Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992
Fjórir laumufarþegar um borð í Laxfossi
Vildu komast áfram
vestur til Kanada
LAUMUFARÞEGARNIR fjórir sem gáfu sig fram un. borð í Lax-
fossi sl. sunnudag höfðu hafst við á millidekki skipsins á fimm daga
siglingu þess milli Belgíu, Hollands, Englands og Islands. Þeir höfðu
gert sér þar bæli ofan á kapalrúllum. Þeir komu um borð í skipið
í Antwerpen í Belgíu og höfðu hug á að komast til Kanada. Þar sem
ekkert kanadískt skip var í höfninni í Antwerpen ákváðu þeir að
fara til íslands með von um að komast þaðan til Kanada.
Mennimir kváðust hafa starfað
í þýsku borgunum Niirnberg og
Ehrlange í 2-3 ár. Emn þeirra
hafði þó verið skemur í Þýskalandi.
Þeim var vísað úr landi og fóm þá
vegabréfslausir til Belgíu. Þar vora
þeir handteknir við landamærin og
sátu í fangelsi í 30 daga. Sex dög-
um síðar, aðfaranótt sl. miðviku-
dags, kváðust þeir hafa laumast um
borð í Laxfoss. Eftir fimm daga
vist við kapalrúllur á millidekki
skipsins með litlar vistir, gáfu þeir
sig síðan fram um kl. 16 sl. sunnu-
dag. Tveir þeirra höfðu þjáðst af
sjóveiki allan tímann.
' „Við voram hungraðir og kaldir.
Við höfðum aðeins einn lítra hver
af vatni og örlítið brauð. Það var
kait og ekkert eftir af mat svo við
gáfum okkur fram. Okkur var gefið
að borða og við fengum að þvo
okkur. Allir vora mjög vingjamlegir
við okkur. íslendingar eru ekki
kaldlyndir eins og Þjóðveijar,“
sagði Marton Zoltali, 27 ára, sem
hafði orð fyrir þeim félögum.
Dey frekar hér en að fara aftur
til Evrópu
„Það verður einhver að hjálpa
okkur. Ég fleygi mér frekar í sjóinn
og dey hér en að fara aftur til
Evrópu, því þaðan verð ég sendur
aftur til Rúmeníu. Þar eru vanda-
málin svo geigvænleg. Ég var of-
sóttur í Rúmeníu af pólitískum
ástæðum og þjóðernisástæðum. Ég
fæddist í Rúmeníu en foreldrar
mínir era Ungveijar og ég tala
ungversku," sagði Zoltali.
Hann sagði að þeim félögum
hefði verið tjáð að þeir gætu verið
á íslandi án þess að hafa vegabréf.
„Rúmenskur maður sagði mér að
hér gætum við sett okkur í sam-
band við kanadíska sendiráðið og
að sendiherrann gæti aðstoðað okk-
ur,“ sagði Zoltali. Þess má geta að
Kanada hefur ekki sendiráð á ís-
landi heldur ræðismann.
Við erum ekki nógu góðir fyrir
Evrópu
„Ég skil ekki hvers vegna við
getum ekki verið hér á íslandi. Við
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 25. JULI
YFIRLIT: Um 500 km suður af landinu er víðáttumikil 989 mb lægð sem
þokast austur en heldur vaxandi 1.025 mb hæð yfir Grænlandi.
SPÁ: Norðan- og norðaustan kaldi eða stinningskaldi norðan og vestan-
lands, en hægari vindur austanlands. Þokusúld við norðurströndina og
rigning eða súld austanlands, en skýjað með köflum í Öðrum landshlut-
um. Hiti 7-12 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðanátt og smám sam-
an kólnandi veður. Súld með köflum norðan- og austanlands en bjart-
víðri sunnan- og vestanlands.
Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
Skýjaö
r r r * / *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjaö
v ^ y
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstetnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
4ig.|
4
FÆRÐA VEGUM: m. u.so.-gær)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Vegna skemmda verður
brúin á Jökulsá á Dal, við Brú á Efri-Jökuldal, lokuð bílaumferð um ófyrir-
sjáanlegan tíma. Brú yfir Norðfjárðará hefur nú verið opnuð fyrir umferð
smærri bíla en stórum bílum er fært á vaði. Fjallabílum er fært um flest-
ar leiðir á hálendinu. Athygli má þó vekja á því að vegur um sunnanverð-
an Sprengisand er orðinn mjög grófur og seinlegur yfirferðar. Ferðalang-
ar eru hvattir til þess að leita sér nánari upplýsinga um færð áður en
lagt er af stað í langferð til þess að forðast tafir vegna framkvæmda.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri 10 akýjað
Reykjavik_______12 skýjað
Bergen 14 skýjað
Helsinki 13 rigníning
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Narssarssuaq 8 léttskýjað
Nuuk vantar
Óaló 18 akýjað
Stokkhólmur 17 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 33 skýjað
Amsterdam 18 skýjað
Barcelona 28 lénskýjað
Berlín 20 skúr
Chicago 21 þokumóða
Feneyjar 29 heiðskírt
Frankfurt 18 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 6 aisícýjað
London 17 skýjað
LosAngeles 18 þokumóða
Lúxemborg 17 súld
Madrid 33 heiðskírt
Malaga 31 léttskýjað léttskýjað
Maliorca 32
Montreal 18 léttskýjað
NewYork 22 mlstur
Oriando vantar
Parfs 23 skýjað
Madeira vantar
Rém 28 heiðskírt
Vín 26 skýjað
Washington 19 þokumóða
Winnipeg 9 súld
IDAG kl. 12.00
Helmlld: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gœr)
Laumufarþeg-
arnir um borð í
Laxfossi, frá
hægri: Craciun
Marin, 39 ára,
Marton Zoltali,
27 ára, Isfali
Nicolae, 25 ára
og Lomotó
Adrioin, 24ára.
Morgunblaðið/Kristinn
Þarna höfðust laumufarþegarnir við á fimm
daga siglingu frá Belgíu til íslands.
eram heiðvirðir menn. Við viljum
aðeins vinna og vera fijálsir."
Zoltali sagði að þeir félagar hefðu
allir, að einum undanskildum, haft
vegabréf í Þýskalandi en þau hefðu
verið í vörslu þýsku lögreglunnar.
Hann sagði að lögreglan hefði neit-
að að afhenda það og skipað honum
að fara úr landi. Isfali Nicolae, 25
ára, kvaðst hafa týnt sínu vega-
bréfi á landamærum Rúmeníu og
Ungveijalands. Craciun Marin, 39
ára, á eiginkonu og fjölskyldu í
Rúmeníu sem hann hefur ekki séð
í þijú ár. Hann kvaðst þó síst af
öllu vilja snúa aftur til föðurlands-
ins.
Zoltali sagði að venjulega öðluð-
ust menn réttindi til að dvelja áfram
í löndum Evrópu eftir svo langa
veru, en í Þýskalandi hafi þeim
verið tjáð að nú yrðu þeir að snúa
aftur til Rúmeníu. „Svo margt ungt
fólk í Þýskalandi, Frakklandi og
Belgíu vill' ekki vinna og stundar
drykkju og svall. Þetta fólk er nógu
gott fyrir Evrópu en það eram við
ekki.“
Laumufarþegarnir
áftur ta Antwerpen
Allar hafnir Evrópu fullar af flóttamönnum
ALLT bendir til þess að Rúmenarnir fjórir, sem gerðust laumufarþeg-
ar um borð í Laxfossi, verði fluttir aftur til Antwerpen. Þó verður
þeim gefinn kostur á að afla sér upplýsinga hjá kanadíska konsúlat-
inu hér á landi, en þeir hugðust sækja um landvistarleyfi í Kanada.
