Morgunblaðið - 08.04.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1990
C 29
Laugardalnum.
að gestirnir geta virt refina fyrir
sér. Svo má nefna dúfnahús í
Bræðraparti og aðstöðu fyrir skóla-
börn í Hafrafelli og svona mætti
lengi telja,“ sagði Asa. Henni og
hinum starfsmönnunum var ekki til
setunnar boðið því enn var eftir að
girða húsdýragarðinn, helluleggja
og malbika stíga, gróðursetja og
ýmislegt fleira.
Góð lækn-
isþjónusta
Til Velvakanda.
Mikið hefur undanfarið verið
rætt og ritað um krabbamein,
bæði í sjónvarpi og blöðum, um það
hvernig best væri að styðja það
fólk sem ætti svo bágt að vera með
þennan hræðilega sjúkdóm, en
langaði til að vera inn á sínu heim-
ili og með sinni fjölskyldu sem
lengst, en gæti það ekki nema með
hjálp frá sérmenntuðu fólki. Hefur
mér fundist þetta helst tilheyra
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Ég man
að hafa hlustað á þátt þar sem
kona sagði frá hversu ómetanlegt
það væri að fá svona hjálp. Kom
mér þá í hug hvað við ættum gott
sem búum á norðanverðu Snæfells-
nesi og tilheyrum Ólafsvíkurlæknis-
héraði að eiga svona góðan lækni,
sem Sigurður Baldursson er. Hann
er minn læknir og hefur það komið
mér vel síðan minn ágæti Kristófer
Þorleifsson flutti burt. Spurði ég
Sigurð hvernig hann liti á þessi
mál, að leyfa fólki að vera sem
lengst heima ef það óskaði eftir því
sjálft og hvaða áhrif það hefði á
börnin ef þau væru á heimilinu.
Sagði hann mér þá frá ungri konu
sem lá heima síðustu vikurnar og
átti einkason, ungan. Konu þessa
annaðist Sigurður nótt og dag.
Fannst honum soriur hennar þrosk-
ast mikið við þessa bitru lífsreynslu.
Læknar eru tveir í Ólafsvíkur-
læknishéraði. Ég veit ekki hvort
þeir sinna svona málum sameigin-
lega, en hitt veit ég að þeir fylgja
báðir sínum sjúklingum úr hlaði ef
með þarf. Guð gefi að landsbyggðin
eigi sem víðast svona góðan heilsu-
gæslulækni sem Sigurður Baldurs-
son er.
Kona frá Snæfellsnesi
Varaflugvöllur
og mengunarmál
Tilmæli til
hestafólks
Til Velvakanda.
Nú er sá tími að koma að sól
hækkar á lofti og dag fer að
lengja og þá flykkist fólk út með
hesta sína og fer í reiðtúr. Þar er
fólk á öllum aldri.
Það sem mér fínnst verst að sjá
og er tilefni þessarar greinar eru
öll þessi börn og unglingar sem eru
í útreiðartúrum með galsa og gleði,
og eru hjálmlaus. Það er staðreynd
að hjálmurinn hefur oft komið í veg
fyrir alvarleg slys þegar fólk hefur
dottið af baki. Því ættum við öll
að taka höndum saman og reyna
að stuðla að því að sem flestir
bæði ungir og gamlir noti hjálma
við útreiðar. Við sem eldri erum
ættum því að sýna gott fordæmi
og nota hjálma, við getum ekki
ætlast til að ungmennin noti þá ef
við viljum það ekki.
Það getur ekki verið svo slæmt
eða púkó að nota hjálma þegar við
höfum öryggið í huga, að það sé
ekki framkvæmanlegt.
f.h. kvennadeildar Fáks,
Halldóra Guðmundsdóttir
Til Velvakanda.
Fimm milljónir rúmmetra af
menguðum jarðvegi, segir í
DV 29. mars sl., fyrirfinnist á
sorphaugum á Heiðarflalli á
Langanesi.
Þetta er hið versta mál segir
Júlíus Sólnes, umhverfisráðherra.
„Það er greinilega slæmt ástand
alls staðar á landinu í sorphirðu-
málum. Þetta er stórt mál sem
verður farið í hér af fullum krafti,“
sagði Júlíus Sólnes.
Fyrir mig sem trillukarl á þeim
miðum er liggja í Eiðisvík og við
Langanes, er þetta vissulega hið
versta mál.
Undirritaður fær ekki betur séð,
en að nú sé lag hjá umhverfisráð-
herra svo og samgönguráðherra.
Aldrei í sögunni hafa ráðherrar
á íslandi fengið betra vápn í hend-
ur en þetta mengunarmál. Þeir
eiga strax sem sannir víkingar að
snúa vápninu sér og þjóðinni í vil.
Þeir eiga nú þegar báðir með
utanríkisráðherra í broddi fylking-
ar að ganga til samninga við
Bandaríkin um hreinsun á svæð-
inu, sem með nútíma tækni og
þekkingu verður með skjótum
hætti leyst.
