Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.01.1990, Blaðsíða 16
Tf 16 oflfi/ HK:MbÁ, .rt; guoAauaivaiM í/iíiajhmiiouom MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1990 Heilsugæslustöðvar eru mjög góður kostur eftir Jóhann Ág. Sigurðsson Heilbrigðismál hafa verið í brennidepli undanfarna mánuði vegna nýrra laga um verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga og áætlana um að koma á tilvísana- skyldu eða leiðum til að stýra kostnaði við sérfræðiþjónustuna. í þessum umræðum hafa margir haft þörf fyrir að tjá sig í fjölmiðl- um um heimilislækningar, rekstur heilsugæslustöðva og þá þjónustu sem þar er veitt. Flestir þeirra hafa ekki unnið við þessi störf og hafa greinilega takmarkaða þekk- ingu á starfsemi eða rekstri heilsu- gæslustöðva. Ég hef starfað bæði sem heimilislæknir á „sjálfstæðri" læknastofu og heilsugæslulæknir á „opinberum" heilsugæslustöðv- um, hér á landi og erlendis, í þétt- býli og dreifbýli síðastliðin 10 ár. Ég þekki því mjög vel til þessara tveggja rekstrarforma og þjón- ustumöguleika þeirra. Samanburður á rekstrarformum Líkja má heilsugæslustöð við millistig á milli sjúkrahúss og læknastofu. Á heilsugæslustöðv- • um hvíla lagalegar skyldur um þjónustu frá kl. 8 að morgni til • kl. 17 og síðan tengist vaktþjón- usta um nætur og helgar stöðvun- um allt árið um kring. Augljóst er að það væri ekki neinum vand- kvæðum bundið að spara eða sýna fram á lægri rekstrarkostnað fyrir hver samskipti við sjúklinga ef gera mætti ýmsar sparnaðarráð- stafanir, sem best hentuðu í því skyni, svo sem: • Opna stöðina t.d. stundum kl. 10, eða loka kl. 15.00 eftir hentugleikum hveiju sinni, • loka stöðinni í veikindaforföll- um, • loka vegna sumarfría, • komast hjá því að sinna erfíð- um sjúklingum með ýmis fé- lagsleg vandamál og taka mik- inn tíma. Með því væri hægt að afgreiða aðra í staðinn með hraði og nýta þar með betur starfskraftinn, • leggja niður heilsuvemdina, t.d. ungbamaeftirlit, mæðra- vemd og skólaheilsugæslu. Þá væri hægt að segja upp hjúk- runarfræðingum, • skera niður kostnað af við- búnaði sem nýtist (sem betur fer) sjaldan, svo sem vegna bráðaþjónustu, hætta skýrslugerðum til opin- berra aðila, leggja niður heimahjúkrun o.s.frv. Það mætti nefna fjöldann allan af slíkum dæmum, en stofur i einkarekstri nýta sér óspart ofan- talda möguleika. Viðveraskylda og kvaðir til að sinna ákveðnum verkefnum fyrir viðkomandi bæj- arfélag eða bæjarhluta takmarkar veralega möguleika á hagkvæm- um rekstri heilsugæslustöðva sé miðað við höfðatölu sjúklinga. Engu að síður er þetta rekstrar- lega hagkvæm þjónusta, sem veit- ir þegnunum mikið öryggi og er nauðsynleg í nútíma þjóðfélagi. Við útreikninga á rekstrarkostnaði væri nær að miða kostnáðinn við fjölda íbúa á upptökusvæði stöðv- arinnar í stað fjölda sjúklinga. Einnig má nefna að stór hluti þjón- ustu heilsugæslustöðva er sjúkl- ingum að kostnaðarlausu, sem hefur áhrif á rekstrarkostnað þeirra. Við samanburð við önnur rekstrarform væri því eðlilegt að taka greiðslukostnað sjúklinganna með í dæmið. Af framansögðu er ljóst að það er útilokað að bera saman rekstr- arkostnað heilsugæslustöðvar við einkarekna læknastofu og miða við hver samskipti við sjúklinga. Það er eins og samanburður á rekstri vel búinnar sjúkrabifreiðar Jóhann Ág. Sigurðsson „ Af framansögðu er ljóst að það er útilokað að bera saman rekstr- arkostnað heilsugæsiu- stöðvar við einkarekna læknastofii og miða við hver samskipti við sjúklinga. Það er eins og samanburður á rekstri vel búinnar sjúkrabifreiðar og leigúbíls og miða þar við fjölda fluttra.