Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER .1989 Ný lög um tekjustofiia sveitarfélaga: Alagningarstofii fasteigna- skatts hækkar allt að 7 5% NÝ lög um tekjustofna sveitarfélaga hafa það meðal annars í fór með sér að álagningarstofh fasteignagjalda hækkar um 30-70% í þremur bæjum á Vesturlandi og VestQörðum og um 75% i sveitahrepp á Suður- landi. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi Fasteignamats ríkisins og Matsmannafélags íslands. Lagabreytmgin, sem þessu veldur, nær til fasteignaskattsins sjálfs. I 3. grein laganna segir að stofn til álagningar fasteignaskattsins á hús og mannvirki skuli vera afskrifað endurstofnverð þeirra margfaldað með markaðsstuðli fasteigna í Reykjavík skv. matsreglum Fast- eignamatsins. Stofn til álagningar fasteignaskatts á aðrar fasteignir skal vera fasteignamat þeirra." í fréttabréfinu segir að greinin Hollustuvernd ríkisins: Engar upplýsingar um kínversku sveppina HOLLUSTUVERND ríkisins hafa ekki borist upplýsingar um þá ákvörðun bandaríska lyfja- og matvælaeftirlitsins að banna inn- flutning og sölu á niðursoðnum sveppum frá Kína vegna fjölda matareitrunartilfella. Niðursoðnir kínverskir sveppir eru fluttir inn og seldir á íslandi. Jón Ásbergsson, forstjóri Hag- kaups, sagði að fyrirtækið flytti inn „Malin“-sveppi frá Kina. Kvaðst Jón ekkert hafa heyrt um mál þetta og vísaði til Hollustuvemdar. þýði í raun, að nú gildi sami álagn- ingarstofn um allt land fyrir hús og mannvirki. Gjaldstofn fasteigna- skatts annarra eigna, landa, lóða og hlunninda, sé eftir sem áður fast- eignamat. Samkvæmt þessu sé gjald- stofn fasteignaskattsins, til dæmis á íbúð með lóð, hinn nýi álagningar- stofn. íbúðarinnar að viðbættu fast- eignamati lóðarinnar. Það hækkar álagningarstofninn að miða við markaðsstuðul fasteigna í Reykjavík, þar sem að jafnaði fæst allmiklu hærra verð fyrir húseignir þar en sambærilegar eignir úti á landi. í lögunum eru breytt ákvæði um álagningarprósentu. Hún er allt að 0,5% í lægri flokki, en allt að 1,0% í hærri flokki. Sveitarstjórnum er heimilt að hækka þessa álagningar- prósentu um allt að 25%, þannig að hún getur verið allt að 0,625% í lægri flókknum, en 1,25% í hinum efri. Undanþágum frá fasteignaskatti verður fækkað, til dæmis fá félags- heimili, samkomuhús, stúdentagarð- ar og orlofsheimili launþegasamtaka ekki undanþágu lengur. VEÐURHORFUR í DAG, 24. OKTÓBER: YFIRLIT í GÆR: Norðaustanátt á landinu víðast gola eða kaidi. Skúrir voru á norðanverðum Austfjörðum, él við norðanverða Vest- firði, en víða léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast suðaustanlands. SPÁ: Allhvöss austanátt með slyddu eða rigningu um landiö norðan- vert en hægari vindur og skúrir syðra. Hiti 2-7 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðan- og norðaust- anátt, heldur minnkandi á fimmtudag. Él á Norður- og Austurlandi og líklega einnig við suðausturströndina en þurrt suðvestan- og vestanlands. Kólnandi veður og vægt frost um mest allt land á fimmtudag. TÁKN: S \ Alskýjað y, Norðan, A vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / # / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■jq Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur (T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri Reykjavik 3 4 alskýjað skýjað Bergen 11 skýjað Helsinki 10 skýjað Kaupmannah. 13 skýjað Narssarssuaq 0 skafrenningur Nuuk +6 léttskýjað Osló 13 skýjað Stokkhólmur 13 skýjað Þórshöfn 9 skýjað Algarve 22 skúr - Amsterdam 15 rigning Barcelona vantar Berlín 20 skýjað Chicago 8 alskýjað Feneyjar vantar Frankfurt 21 léttskýjað Glasgow 13 hálfskýjað Hambory 16 alskýjað Las Palmas 23 skýjað London 16 skýjað Los Angeles 18 þoka Lúxemborg 18 heiðskfrt Madríd 20 skýjað Malaga 22 alskýjað Mallorca 24 skýjað Montreal 4 úrkoma New York 9 heiðskírt Orlando 16 léttskýjað París 21 skýjað Róm 23 heiðskírt Vin 20 léttskýjað Washington 7 skýjað Winnipeg 7 léttskýjað Morgunblaðið/Ámi Saéberg Grunnur að nýjum skála Breiða- bliks. Þrír skálar í byggingu í BláQöllum ÞRIR nýir skálar eru í byggingu í Bláfjöllimi og verða líklega teknir í notkun í vetur. Skíðadeild Fram er langt komin með skála og er stefnt að því að hann opni snemma í vetur. Ár- menningar eru einnig komnir vel á veg með nýjan skála sem opnar líklega í byijun næsta árs. Loks hafa Breiðblik og Kópavogur hafíst handa við byggingu skála og er stefnt að því að hann verði fok- heldur í vetur. Bláfjallanefnd, sem er samstarf tólf sveitarfélaga, keypti fyrir skömmu svæði Breiðabliks, lyftu og skála. 