Morgunblaðið - 15.02.1992, Page 47
47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992
u
lvang varð meistari í 30 km
— skíðagöngu og einnig í 10 km
9 göngu og um leið varð hann fyrsti
Norðmaðurinn til að vinna tvenn
gullverðlaun í göngu á ólympíuleik-
um síðan 1924. Ulvang sagði að
það hafi verið ánægjuleg upplifun
að taka á móti gullverðlaununum í
| 30 km göngunni, en var það stærsta
augnablikið á lífsferlinum fyrir
hann?
„Það er ekki hægt að líkja því
saman hvað er stærsta augnablikið
- að ganga um á skíðum til að vinna
til Olympíuverðlauna, eða þá gleði
og frelsi sem brýst út hjá manni á
ferð út í ósnortinni nátúrunni, eða
þegar maður stendur efst uppi á
fjallstoppi. Það eru margar stór-
kostlegar stundir sem lífið getur
boðið upp á,“ sagði Ulvang.
Maður náttúrunnar
Ulvang er mikill náttúrudýrkandi
og skíðaganga er hans starf, sem
£j hann lifir af. Hann hefur haft sitt
lifibrauð af skíðagöngu síðan hann
lauk námi í stærðfræði við háskól-
■ ann í Ósló fyrir fimm árum. Hann
9 er maður ævintýranna, sem á heima
í Kirkjunesi í Finnmörk, aðeins
■ nokkra kílómetra frá landamærum
9 Rússlands. „Ég hef lifað úti í
náttúrunni allt mitt líf, þar sem ég
hef þroskast og fengið styrk minn
og þol.“
Vegard Ulvang fékk sína eld-
skírn sem skíðagöngumaður á stór-
móti á Ólympíuleikunum í Calgary
fyrir fjórum árum, en þá kom hann
fram í sviðsljósið og tryggði sér
bronsverðlaun í 30 km göngu. Þá
hefur hann unnið til silfur- og
bronsverðlauna á heimsmeistara-
móti. Frá því að hann fékk brons-
verðlaun í 4x10 km boðgöngu á
HM í Val di Fiemme í fyrra, hefur
hann ekki unnið til verðlauna á stór-
a mótum. „Ég héf beðið lengi eftir
'W þessari stundu og ég veit að það
voru margir sem áttu sér þá ósk
^ að ég myndi bera sigur úr býtum
W í 30 km göngunni,“ sagði Ulvang,
en þess má geta að geysileg gleði
^ braust út í Kirkjunesi í N-Noregi,
P þegar fréttirnar bárust að Ulvang
stæði uppi sem sigurvegari. Bæjar-
stjórinn lofaði honum góðum verð-
launum. Ekki var gleðin minni þeg-
ar Ulvang tryggði sér gull í 10 km
göngu, en þá var hann búinn að
vinna sér inn rúmlega þijár millj.
ísl. króna fyrir afrek sín í Albert-
ville. Þessi mikli ævintýramaður á
möguleika á að vinna sín þriðju
gullverðlaun í dag í 15 km göngu
og þau fjórðu í boðgöngu á þriðju-
dag, en Norðmenn eru taldir sigur-
stranglegastir. Síðan gæti hann
jafnvel unnið sín fimmtu gullverð-
laun í 50 km göngu.
P Norskar erfðavenjur
„Skíðaganga hefur gengið í arf
í Noregi. Ungir drengir og stúlkur
^ byija snemma að ganga á skíðum
og við fáum alltaf nýja og nýja
göngumenn í landsliðshópinn. Það
) er mjög dýrmætt að hafa sterkan
hóp á bak við sig. Einn á báti er
ekki hægt að gera mikið. Við erum
eins og stór fjölskylda og það er
hugsað vel um okkur í Noregi —
aðstaðan til skíðagöngu er mjög
góð og þá erum við svo heppnir að
hafa stóran hóp af góðum þjálfurum
og forustumönnum.“
Hveiju vill Ulvang þakka að
Norðmenn unnu þrefaldan sigur í
30 km göngunni í Albertville? „Frá
því í september höfum við æft í
ellefu vikur í tvö þúsund metra
hæð. Þetta hefðum við ekki getað
gert nema að hafa góða aðstöðu
og peninga, en til þess að ná ár-
angri þurfa menn að leggja hart
að sér og fá aðstöðu til að æfa sína
íþrótt."
