Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 29
 ; MORGUNBLABIÐ ÞRID3UDAGUR 24. OKTÓBER 1989 __—----------------------- ' ■ ■ Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Háskólinn ^ sviptur tekjustofhi Stefíiuræða forsætisráðherra: Hrakspámar hafa ekki ræst Ifrumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1990 er gert ráð fyrir að haldið verði áfram að inn- heimta sérstakan eignaskatt, sem upphaflega kom til sög- unnar í því í skyni að fjár- magna smíði Þjóðarbókhlöð- unnar. Það. hús gaf þjóðin sjálfri sér í tilefni af því að ellefu aldir voru liðnar frá því að búseta hófst í landinu. Nú eru 15 ár liðin frá þeim at- burði án þess að smíði bók- hlöðunnar sé lokið. Sér ekki enn fyrir endann á verkinu vegna þess, að í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu seg- ir: .. Er ljóst að ekki verður unnt að ná þeim markmiðum sem fram koma í málefna- samningi ríkisstjórnarinnar, að ljúka Þjóðarbókhlöðunni á fjórum árum.“ A síðasta vetri voru sett um það lög að hinn sérstaki eigna- skattur skyldi innheimtur fram til aldamóta, honum ætti ekki aðeins að veija til að ljúka Þjóðarbókhlöðunni heldur og til endurbóta á „menningar- byggingum“ eins og það er orðað. Er ráðgert að þessi skattur gefi af sér 27 0 milljón- ir króna á næsta ári en hins vegar eiga aðeins 60 milljónir að renna til Þjóðarbókhlöðu. Þeir sem ákváðu á Alþingi á sínum tíma, að ráðist skyldi í smíði Þjóðarbókhlöðunnar, sáu það áreiðanlega ekki fyrir, að í framkvæmd og við ijáröfl- un yrði staðið jafn illa að mál- inu og raun ber vitni. Er nú svo komið að nafn Þjóðarbók- hlöðunnar, þessa bráðnauð- synlega húss, tengist dæmi- gerðum vanefndum stjórn- málamanna, þar sem meðal annars er innheimtur sérstak- ur skattur sem síðan er notað- ur til annars en sagt er við álagningu. Ekki nóg með það. Fram- ganga Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra í málinu hefur nú leitt til óvenjulegra deilna milli ríkis- stjórnar og Háskólans og orðið Sigmundi Guðbjarnasyni há- skólarektor tilefni til að hafa uppi harða gagnrýni á ríkis- valdið. Stefna fjármálaráð- herra er sú að taka eigi 60 milljónir króna af fram- kvæmdafé Háskólans og verja þeim til Þjóðarbókhlöðu á móti framlagi úr ríkissjóði á næsta ári. Háskólarektor telur, að með ráðstöfunum sínum sé fjármálaráðherra að lama upp- byggingu bæði Háskólans og Þjóðarbókhlöðunnar. Fram- kvæmdafé Háskólans sé nú aðeins hagnaður af rekstri happdrættis Háskólans. Há- skólarektor komst meðal ann- ars þannig að orði í ræðu sinni: „Því væri það reiðarslag ef svipta á Háskóla íslands ráð- stöfunarrétti á eigin tekjum, svipta hann þessu fjárhagslega sjálfræði. Háskóli Islands bíður, eins og raunar öll þjóð- in, eftir því að byggingu Þjóð- arbókhlöðu ljúki. Bókhlaðan á að vera gjöf þjóðarinnar til sjálfrar sín í tilefni ellefu alda búsetu í landinu og fjármagn- ast með sérstökum eigna- skatti. Skattur þessi hefur ver- ið lagður á landsmenn en að- eins hluta hans hefur verið skilað í byggingasjóð Þjóðar- bókhlöðunnar. Þessi atlaga að tekjustofni Þjóðarbókhlöðu og tekjustofni Háskóla íslands er í senn lögbrot og lítilsvirðing við landsmenn. Með slíku ger- ræði er bygging bókhlöðunnar tafin fram yfir aldamót og frekari þróun og uppbygging Háskólans stöðvuð. Við það verður ekki unað án and- spyrnu.“ Og háskólarektor sagði einnig: „Ríkisstjórnir koma og ríkisstjórnir fara en sumar þeirra lifa í minningu þjóðar- innar fyrir sérstök heilla- og framfaraspor. Við verðum að treysta því að Alþingi láti ekki fótum troða Háskóla íslands og Þjóðarbókhlöðuna og lítils- virða þjóðina með þessum hætti. Þurfum við stuðning ykkar, kæru kandidatar, og annarra landsmanna sem gera sér grein fyrir mikilvægi öflugs Háskóla í þjóðfélags- þróuninni, hvort sem þeir starfa að menntamálum, heil- brigðismálum eða atvinnumál- un.