“ og leigubíls og miða þar við íjölda fluttra. Á sama hátt hefur einnig reynst erfitt að bera saman rekstr- arkostnað sjúkrahúsa hér á höfuð- borgarsvæðinu vegna mismunandi þjónustu. Offjárfesting? I umræðunni í fjölmiðlum voru þau orð látin falla í hita leiksins að mikil ofíjárfesting væri í heilsu- gæslustöðvum og þær vantaði „kvóta". Ég fullyrði, þetta er al- rangt og enginn verkefnaskortur hijáir þessar stöðvar. Ég minni á að húsnæði allra heilsugæslu- stöðva á landinu (79 talsins), er samtals ekki stærra að flatarmáli en aðalbygging Borgarspítalans. Það hefur reyndar staðið heimilis- lækningum fyrir þrifum hversu seint hefur gengið að koma á fót heilsugæslustöðvum hér á Stór- Rey kj avíkurs væðinu. Ég ætla ekki að tjá mig um stofurekstur sérfræðinga, en hef einbeitt mér að h^ilsugæslunni. Ég er þeirrar skoðunar, að ákvörð- un Alþingis um uppbyggingu heil- sugæslustöðva um allt land var mjög gæfuríkt spor í sögu heil- brigðismála. Það hefur sýnt sig að heilsugæslustöðvar og þjónusta þeirra er mjög góður kostur fyrir landsmenn. Þessi uppbygging hér á landi hefur einnig vakið verð- skuldaða athygli erlendis og á síðustu áram hafa hundrað er- lendra leikra og lærðra komið hingað til lands til að kynna sér þessa merku þróun. HSfundur er héraðslæknir Reykjaneshéraðs og dósent í heimilislækningum við HÍ. Enn a að skatt- leggja heimilin eftir Halldór Blöndal Þriðjudaginn 23. janúar var til umræðu í efri deild framvarp ríkis- stjómarinnar um svokallaðan orku- skatt. Það felur í sér skattlagningu á orkufyrirtæki, rafmagnsveitur og hitaveitur, sem gæti numið hátt á 3. milljarð kr. vegna yfírstandandi árs. Samkvæmt útreikningum Landsvirkjunar er óhjákvæmilegt að hækka raforkuverð til almenn- ingsveitna um 45%, ef úr skatt- heimtunni verður. Samsvarandi hækkun yrði á heitu vatni, senni- lega mest hjá hitaveitum Reykjavík- ur, Húsavíkur, Dalvíkur, Olafsfjarð- ar og öðram þeim, sem eru grónar og búa við góðan efnahag. Þetta er innlegg ríkisstjórnarinnar til þeirra viðræðna um nýja kjara- samninga, sem nú fara fram. 1. mars á að hækka bifreiðagjöld mjög verulega. Síðan þessi ríkisstjórn settist að völdum hafa launatekjur heimilanna minnkað um 15-20%. Þessi nýi orkuskattur var ákveð- inn sama daginn og umræður um vantraust á ríkisstjórnina fóra fram í desember sl. Hann átti á að vera glæsilegur vottur þess, hversu sam- hent ríkisstjórnin væri, örugg í ákvörðunum og sanngjöm í skatt- heimtu. Þetta var á sama fundinum „Jón Signrðsson iðnað- arráðherra hefiir sam- þykkt orkuskattinn eins og hann liggur fyrir bæði í ríkisstjórn og þingflokki Alþýðu- flokksins. Ég þori að fullyrða, að hann átti drjúgan þátt í að leggja á ráðin um, hvernig honum yrði hagað.“ og ákveðið var, að virðisaukaskatt- ur skyldi lögfestur um áramót, þótt fyrir lægi að framkvæmdin færi öll í handaskolum. Enn liggur ekki fyrir, hvemig henni verður háttað í einstökum atriðum. Af þeim sök- um eru einstaklingar og atvínnufyr- irtæki að tapa veralegum fjár- hæðum. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur samþykkt orkuskattinn eins og hann liggur fyrir bæði í ríkis- stjórn og þingflokki Alþýðuflokks- ins. Ég þori að fullyrða, að hann átti dijúgan þátt í að leggja á ráð- in um, hvernig honum yrði hagað. Á hinn bóginn er það einkenni á starfsháttum ríkisstjómarinnar, að Útvarpsstjóri: Ríkissjónvarpið kostar 1.050 krónur á mánuði MORGUNBLAÐINU hefúr borist eftirfarandi athugasemd fra Markusi Erni Antonssyni, útvarpssjóra: „í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag var skýrt frá því að áskriftargjald Stöðvar 2 hefði hækk- að í kr. 2.110 á mánuði og muni það eftirleiðis hækka mánaðarlega í samræmi við framfærsluvísitölu. Hækkun á áskriftargjaldi Stöðvar 2 hefur verið 17,5% síðan í apríl 1989 en á sama tíma hefur afnotagjald Ríkisútvarpsins hækkað um 5%. í frétt blaðsins segir: „Áskrift að ríkissjónvarpinu kostar nú 1.575 krónur á mánuði.