Ástarsaga
Vegard Ulvang, sem er mikið
ljúfmenni, er eftirsóttur pipar-
sveinn. Hann er ávallt snyrtilegur
til fara og kemur vel fyrir. A dögun-
um mátti sjá ástarsögu um Ulvang
í ítölskum blöðum, sem sögðu að
hann væri með ítalskri konu — lang-
hlauparanum Manuelu di Centa.
„Ég elska ævintýri, en þetta ævin-
týri sem ítölsku blöðin hafa sagt
frá þekki ég ekki. Það er sannleikur
og ég veit ekki hvað þessi saga er
komin.“
Hvað segir Grænlandsfarinn,
fjallklifurkappinn og Ólympíumeist-
arinn um næstu áform sín eftir
keppnina í Albertville?
„Það er leyndarmál!"
STÓRFENGLEGASTA atriði
Ólympíuleikanna í Albertville
leit dagsins Ijós ■ sveitakeppni
í skíðastökki af 120 metra palli
í gær. Tony Nieminen frá Finn-
landi var hetja dagsins. 122
metra stökk hans sló allt annað
út til þessa og það tryggði
Finnum gullverðlaunin. Niem-
inen, sem er 16 ára og 259
daga gamall, komst þar með á
spjöld sögunnar sem yngsti
karlmaðurinn til að fá gullverð-
laun á Vetrarólympíuleikum.
Bandaríkjamaðurinn William
Fiske var deginum eidri, þegar
hann var í sigurliði fimmmenn-
ingssleðakeppninnar árið
1928.
Nieminen stökk næst síðastur í
keppninni og benti staða
Finna til að þeir yrðu í þriðja sæti,
en þeir voru 30 stigum á eftir Aust-
urríkismönnum. En skólastrákur-
inn, sem var langt frá sínu besta í
stökki af 90 metra palli s.l. sunnu-
dag og varð þá í þriðja sæti, hafði
fengið nóg af bronsi. Hann sveif
sem fuglinn fljúgandi og var ákaft
fagnað þegar hann Ioks lenti.
„Ég vissi ekki nákvæmlega hvað
ég þurfti að gera, en ég vissi að
Tvímenningssledakeppni karla
Mínútur
1. S. Krausse/JanBehrendt,Þýs...1:32.053
(46.060 sek./45.993)
2. Y. Mankel/T. Rudolph, Þýskal...1:32.239
(46.125/46.114)
3. H. Raffl/N. Huber, Italíu.1:32.298
(46.114/46.184)
4. I. Apostol/L Cepoi, Rúmeníu ....1:32.649
(46.315/46.334)
5. K. Brugger/W. Huber, Ítalíu.1:32.810
(46.447/46.363)
Liðakeppni í stökki (120 m pallur)
Stig
Ari-Pekka Nikkola.... ....116.5 m/108.5
Mika Laitinen 110.0/106.0
Risto Laakkonen 111.0/110.0
Toni Nieminen 123.0/1221^
642^^
Ileinz Kuttin 114.5/112.5
ErnstVettori 113.5/110.5
Martin Hollwarth 123.5/117.5
115.0/109.5
620.1
Tomas Goder 117.0/110.0
113.5/104.5
113.0/102.0
Jiri Parma 118.5/115.5
4. Japan 571.0
5. Þýskaland 544.6
6. Slóvenía 543.3
Toni Nieminen í sigurstökki sínu.
stökkið yrði að vera mjög langt,“
sagði Finninn ungi. „Ég er í skýjun-
um. Ég átti ekki von á þessu. Því
síður að ég yrði yngsti gullverð-
launahafi karla á Vetrarólympíu-
leikum. Þetta er stórkostlegt."