“ Það er sem betur fer ekki oft, sem rektor Háskóla ís- lands sér ástæðu til að kveða jafn fast að orði vegna yfir- gangs þeirra sem með fram- kvæmdavaldið fara. Þeim mun frekar er ástæða til að bregð- ast við því þegar kallið kemur. HÉR fer á eftir stefhuræða Steingríms Hermaijnssonar for- sætisráðherra sem hann flutti í Sameinuðu þingi í gærvköldi. Forseti, góðir íslendingar. Þegar ríkisstjórn Framsóknar- flokks, Alþýðuflokks, Alþýðubanda- lags og Samtaka jafnréttis og fé- lagshyggju tók við 28. september 1988 var spáð miklum erfiðleikum í íslensku efnahags- og atvinnulífi. Þá hafði á vegum fyrri ríkis- stjómar. starfað efnahagsnefnd skipuð fyrst og fremst fulltrúum atvinnuveganna. Hún kvað útflutn- ings- og samkeppnisgreinarnar að þrotum komnar og lagði til róttækar efnahagsaðgerðir, sem fólust í nið- urfærslu verðlags og launa. Samtök fiskvinnslunnar lýstu því yfir að fyrirtækin væru að stöðvast og fullyrtu að 15 af hundraði geng- isfelling a.m.k., og án tafar, væri nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir slíkt. Verslunarráðið spáði a.m.k. 5.000 manns atvinnulausum upp úr ára- mótum og Félag íslenskra iðnrek- enda taldi að atvinnuleysi yrði enn meira. AÍlir þekkja stöðugar hrakspár stjómarandstöðunnar og háværar kröfur um miklar gengisfellingar. Ríkisstjórnin hafnaði nýrri óða- verðbólgu og nýrri kollsteypu. Ríkisstjórnin ákvað að freista þess að vinna þjóðarbúið í áföngum en markvisst út úr erfiðleikunum með fjölþættum aðgerðum á ýmsum sviðum útflutnings- og samkeppnis- atvinnuveganna. Með stofnun Atvinnutryggingar- sjóðs útflutningsgreina var ráðist í þá víðtækustu skuldbreytingu sem gerð hefur verið. 5,3 milljarða skuldbreyting Hefur nú 5,3 milljörðum króna verið skuldbreytt eða lánað til hag- ræðingar. Þannig hafa lán verið lengd, vanskilum komið í skil og vextir lækkaðir verulega. Hlutaijársjóði Byggðastofnunar hefur tekist að tryggja að u.þ.b. sex hundruð milljónum króna verður breytt úr skuldum í hlutafé hjá þeim útflutningsfyrirtækjum sem verst vora stödd. Rétt er að taka fram að Byggða- stofnun, ríkissjóður, og af bönkum ekki sízt Landsbanki Islands, hafa tekið mikinn þátt i þessari fjár- hagslegu endurskipulagningu. Ur Verðjöfnunarsjóði fiskiðnað- arins hefur verið greidd sérstök aðstoð til frystingar og er gert ráð fyrir að svö verði út þetta ár. Auk slíkra aðgerða hefur ríkis- stjómin markvisst leiðrétt raun- gengi hinnar íslensku krónu sem var orðið of hátt. A mælikvarða verðlags hækkaði raungengi um 5,2 af hundraði árið 1988 »en mun á þessu ári lækka um a.m.k. 5,9 af hundraði og er þá orðið heldur lægra en á árinu 1987. Á mælikvarða launa mun raungengið lækka um 13,4 af hundraði og er það rúmum 5 af hundraði lægra en árið 1987. Mjög mikill fjármagnskostnaður hefur síðustu árin verið eitt erfíð- asta vandamál íslenskra atvinnu- vega. Á árinu 1988 voru meðalvext- ir útlána í bönkum og sparisjóðum 10,3 af hundraði umfram verðtrygg- ingu, og höfðu því meira en tvöfald- ast frá 1986. Heildarútlán voru í árslok 1988 um 360 rnilljarðar króna. Innlendur hluti þessara útlána nam um 220 milljörðum króna. Að teknu tilliti til lægri vaxta á einstökum lána- útflutnings- og samkeppnisgrein- arnar ekki verðtrygginguna bætta nema að hluta og báru því í raun enn hærri vexti af innlendum lánum. flokkum, t.d. húsnæðislánum, var arðtaka þessara útlána u.þ.b. 20 milljarðar króna umfram verðtiygg- ingu. Þess ber þó að gæta, að á fastengistímanum 1987—’88 fengu Ríkisstjórnin taldi afar nauðsyn- legt að lækka þessa háu raunvexti. í því skyni vora vextir af spariskír- teinum ríkissjóðs lækkaðir í 6 af hundraði og Seðlabankanum var falið að koma raunvöxtum í bönkum og sparisjóðum í 7 af hundraði. Þetta hefur ekki að öllu leytí tekist enn. Raunvextir hafa þó lækkað að mati Seðlabanka íslands úr 10 af hundraði í u.