Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 4
oeer HaaMasan .02 ÁUQAŒUTMMia MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÍJia 1990 Karpov á vænlega biðskák og veika von Skák Margeir Pétursson EFTIR hrikalega útreið Karpovs í tuttugustu einvígisskákinui á laugardaginn bjuggust flestir við því að það yrði einungis formsat- riði fyrir heimsmeistarann að ljúka titilvörn sinni, því Karpov þarf þrjá og hálfan vinning úr síðustu fjórum skákunum. En áskorandinn er oft beztur þegar öll nótt virðist úti og það sannaði hann eina ferðina enn í 21. skák- inni í gærkvöldi. Hann stýrði fram hjá öllum skerjum þrátt fyrir hættulegar atlögur Kasparovs og á mjög góða vinningsmöguleika í biðstöðunni, sem tefld verður áfram í kvöld. 21. einvígisskákin Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Gary Kasparov Kóngsindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 — g6 3. Rc3 - Bg7 4. e4 - d6 5. f3 Karpov velur nú aftur hið hvassa Saemisch-afbrigði sem hann hefur ekki beitt síðan í fyrstu skákinni. Upp á síðkastið hefur honum heldur ekki orðið neitt ágengt með hinu hefðbundna 5. Rf3. 5. — 0-0 6. Be3 — e5 . í fyrstu skákinni lék Kasparov 6. — c6 7. Bd3 — a6, en nú velur hann eldra afbrigði. 7. d5 - Rh5 Þegar Kasparov tapaði fyrir Gulko í Linares, fyrr á árinu, beitti hann peðsfórninni 7. — c6 8. Bd3 — b5!? 8. Dd2 - f5 Drottningarfórn Bronsteins, 8. — Dh4+ 9. gð - Rxg3 10. Df2 - Rxf 1 11. Dxh4 — Rxe3 hefur verið nokkuð vinsæl síðustu ár en miðað við fyrri taflmennsku Kasparovs í einvíginu hefði hún áreiðanlega ekki komið Karpov á óvart. 9. 0-0-0 - a6 10. Bd3 - c5!? Taflmennska beggja er nokkuð óvenjuleg miðað við það sem áður hefur tíðkast í þessu afbrigði. Það hefur þótt vænlegt fyrir hvít að skipta úpp á f5 og á hinn bóginn ekki þótt rétt fyrir svart að eyða tíma í c7-c5. Karpov tekur nú þá ákvörðun að opna miðborðið, þótt það geti ekki talist í anda hefðbundinnar her- fræði hvíts í þessu afbrigði. 11. dxc6 (framhjáhlaup) Rxc6 12. Rd5 - Be6 13. Bb6 - Dd7 14. Re2 - Hac8 15. Kbl - Df7 16. Hhel - Kli8 17. Bc2 - Rf6 18. Bd3 Karpov bíður átekta, en þessi leiktöp hans valda því að Kasparov reynir að ná frumkvæðinu á kostnað öryggisins. 18. - Rd7 19. Bgl - Rc5 20. Rb6 - Hcd8 21. Rc3 - Rd4 22. Rcd5 - Bxd5?! Það kemur nokkuð á óvart að Kasparov skuli láta betri biskup sinn af hendi í þessari stöðu, hann losnar að vísu við hvíta riddarann á b6 og kemur b-peði sínu á stað, en það mótspil er dýru verði keypt. 23. Rxd5 - fxe4 24. fxe4 - b5 25. Hfl — Dd7 26. cxb5 — axb5 27. Hxf8+ - Hxf8 28. h3 - Dd8 29. Bxd4 Svartur hótaði 29. — Dh4 og Karpov sér ekki önnur ráð til að mæta því en að láta biskupaparið af hendi. 29. - exd4 30. De2 - Dh4 31. Hfl! Karpov ætlar einfaldlega að skipta upp á sem mestu liði til að geta í rólegheitum sótt að peðaveikleikum svarts á b5, d6 og d4. Nú væri t.d. hægt að svara 31. — Hxfl 32. Dxfl - Rxe4 með 33. De2 — Rf6 34. De7! og svartur á mjög erfitt um vik. 31. - He8 32. Hf4 - Dg5 33. a3 VEÐUR VEÐURHORFUR IDAG, 20. DESEMBER YFIRLIT í GÆR: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.032 mb hæð en 990 mb lægð um 300 km suður af Reykjanesi fer austur og síðar suðaustur. Vaxandi lægð við Nýfundnaland hreyfist norðaustur. SPÁ: Norðaustan- og austankaldi víðast hvará landinu en stinnings- kaldi við Suðurströndína. Þurrt á Vesturlandi en annars víða él. