlög er þeir hafa búið honum og fómfýsi Sigynar á sér engin tak- mörk. Þau heimsækja Utgarða- Loka og þurfa þá í fyrsta sinn að beita ósannindum og klækjum til þess að ljúka því erindi sem þeim er ætlað. Lesandi getur ráðið í hver verða örlög Eiríks er þau koma til Ás- garðs á ný. Það er freistandi en ekki viturt að lengja einn lítinn ritdóm meira en orðið er. Mér finnst seinni hluti sögunnar jafnvel átakameiri og stórbrotnari, enda heimtar efnisþráður það og höfundur bregst ekki. Ljótleikinn er magnaður með óhugnaði og djöfuldómi annars veg- ar en ljóðræn heiðríkja og eðlislægt göfuglyndi koma sterklega fram í því sem er fagurt og gott. Sagan um Eirík ber þess glöggt vitni að höfundur hefur kynnt sér norræna goða- og jötnasögu vel og haft góð tök á að nota þann efnis- þráð í skáldsögu sína. í hendur við það helst einnig að þýðandi er afar vandaður og vel heima í fomum fræðum. Hér hjálpar einnig til að gera söguna vel úr garði að myndir eru skemmtilega hrikalegar og útgáfa falleg. Félag íslenskra myndlistarmanna; Sölugallerí og sýning- arsalur í Garðastræti SALUR Félags íslenskra mynd- listarmanna í Garðastræti 6 verð- ur framvegis bæði sölugallerí og sýningarsalur. í desember og janúar verður galleríið eingöngu starffækt sem sölugallerí. „Verk, sem boðin verða til sölu í galleríinu verða eingöngu eftir við- matinbleu... urkennda listamenn, jafnt unga sem aldna. Þar verða til dæmis_ til sölu verk eftir félagsmenn í FÍM sem aldrei hafa verið með verk í öðmm sölugalleríum,“ sagði Daði Guð- bjömsson, formaður Félags íslenskra myndlistarmanna, í sam- tali við Morgunblaðið. Salurinn verður opinn frá klukk- an 12 til 18 og á laugardögum frá klukkan 14 til 18. í desember verð- ur salurinn hins vegar opinn þar til verslanir loka. Morgunblaðið/Bjami Salur Félags islenskra myndlistarmanna í Garðastræti 6 verður fram- vegis bæði sölugalleri og sýningarsalur. f 5^ ‘-k A' GLÆSIBÆ - SIMI 82922 pc>s Laugavegi 164, simi 21901
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.