Engilbert Engilbertsson skipsljóri á Laxfossi segir að allar hafnir í
Evrópu séu fullar af flóttamönnum.
Jóhann Jóhannssori hjá Útlend-
ingaeftirlitinu sagði að laumufar-
þegamir yrðu væntanlega fluttir
aftur til Antwerpen með Laxfossi.
„Það er venjan allstaðar að laumu-
farþegum er synjað um landgöngu.
Við ætlum að gefa þeim tækifæri
til að nálgast einhveijar upplýs-
ingar og verðum þeim innan handar
með það, því það vakti fyrir þeim,“
sagði Jóhann.
Hann sagði að mennimir hefðu
verið vegabréfslausir, en með gögn
sem sýndu dvöl þeirra í Belgíu.
Hann kvaðst því ekki telja að belg-
ísk stjórnvöld myndu neita að taka
við mönnunum. „Þeir era ekki
komnir inn í neitt annað land og
þar með er viðtökuskylda ennþá á
Belgum," sagði Jóhann. Mennirnir
fóra ólöglega inn í Belgíu frá Þýska-
landi og kvaðst Jóhann ekki telja
það breyta neinu gagnvart íslensk-
um stjómvöldum. Belgísk stjórn-
völd gætu hins vegar átt kröfu
gagnvart einhveijum öðrum aðila.
Engilbert Engilbertsson, skip-
stjóri á Laxfossi, sagði að Éimskip
væri ábyrgt fyrir því að flytja menn-
ina aftur til þess staðar þar sem
þeir komu um borð í Laxfoss, þ.e.
Antwerpen. „Við fóram í gegnum
tvö lönd önnur, Holland og Eng-
land, í millitíðinni. Hvað ef Belgar
segja að þeir hafi ekki komið um
borð í skipið í Antwerpen? Þeir
geta háldið því fram. Við vitum
ekkert hvemig framhaldið verður.
Þeir vora þó með einhveija pappíra
sem sanna að þeir vora í Belgíu,“
sagði Engilbert.
„Þeir sögðu mér í gær [fyrradag]
að þeir hefðu ætlað með kanadísku
skipi. Rúmenarnir lásu skipaskrá
sem segir til um komur skipa til
hafna. Þeir höfðu misst af kana-
dísku skipi, en vita það þó að ísland
er nær Kanada en Belgía. Mennirn-
ir vildu komast áleiðis og hafa þá
trú að þeir komist til Kanada,“ sagði
Engilbert.
Hann sagði að mennirnir væru í
gæslu um borð í skipinu og hann
væri ábyrgur fyrir þeim. Hann hef-
ur verið skipstjóri á Laxfossi í eitt
ár, en starfað hjá Eimskip í 35 ár.
Harm hefur ekki áður lent í því að
hafa laumufarþega um borð í sínu
skipi. „Allar hafnir í Evrópu, sér-
staklega í Antwerpen, era fullar af
svona fólki. Ef við tækjum á þessu
máli með einhverri linkind og það
spyrðist út þá myndi þetta fólk
flæða yfir okkur,“ sagði Engilbert.
-----» ♦ ♦----
Skagstrend-
ingur á verð-
bréfaþingið
HLUTABRÉF Skagstrendings hf
voru skráð á Verðbréfaþingi ís-
lands a föstudag og hefur skráð-
um hlutafélögum á þinginu því
fjölgað úr 2 í 10 á þessu ári.
Skagstrendingur er fyrsta sjáv-
arútvegsfyrirtækið, sem skráð
er á Verðbréfaþingi.
Önnur hlutafélög sem skráð era
á Verðbréfaþingi íslands eru: Auð-
lind, Flugleiðir, Hlutabréfasjóður
VIB, Islenski hlutabréfasjóðurinn,
Olíuverslun íslands, Fjárfestingar-
félag Islands, Eimskipafélag ís-
lands, Hlutabréfasjóðurinn og Mar-
el.