Morgunblaðið - 10.02.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991
C 21
VINABÆJAMÓT LSS
LANGI Seli og Skuggarnir
hafa löngum verið í
fremstu röð tónleikasveita
og nk. laugardag fá sæn-
skir að kynnast því, því
sveitin er á förum utan til
tónleikahalds.
Svíþjóðarförin er liður í
vinabæjamóti Reykja-
víkur, Gautaborgar, Turkus
og Álaborgar. Fimmti vina-
bærinn, Bergen, skarst úr
leik vegna fjárskorts. Vina-
bæjatónleikarnir verða á
tveimur kvöldum og leika
Seli og félagar síðastir sveita
á laugardagskvöld.
Jón Skuggi sagðist hafa
þær spurnir af sveitunum
sem með þeim leika að
sænska sveitin væri stórsveit
með blásurum, baksöngvur-
um og tilheyrandi, en fínnska
sveitin og sú danska væru í
léttu poppi.
Ekki sagði Jón sveitina
hyggjast leika á fleiri tónleik-
um ytra að sinni. „Við vorum
reyndar beðnir að troða upp
í Lundi og Kaupmannahöfn,
en það gefst ekiri tími vegna
vinnu hér heima. Það verður
að bíða betri tíma.“
Eins og ýmsum er**kunn-
ugt kom Hörður Bragason
mikið við sögu við gerð síð-
ustu breiðskífu sveitarinnar,
Rottur og kettir. Hann er nú
orðinn fimmti maður í sveit-
inni og leikur á Farfisha-org-
el. „Okkur langaði að prófa
hvernig væri að hafa Hörð
með og í ljós kom að okkur
Langi Seli og Skuggarnir 1 Svíþjóðarvíking.
fannst það svo skemmtilegt
að við tókum ákvörðum um
að halda samstarfinu áfram.
Það er ekki hægt að segja
að Hörður sé genginn í sveit-
ina formlega, en hann verður
með okkur þar til annað kem-
ur í ljós og það á örugglega
eftir að breyta tónlistinni
töluvert."
UHÚSVÍSKAR rokk-
sveitir hafa ekki sést í
Reykjavík síðan Greifarn-
ir lögðu upp laupana.
Næstkomandi fimmtudag
mun húsvísk rokksveit
hefja tónleikaferð til
Reykjavíkur með tónleik-
um í Kjallara Keisarans.
Sveitin sú heitir Rotþró
og tónlist hennar er víst
mitt á milli S/H Draums
og Ham. Gestir Rotþrær
þetta kvöld verða Dr.
Gunni, Drulla og ónefnd
sveit sem er að einhveiju
leyti runnin undan rifjum
forðum Fræbbbla. Næst-
komandi sunnudag heldur
Rotþró síðan aðra tónleika
sína í Reykjkavík að þessu
sinni og þá í Tveimur vin-
um. Þar munu troða upp
með sveitinni Bootlegs,
Reptilicus og Dr. Gunni.
DÆGURTÓNLIST
Risaeðlan Breiðskífa í aðsigi. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
LÍDÓEÐLA
EKKI hefur borið mjög á
Risaeðlunni undanfarið,
en sveitin hefur þó verið
að spila í skólum víða síð-
ustu vikur. Því til viðbótar
brá sveitin sér í hljóðver
fyrir skemmstu og tók þar
upp nokkur lög til undir-
búnings næstu breiðskífu.
Ný breiðskífa frá Risa-
eðlunni er ekki vænt-
anlega fyrr en með haustinu
í fyrsta lagi, en sveitin held-
ur tónleika í Lídó næstkom-
andi laugardag. Að sögn
sveitarmeðlima verða lögin
nýju kynnt þar, auk eldri
laga.
Rió hafi vakið á henni mikla
athygli, ekki síður en at-
hyglin utan Brasilíu. Þeir
sögðu fjölmargar þunga-
rokksveitir starfandi í Bras-
ilíu, en þær eigi á brattann
að sækja.
Kisser sagði plötuna nýju
vera allmiklu þyngri en síð-
ustu plötu, „lögin eru betri,
því við höfðum miklu meiri
tíma í upptökur en áður.
Tónlistin er líka þyngri og
og nýja platan er
betri að öllu leyti.
Arise er sterk plata og
verður stórt skref fram
á við fyrir okkur.
Það er erfitt að spila
þungarokk í Brasilíu,
en stærstu tónleikar
sem við höldum eru
venjulega S Sao
Paulo, þar sem við
leikum fyrir um 5.000
manns. Utan Sao Paulo er
erfiðara. Að auki koma
þungarokksveitir sjaldan
hingað, en þó hafa komið
hingað á síðustu árum sveit-
ir eins og Motorhead, Nucle-
ar Assault, Metallica og
Testament. Viðhorfið við
thrashrokki er því að breyt-
ast og við ríðum á vaðið,
en á eftir koma fjölmargar
sveitir."
Er til brasilískt þungarokk?
A brattann
BRASILÍSK tónlist hcfur vcrið I sviðsljós-
inu síðustn misseri fyrir atbeina þeiri'a
Davids Byrnes, sem fékk brasiliska tón-
listarmenn til liðs við sig á síðustu plötu
sinni og kom því um kring að gefna voru
út tvær safnplötur með brasilískri tónlist,
og Pauls Simons, sem fékk einnig brasil-
íska tónlistannenn til liðs við sig. Einnig
hafa verið vinsælir tónlistarmenn eins og
Gilberto Gil og Caetano Velloso og nýver-
ið þungarokksveitin Sepultura.
Sepultura Þyngri og
hægari.
