Morgunblaðið - 22.08.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22; ÁGÚST .1992
Leitað skjóls í þriðju loftárásinni.
samt var hlutskipti okkar svo ólíkt.
Nokkrir þeirra báðu bænimar áður
en þeir fóru að sofa og ég hugsaði
að vafalaust væru Serbamir hinu-
megin víglínunnar að biðja tii sama
Guðs, sömu bænina á sama tíma.
Um morguninn vaknaði ég við
sprengingar og læti en allar vora
þær samt hinumegin árinnar. Ég
fór og vakti hina piltana og við
lögðum af stað yfír brúna til Bos-
onski Brod. Þegar þangað kom var
eins og að koma í draugaborg fyrst
um sinn því þama höfðu verið stór-
ar flóttamannabúðir en þær höfðu
að mestu verið tæmdar. Eftir stóðu
tómir kofar, rústir húsa og rasla-
haugar þar sem við rotturnar
grömsuðum og fundum mikið
magn júgóslavneskra peninga og
frímerkja sem við hirtum. Síðan
göngum við inneftir og skoðum
sundurskotinn skóla og önnur illa
útleikin mannvirki þar til við eram
stöðvaðir af múslímum sem vilja
tala við okkur. Þeir draga okkur
inn á heimili sitt, sem er húsarúst-
ir einar. Eldri mennimir sitja að
spilum við borð í horninu og hinir
yngri koma og segja okkur hörm-
ungarsögu sína. Verslunarskóla-
þýska mín kom á óvart og ég þýddi
fyrir félaga mína það sem múslím-
amir sögðu. Mitt í samræðunum
við þá bytja sprengingar og fólk
kemur flýjandi af götunni inn til
okkar. Ég hleyp út til að taka
myndir en hleyp síðan inn í skjólið
þegar kassettusprengja springur
beint fyrir ofan mig. Þegar ég kem
inn segir Mahid (ungi maðurinn
sem hafði orð fyrir múslímunum)
að ég sé mjög hugrakkur, en þá
muldrar annar múslími eitthvað
og að sögn Mahids var hann að
okkar lágu aftur saman þegar ég
fluttist til Reykjavíkur. Þá sem fyrr
mætti ég alltaf sama hlýja viðmót-
inu.
Jón var einn af stofnendum Súg-
firðingafélagsins í Reykjavík og
endurskoðandi reikninga þess í 40
ár, þá baðst hann undan endurkosn-
ingu enda þá orðinn 98 ára. Hann
er heiðursfélagi þess. Jón hefur
mikið gaman af að spila brids og
bíður eftir að spilamennska hefjist
í september næstkomandi. Þegar
Jón var spurður 85 ára gamall hvort
hann synti ennþá daglega, svaraði
hann, já en ég syndi bara 200 metra
á dag, 95 ára gamlan spurði ég
hann hins sama og svarið var, nei
ég nenni ekki í sund nema annan-
hvem dag. Nú er Jón hættur að
stunda þessa íþrótt. í ásýnd lítur
Jón ekki út fyrir að bera svo háan
aldur, gengur teinréttur, hugsunin
skýr en minnið lítilsháttar farið að
förlast.
Kæri vinur, ég lýk þessum línum
með innilegum hamingjuóskum til
þín og þinna.
Arni Örnólfsson.
segja að ég væri ekki hugrakkur
heldur heimskur. Sá hinn sami var
múslími um sextugt sem hafði ver-
ið vel efnaður og átt konu og dótt-
ur sem höfðu verið drepnar fyrir
augum hans. Eftir þijár árásir
hverfa flugvélarnar á brott og þá
fyrst fara sírenurnar í gang til að
vara við árásinni. Ekkert af þessu
truflar spilamennsku þeirra í hom-
inu þó sumar sprengjurnar kæmu
ansi nærri. Við spjöllum lítillega
saman og einn múslímapiltur segir
mér frá því að besti vinur hans
hafí verið á ferð yfír brúna þegar
ein árásin var gerð og hann var
sprengdur í tætlur. Ég kann hon-
um engar þakkir fyrir frásögnina
því hann veit að ég á eftir að fara
yfír brúna aftur. Við göngum lítið
um í viðbót, eram sammála um
að hraða okkur yfír brúna. Eftir
stuttan rúnt inn í miðbæinn leggj-
um við af stað aftur yfír ána. Þeg-
ar við eram nýkomnir á brúna
byija loftvamaflauturnar að væla
bara til þess að níðast á tauga-
kerfí okkar því engar vélar komu
né sprengingar. Þegar yfír var
komið og við vorum komnir dágóð-
an spöl frá brúnni gat ég ekki
annað en verið slíkur fréttasnápur
að nýta mér tréð sem fylgsni og
taka mynd af brúnni sem var harð-
bannað. Við gengum síðan um Sla-
vonski Brod í nokkra klukkutíma
en ég kvaddi þá síðan og tók lest-
ina aftur til Zagrebs. Var kominn
þangað seint um kvöld og þar sem
ég hafði engan náttstað lagði ég
bara af stað til Vínar. Ég taldi
best að fara í gegnum Slóveníu
og tók því strætisvagn út í enda
borgarinnar. Þar kynntist ég Kró-
ata sem talaði við strætisvagnabíl-
stjórann og bað hann að fara úr
leið til að ég kæmist að landamær-
unum. Það var auðsótt mál og
brátt var ég kominn yfír landa-
mærin til Slóveníu þar sem ég
gekk inn á krá og var umsvifa-
laust drifinn inn í söng, dans og
bjórdrykkju þar til staðnum var
lokað. Þá gengur einn gestanna
með mig heim til sín þar sem hann
sækir bílinn sinn og keyrir mig út
á aðalveginn til Ljubljana (höfuð-
borgar Slóveníu). Þar eyði ég
dijúgum tíma í að reyna að húkka
bíl um miðja nótt þar til loksins
stoppar einn. Ég segi Ljubljana og
hann segir já og síðan sest ég upp
í bílinn og sofna í farþegasætinu.