11 milljónir með sölu K-lykils KIWANISFÉLAGAR söfnuðu 11 milljónum með sölu K-lykils til styrktar geðsjúkum um helgina. Endanieg tala liggur þó ekki fyrir fyrr en í lok vikunnar þeg- ar félög á landsbyggðinni hafa gert skil til söfhunarinnar. Að sögn Jóns K. Ólafssonar formanns K-dagsnefndar var sölu- mönnum hvarvetna vel tekið eina vandamálið var að ná til allra sem vildu styrkja söfnunina. „Það er full ástæða til að þakka fyrir undir- tektirnar," sagði Jón. Ákveðið hefur verið að halda söfnuninni áfram meðal fyrirtækja út þessa viku auk þess sem stofnað- ur hefur verið gíróreikningur nr. 654000 fyrir þá sem óska eftir að styrkja söfnunina. Fimm umsóknir um embætti sakadómara FIMM umsóknir bárust um em- bætti dómara við Sakadóm Reykjavíkur en Ármann Krist- insson sakadómari hefúr sagt embætti sínu lausu frá síðustu mánaðamótum. Umsækjendurnir fimm eru: Halla Bachmann Ólafsdóttir, full- trúi yfirsakadómara, Hjörtur O. Aðalsteinsson, aðalfulltrúi yfir- sakadómara, Júlíus Georgsson, fulltrúi yfirsakadómara, Ragnheið- ur Thorlacius, fulltrúi sýslumanns- ins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og Þorsteinn Skúlason, héraðs- dómari á Selfossi. Verður Sólon banka- stjóri Búnaðarbankans? Beðið eftir afstöðu Stefáns Valgeirssonar SÓLON Sigurðsson, aöstoðarbankastjóri Búnaðarbankans er líklegast- ur til þess að verða arftaki Stefáns Hilmarssonar, í stöðu bankastjóra, verði það sjónarmið látið ráða að ráða bankamann í starfið en ekki stjórnmálamann. Þeir Friðjón Þórðarson og Halldór Blöndal, fulltrúar sjálfstæðisflokksins í bankaráði Búnaðarbankans munu báðir þcirrar skoðunar að ráða beri Sólon, en þeir bíða þess að Stefán Valgeirsson, formaður bankaráðs geri upp hug Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er Stefán Valgeirsson beitt- ur þrýstingi frá fulltrúum A-flokk- anna, þar sem báðir flokkar telja reyndar að þeim beri þessi banka- stjórastaða. Alþýðubandalagsmenn horfa til þess möguleika að setja Geir Gunnarsson, alþingismann í starfið og losa þar með þingsæti fyr- ir formanninn, Ólaf Ragnar Grímsson. Á hinn bóginn er talið ólíklegt að A-flokkamir geti náð samstöðu um hveijum þeir vilja mæla með, og það er talið auka möguleika Sólons. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bankaráðinu og starfsmenn Búnað- sinn. arbankans eru eindregið þeirrar skoðunar að ráða beri bankamann tilstarfans en ekki stjómmálamann. Aðstoðarbankastjórar Búnaðarbank- ans eru flórir. Þeir era Sólon Sigurðs- son, Sveinn Jónsson, Hannes Pálsson og Kristinn Ziemsen. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins nýtur Sólon mests stuðnings innan Búnað- arbankans, en einnig munu ákveðnir menn gjarnan vilja að Sveinn Jónsson hljóti stöðuna. Það verður ekki fyrr en Stefán Valgeirsson hefur gefið upp hvern hann hyggist styðja, sem fæst úr því skorið hver verður arf- taki Stefáns Hilmarssonar. Carl Billich látinn CARL Billich, tónlistarmaður, lést í gær á Landakotsspítalanum. Hann fæddist 23. júlí 1911 í Vínarborg og lagði þar stund á tónlistarnám. Hann kom til íslands 1933 og var strax mjög virkur í íslensku tónlist- arlífi. Hann lék með mörgum kvart- ettum, þ.á.m. Leikbræðrum, Smárakvartettinum og aðstoðaði MA-kvartettinn, auk þess að útsetja fjölmörg lög. Árið 1940 var Carl Billich hand- tekinn af breska hernum og fluttur í fangabúðir. Þar dvaldi hann til stríðsloka en kom aftur til íslands árið 1947 og fékk íslenskan ríkis- borgararétt skömmu síðar. Carl starfaði við tónlistarflutning af ýmsum toga, lék í 16 ár í Naust- inu og lék undir hjá Fóstbræðrum. Hann var kór- og hljómsveitarstjóri Þjóðleikhússins frá 1964 og lét af þeim störfum árið 1981. Carl fékk fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu tónlistar á íslandi og einnig sérstakar viðurkenningar frá Carl Billich finnskum og austurrískum stjórn- völdum. Eftirlifandi eiginkona hans er Þuríður Billich.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.