“ Þama gætir mis- skilnings, því afnotagjald Ríkisút- varpsins, kr. 1.575 á mánuði, er inn- heimt vegna reksturs hvors tveggja, Útvarps og Sjónvarps. Hlutur Sjón- varpsins í afnotagjaldinu er kr. 1.050 á mánuði. Réttur samanburður er því: Sjón- varpið kr. 1.050 á mánuði, Stöð 2 kr. 2.110. Halldór Blöndal ráðherrar skjóta sér undan ábyrgð, þegar þeir geta, ef þeir þykjast fínna, að brennur á þeim. Það er þess vegna sem iðnaðarráðberra þó hendur sínar í Morgunblaðinu 26. janúar sl. og segir, að ekki sé „einhlítt" að frumvarp íjármálaráð- herra sé „annmarkalaust“!!! Þegar frumvarpið var til umræðu á Alþingi óskaði ég eftir því, að iðnaðarráðherra væri við og svaraði fyrirspurnum þingmanna. Forseti deildarinnar og fjármálaráðhera tóku því þverlega, þvert ofan í venj- ur og góða þingsiði. Mér var að vísu boðið upp á Jón Baldvin í stað- inn fyrir Jón Sigurðsson, en hann lét ekki sjá sig. Þannig eru vinnu- brögðin. Þegar þessar línur era skrifaðar, liggur nærri að samningar hafi tek- ist á vinnumarkaði. Þeir taka mið af þeim staðreyndum, að atvinnu- leysi er orðið viðvarandi og kvíði fólks yfir atvinnumissi algengari en flesta grunar. Yfirborganir eru dvínandi og minni yfirvinna en áður. Kaupmáttur tímakaups hefur hrapað. Við þessar aðstæður kemur vitaskuld ekki til greina að hækka brýnustu útgjöld heimilanna eins og ljós og hita með nýrri skatt- heimtu. Það hefði engri ríkisstjórn í lýðfijálsu ríki dottið í hug nema þessari, sem við sitjum uppi með, Islendingar, og unum illa. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokks í Norðurlandskjördæmi eystra. Reynslan er nauð- synleg - reynsla og kunnátta skal metin! Hvers vegna við viljum Richard Björgvinsson í efsta sæti prófkjörslista Sjálfstæðisflokksins? eftirHálfdan Karlsson Richard Björgvinsson er lang- reyndasti bæjarstjórnarmaðurinn sem við Kópavogsbúar fáum notið í dag. Hann hefur starfað að bæjar- málum í nærfellt 25 ár og þar af sem bæjarfulltrúi frá 1974. Er ekki á neinn hallað þó þvl sé haldið fram að Richard hefur á þessum ferli sínum öðlast reynslu og kunnáttu í úrlausn bæjarmála, langt umfram okkur hin sem búum í Kópavogi. Richard hefur alla tíð unnið af mikilli kostgæfni og sýnt heiðar- leika og sanngirni í umræðum um bæjarmálin, verið leitandi og gagn- rýninn á það sem aflaga fer í stjórn bæjarfélagsins. Hann hefur með skrifum sínum og gagnrýni í bæjar- stjórn bent á að skuldastaða bæjar- félagsins er verri en unað verður við. Þessari öfugþróun í efnahags- málum bæjarins vill Richard, eins og þú og ég, snúa við hið fyrsta og hefur hann bent á margar leiðir að því marki. Engum verður að mínum mati betur treystandi en Richard Björgvinssyni til að ná tök- um á þessum vanda er við Kópa- vogsbúar glímum við í dag. Richard er maður sem kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Hann reynir ekki að villa um fyrir fólki með tilbúinni framkomu, en tekur í homin á hveiju máli eins og það lítur út frá hans bæjardyr- um. Hann afgreiðir mál, sem til hans berast, eins fljótt og vel og unnt er hveiju sinni. Fullyrða má að Richard sé eini atvinnumaðurinn í stjórnmálum Kópavogs í dag. Hann hefur fórnað miklum tíma til að vinna sem best sín verk I bæjarstjóm og í þeim nefndum og ráðum sem hann hefur verið valinn í. Slíka menn verðum við nauðsynlega að hafa í forystu í bæjarstjórn næststærsta bæjar okkar íslendinga. Við höfum hrein- Hálfdan Karlsson „Richard hefur alla tíð unnið af mikilli kost- gæfiii og sýnt heiðar- leika og sanngirni í umræðum um bæjar- málin, verið leitandi og gagnrýninn á það sem aflaga fer í stjórn bæj- arfélagsins. Hann hefur með skrifum sínum og gagnrýni í bæjarstjórn bent á að skuldastaða bæjarfélagsins er verri en unað verður við.“ lega ekki efni á öðra! Veljum Richard í fyrsta sæti prófkjörslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.