þ.b. 8 af hundraði, sem þýðir að sjálfsögðu umtalsverða lækkun fjármagnskostnaðar. í byij- un ársins var grannur lánskjaravísi- tölunnar jafnframt lagfærður til nánari samræmis við breytingar á verðlagi og launum. Hefur það leitt til lækkunar. á ijármagnskostnaði sem á heilu ári svarar til allt að 4 af hundraði raunvaxtalækkunar við núverandi aðstæður. Raunvextir óverðtryggðra lána hafa hins vegar sveiflast mjög og á undanförnum mánuðum iðulega verið óhóflega háir. Þrátt fyrir veralegan samdrátt í landsframleiðslu hafa ofangreindar aðgerðir borið mikinn og jákvæðan árangur. Engar þær hrakspár sem ég rakti í upphafi míns máls hafa ræst. Þótt atvinnuleysi hafi aukist nokkuð hefur það ekki orðið nema brot af því sem spáð var. Mjög fá fiskvinnslufyrirtæki hafa stöðvast, enda hefur afkoman batn- að verulega fyrir aðgerðir stjórn- valda. Vöraskipti era talin munu verða jákvæð á þessu ári um nálægt 5 milljarða króna eftir tvö hallaár og þrátt fyrir mikla hækkun á vaxta- greiðslum samfara hækkun erlendra skulda, sem er m.a. afleiðing af lækkun á gengi krónunnar, hefur dregið veralega úr viðskiptahalla.. Hann var 3,7 af hundraði lands- framleiðslu á síðastliðnu ári, en er nú talinn verða 2,9 af hundraði. Á þessu ári vega þó flugvélakaup Flugleiða þungt. Þetta er mikils- verður árangur ekki sízt í ljósi þess að hann næst á samdráttartímum í þjóðarbúskapnum. Þrátt fyrir mikla lækkun gengis hefur tekist að halda verðhækkun- um í skefjum. Mun verðbólga á þessu ári verða nánast sú sama og á sl. ári. Er það ólíkt fyrri samdrátt- arskeiðum, því oftast hefur sigið á ógæfuhliðina að því er varðar verð- bólgu og viðskiptahalla við slíkar aðstæður. Þessi árangur í átt til jafnvægis við hin erfiðu ytri skilyrði skapar forsendur fyrir veralegum árangri í baráttunni við verðbólguna á næsta ári. Ur tekjuhalla ríkissjóðs hefur dregið. Hann mun á þessu ári verða um 1,8 af hundraði vergrar lands- framleiðslu í stað 2,8 af hundraði á síðastliðnu ári. Jafnvægi á milli inn- og útlána í peningakerfinu hefur batnað. Innlán hafa aukist umfram hækkun láns- kjaravísitölu en raunhækkun útlána hins vegar orðið engin þrátt fyrir nokkra lækkun vaxta. Þrátt fyrir erfiða varnarbaráttu hefur tekjst ekki aðeins að veija velferðarkerfið, heldur bæta og auka á ýmsum sviðum, sem dæmi vil ég nefna hlutfallslega bætta að- stöðu aldraðra og þroskaheftra og að raunvirði aukin framlög til menn- ingarmála. Á þessu ári er talið að lands- framleiðslan verði um 3 af hundraði minni en á sl ári. Lækkun þjóðar- tekna og erfiðri stöðu atvinnuveg- anna fylgir að kaupmáttur atvinnu- tekna mun lækka á árinu um sjö til átta af hundraði. í þessu sam- bandi er nauðsynlegt að, vekja at- hygli á því að á árinu 1988 var hlut- ur launa orðinn u.þ.b. 72 af hundr- aði af þáttatekjum þjóðartekna, og hafði hækkað úr 65 af hundraði árið 1986 sem er talið hóflegt. í ár er talið að hlutur launa lækki í u.þ.b. 70 af hundraði. Verðmæti fiskaflans á föstu verð- lagi mun hækka á þessu ári um 3/2 af hundraði. Þetta veldur að sjálf- sögðu erfiðleikum í sjávarútvegi, sem hefur verið mætt með ýmsum aðgerðum sem áður era raktar. I verslun og þjónustu gætir sam- dráttarins mjög, og fjármagns- kostnaður er afar mikill, m.a. vegna mikilla fjárfestinga á undanförnum áram. Erfiðleikar í loðdýrarækt og fiskeldi era og mikið áfall fyrir þjóð- arbúið. Erfiðleikar framundan Þótt tekist hafi að afstýra því hrani sem spáð var, eru erfiðleikarn- ir ekki um garð gengnir. Hafrannsóknastofnun leggur enn áherslu á, að dregið verði úr þorsk- veiðum. I þjóðhagsáætlun er á því byggt að samdráttur í aflaverðmæti á næsta ári verði um 6 til 7 af húndr- aði og um 1,5 af hundraði í lands- framleiðslu. Þetta verður þá orðið lengsta samdráttarskeið allt frá ár- unum 1949—1952. Aðgæsla og aðhald ásamt ýmsum