Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.05.1991, Blaðsíða 10
10 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1991 kommúnistaflokksins væri lokið. í október fengu margir flokkar að bjóða fram í kosningum og komm- únistar biðu ósigur fyrir bandalagi þjóðemissinna, sem barðist fyrir sjálfstæði, einkavæðingu í landbún- aði og kapítalisma í efnahagsmálum undir forystu Zvíads Gamsakhur- día, sem var kjörinn forseti þings- ins. Kosningamar komu af stað ill- deilum miili Georgíumanna og Oss- eta. Ossetar eru 400.000 manna þjóð og núverandi eijur þeirra og Georgíumanna má rekja til innrásar Rauða hersins fyrir 70 ámm. Osset- ar studdu bolsévíka og að launum fengu þeir að koma á fót sjálfstjóm- arhéraðinu Suður-Ossetíu í Georgíulýðveldinu 1922. Annað sjálfstjómarhérað Osseta, Norður- Ossetía, var stofnað handan landa- mæranna í Rússneska sambands- lýðveldinu. Eftir kosningarnar í fyrra ákváðu Suður-Ossetar að lýsa einhliða yfir sjálfstæði frá Georgíu og stofna eigið sjálfstjórnarlýðveldi með því að sameinast Norður-Ossetíu. Þannig vildu Suður-Ossetar tryggja sér aukna vemd gegn vaxandi þjóð- ernishyggju Georgíumanna og sýndu að þeir vildu vera áfram í Sovétríkjunum. Afleiðingin varð sú að Gamsak- hurdía ákvað að svipta Suður-Osse- tíu allri sjálfstjóm. Hann ber því að nokkru leyti sjálfur ábyrgð á versnandi sambúð Georgíumanna og Suður-Osseta, sem eru 65.000 talsins. Borgarastríð Gamsakhurdía sendi vopnaðar sveitir eða þjóðvarðliða inn í Suður- Ossetíu til þess að binda enda á aðskilnaðinn. Síðan má heita að borgarastyijöld hafí geisað í hérað- inu. Höfuðstaðnum, Tskhinvali, hefur nánast verið haldið í umsátri og reiði, hatur, ótti og vonleysi ráða þar ríkjum. Mörg hús eru illa leikin eftir skot- bardaga Georgíumanna og „sjálfs- vamarsveita“ Osseta. Að núnnsta kosti 50 hafa fallið. Um tíma var skortur á vatni og rafmagni, matar- birgðir vom af skomum skammti og loka varð verzlunum, skólum og verksmiðjum. Hermenn sovézka innanríkisráð- uneytisins hafa verið á verði í Tsk- hinvali, sem er 35.000 manna bær. Lögregla og þjóðvarðliðar Georgíu- manna hafa haldið sig utan við Tskhinvali síðan Gorbatsjov hafði í hótunum við yfirvöld í Georgíu í janúar. Margar sögur hafa verið sagðar um hryðjuverk af beggja hálfu. Ossetar segjast óttast fjöldamorð og eru sannfærðir að aðeins Moskv- ustjómin geti veitt þeim vernd. „Þeir hrekja okkur frá heimilum okkar,“ sagði talsmaður Osseta eftir Guðm. Halldórsson LÝÐVELDIÐ Georgía í Kákasus hefur farið að dæmi Eystrasaltsríkjanna og lýst einhliða yfir endurreisn sjálfstæðis, sem það var svipt með sovézku hervaldi fyrir rúmum sjö áratugum. Sjálfstæðisyfirlýsingin hafði verið samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu með 98% atkvæða og er enn eitt áfallið fyrir tilraunir Míkhaíls Gorb- atsjovs forseta til að koma í veg fyrir upplausn Sovétríkjanna, en erfitt getur reynzt að hrinda henni í framkvæmd. Leiðtogi Georgíumanna, Zvíad Gamsakhurdía, við- urkenndi að „sjálfstæðis- yfirlýsingin jafngilti ekki raunverulegri úrsögn úr Sovétríkjunum“ og sagði að henni yrði fylgt eftir á næstu tveimur til þremur árum með nokkrum iögum, sem mundu miða að því að koma á algerri sjálfstjórn. Gamsakhurdía var einróma kjörinn fyrsti forseti lýðveldisins, en var áður forseti þingsins. Stjórn Gorbatsjovs hafnaði þjóð- aratkvæðagreiðslunni í Georgíu á sömu forsendum og svipuðum at- kvæðagreiðslum í Eystrasaltslönd- unum og kvað hana brot á sovézku stjórnarskránni. Gorbatsjov hefur ekki tekizt að vekja áhuga Georgíu- manna á tillögum sínum um nýjan