Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.01.1989, Blaðsíða 7
MO.HQyNBLAÐID FIMMTUJ3AG.UB, 5., JANpAR .1989 7 Breytingar á kaupmætti ASÍ-félaga milli 1987 og 1988: Kaupmáttur rýmar um 2,3% - mest hjá verkakonum Stafar af minnkun yfirvinnu um 2 stundir á viku KAUPMATTUR landverkafólks innan Alþýðusambands íslands rýrnaði að meðaltali um 2,3% frá 3. ársfjórðung-i 1987 til 3. árs- fjórðungs 1988. Kaupmáttar- minnkunin er mest hjá verkakon- um, eða um 5,7%. Kaupmáttur verkamanna dróst saman um 5,5%, en hins vegar jókst kaup- máttur bæði karla og kvenna í skrifstofustörfum um rúm 3%. Orsök minnkandi kaupmáttar er sú að vinnutími hefur dregist saman um tvær stundir á viku að meðaltali, eða um rúm 4%. Kaupmáttur miðað við tímakaup hækkaði hins vegar að meðaltali um 3,2% á þessum tíma. Þessar upplýsingar koma fram í nýútkomnu Fréttabréfi Kjararann- sóknamefndar. Allar tölur í frétt- inni eru miðaðar við breytingar á einu ári, frá 3. ársfjórðungi 1987 til 3. ársfjórðungs 1988, nema þar sem annað er tekið fram. Vinnutími verkamanna hefur dregist mest saman á tímabilinu, eða um 3,2 stundir. Þeirra vinnutími er einnig lengstur, eða rúmar 49 stundir á viku. Vinnutími verka- kvenna hefur dregist saman um 2,1 stund á viku, iðnaðarmanna um 1,7 stundir, skrifstofukvenna um 1,1 stund, skrifstofukarla um eina stund og afgreiðslukvenna og -karla um 0,3 stundir. Kaupmáttur heildarlauna hefur sem fyrr segir minnkað um tæp 6% ’ hjá verkamönnum og -konum, en aukist um 3,2% hjá körlum í skrif- stofustörfum og um 3,3% hjá kon- um. Kaupmáttur hjá iðnaðarmönn- Templarar með sænska skafmiða ÞEIR sem lagt hafa leið sína á bingókvöld í Templararhöllina að undanförnu hefur gefist kost- ur á að taka þátt í spilinu 21 á þar til gerðum spjöldum. Spjöld- in eru rifin upp og kemur þá fram tala á þeim. Vinningstölur í þessum leik eru frá 17 til 21 en hæsti vinningur er 1000 krón- ur. Brynjar Valdimarsson, sem sér um bingókvöldin í Templarahöll- inni, segir að spjöld þessi komi frá Svíþjóð, frá sömu aðilum og þeir fái bingóspjöldin hjá. Hann segir að líta megi á þetta sem aukaum- ferð í bingóinu og að þessi spjöld sé hægt að fá víða á Norðurlöndun- um á bingókvöldum. „Þessi spjöld eru mjög svipuð gömlu 21-spjöldunum sem margir muna eflaust eftir frá fyrri tíð,“ segir Brynjar. h VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! um hefur minnkað um 0,4% á þess- um tíma og um 0,3% hjá konum í afgreiðslustörfum. Hann hefur hins vegar aukist hjá körlum í sömu störfum, eða um 1%. Ef áhrif minnkandi yfirvinnu eru tekin út kemur í ljós að kaupmáttur hefur aukist langmest hjá skrif- stofukonum, eða um 9,2%, en minnst hjá verkakonum, eða um 0,3%. Hjá körlum i skrifstofustörf- um jókst kaupmáttur tímakaups um 6,7%, hjá körlum í afgreiðslustörf- um um 4,7%, hjá iðnaðarmönnum um 3,9%, hjá konum í afgreiðslu- störfum um 3% og hjá verkamönn- um um 1,8%. Ef aðeins er litið á breytingar frá 2. til 3. ársfjórðungs árið 1988 kem- ur í ljós að aðeins iðnaðarmenn hafa aukið við vinnutíma sinn, um 0,7 stundir á viku. Vinnutími verka- manna hefur hins vegar dregist saman um klukkustund og verka- kvenna um 1,3 stundir á viku. Kaupmáttur minnkaði á milli árs- fjórðunga hjá verkamönnum og -konum, en jókst hjá öðrum, mest hjá skrifstofukonum. SIMANUMERIÐ 0KKAR ER 17152 MYNDAMÓT HF Þú svalar lestrarþörf dagsins y ásídum Moggans! SKATTHLUTFALL OG PERSÓNUAFSLÁTTUR ÁRÐ 1989 ALMENNT SKATTHLUTFALL ER37,74% SKATTHLUTFALL BARNA \ UNDIR 16 ARA ALDRI ER6% PERSONUAFSLÁTTUR ER 17.842KR. SJÓMANNAAFSLÁTTUR ER 492 KR.ÁDAG LAUNAGREÐANDA ER OHEIMILT AÐ FÆRA ÓNÝTTAN PERSÓNUAFSLÁTT MILLIARA :(Þ.E.FRÁ 1988TIL 1989) Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiðanda ber hins vegar að nota ofangreint skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar við útreikning staðgreiðslu. Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttar sem fram kemur á skattkorti hans. RSK RlKISSKATTSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.