Austurríkismaðurinn Andreas
Felder stökk síðastur, en hann náði
aðeins 109,5 metra stökki og Finn-
Reuter
Vegang Ulvang með gullpeningana tvo, sem hann hefur tryggt sér í Albert-
ville. Hann getur unnið sín þriðju gullverðlaun í dag í 15 km göngunni. Á
kortinu til hliðar má sjá hvar Kirkjunes er í N-Noregi.
Gleymdist að skrá
í 50 km gönguna?
Göngumennirnir Rögnvaldur Ing-
þórsson og Haukur Eiríksson,
voru ekki skráðir i 50 km gönguna
eins og þeir höfðu gert ráð fyrir.
„Við stóðum alltaf í þeirri meiningu
að við tækjum þátt í 50 km
göngunnui og vorum því afar óán-
ægðir er við fréttum að við hefðum
ekki verið skráðir,“ sagði Haukur.
Hann sagði að þeir væru að kanna
hvort ekki væri hægt- að koma þeim
inn í 50 km göngun.
ÚRSLIT
ÓL í Albertville
3 x 7,5 km skiðaskotfimi
Klukkustundir
SSL stendur fyrir Samveldi sjálfstæðra lýð-
velda.
1. Frakkland.................1:15:55.6
(Corinne Niogret/Veronique Claud-
el/Anne Briand)
2. Þýskaland................1:16:18.4
(Uschi Disl/Antje Misersky/Petra
Schaaf)
3. SSL......................1:16:54.6
(Elena Belova/Anfissa Restzova/Elena
Melnikova)
4. Búlgana...................1:18:54ÍB
5. Finnland..................1:20:17.8
Reuter
land sigraði með 1,5 stiga mun.
„Það var ekki auðvelt að stökkva
strax á eftir risastökki Nieminens,"
sagði Felder.
Nieminen sagði að þetta gæfi sér
byr undir báða vængi fyrir stökk-
keppni einstaklinga á morgun og
að sjálfsögðu væri stefnan sett á
gullið.
1.000 m skautahiaup kvenna
Mínútur
1. Bonnie Blair (Bandaríkjunum).1:21.90
2. Ye Qiaobo (Kína).............1:21.92
3. Monique Garbrecht (Þýskal.).1:22.
Íshokkí, B-riðill
SSL - Frakkland.....................8:0
Andrej Khomutov 2, Vitaly Prokhorov, Ni-
kolaj Borstsjevsky, Dmitri Mironov, Yevg-
eny Davydov, Alexej Zhitnik, Andrej Kova-
lenko -.
Sviss - Noregur....................6:3
Patriek Howald, Andreas Beutler, Jorg
Eberle, Gil Montandon, Keith Fair - Carl
Gunnar Anderson, Tom Johansen, Eirite- -
Paulsen.
Kanada - Tékkóslóvakí..............5:1
Joe Juneau 2, David Archibald 2, Dave
Hannen - Kamil Kastak.
KIRKENES
er í Finnnmörku nyrst í
Noregi við landam:
Finnlands og
Rússlands.
Toni Nieminen er
skærasta stjarnan
OLYMPIULEIKARNIR I ALBERTVILLE
Ævintýra-
; madurinn
HANN hefur fetað ífótspor Friðþjófs Nansens og gengið 560
km yfir Grænlandsjökul. Þá hefur hann klifið Mont Blanc og einn-
ig hæsta fjall Norður-Ameríku, Mount McKinley. Hann hefur siglt
á húðkeip niður straumhörð fljót, dvalist langtímum saman úti
f óbyggðum og haft aðsetur ífjallakofa, þar sem hann lifði á
dýrum sem hann hefur skotið sjálfurtil matar, og fiski sem hann
renndi fyrir. Hann er maðurinn sem kann best við sig langtfrá
stressi stórborganna. Manninum sem hér er lýst — maður náttúr-
unnar, er 28 ára, Vegard Uivang; viðmótsþýður og glaðlegur
Norðmaður, sem hefur komið, séð og sigrað á Ólympíuleikunum
í Albertville, þar sem hann hefurtryggt sér gullverðlaun við
aðstæður sem hann kann best við — uppi í hinu 1.604 metra
háa Les Saisies-fjalli í Frakklandi.