Morgunblaðið - 01.12.1990, Síða 2
oeer HaaMaaaa ,i auoAaaADUAJ eioAjanuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990
Morgunblaðio/Þorkell
Menn bera saman bækur sínar í stjórnsl.öð Almannavarna í gær.
Umfangsmesta æfíng
Almannavama hafín
Umfangsmesta æfíng Almannavama ríkisins hófst í gær og
stendur hún í 10 daga. Æfingin gerir ráð fyrir að náttúruógn
muni steðja að höfuðborgarsvæðinu, sem í lok tímabilsins endi
með hamförum.
Æfíngin verður ekki samfelld almannavarnarnefnda taka fjöl-
heldur verður stjómstöð- að störf- margar stofnanir, félagasamtök
um daglega frá kl. 16 til 18. Auk og fyrirtæki þátt í æfingunni.
Birgir ísleifur næsti
Seðlabankastj óri ?
BIRGIR ísleifur Gunnarsson alþingismaður hefur verið tilnefndur
af forystu Sjálfstæðisflokksins til þess að gegna starfí bankastjóra
Seðlabanka Islands. „Það er Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sem
skipar í stöðu bankastjóra Seðlabankans, og annað hef ég ekki um
málið að segja,“ sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokks-
ins í samtali við Morgunblaðið í gær.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er nú beðið eftir ákvörð-
un Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráð-
herra, en hann er nú staddur erlend-
is. Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins og Davíð Odds-
son varaformaður hafa að höfðu
samráði við Birgi ísleif tilkynnt við-
skiptaráðherra að þeir leggi til við
hann að hann skipi Birgi Isleif sem
bankastjóra Seðlabankans frá ára-
mótum. „Ég get á þessu stigi ekk-
ert um málið sagt,“ sagði Birgir
Ísleifur Gunnarsson í gær.
Eins og áður segir er málið nú
í höndum Jóns Sigurðssonar. Ný-
kjörið bankaráð Seðlabankans hef-
ur ekki komið saman til síns fyrsta
fundar. Ágúst Einarsson fulltrúi
Alþýðuflokksins í Seðlabankans
verður að öllum líkindum kjörinn
formaður bankaráðsins á fyrsta
fundi ráðsins. Ekki liggur fyrir
hvenær viðskiptaráðherra mun til-
kynna um ákvörðun sína í þessum
efnum. Ráðherra er nú staddur er-
lendis og tókst Morgunblaðinu ekki
að ná tali af honum í gær.
Eyjólfur K. Jónsson um bráðabirgðalögin:
Reynt að koma skemmdum
laxi í vinnslu og á markað
UM 5 tonn af skemmdum laxi voru tekin úr frystigeymslu í Hafnarfirði
á þriðjudag þrátt fyrir bann heilbrigðiseftirlits og er talið að reynt
verði að koma honum í vinnslu og síðan á neytendamarkað. Laxinn
hefur verið dæmdur skemmdur og óhæfur til manneldis af Rannsóknar-
stofnun fískiðnaðarins en um 600 kíló af honum hafa fundist í reyk-
húsi við Grandagarð í Reykjavík, auk þess sem um 120 kíló fundust á
vöruflutningamiðstöð í borginni.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavknefur fengið mál þetta til
meðferðar en það að koma skemmd-
um matvælum á markað getur sam-
kvæmt hegningarlögum varðað allt
að 6 ára fangelsi, að sögn Guðmund-
ar H. Einarssonar, forstöðumanns
heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar.
Fiskurinn varð sjálfdauður í fisk-
eldisstöð á Vestfjörðum. Hann var
tekinn úr frystigeymslunni á þriðju-
dag þrátt fyrir bann heilbrigðiseftir-
lits. Farið var með fískinn fáeinum
mínútum áður en heilbrigðiseftirlit
kom með lögreglu á staðinn og segir
Guðmundur H. Einarsson engan vafa
leika á að þeir sem að þessu stóðu
hafi vitað hvað þeir voru að gera.
Vitað er um hvaða menn er að ræða
en þeir höfðu í gær ekki sinnt kvaðn-
ingum um að upplýsa hvar fískurinn
væri niður kominn.
