Morgunblaðið - 27.10.1991, Page 7
MORGÚNBUÁÉIÐ SUNNÚDÁGÚRÍ?. ÖKTÖBER 1991
Tl/IÍJWffllXíliTTÉflR ff
Félag um grundvöll
nýs dagblaðs stofnað
NÝMÆLI, sameignarfélag um stofnun nýs dagblaðs, var stofnað
á hálfrar klukkustundarlöngum fundi s.I. föstudag. Félaginu er
ætlað að kanna til hlýtar rekstrargrundvöll nýs dagblaðs og hefja
samtímis nauðsynlegan undirbúning að útgáfu þess og kanna
áhuga fleiri aðila á þátttöku í útgáfunni.
Á stofnfundinum voru Gunnar
Steinn Pálsson frá auglýsingastof-
unni Hvíta húsinu, Haraldur Har-
aldsson frá íslenska útvarpsfélag-
inu, Þorgeir Baldursson frá Prent-
smiðjunni Odda, Finnur Ingólfsson
frá Tímanum og Helgi Guðmunds-
son frá Þjóðviljanum.
„Þessir fimm aðilar stofna fé-
lagið en út af fyrir sig er gert ráð
fyrir fleiri aðilum sem hugsanlega
koma til með að stofna hlutafélag
um rekstur nýs dagblaðs. „Ýmsir
aðrir hafa verið nefndir til sögunn-
ar, til dæmis fleiri flölmiðlar. Al-
þýðublaðið hefur fylgst með þessu
máli. Það er ekki hægt á þessu
stigi að segja til um hvað það
kostar að hrinda þessu í fram-
kvæmd. Menn vilja skoða þessi
mál betur og þess vegna er undir-
búningsfélagið stofnað. Formlega
höfum við komið okkur saman um
að spekúlera áfram,” sagði Gunn-
ar Steinn Pálsson framkvæmda-
stjóri Hvíta hússins.
Minní slát-
ursala en
ífyrra
SLÁTURSALA hefur verið mun
minni nú í haust en í fyrra, en
að sögn Gísla Árnasonar hjá
Kjötmarkaði Goða hf. liggja enn
ekki fyrir tölur um hve mikil
salan hefur verið. Sölu á ófrosn-
um slátrum fer senn að Ijúka,
en frosin slátur verða áfram á
boðstólum.
„Salan hjá okkur hefur gengið
svona sæmilega, en það er almennt
talað um talsvert minni slátursölu
heldur en í fyrra. Maður heyrir
ýmsar skýringar á þessu, eins og
til dæmis þá að fólk eigi ennþá slát-
ur frá því í fyrra í frystikistunni
hjá sér. Ég held að í fyrra hafi
þetta hreinlega verið einhver tísku-
bylgja sem gekk yfir, en þá tók
áberandi mikið af ungu fólki slátur,
en miklu minna hefur verið um það
núna,” sagði Gísli.
XJöföar til
X X fólks 1 öllum
starfsgreinum!
Hann sagði að greiða yrði inn
talsvert hlutafé ef til kæmi og
yrði það sett í samhengi við í
hvernig útgáfu yrði ráðist. „Menn
eru að skoða þetta vegna þess að
þeim sýnist góður rekstrargrund-
völlur fyrir útgáfunni og slikur
grundvöllur er ekki góður nema
verið sé að tala um einhveija tugi
þúsunda eintaka, mismunandi
mikið eftir dögum,” sagði Gunnar
Steinn. Hann sagði að ekki hefði
verið ieitað til manna ennþá með
ráðningu í huga en vissulega
kæmu ákveðnir menn til greina í
toppstöður.
Móri þjarmar að hundinum Kol.
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Heimilis-
refir í
Mávahlíð
Ólafsvík.
LEIFUR Ágústsson bóndi og
refaskytta í Mávahlíð á Snæ-
fellsnesi vann um 50 dýr um
grenjatímann sl. vor. Tvo yrð-
linga tók hann heim að Máva-
hlíð og gaf börnum sínum sem
gæludýr.
Voru það tveir „refastrákar”
annar mórauður úr greni sem _er
í svonefndum Einbúa bak við 01-
afsvíkurenni og hinn hvftur úr
greni í Beruvík. Þetta voru hress-
ir peyjar og lífsglaðir. Báðir yrð-
lingarnir, Móri og Hvítingur, hafa
nú hlýtt kalli móður náttúru og
eru horfnir til fjalls.
Helgi.-
Ólafsvíkurvegur:
Lægsta tilboð
66% af áætlun
FJÓRTÁN tilboð bárust Vega-
gerð ríkisins í lagningu 5,4 km
kafla á Ólafsvíkurvegi frá Fífl-
holtum að Hítará, og nam lægsta
tilboðið 66% af kostnaðaráætl-
un.
Völur hf. í Reykjavík átti lægsta
tilboð og hljóðaði það upp á tæp-
lega 28 milljónir króna, en kostn-
aðaráætlun Vegagerðarinnar var
rúmlega 42 milljónir. Gert er ráð
fyrir að lagningu vegarkaflans með
bundnu slitlagi verði lokið fyrir 15.
september á næsta ári.
Viðbotor
il Kanaríeyja
liníjanúar
Jólaferð 19. des.............2 vikur
60 viðbótarsæti
2. janúar.......................3 vikur
38 viðbótarsæti
9. janúar 3 vikur.........uppselt
23. janúar 3 vikur......12 sæti laus
Brottfarir ífebrúar og mars.laus sæti
*Verð innifelurflug, gistingu,
ferðir til og frá flugvelli erlendis
og íslenska fararstjórn.
Ekki eru innifalin flugvallarskatt-
ur á íslandi og á Spáni og forfal-
lagjald.
FEHflAMIOSTDfllN
Verð frá kr.
39.800,-
Hjón með 2 börn, 2-11 ára,
Playa Flor, 2. janúar.
Verð frá kr.
56.900,-
Hjón með 2 böm, 2-11 ára.
PlayaFlor, 19. desember.
Verð frá kr.
72.200,-
Tveir í íbúð, 19. desember.
r
'
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK, SÍMI: (91) 622011 & 622200 S3SEBS33B