aðgerðum sem treysta stöðu at- vinnuveganna og atvinnulífsins al- mennt eru enn nauðsynlegar. Samstarfsflokkar að fyrri ríkis- stjórn töldu því rétt að leita leiða til að styrkja ríkisstjórnina. Ákveðið var að ræða við Borgarafiokkinn um stjórnarþátttöku. Þær viðræður stóðu í sumar með nokkrum hléum og leiddu að lokum til þess að mynd- uð var 10. september sl. ríkisstjórn Framsóknarflokks, Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Borgaraflokks með stuðningi Samtaka jafnréttis og félagshyggju. Hin nýja ríkisstjórn byggir í grundvallaratriðum á málefnasátt- mála fyrri ríkisstjórnar, en með sérstakri áherslu á að snúa sam- drætti í vöxt, lækka framfærslu- kostnað, draga úr fjármagnskostn- aði og bæta umhverfið. Ríkisstjórnin mun Ieggja áherslu á batnandi afkomu atvinnuveganna og stuðla þannig að því, að atvinnu- ástand í landinu verði viðunandi. Gengi íslensku krónunnar mun því verða skráð með tilliti til rekstraraf- komu útflutnings- og samkeppnis- greina og með hliðsjón af viðskipta- jöfnuði við útlönd. Ef sú fiskverðs- hækkun sem varð 1. október sl., og þær launahækkanir sem framundan era og lok greiðslna úr Verðjöfnun- arsjóði fást ekki bættar með hækk- un á verði sjávarafurða erlendis, er liklegt að enn þurfi að lækka nokk- uð raungengi íslensku krónunnar. Um leið er þó óhjákvæmilegt að gera kröfu til atvinnulífsins sjálfs um endurskipulagningu og aukna hagkvæmni. I því felst að atvinnuve- girnir verða að búa sig undir að geta starfað með arðbærum hætti við þau almennu skilyrði sem nú eru í sjónmáli. Skuldbreytingu í gegnum At- vinnutryggingarsjóð útflutnings- greina og eiginfjáraukningu fyrir tilstuðlan Hlutafjársjóðs Byggða- 29 Morgunblaðið/Syerrir Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra. stofnunar mun verða lokið um næstu áramót, enda er þeim til- gangi náð sem til var stofnað. Hins vegar mun ríkisstjórnin beita sér fyrir öðrum almennum aðgerðum til þess að bæta afkomu atvinnuveg- anna. Aðgerðir í sjávarútvegi og landbúnaði Á sviði ^jávarútvegs má nefna: Fljótlega mun verða lagt fram framvarp til laga um úreldingarsjóð fiskiskipa. Með því er ætlað að fækka fiskiskipum en auka afla- heimildir og bæta rekstrargrandvöll þeirra skipa sem eftir verða í flotan- um. Á þessu þingi mun einnig.verða lagt fram framvarp sem ætlað er að draga úr útflutningi á óunnum fiski. Með því er að því stefnt að bæta afkomu fiskvinnslunnar og auka atvinnu innanlands. Lagt verður fram frumvarp til laga um sérstaka þróunardeild við Fiskveiðasjóð, sem veiti styrki og lán til ýmissa nýjunga og markaðs- setningar sjávarafurða. Af hálfu Ríkismats sjávarafurða er gert ráð fyrir að hrinda á fram- kvæmd sérstöku gæðaátaki í sjávar- útvegi. Þá er gert ráð fyrir að setja uppboðsmörkuðum varanlegan lagagrandvöll. Að endurskoðun fiskveiðistefn- unnar er ötullega unnið. Að því mikilvæga verki koma bæði fulltrú- ar hagsmunaaðila og stjórnmála- flokkanna. Áhersla er lögð á að tryggja öllum byggðum landsins aðgang að auðlindum hafsins en jafnframt nauðsynlega stjórnun og vernd fiskistófnanna. Auðlinda- skattur er ekki á stefnu þessarar ríkisstjórnar. Á grundvelli búvöralaga frá 1985 og búvörasamnings, hefur þegar náðst jafnvægi í framleiðslu mjólk- urafurða. Svo er hins vegar ekki í kjötframleiðslu. Því eru hafnar við- ræður við fulltrúa bænda um breyt- ingar á búvörasamningi, sem tryggi betur en verið hefur að þolanlegu jafnvægi verði náð einnig í kjöt- framleiðslunni, þegar búvörasamn- ingurinn fellur úr gildi árið 1992. Er hér um mikið hagsmunamál að ræða, bæði fyrir bændur og þjóðar- búið almennt. Samkeppnisiðnaðurinn hefur not- ið góðs af lækkun raungengis. Því verður þó ekki neitað að samkeppni við háþróaða erlenda fjöldafram- leiðslu hefur á mörgum sviðum reynst erfíð. Á þessum opna alþjóðlega mark- aði, sem íslenskur