Að sögn Þórhalls Halldórssonar,
forstöðumanns heilbrigðiseftirlits
Hollustuvemdar ríkisins, er ástæða
til að ætla að ætlunin hafí verið vinna
fiskinn og setja á markað erlendis.
Að sögn Guðmundar H. Einarssonar
er fískurinn það mikið skemmdur að
engar líkur eru á að reynt verði að
selja hann á neytendamarkaði fyrr
en að lokinni einhverri vinnslu. Hann
kvaðst ekki telja að ástæða væri
fyrir neytendur að óttast til dæmis;
reyktan lax sem seldur væri undirj
vörumerkjum, helst mætti búast við
að reynt yrði að selja fískinn með.
því að ganga í hús eða fyrirtæki.
Morgunblaðið/KGA
Fjölmenn húskveðja í Útvegsbankahúsinu
í gær kom fíöldi fyrrverandi starfsmanna gamla Útvegsbankans við Lækjartorg til kveðjuhófs í Útvegs-
bankahúsinu í tilefni af því að starfsemi íslandsbanka verður flutt úr byggingunni 10. desember. Lýkur
þar með 86 ára samfelldri bankaþjónustu í húsinu. Gamli íslandsbankinn hóf starfsemi sína í þessu húsi
árið 1904 og þar hefur verið starfrækt bankaþjónusta aliar götur síðan. Útvegsbankinn hóf þar starfsemi
á rústum íslandsbanka árið 1930 og aftur varð breyting á þegar hinn nýi íslandsbanki tók við með sam-
einingu bankanna á síðasta ári. Það var Reynir Jónasson, útibússtjóri, sem stóð fyrir hófinu. Þar voru
rifíaðir upp ýmsir viðburðir í bankasögu hússins og Hjálmtýr Hjálmtýsson, gestgjafí í biðstofu bankastjór-
anna um áratuga skeið, var sérstaklega kvaddur en hann lætur nú af störfum fyrir aldurs sakir. Á myndinni
er Ármann Jakobsson fyrrverandi bankastjóri á tali við Adolf Björnsson, sem m.a. var starfsmannastjóri
í Útvegsbankanum um margra ára skeið og Bjarni Guðbjörnsson fyrrverandi bankastjóri situr lengst til hægri.
Get ekki svarað nú hvaða
afstöðu ég mun taka á þingi
EYJÓLFUR Konráð Jónsson,
einn þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, var ekki
á fundi þingflokks þegar ákveð-
ið var að greiða atkvæði gegn
staðfestingu bráðabirgðalaga á
samning BHMR. Hann segist
ekki geta svarað því nú hvaða
afstöðu hann taki til málsins,
komi það til afgreiðslu í efri
deild.
Eyjólfur Konráð Jónsson segist
hafa haft leyfí formanns þing-
flokksins, Ólafs G. Einarssonar,
til að vera á öðrum fundi á sama
tíma, og ekki frétt af ákvörðun
þingflokksins varðandi bráða-
birgðalögin fyrr en eftir á. En er
hann sammála niðurstöðunni?:
„Málið er einfaldlega það að
þetta blessaða, margumtalaða mál
er I neðri deild og það var verið
að ræða afstöðu flokksins þar. Ég
er hins vegar í efri deild, og for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins hefur sagt opinberlega
að hugmyndin sé að afgreiða mál-
ið í neðri deild fyrir jól.“
„Ef það heldur áfram kemur
það ekki til efri deildar fyrr en
einhvem tíma eftir áramótin; í
janúar, febrúar eða mars, og ég
held að enginn geti svarað því
núna hvemig ástandið verður í
þjóðlífinu á þeim tíma. Ég skil
ekki að nokkur maður geti svarað
því á þessu stigi hvaða afstöðu
hann tekur í efri deild.“
Viðræður lækna og samninganefndar ríkisins í strand:
Aðstoðarlæknar neita að vinna
lengur en 14 tíma á sólarhring
AÐSTOÐARLÆKNAR á sjúkrahúsunum í Reykjavík munu frá og með
deginum í dag neita að vinna lengur en 14 tima á sólarhring og ekki
fleiri en 90 yfirvinnutíma á mánuði. Aðstoðarlæknar höfðu fyrr í
nóvember ákveðið að bíða með aðgerðir þar sem talið var að skriður
væri að kómast á viðræður við samninganefndar ríkisins. Nú hefur
hins vegar slitnað upp úr viðræðunum, þar sem samninganefnd ríkis-
ins hefur Iýst því yfír að hún hafí aðeins umboð fjármálaráðherra til
að semja um taxtahækkanir í samræmi við þjóðarsáttina. Reykjavíkur-
borg er einnig aðili að viðræðunum fyrir hönd Borgarspítala.