ríkjasáttmála, sem hann segir að muni tryggja þeim aukna sjálf- stjórn, því að hann virðist telja sem fyrr að hægt sé að leysa efnahagsl- egan og pólitískan vanda Sovétríkj- anna með miðstjórnarákvörðunum frá Kreml. Spennan eykst Sjálfstæðisyfirlýsingin jók spennu í sambúð Georgíumanna og Gorbatsjovs. Ekki bætti úr skák að Gamsakhurdía lýsti yfír allsheijar- verkfalli til að leggja áherzlu á kröf- ur um að sovézkt herlið fari frá umdeildu svæði í norðurhluta Ge- ' orgíu, Suður-Ossetíu, sem er byggt Moskvuhollu þjóðarbroti. Verkfallið kann að auka alvarlegan efnahags- vanda Georgíumanna. Gamsakhurdía reynir að halda Suður-Ossetum og öðrum þjóðar- brotum niðri. Þau saka hann um einræðishneigð, én hann hafnar ásökunum um að hann hyggist svipta þau réttindum ef þau styðji ekki sjálfstæði Georgíu. „Þjóðvarð- liði“ hefur verið komið á fót, aðal- lega tii að bæla niður mótþróa í Suður-Ossetíu. Taka á upp sér- stakan gjaldmiðil og fleiri ráðstaf- anir verða gerðar til að auka sjálf- stæði Georgíu. Gamsakhurdía hefur notið vax- andi hylli meðal Georgíumanna sjálfra og sýnt sífellt aukið sjálfs- traust í deilum sínum við Gorb- atsjov, sem stendur illa að vígi. Stjórnmál Georgíu eru hins vegar flókin og sérfræðingar telja að til- raun Gamsakhurdía til að segja Georgíu úr lögum við Sovétríkin Fána veifað: lýst yfir sjálf- stæði. geti haft í för með sér þrátefli og blóðsúthellingar. Þegar Gorbatsjov fór til Japans á dögunum óttuðust Georgíumenn að stjórnvöld í Moskvu mundu nota heimsóknina til þess að bijóta sjálf- stæðishreyfingu þeirra á bak aftur. Minnt var á að 20 hefðu verið drepnir í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, þegar Gorbatsjov fór til Bretlands í fyrra og að hann hefði sagt að hann hefði litla sem enga ábyrgð borið á aðgerðunum í Eystrasalts- ríkjunum, þegar sovézku hervaldi var beitt til að bæla niður ókyrrðina þar. Forn frægð Georgíumenn hafa löngum þótt sjálfstæðir og meiri einstaklings- hyggjumenn en Rússar og fram- takssamari en þeir. Margir þeirra fara ekki dult með andúð á komm- únisma og miðstýringu frá Moskvu. Þeir eru 69% íbúa Georgíu, sem eru 5,5 milljónir. Auk þeirra og Osseta býr fólk af ýmsu öðru þjóðerni í lýðveldinu — 100 hópar alls — þar á meðal Armenar (9%), Rússar (7,4%), Azerar, Grikkir og Abkhaz- ar. Kákasísk tunga Georgíumanna er opinbert tungumál lýðveldisins, þótt flestir kunni rússnesku, og þeir hafa verið kristnir síðan á 4. öld. Land þeirra var hluti konungs- ríkisins Kolkís, sem Jason sigldi til ásamt Argóförum sínum í leit að gullreyfinu. Stórveldi Georgíumanna í Kákas- usfjöllum stóð á hátindi frægðar sinnar á stjórnarárum Thamar drottningar (1184-1213), en laut í lægra haldi fyrir mongólskum inn- rásarmönnum. Tyrknesk yfirdrottn- un tók við og valdhafar Georgíu leituðu ásjár Rússa, sem innlimuðu konungsríkið smám saman á 19. öld. Eftir byltingu bolsévíka stofnuðu Georgíumenn sjálfstætt ríki (26. maí 1918) undir þýzkri vernd. Sov- étlýðveldi var komið á fót (25. febrúar 1921) þegar Rauði herinn var sendur til Tbilisi að undirlagi Georgíumannsins Jósefs Stalíns til þess að styðja „óundirbúna uppreisn verkamanna". Innbyrðis sundrung Hinn 9. apríl 1989 dreifðu sovézkir hermenn tugþúsundum mótmælenda og drápu 19 Georgíu- menn. Sama ár brutust út óeirðir milli Georgíumanna og aðskilnaðar- sinna Abkhaza. Georgíumönnum til gremju létu Ossetar í ljós samúð með Abkhözum. í marz 1990 lýsti Æðsta ráð Georgíu því yfír að lýðveldið hefði á sínum tíma verið innlimað með valdi í Sovétríkin og valdaeinokun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.