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR A FÖSTUÐAG OG LAUGARDAG: Sunnan- og suðaustan- átt og skúrir eða slydduél um sunnan- og vestanvert landið. en þurrt að mestu á Norður- og Norðausturlandi. TAKN: Heiðskírt Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El / / / / / / / Rigning / / / — Þoka = Þokumóða * / * / * / * Slydda / * / ’ , ’ Súld # * # * * * * Snjókoma * * * OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður Vfi / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +7 úrkomafgr. Reykjavik +7 skýjað Bergen 1 rign. á s. klst. Helsinki +1 frostúði Kaupmannahöfn 1 alskýjað Narssarssuaq 0 alskýjað Muuk 0 snjókoma Osló 1 slydda Stokkhólmur Þórshöfn 1 súld á s. klst. Algarve 15 alskýjað Amsterdam 11 rigningás.klst. Barcelona 7 mi9tur Berlfn 0 snjókoma Chicago +1 alskýjað Feneyjar 6 þokumóða Frankfurt +1 snjókoma Glasgow 6 láttskýjað Hamborg 0 þokumóða LasPalrnas 20 lóttskýjað London 3 mistur Los Angeles 11 skýjað Lúxemborg 0 vantar Madrfd 6 hálfskýjað Malaga 14 alskýjað Mallorca 14 hálfskýjað Montreal vantar NewYork 8 alskýjað Orlando 17 þokumóða París 0 snjókoma Róm 9 léttskýjað Vín 0 þokumóða Washington 8 alskýjað Winnipeg 0 vantar 33. Bxb5? hefði verið glapræði vegna 33. — d3 34. Bxd3 — Hb8 35. b3 — De5 og öll spjót standa á hvíti. 33. - h5 34. Ka2 - b4!? Tveir síðustu leikir hvíts eru dæmi- gerðir fyrir Karpov. Hann býr sig í rólegheitum undir að geta hirt peðið á b5, en Kasparov vill ekki bíða átekta, heldur fórnar peðinu fyrir sóknarfæri. 35. axb4 - Ha8+ 36. Kbl - Rb3 37. Kc2 - Ral+ 38. Kbl - Rb3 39. Df2! Eftir að hafa þráleikið til að fækkja leikjum fyrir tímamörk held- ur Karpov áfram að tefla til vinnings. 39. - Dd8 40. Hf7 - De8 í þessari stöðu fór skákin í bið og Karpov lék biðleik. Pálmi Jónsson um fjárlagafrumvarpið: > Utgj aldahækkun orðin 2,3 milljarðar ÞRIÐJA og síðasta umræða fjárlaga fer fram í sameinuðu þingi í dag. Pálmi Jónsson, alþingismaður, sem sæti á í fjárveitinganefnd, segir heildarhækkun á frumvarpinu frá því það var lagt fram nema um 2,3 milljörðum króna. í gær hefði einnig verið lögð fram ný tekju- áætlun sem gerði ráð fyrir aukinni skattlagningu upp á 2,1 milljarð frá því frumvarpið var kynnt. Önnur umræða um fjárlög fór fram síðastliðinn fimmtudag og gert er ráð fyrir að þriðja umræða fari fram í dag. „Þrátt fyrir það var fyrst boðaður fundur í fjárveitinganefnd klukkan hálfþijú í dag [miðvikudag] til að kynna fyrstu tillögur meiri- hluta nefndarinnar í einstaka málum sem biðu afgreiðslu þriðju umræðu,“ sagði Pálmi. „Þetta stafar af því að meirihluti nefndarinnar hefur vísað flestum þeim stærri málum sem biðu þriðju umræðu til ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnin hefur dag frá degi verið að fljúgast á um það hvernig eigi að leysa hin einstöku mál. Hef- ur þetta leitt til þess að síðasti fund- ur nefndarinnar er boðaður klukkan hálfníu í [gær]kvöld.“ Pálmi sagði þetta vera óviðunandi vinnulag og tæpast hægt að bjóða minnihluta nefndarinnar að hafa aðeins nóttina og fram yfir hádegi sama dag og umræðan færi fram til að fara yfir mál og ganga frá þeim gögnum sem hann kysi að leggja fram við þriðju umræðu. Viðskiptahallinn hækkar um milljarð nefna útgjöld almannatrygginga en vegna lífeyristrygginga vantaði 500 milljónir króna samkvæmt áætlun. Þá gerði frumvarpið ráð fyrir að tækist að spara 500 milljónir króna í sjúkratryggingum við lyfjakostnað sem ólíklegt væri að tækist miðað við fyrri reynslu. Einnig væri í frumvarpinu gert ráð fyrir að lækka framlög til Lána- sjóðs íslenskra námsmanna um 200 milljónir. Yrði athyglisvert að heyra hjá ráðherra hvort að hann ætlaði að skerða námslán sem þessu næmi, skerða verksvið sjóðsins ellegar mæta þessu með enn auknum