Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990 -■» 15 Ulrich Parzany, framkvæmdastjóri KFUM og K í Vestur-Þýska- landi. Hann er aðalræðumaður á samkomuviku sem haldin er í Bú- staðakirkju um þessar mundir, dagana 18.—24. febrúar. Þykir hann mjög góður ræðumaður. styðja samtökin starf KFUM og K í mörgum löndum, t.d. Kenýu og Perú. I fyrrnefnda landinu er hjálp- in fólgin í að veita ungu fólki kost á iðnnámi, þjálfun leiðtoga fyrir hin innlendu samtök og þátttaka í boð- un hins kristna boðskapar. í síðar- nefnda landinu hafa Þjóðverjar orð- ið við beiðni um hjálp við að gefa KFUM og K kristilegt innihald á ný, en samtökin voru orðin að eins konar tómstundafélagi. Það hefur verið gert með góðum árangri. Parzany leggur áherslu á að að- stoð við kristna menn í 3. heiminum eigi ekki að vera einhliða. „Við þurfum á hjálp þeirra að halda,“ segir hann. Framkvæmdastjóri KFUM í Kenýu tók t.d. þátt í út- breiðsluherferð fyrir unglinga í V-Þýskalandi með mjög góðum árangri. „Hann talaði öðru vísi en við og unglingar sem vildu ekki hlusta á okkur hlustuðu á hann.“ Er Parzany var spurður hvaða augum hann liti nánustu framtíð lagði hann áherslu á ábyrgð allra kristinna manna á að flytja samtíð sinni hinn kristna boðskap. „Við þurfum ekki á guðfræði að halda, sem gerir okkur löt.“ McDonald, kóki og kjarnorkuvopnum hefur verið dreift um gjörvalla jörðina í krafti fjármuna. Kristnir menn eiga að hrista af sér slyðruorðið og gera fagnaðarerindið um Jesúm Krist þekkt um allan heim. Nú, þegar miklar breytingar eiga sér stað í A-Evrópu og löndin þar opnast, hvílir mikil ábyrg á herðum kristinna manna að hjálpa öllum þeim milljónum.manna, sem hvorki hafa farið í kirkju né lesið í Biblí- unni. Hér þurfa allir kristnir menn í Evrópu að taka U1 hendinni. Það væri gleðilegt ef íslendingar gætu lagt hönd á plóginn í því starfi. Að lokum lýsti Parzany yfir ánægju sinni með að hafa fengið tækifæri til að koma til íslands. Kvaðst hann vera hugfanginn af fegurð landsins og vonaðist til að geta orðið einhveijum til uppörvun- ar með boðun sinni. Höfuntlur er kristniboði. DAGBÓK EYFIRÐINGAFÉL. í kvöld verður spiluð félagsvist á Hallveigarstöðum kl. 20.30. LANGAHLÍÐ 3. í kvöld er opið hús kl. 20. Unnur Guð- jónsdóttir balletdansari kynnir Indland: Sýnir dansa og segir frá landinu í máli og myndum. FÉL. eldri borgara. í dag er opið hús í Goðheimum kl. 14: Frjáls spilamennska og tafl. Félagsvist spiluð kl. 19.30 og dansað kl. 21. Göngu-Hrólfshópurinn hittist við Nóatún 17, laugardag kl. 11. Annað kvöld er þorrablót í Goðheimum kl. 19.30. Nk. sunnudag er aðalfundur fé- lagsins í Súlnasal Hótels Sögu kl. 13.30. SKIPIN REYK JAVÍKURHÖFN: Nótaskipið Fífill kom með loðnufarm og var væntanleg- ur aftur í gær með loðnufarm til frystingar. Þá kom Árfell að utan í fyrradag. Rann- sóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson fór út og Askja í strandferð. Þá fór Mánafoss í fyrrakvöld á ströndina og togarinn Viðey fór til veiða. í gær lagði Laxfoss af stað til útlanda og Arnarfell var væntanlegt af ströndinni. HAFNARFJARÐARHÖFN: í fyrradag héldu aftur til veiða togararnir Hjalteyrin og Sigluvík. Grænl. togarinn Regina C er farinn út aftur og súrálsskipið, sem kom fyr- ir síðustu helgi er farið. í gær kom togarinn Sjóli inn til löndunar. ATRIÐI TIL UMFJÖLLUNAR: ■ Hvernig verður þáttur til. ■ Hvernig er efni afl- að. ■ Hvernig er það skipulagt. ■ Viðtalstækni. ■ Upptaka á útvarpsefni. ■ Handritaskrif fyrir útvarp og sjónvarp. FJOLMIÐLASKÓLI ÍSLANDS BORGARTÚNI 24 105 REYKJAVlK SlMI 626655 FAX 624990 TÍMI: Laugard. 3. mars-17. mars. Samtals 32 tímar. Aðalleiðbeinandi: Stefán Jökulsson dagskrárgeröarmaður Upplýsingar og skráning í síma 626655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.