X
Oepultura leikur svonefnt
|J thrashrokk, sem er öllu
grófara og þyngra en speed-
rokk, en aftur léttara en
dauðarokk. Sepultura var
stofnuð
1984 af
tveimur
bræðrum,
Max og
Igor Cav-
alera.
Bassaleik-
arinn
Paulo Jr.
eflir Amo
Mötthíosson
slóst snemma í hópinn, en
gítarleikarinn Andreas
Kisser nokkru síðar. Þá
hafði sveitin sent frá sér
eina og hálfa plötu í
Brasilíu og þriðja platan
kom stuttu síðar. Sú plata
barst til útgáfustjóra
bandarísks fyrirtækis, Ro-
adrunner, og hann féll flatur
fyrir sveitinni og gerði við
hana samning. Fyrsta plat-
an samkvæmt þeim samn-
ingi, Beneath the Remains,
kom út 1989 og vakti mikla
athygli, þótti afbragð og var
víða með bestu plötum árs:
ins í vali gagnrýnenda. í
kjölfarið fylgdi tónleikaferð
um Bandaríkin og
Evrópu.
Sepultura var fyrir stuttu
í hljóðveri við upptökur á
nýrri breiðskífu, sem fengið
hefur nafnið Arise, og kem-
ur út innan skamms, en fyr-
ir tveimur vikum var gefin
Ijósmynd/Björg Sveinsdóttír
út í Brasilíu grófhljóðblönduð
forútgáfa í takmörkuðu upp-
lagi, til að minna á sveitina.
Andreas Kisser gítarleik-
ari sveitarinnar og Paulo Jr.
trommuleikari hennar, sögðu
að sveitin væri þokkalega
þekkt í Brasilíu, en Rokk í
KYNNINGAR-
TÓNLEIKAR
Eftirlitið
Davíð, Gunn-
ar Hilmars,
Gunnar Erl-
ings og Þor-
steinn.
EFTIRLITIÐ heitir sveit
þeirra Davíðs Trausta-
sonar og Gunnars Hilm-
arssonar sem þeir hafa
haldið úti í á þriðja ár.
Mannbreytingar hafa
verið nokkrar, en síðustu
mánuði hefur sveitin ver-
ið eins skipuð. Á döfinni
hjá Eftirlitinu er að fara
að taka upp plötu, en
áður en það verður held-
ur sveitin kynningartón-
leika í Púlsinum 13. fe-
brúar nk. fyrir útgefend-
ur, blaðamenn og al-
menna áheyrendur.
Eftirlitið skipa nú auk
Davíðs og Gunnars
þeir Þorsteinn Magnússon
og Gunnar Erlingsson. Dav-
íð segir sveitina leika fön-
krokk, „við ætlum að spila
lög sem við höfum verið að
vinna með undanfarið, 13
eða 14 lög og vonum að ná
eyrum útgefenda. Þetta er
ekki ný tónlist í sjálfu sér,
en það er margt nýtt í
þessu.“ Þeir Gunnar og
Davíð semja lögin, en allir
sveitarmeðlimir taka þát í
útsetningum.
Davíð sagði þetta búið
að vera langt úthald, en nú
væru þeir félagar vissir um
að eitthvað færi að gerast.
„Við ætlum að fækka tón-
leikum, en reyna þess í stað
að gera þá veglegri fyrir
bragðið og svo tökum við
okkur tíma fyrir hljóðvers-
vinnu.“
Eitthvað að lokum?
„Við skorum á fólk að
koma og gefa okkur séns
þann 13.“
ÓVEIMJULEGT POPP
ÞEGAR það spurðist að Brian Eno og John Cale hefðu
ákveðið að gera plötu saman bjuggust líklega flestir við
tónlistartorfi. Þeir Eno og Cale hafa verið þekktir fyrir
það í gegnum árin að binda bagga sína ekki sömu hnút-
um og samferðarmennirnir og því var undrun manna
mikil þegar út kom platan Wrong Way Up; aðgengileg
poppplata, þó óvenjuleg sé.
John Cale hóf feril sinn í
minimalísku banda-
rísku neðanjarðarsveitinni
Velvet Underground á sjö-
unda áratugnum, sem ótal
sveitir um heim allan hafa
stælt síðan. Eftir að sveitin
leystist upp hefur Cale haldið
sig í útjaðri poppsins, en
meða! annars stýrt upptök-
um hjá sveitum eins og the
Stooges, Patti Smith og
Happy Mondays.
Brian Eno hefur einnig
haldið sig á mörkum popps-
ins frá því hann sagði skilið
við sveit sína Roxy Music
snemma á áttunda áratugn-
um. Hann hefur sent frá sér
plötur með bakgrunnstónlist
(fyrir flugvelli o.fl.), unnið
með David Byrne að þjóð-
lagadiskói (My Life in the
Bush of Ghosts) og David
Bowie (Low) og stýrt upp-
tökum hjá sveitum eins og
Talking Heads og U2.
Samstarf þeirra Enos og
Cales var erfítt en skemmti-
legt að sögn Enos, „Cale
hugsar allt öðruvísi en aðrir
og eftir annarri rökvísi“.
Hvað sem því líður hefur
platan nýja fengið góða
dóma hvarvetna, þó á köflum
heyrist óvenjuleg hljóma-
skipan, eða taktskiptingar á
poppgrunni. Eno segist alla
tíð hafa viljað reyna gera
eitthvað annað en aðrir; að
nálgast verkefni úr vitlausri
átt. „Ég vil skapa eitthvað
Brian Eno Verkefni nálg-
ast úr vitlausri átt.
með röngu fólki eða röngum
verkfærum."