iðnaður starfar nú, er afar nauðsynlegt að fylgjast með því að ekki sér erlendis beitt beinum eða óbeinum stuðningsað- gerðum, sem hlýtur þá að kreíjast mótaðgerða okkar íslendinga. Sömuleiðis er nauðsynlegt að standa á verði gegn undirboðum og hvers konar öðram óeðlilegum viðskipta- háttum. MORGUNBLADIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1989 Ullariðnaðurinn hefur verið end- urskipulagður með veralegum opin- beram stuðningi, og er þess vænst að hann reynist nú samkeppnisfær á erlendum mörkuðum. Á vegum iðnaðarráðuneytis og Iðntæknistofnunar er unnið að vöru- þróunai'verkefnum, ekki síst á svið- um þar sem Island hefur sérstöðu, t.d. í tengslum við sjávarátveg. Gert er ráð fyrir að fljótlega ljúki viðræðum við erlenda aðila um stækkun álversins í Straumsvík. Ef viðunandi samningar nást, m.a. um orkuverð, getur sú framkvæmd og þær virkjanir, sem munu fylgja, skipt miklu í því erfiða atvinnu- ástandi, sem gera má ráð fyrir, ekki síst suðvestanlands. Áætla má að bygging álvers með 120 þús. tonna framleiðslugetu á ári yki hag- vöxtinn um 1 af hundraði að jafn- aði á tímabilinu 1990-94 og atvinnu um 0,5 af hundraði. í því ástandi þjóðarbúsins sem nú er, er nauðsyn- legt að skoða þennan kost vandlega. Á sviði verslunar og þjónustu má gera ráð fyrir umtalsverðum erfið- leikum á árinu 1990. Sá samdráttur sem orðið hefur í sjávarátvegi, minnkandi kaupmáttur og óarðbær íjárfesting á undanförnum þensluá- rum, fellur nú með fullum þunga á þessar greinar. Við því er lítið unnt að gera af opinberri hálfu. Hins vegar er jákvæð sú viðleitni ijöl- margra atvinnurekenda á þessum sviðum, að ná aukinni hagkvæmni með samrana fyrirtækja og hagræð- ingu. Það er skoðun margra, sem þessi mál þekkja, að uppúr þessum erfiðleikum muni rísa heilbrigðari og sterkari verslunar- og þjónustu- starfsemi. Vegna þess mikla samdráttar sem orðinn verður eftir þijú slík ár í röð, er líklegt að atvinnuástand muni versna á næsta ári. Telur Þjóð- hagsstofnun að atvinnuleysi geti aukist úr u.þ.b. 1,6 af hundraði á þessu ári í 2,3 af hundraði að meðal- tali á næsta ári. Ef svo reynist mun ríkisstjórnin í samráði við aðila vinnumarkaðarins skoða allar skyn- samlegar og viðráðanlegar leiðir, til þess að draga úr atvinnuleysi. í því skyni er þegar starfandi samstarfs- nefnd þessara aðila og stjórnvalda. Miðað við minnkandi þjóðartekjur verður ekki hjá því komist að kaup- máttur launa falli enn. Auk þess, eins og fyrr segir, era heildarlauna- greiðslur í þjóðfélaginu hærra hlut- fall þjóðartekna en atvinnulífið fær borið. Ríkisstjórnin mun með lækk- un framfærslukostnaðar leitast við að mæta erfiðleikum þeim sem þetta skapar heimilum í landinu. Því hefur verið ákveðið að virðis- aukaskattur sá, er kemur til fram- kvæmda um næstkomandi áramót, verði 13 af hundraði á nauðsynle- gustu innlendum matvælum, mjólk, kjöti, grænmeti og fiski, eða hálfu lægri en á öðru sem skattskylt verð- ur. Jafnframt er í athugun hvort koma megi við samsvarandi raun- lækkun skattsins á gróf brauð. Einnig mun ríkisstjómin athuga hvort unnt er að greiða húsaleigu- bætur til þeirra sem lægri hafa laun- in og búa í leiguhúsnæði. Þótt Ijármagnskostnaður hafi lækkað nokkuð á þessu ári er hann enn afar erfiður fyrir atvinnulífið og ýmsa einstaklinga. Þegar því er haldið fram, að raunvextir hér á landi séu svipaðir og erlendis er nauðsynlegt að hafa í huga að at- vinnuvegirnir hér era almennt langtum skuldsetnari en annars staðar tíðkast. Fjármagnskostnað- urinn verður þá að sjálfsögðu því meiri. Samkvæmt upplýsingumm frá Seðlabanka íslands, er vaxtamunur hér 7—8 af hundraði sem mun vera tvöfalt eða þrefalt meiri vaxtamun- ur en tíðkast erlendis. Innlánsvextir era sömuleiðis að meðaltali hærri en almennt þekkist. Af þessum ástæðum hefur reynst erfitt að þrýsta útlánsvöxtum niður. Til