lán- tökum sem flýttu fyrir því að sjóður- inn yrði gjaldþrota. „Enn er ótalið að gert hefur verið ráð fyrir því í gögnum sem fjárveitinganefnd hafa borist að í liðinn niðurgreiðslur vanti 200 m.kr. eftir 1. september á næsta ári til að halda hlutfalli þeirra óbreyttu. Sé þetta rétt þá hækkar verð á matvöru sem því nemur að lokinni „þjóðarsátt“,“ sagði Pálmi. Gífurleg fjölgun ríkisstarfsmanna Forstjóri Þjóðhagsstofnunar og deildarstjóri hagdeildar fjármála- ráðuneytinsins komu á fund nefnd- arinnar síðdegis í gær og greindu frá breytingum á þjóðhagshorfum. Sagði Pálmi þjóðhagsstjóra gera ráð fyrir að viðskiptahalli yrði milljarði hærri en áður var talið eða 6,7 millj- arðar. Ennfremur væri ljóst að verri horfur í loðnuveiðum hefðu áhrif á tekjumyndum í þjóðfélaginu. „Þrátt fyrir þessar versnandi horfur þá er kynnt ný tekjuáætlun þar sem ein- stakir tekjuliðir eru hækkaðir með fíngrafimi og handafli um 2,1 millj- arð króna frá því að frumvarpið var lagt fram sem auðvitað þýðir skatta- hækkun á þjóðina sem því nernur," sagði Pálmi. „Það var tekið fram af deildarstjóra hagdeildar að þessi áætlun byggðist á óbreyttum horfum frá því þjóðhagsspá var lögð fram og ítrekað að ef spá um minnkandi loðnuafla stæðist færi tekjuhliðin í hundana. Þannig er Ijóst að verið er að teygja úr tekjuhliðinni til að fela hallann." Aðspurður um hækkun útgjalda sagði Pálmi að þær hækkanir sem þegar hefðu verið afgreiddar í meiri- hlutanum og kynntar fyrir minni- hlutanum milli annarrar og þriðju umræðu næmu um 840 milljónum króna og sæi hann þó strax að meiri- hlutinn hefði gleymt að lækka sér- tekjur vegna hafnarskattsins sem nú væri horfið frá að leggja á. Hækkaði það útgjöldin um 560 millj- ónir króna til viðbótar og lægi því 1400 milljóna útgjaldahækkun fyrir. Stærsti liðurinn sem eftir væri að taka ákvörðun um væru byggingar- sjóðimir en þar vantaði stórar fjár- hæðir ef standa ætti við þau fyrir- heit sem gefin hefðu verið. Þá mætti Þegar á heildina væri litið sagði Pálmi að við aðra og þriðju umræðu yrði hækkun samkvæmt þessu á gjöldum frumvarpsins um að minnsta kosti 2,3 milljarða króna og væri þar mest um hækkanir á liðum að ræða sem einstakir ráðherr- ar eða ráðuneyti teldu að vanreikn- aðir væru í frumvarpinu eða þá nauðsynlegt að veita auknum fram- lögum til. „Þar á meðal er gífurleg aukning á starfsmannaijölda ríkis- sjóðs og útþensla rekstrargjalda. í sumum tilvikum er hér um hreinar leiðréttingar að ræða en í öðmm er um að ræða ákvarðanir sem eru umdeilanlegar en eiga flestar rætur til einstakra ráðuneyta að rekja sem sýnir að ráðherramir, sem eru í raun flutningsmenn fjárlagafrumvarps- ins, vilja ekki sætta sig við frum- varpið eins og það hefur verið lagt fyrir Alþingi." Pálmi sagðist ekki fá betur séð en að vandinn við fjármá! ríkisins væri nú meiri en nokkru sinni fyrr. Þó að svo færi að fjárlagahallanum yrði núna haldið njðri í 4-6 milljörð- um króna þá væri afar stómm liðum leynt í útkomunni bæði með óraun- sæi í tekjuáætlun og gjaldahlið. „Við aðra umræðu gerði ég grein fyrir þeim mikla vanda sem ríkis- stjómin skilur eftir sig og komst að þeirri niðurstöðu að hann næmi 47 milljörðum og voru þá ekki taldar með 20 milljarða skuldbindingar lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins umfram eigið fé sem þarf að standa straum af á næstu 20-30 árum. Þessar tölur eru geigvænlegar og 47 milljarða skuldbindingar sem þannig hvíla á þjóðinni nema um 940 þúsund krónum á hveija fimm manna fjölskyldu í landinu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.