í svefnrofunum sé ég að við keyr-
um framhjá Ljubljana en ég er of
þreyttur til að láta mig það nokkra
skipta. Loks stoppar hann og ba-
blar eitthvað á slóvensku og bend-
ir á nöfn á einhveijum borgum sem
ég kannast ekkert við. Þrátt fyrir
tungumálaörðugleika skilst mér að
hann vilji að ég fari út hér og það
geri ég. Hann hafði blessunarlega
farið eitthvað norður fyrir Ljublj-
ana og ég fann veg sem lá til
Austurríkis og síðan tók hver bfll-
inn Við af öðram þar til ég var
banhungraður kominn til Vínar að
kvöldi þessa dags.
Höfundur er háskólanemi.
PHOENIX
n a m s
i ð
,ViIjir þú öðlast allt sem er mögulegt, ber þér að
sækjast eftir hinu ómögulegau.
Nýjasta námskeið Stjórnunarfélagsins -
ætlað stjórnendum - starfsmönnum - fjölskyldufólki og einstaklingum, sem
vilja tileinka sér aðferðir til þess að ná hámarksárangri í starfi og einkalífi.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum
Brian Tracy, myndböndum á
ensku, vinnubók og umræðum.
Hljóðsnældur til upprifjunar á
öllu námsefni fylgja.
PHOENIX fjallar um: Leiðir til árangurs á öllum
sviðum lífs þíns, samband sjálfstæðis og
ábyrgðar, ógnir neikvæðra hugsana, útrýmingu
sektarkenndar og streitu, æskilegt hugarfæði ,
hraðnámstækni, markmiðasetningu og
hagnýtustu aðferðir til þess að ná markmiðum,
mikilvægi tímastjórnunar, áhrif hugsana á
veikindi, leiðir til betri samskipta við fólk og leiðir
til þess að börnin þín verði hæfari einstaklingar.
Tími næstu námskeiða:
27., 28., 29. ágúst
10., 11., 12. september
24., 25., 26. september
15., 16., 17. október
29., 30., 31. október
12., 13., 14. nóvember
26., 27., 28. nóvember
PHOENIX námskeiðið er meðal bestu námskeiða sem ég hef sótt. Á því lærir hver og
einn jákvæða sjálfsgagnrýni og að meta sjálfan sig og aðra að verðleikum. Þetta námskeið
er fyrir alla sem þora að skoða hlutina eins og þeir eru í raunveruleikanum og vilja finna
bestu hugsanlegu leið til að auka lifsánægju i starfi og leik. Námsgögnin sem fylgja tryggja
áframhaldandi nám og tryggja betri árangur en ég hef áður kynnst’.
Friþjófur Ó. Johnson, O.Johnson & Kaaber.
Mér er það sönn ánægja, að gefa PHOENIX námskeiðinu mín þestu meðmæli. Kenningar
Brian Tracy eru mjög athyglisverðar og aðferðir hans öflugar. Ég hef tileinkað mér margt af
því sem ég lærði á námskeiðinu og hefur það reynst mér ótrúlega vel, jafnt í einkalífi sem
og í starfi mínu. Námsgögnin eru fyrsta flokks og hafa gert mér kleift að hakfa áfram að
læra og tileinka mér allt það besta eftir að námskeiðinu lauk’.
Ólafur Vigfússon, Hagkaup
Námskeiðið er eitt það besta sem ég hef farið
á. Brian Tracy miðlar boðskap sínum á
einfaldan og áhrifarikan hátt og skilur eftir
hugmyndir og ábendingar sem allir geta nýtt
sér í vinnu jafnt sem einkalífi. Mjög gott
námskeið.
Þórður Sverrisson, forstöðumaður
markaósdeildar íslandsbanka.
INNRITUN HAFIN!
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15, sími 621066
Nánari upplýsingar um námskeidid fást hjá Stjórnunarfélagi Islands i sima 62 1066