þess að gera viðskiptabönkum kleift að lækka vexti umtalsvert er nauðsynlegt að leggja áherslu á hagræðingu í bankakerfinu. Að því er stefnt með sameiningu banka og ítarlegri athugun einstakra banka á eigin rekstri. Þá kröfu verður jafnframt að gera til Seðlabanka íslands að hann gegni því forystuhlutverki sem hon- um er ætlað á peningamarkaðnum og stuðli að hagkvæmari rekstri og lækkun raunvaxta. Eins og fyrr segir reið ríkissjóður á vaðið sl. vor og lækkaði vexti á spariskírteinum í 6 af hundraði. Frekari lækkun vaxta á vegum ríkissjóðs er í athugun, enda lækki almennir vextir bankakerfisins í kjöifarið. Afiiám verðtryggingar Á næstu áram mun hið íslenska peningakei’fi í vaxandi mæli tengj- ast peningakerfi Evrópulandanna. Til þess að það geti gerst er nauð- synlegt að það þróist til samræmis við það sem þar tíðkast. Vaxtamun- ur og hagkvæmni verður t.d. að vera sambærilegt. Island er eina landið sem býr við verðtryggingu íjármagns. Ríkis- stjórnin hefur ákveðið að afnema þá verðtryggingu og sjálfvirkar við- miðanir hvers konar. Verður það gert þegar verðbólga á 6 mánaða mælikvarða er orðin um eða undir 10 af hundraði. Er þess vænst að svo geti orðið á seinni hluta ársins 1990. Þegar til lengri tíma er litið mun hreint og ómengað umhverfi reyn- ast einhver mesti fjársjóður þessarar þjóðar. Á það vill ríkisstjórnin leggja áherslu með því að leggja fram á Alþingi á ný frumvarp til laga um sérstakt ráðuneyti umhverfismála. Er gert ráð fyrir að slíku umhverfis- ráðuneyti verði komið á fót strax í upphafi næsta árs. Jafnframt er í athugun á hvern máta megi hagræða í stjómarráðinu sjálfu. I því skyni eru stjómarflokk- arnir sammála um að flytja verkefni á milli ráðuneyta og fella saman þannig að hámarkshagræðingar sé gætt. Gert er ráð fyrir að þetta geti leitt til fækkunar ráðuneyta úr 13 í 11. Við undirbúning fjárlagafrum- varps fyrir árið 1990 hefur verið gerð ítarleg úttekt á ríkisrekstrin- um. Komið hefur m.a. í ljós, að á undanfömum árum hafa útgjöld vaxið langtum hraðar en tekjur og má segja að innbyggður halli sé orðinn á ríkissjóði. Ríkisstjórnin tel- ur að jöfnuði í ríkisrekstrinum verði ekki náð nema á 2 til 3 áram. Það Ijárlagafrumvarp, sem nú er lagt fram, gerir því ráð fyrir u.þ.b. þriggja milljarða króna halla. Það telur ríkisstjórnin veijanlegt á því samdráttarskeiði sem nú er. Við gerð fjárlaga frumvarpsins hafa verið gerðar ýmsar róttækar breytingar og lagfæringar, bæði á tekju- og útgjaldahlið. Hlutfalli skatta af þjóðartekjum verður haldið óbreyttu um 26,5 til 27 af hundraði landsframleiðslu. Að sjálfsögðu þýðir þetta minni tekj- ur fyrir ríkissjóð vegna lækkunar á landsframleiðslu. Hins vegar er gert ráð fyrir ýmsum lagfæringum og tilfærslum í skattakerfinu, sem m.a. munu stuðla að lækkun á verði matvæla og um leið á framfærslu- kostnaði heimilanna. Tekjuskatts- kerfið allt mun verða tekið til athug- unar með meiri jöfnuð að mark- miði, þótt vafasamt sé, að það geti komið til framkvæmda á næsta ári. Á útgjaldahlið er gert ráð fyrir verulegum sparnaði á ýmsum svið- um hins opinbera reksturs. Ekki mun með því verða dregið úr vel- ferðarkerfi því sem okkur íslending- um hefur tekist að byggja upp. Heldur er um að ræða margvíslega hagræðingu og spamað. Endurbætur í félagsmálum, heil- brigðis- og tryggingamálum og menntamálurn era í stöðugri athug- un. Markmiðið er að bæta og auka hagkvæmni og skilvirkni, um leið og dregið er úr kostnaði. Á þessu haustþingi mun verða lagt fram frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1989 og er þar um góða nýbreytni að ræða. Jafnframt er gert ráð fyrir að leggja fram áætlun um þróun ríkisfjármála næstu 3 árin. Með því er ætlunin að skapa meiri framsýni og festu í þjóðarbú- skapnum, sem er að sjálfsögðu einn- ig afar mikilvægt. Við íslendingar nálgumst nú botninn á þessu samdráttarskeiði. Þá mun vörn verða snúið í sókn. Þá mun vöxtur þjóðarbúsins heíj'ast á ný. Ekki er síður mikilvægt að vel sé að því staðið en að vörninni á samdráttartíma. Satt að segjæ hefur okkur oft gengið erfiðlega að stjóma okkar málum á vaxtartím- um. Þótt athuganir Hafrannsóknar- stofnunar bendi ekki til þess að framundan séu sterkir árgangar .nytjafisks, má ætla að þessu sam- dráttarskeiði í sjávarátvegi ljúki á næsta ári og.