Að sögn Bjöms Rúnars Lúðvíks-
sonar, ritara félags ungra lækna,
vísa aðstoðarlæknar til vinnuvemd-
ariöggjafarinnar, þar sem kveðið er
á um að lágmarkshvíldartími sé tíu
klukkustundir á sólarhring fyrir alla
almenna starfsemi. „Meginástæðan
fyrir því að við förum út í aðgerðir
er skeytingarleysi stjómvalda, og þá
fyrst og fremst okkar viðsemjanda,
fjármálaráðuneytisins og ráðherra,
gagnvart þessum hófsömu kröfum
okkar,“ sagði Bjöm. Hann sagði að
aðstoðarlæknar færu fram á endur-
skipulagningu vakta, að þeim væri
ekki skylt að vinna meiri yfírvinnu
en 90 tíma á mánuði, og að vaktaá-
lagi yrði breytt. „Þetta er mannrétt-
indabarátta, og fyrst og fremst leið-
rétting til samræmis við laun sam-
bærilegra stétta. Við förum ekki
fram á grunnkaupshækkanir," sagði
Bjöm.
Hann sagði að það væri jafnframt
krafa aðstoðarlækna að gjald fyrir
lækningaleyfi yrði lækkað, en íjár-
málaráðuneytið hækkaði það úr
4.000 krónum í 50.000 um síðustu
áramót. Bjöm sagði að fengist engin
leiðrétting á kjörum aðstoðarlækna,
óttuðust menn landflótta ungra
lækna.
Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítalanna, sagði að á Land-
spítalanum væru aðeins tvær leiðir
til að bregðast við þessum aðgerðum
aðstoðariækna; að kalla út sérfræð-
inga til að sinna sjúklingum eða
draga úr þjónustu. Aðspurður hvort
fyrri leiðin væri ekki dýrari kostur
en að hafa aðstoðarlækna í vinnu,
sagði Davíð að hann væri að ekki
ódýrari, þar sem sem greiða þyrfti
sérfræðingum fyrir útkall.
Á fundi sjúkrahúslækna í gær var
lýst megnri óánægju með viðbrögð
og viljaleysi viðsemjenda lækna;
ríkisins og Reykjavíkurborgar, til
samninga. Haukur Þórðarson, for-
maður Læknafélags íslands, segir
að læknar hafí orðið undrandi á af-
stöðu samninganefnar ríkisins, því
að stefnubreyting hafí skyndilega
orðið, eftir að viðræður hefðu verið
í nokkuð góðum gangi. „Það er eins
og samninganefndin hafi fengið að
næturlagi ný fyrirmæli frá fjármála-
ráðherra," sagði Haukur. „Við vorum
að ræða ýmis atriði í kjarasamning-
um, sem ekki snerta fjárútlát, eins
og vinnutímalengd, vaktstöður og
fleira. Hvað sem því líður, fengum
við að vita að ekki yrði rætt um
neitt annað en þjóðarsátt."
Haukur sagði að samninganefnd
LÍ og LR hefði skilað umboði sínu
til stjórna þeirra og myndu stjórnar-
menn velta því fyrir sér fram yfir
helgi til hvaða aðgerða ætti að grípa.
Tvær skákir
fóru í bið
íslendingar tefldu við Portúgali
á Ólympíuskákmótinu í Júgóslavíu
í gær. Helgi Ólafsson og Jóhann
Hjartarson unnu sínar skákir en
skákir Margeirs Péturssonar og
Jóns L. Árnasonar fóru í bið. Hafa
þeir báðir betri stöðu.