Jafnframt opnast skilningur á
gagnkvæmu samstarfi fyrr og nú,
á þann veg að hvergi á landinu
er heppilegra að staðsetja nauð-
synlegan alþjóðavaraflugvöll, en
norðan við Þórshöfn á Langanesi.
Þetta er hugsað landfræðilega og
vistfræðilega. Umhverfismengun
yrði þar í lágmarki, menn búnir
að koma upp öflugum mengunar-
vörnum og þekkingu sem því fylg-
ir. Jafnframt yrði á skjótan hátt
og virkan auðvelt að fylgjast með
hafinu norður og austur af
landinu, þar sem enn stærri meng-
unarvaldur er ríkjandi, nefnilega
kjarnorkuflotinn í hafinu norður
og austur af landinu.
Með fullkomnu vegasambandi
frá alþjóðaflugvellinum á Þórshöfn
austur til Vopnafjarðar, og áfram
gegnum jarðgöng upp á Hérað á
Egilsstaði og síðan áfram niður á
Reyðarfjörð í austur og hina leið-
ina til Húsavíkur, hafa ráðherrar
samgöngu- og umhverfismála
stórkostlega möguleika i hendi sér.
Fjöldinn allur af atvinnumögu-
leikum munu skapast á norður-
og austurlandi. Varaflugvöllurinn
staðsettur á hinu landshorninu,
með fullkomið tengiflug í allar
áttir, svo og vegi af nýjustu gerð
í þágu almannavarna.
Við eigum að semja ájafnréttis-
grundvelli. Við leggjum til nauð-
synlega aðstöðu í eftirlitsgeiran-
um, en fáum á móti öryggismál í
samgöngum í gott lag.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðar- og samgönguráðherra
ásamt öðrum þingmönnum í kjör-
dæmi Norðurlands eystra, verður
búinn að leysa flest atvinnu- og
byggðamál í sínu kjördæmi til
langrar framtíðar.
Þetta er meira alvörumál heldur
en það aprílgabb, sem ráðherrann
tók þátt í, væntanlega þjóðinni
allri til blessunar.
Vestarr Lúðvíksson,
trillukarl á Bakkafirði.
FiRMINGARGJAFIR
X^skíði allt allt öðruvísi.
Skíði/ skíðapakkar/ Frábært verð
Kúlutjöld 7.950,-
3-4 manna
Svef npokar 4.990,-
Frostþolnir
Bakpokar 4.880,-
SPORTLEiGAN
- skíðavöruverslun v/Umferðarmiðstöðina.
sími 19800.
AU PAIR í U.S.A.
Vistaskipti í Bandaríkjunum í eitt ár.
Ert þú á aldrinum 18 til 25 ára? Þú ert með bílpróf og reykir
ekki. Þú hefur þar að auki reynslu af börnum eða kornabörn-
um og ert góð í ensku!
Þá getur þú, á löglegan hátt, fengið að upplifa skemmtilegt
og lærdómsríkt ár sem Au Pair í Bandaríkjunum. Og látið
drauminn um útlönd rætast.
3000 Au Pair unglingar hafa farið til Bandaríkjanna á veg-
um Atlantis síðan 1986. „Besta árið sem ég hef nokkurn tím-
ann upplifað" segja margir þeirra - og hafa eignast marga
bandaríska vini til að heimsækja.
Nú er tækifærið! Biddu um meiri upplýsingar! Brottför er
þann 26. júní frá Keflavík, svo þú verður að vera fljót að til- i
kynna þig! Sendu svarseðilinn eða hringdu í síma 91-62 58 33.
Strax í dag!
Ef þig langar til að gerast Au Pair í Noregi getum við boðið
þér vist hjá ágætum fjölskyldum um allan Noreg. Settu kross
á svarseðilinn ef þú vilt frekar kynnast norsku fjölskyldulífi,
norskri náttúru og menningu.
Brottfarir einnig í júlí og ágúst.
Sendu inn svarseðilinn strax í dag og þú færð
frekari upplýsingar.
Eða hringdu í síma 91-62 58 33
frá kl. 15-21 og
um helgar.
NORSK STIFTELSE FOR UNGDOMSUTVEKSUNG
Arnþrúður Jónsdóttir
□ Já, ég hef mikinn áhuga á tilboði Atlantis um Au Pair
vist í Bandaríkjunum. Sendið mér strax frekari upplýsing-
ar.
ATH. Þú þarft að vera snögg að skrá þig. Stöðufjöldi er
takmarkaður.
□ Eg vil frekar fá upplýsingar um Au Pair vist í Noregi.
Sendið mér upplýsingar.
Nafn ______________________________________________________
Heimilisfang_______________________________________________
Póstfang___________________________________________________
Sími_______________________________________________________
Sendisttil: ATLANTIS Arnþrúður Jónsdóttir
Þórsgata 26 101 Reykjavík
H~1
-1
h-(
Q
W
co
Pö
<
>
CO
atlantis