þá geti hafist hægfara aukning afla. Samkvæmt þeim spám er árleg aflaaukning þó lítil og því sá hagvöxtur sem af henni leiðir töluvert minni en spáð er í öðram löndum Vestur-Evrópu. Af þessum ástæðum er afar nauð- synlegt að leitað verði einnig ann- arra leiða til að auka hagvöxtinn. Það verkefni hefur ríkisstjórnin þeg- ar hafið. - Tækifæri framundan í landinu býr mikil þekking, t.d. á sviði sjávarátvegs og alls þess sem sjávarátveginum tengist, svo sem skipasmíða, gerð veiðarfæra og vél- búnaðar hverskonar. íslensk fyrir- tæki hafa þróað hátæknibúnað sem gjörbreytt hefur vinnslu sjávaraf- urða. Með samstilltu átaki og réttri markaðssetningu getur þetta orðið grundvöllur mikils útflutnings. Fiskeldið, sem við hafa verið bundnar miklar vonir, hefur átt í óvæntum erfiðleikum. Þeir stafa að hluta af lækkun verðs erlendis en einnig, og ekki síður, af gífurlegum íjármagnskostnaði. Enginn dregur þó í efa að við þá ágætu aðstöðu, sem hér er með heitu vatni og hreinu, verði fiskeldið fyrr eða síðar mjög mikilvæg atvinnugrein, Ríkis- stjómin hefur gert fjölmargt til þess að stuðla að vexti og viðgangi fisk- eldis og mun halda því áfram. Orka sú, sem í fallvötnunum býr, mun með hveiju ári verða okkur íslendingum dýrmætari, því orku- verð mun fara mjög hækkandi er- lendis. Hún getur því í vaxandi mæli orðið grandvöllur að mikil- vægri framleiðslu. Könnunum á þvi sviði mun verða haldið áfram. Ég hef áður sagt að hreint um- hverfi geti orðið mesti fjársjóður þessarar þjóðar. Á því sviði er að vísu_ýmsu ábótavant, en úr því má bæta. Hreint umhverfi, hreint loft og vatn og góð ómenguð fæða, mun draga að vaxandi fjölda ferða- manna. Þeim fer ört fjölgandi, ekki síst ibúum stórborganna, sem leita hollustu, bæði andlegrar og líkam- legrar. Það getum við boðið. Slíkum ferðamönnum fer fjölgandi sem koma hingað til lands. Athyglisverð er mikil fjölgun þeirra sem árlega gista íslensk bændaheimili. Sú ferðaþjónusta hefur vaxið hröðum skrefum. Sama er að segja um þann fjölda ferðamanna, sem árlega sæk- ir í hestaferðir um hálendi landsins og býður byrginn veðri og vindum, svo eitthvað sé nefnt. Erlendir sérfræðingar halda því fram að auðvelt sé að margfalda þann ljölda ferðamanna, sem hingað sækir ár hvert eftir kyrrð, útivist og heilsubót. í því sambandi er tvennt mikil- vægast. í fyrsta lagi er nauðsynlegt að þróa slíka þjónustu skipulega og markvisst og án óðagots og offjár- festingar. í öðru lagi er nauðsynlegt að kynna þá ímynd landsins að það sé hreint og ómengað og þjóðin heil- brigð. Reyndar mun, ef tekst að festa slíka ímynd í huga erlendra manna, það reynast hvað mikilvægast í sölu afurða okkar á erlendum mörkuð- um. í vaxandi mæli er áhersla lögð á gæði og ómenguð matvæli. Fyrst og fremst eigum við íslend- ingar þó að læra að meta þennan íjársjóð sem við eigum að nýta sjálf til betra lífs. Fleira er auður en það sem í krónum er talið. Enginn þarf að efast um að framtíðarkostir þessarar þjóðar era stórkostlegir. Hitt er staðreynd, eins og fyrr segir, að okkur íslendingum hefur sjaldan eða aldrei tekist að ráða okkar eigin málum á upp- gangstímum svo vel fari. Því eru nokkur undirstöðuatriði nauðsynleg þegar vörn er lokið og sókn til bættra lífskjara hefst á ný. í fyrsta lagi er nauðsynlegl að atvinnuvegirnir hafi viðunandi hagnað. Þá geta þeir lækkað sínar skuldir og tryggt atvinnu, en jafn- framt fjárfest í hófi og treyst þann- ig bæði hagvöxtinn og atvinnuör- yggið- I öðru lagi má verðbólga alls ekki vaxa á ný. Við íslendingar verðum í vonlausri stöðu í hinu opna sam- starfi þjóðanna, jafnvel þótt verð- bólga hér væri aðeins lítillega meiri en hjá samstarfsþjóðum okkar. Ég leyfi mér að taka svo djúpt í árinni að allt mun reynast unnið fyrir gýg ef ekki tekst að hemja verðbólguna. í þriðja lagi vil ég leggja áherslu á að fjármagnskostnaður verður að lækka. Því verða bæði vextir og skuldir fyrirtækjanna að lækka og erlendar skuldir þjóðarinnar. Þær munu aukast á þessu ári, ekki síst vegna mikillar lækkunar á gengi íslensku krónunnar, en þær munu lækka ört á næstu áram ef jafn- vægi skapast, verðbólga er lítil og við eyðum ekki umfram efni. Slík atriði sem ég hef nú rakið mun ríkisstjórnin hafa að leiðar- Ijósi. Hún mun í því sambandi treysta á samstarf við aðila vinnu- markaðarins, bæði launþega og vinnuveitendur. Sameinuð getur íslenska þjóðin gert hvað það sem nauðsynlegt er. Evrópusamstarf Oðum dregur að því að lönd Fríverslunarbandalagsins og lönd Evrópubandalagsins setjist niður og ákveði hvernig þeirra tengsl skuli verða. Enginn efast lengur um það að í Vestur-Evrópu er að myndast afar voldug ríkjasamsteypa. Engin þjóð á þessu svæði getur einangrað sig frá þeirri þróun. Það getum við Is- lendingar ekki, til þess eram við allt of háðir Vestur-Evrópulöndun- um, m.a. markaðslega. Þeir stjórnmálaflokkar sem að núverandi ríkisstjórn standa, telja fulla aðild að Evröpubandalaginu ekki koma til greina fyrir okkur íslendinga. Samkvæmt grundvallar- sáttmála bandalagsins fylgir fullri aðild afsal yfirráða yfir náttúraauð- lindum til lands og sjávar. Það þolir okkar sjálfstæði ekki. í raun er ég sannfærður um að full aðild muni reynast óþörf. Ég tel að við getum náð fram þeim kostum sem við kjós- um helst, án fullrar aðildar. Viðræð- ur við fjölmarga forystumenn Evr- ópubandalagsins gefa eindregið til kynna mikinn skilning á sérstöðu okkar. Sú sérstaða felst m.a. í fá- brotnum atvinnuvegum, fámenni þjóðarinnar og Ijarlægð landsins frá höfuðstöðvum hinnar nýju ríkjasam- steypu. I þessu sambandi er rétt að hafa í huga að eftir leiðtogafundinn í Osló hefur þeirri skoðun mjög vaxið fylgi að stefna beri að svonefndri tveggja stoða lausn, þar sem stoð- irnar tvær í Vestur-Evrópu verði EB-ríkin annarsvegar og EFTA- ríkin hinsvegar, sem bindist samn- ingum um náið samstarf á fjölmörg- um sviðum, en án samruna. Þá er mikilvægast fyrir okkur að fjáls verslun verði með fisk og yfirþjóð- legar stofnanir engar innan EFTA. Óþarft er að hræðast það sem framundan er. Við getum gengið hiklaust til viðræðna og samninga um frambúðartengsl Islands við Evrópubandalagið, með samræm- ingu á ýmsum sviðum og samstarf á öðrum sviðum að markmiði. Mikil- vægast er að við stöndum saman. Á það mun ríkisstjórnin leggja höf- uðáherslu, m.a. með því að stofna til ítarlegrar umræðu hér á Alþingi um þessi mál 23. nóvember næst- komandi. Góðir íslendingar. Hér á landi héTur ekki áður verið gerð tilraun til samstarfs fimm stjórnmálaflokka og samtaka um ríkisstjórn. Þeir flokkar, sem að ríkisstjórninni standa, hafa vissu- lega ólíkar skoðanir á mörgum mik- ilvægum málaflokkum. Þeir eru hins vegar allir félagshyggjuflokkár, þeir leggja áherslu á jafnræði með lands- mönnum og vilja standa vörð um velferðarkerfið. Þeir hafa sameinast um að vinna þjóðina út úr þeim erfiðleikum, sem samdrátturinn veldur, og eru ákveðnir í að ýta úr vör á nýja framfarabraut. Stjórnarandstaðan fínnur að vísu þessari ríkisstjórn allt til foráttu. Stjórnarflokkarnir láta sér það í léttu rámi liggja. Þeir leggja höfuðá- herslu á að ná samstöðu með þjóð- inni um þau erfiðu en mikilvægu verkefni sem framundan eru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.